Morgunblaðið - 21.09.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018
Forkólfar verkalýðshreyfing-arinnar, með stuðning um það
bil tíunda hvers félagsmanns á bak
við sig, fara nú mikinn í umræðum
um kjaramál í aðdraganda kjara-
samninga.
Þeir horfa alfariðframhjá að-
stæðum í atvinnulífinu
og halda því fram að
mikið svigrúm sé til
launahækkana.
Þó ætti þeim aðvera ljóst að svig-
rúmið til launahækk-
ana er svo að segja
ekkert og jafnvel minna en það,
eins og umræður hafa sýnt og
þrýstingur víða á hagræðingu og
jafnvel uppsagnir.
Ólíkt forkólfunum í verkalýðs-hreyfingunni skilur almenn-
ingur vel að miklar launahækkanir
nú væru hættuspil. Í könnun sem
Gallup gerði nýlega fyrir Samtök
atvinnulífsins má sjá að mun fleiri
vilja að í komandi kjarasamningum
verði lögð áhersla á að stuðla að
lágri verðbólgu með hófstilltum
launahækkunum en að hækka laun
verulega.
Forkólfarnir, sem láta eins ogþeir tali í nafni almennings,
hljóta að þurfa að taka tillit til sjón-
armiða almennra launamanna en
ekki aðeins sjálfra sín og lítils en
háværs hóps stuðningsmanna
sinna.
Þeir voru ekki kosnir (af tíundahverjum félagsmanni) til að
valda hér kollsteypum með óábyrg-
um málflutningi.
Lýðræðishallinn í verkalýðs-hreyfingunni er áhyggjuefni,
en hann má ekki verða þjóðarmein.
Talað í umboði
tíunda hvers
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Thomas Møller Olsen, sem dæmd-
ur var í nítján ára fangelsi fyrir að
hafa myrt Birnu Brjánsdóttur 14.
janúar í fyrra og stórfellt fíkni-
efnabrot, mun mæta í skýrslutöku
við aðalmeðferð málsins fyrir
Landsrétti þegar það verður tekið
fyrir. Þá mun hann einnig máta
úlpu sem fannst blóðug um borð í
Polar Nanoq og ákæruvaldið telur
að hann hafi átt á þeim tíma sem
brotið átti sér stað. Þetta var með-
al þess sem kom fram í undirbún-
ingsþinghaldi við Landsrétt í gær.
Verjandi Thomasar fór fram á
að ný skýrsla yrði tekin af honum,
en gat þó ekki gert nákvæmlega
grein fyrir því hvað Thomas yrði
spurður út í. Sigríður J. Friðjóns-
dóttir, ríkissaksóknari og saksókn-
ari í málinu, gerði ekki at-
hugasemd við að Thomas kæmi
fyrir réttinn, en sagði að ákæru-
valdið myndi að öllu óbreyttu ekki
gera ráð fyrir að taka skýrslu af
honum.
Dómari málsins mun nú fara yfir
kröfur saksóknara og verjanda og
ákveða af hverjum skýrslur verða
teknar og hvað verði lagt fyrir
dóminn. Í kjölfarið verður ákveðin
dagsetning fyrir aðalmeðferð máls-
ins. Sagði dómarinn að líklega gæti
aðalmeðferðin tekið alla vega einn
dag, jafnvel lengri tíma.
thorsteinn@mbl.is
Mun gefa skýrslu á ný í Landsrétti
Undirbúningsþinghald í Landsrétti í gær vegna máls Thomasar Møller Olsen
Morgunblaðið/Eggert
Í héraðsdómi Thomas Møller Olsen
kemur brátt fyrir Landsrétt.
Makrílaflinn á vertíðinni er kominn
yfir 110 þúsund tonn en heildarkvóti
ársins er 146 þúsund tonn. Farið er að
síga á seinni hluta vertíðar og flestar
útgerðir uppsjávarskipa nálgast þau
mörk að mega flytja það sem er óveitt
af aflaheimildum yfir á næsta ár en
heimilt er að flytja 10% á milli ára.
Uppsjávarskipin hafa síðustu daga
verið austarlega í Síldarsmugunni,
nálægt norsku lögsögumörkunum.
Góður afli fékkst þar í fyrradag en í
gærmorgun voru skipin að leita.
Á heimasíðu Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað lýsir Hjörvar Hjálmars-
son, skipstjóri á Berki, makrílvertíð
sumarsins á eftirfarandi hátt: „Í
fyrsta lagi byrjuðum við veiðarnar
seinna en undanfarin ár og í öðru lagi
virðist hafa verið minna af makríl hér
við landið. Ástæða þess að makríllinn
stoppaði lítið við landið er án efa sú að
það var minna um átu hérna en verið
hefur undanfarin ár.
Veiðarnar þróuðust síðan þannig
að þær fóru að miklu leyti fram í Síld-
arsmugunni en veiðin var misjöfn frá
einum tíma til annars. Stundum gekk
vel að veiða en stundum þurfti líka að
leita töluvert að fiskinum sem gat ver-
ið tímafrekt.“
Smátt og smátt hefur dregið úr
makrílveiði smábáta við Keflavík,
Snæfellsnes og í Steingrímsfirði.
Enginn afli hefur borist á land síðustu
vikuna. Alls hafa smábátar landað
3.752 tonnum í ár sem er þúsund
tonnum minni afli en á sama tíma í
fyrra.
Stór og falleg síld
Í vikunni byrjaði Bjarni Ólafsson
AK á veiðum á norsk-íslenskri síld
fyrir austan land. Skipið kom til Nes-
kaupstaðar með 460 tonn af síld í
fyrradag. Aflinn fékkst í tveimur hol-
um í Seyðisfjarðardýpi og segir Gísli
Runólfsson skipstjóri í samtali á
heimasíðu Síldarvinnslunnar að síldin
hafi verið stór og falleg. Á landleiðinni
hafi þeir séð töluvert af síld 6-8 mílur
út af Norðfjarðarhorni.
aij@mbl.is
Líður að lokum
makrílvertíðar
Bjarni Ólafsson AK byrjaður á síld
Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
Bjarni Ólafsson AK Fékk góða síld í
Seyðisfjarðardýpi í vikunni.
PEYSA
10.995.-
Glæsilegur
Haust
fatnaður
Kringlunni 4c – Sími 568 4900