Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Margrét drottning Danmerkur hefur látið skrifa upp einkadagbækur afa síns, Kristjáns Dana- konungs X., um Ísland, Íslendinga og íslensk málefni og færir forseta Íslands, Guðna Th. Jó- hannessyni, prentaða útgáfu þeirra að gjöf þeg- ar hún kemur hingað í heimsókn á aldarafmæli fullveldisins 1. desember. Kristján X. ríkti á ár- unum 1912 til 1947 og var því konungur Íslands og Danmerkur þegar sambandslögin voru sett 1918. Greint var frá því fyrir þremur árum, haustið 2015, að Sögufélagið ætlaði að gefa út hluta af þessum dagbókarfærslum konungs með skýr- ingum Borgþórs S. Kjærnesteds, en af þeirri út- gáfu hefur enn ekki orðið. Borgþór hafði fengið leyfi drottningar til að skrifa upp úr dagbók- unum kafla en ekki að gefa þær út í heild. Dagbækur Kristjáns X. sem varða Ísland eru varðveittar í einkasafni drottningar og er að- gangur að því ekki heimill án hennar samþykkis. Dagbækurnar eru samtals um 500 þéttskrifaðar blaðsíður í stílabókum og varða samskiptin við Íslendinga á árunum frá 1908 og fram til 1932. Hafði konungur þann hátt á að endursegja í dagbókunum alla fundi sem hann átti og hnýta við athugasemdum um viðmælendur sína og efni fundanna. Mjög persónulegur í skrifunum Fram kemur í viðtali við Borgþór í Morgun- blaðinu í nóvember 2015 að konungur sé mjög persónulegur í þessum færslum og glöggt sjáist á rithönd hans þegar hann sé í uppnámi yfir ein- hverjum málefnum eða skoðanaskiptum. Kristján X. var enn krónprins þegar dagbæk- urnar byrja og hafði þá aldrei til Íslands komið, en faðir hans, Friðrik VIII., var hér í frægri heimsókn 1907 og afi hans, Kristján IX., kom á þjóðhátíðina 1874. Borgþór segir í áðurnefndu viðtali að Kristján hafi verið ákaflega stífur maður og formfastur, afar ólíkur föður sínum. En hann hafi verið frjálslyndur í stjórnmálaskoðunum og líkað vel við jafnaðarmannaleiðtogann Stauning. Hann hafi oft verið mjög ósáttur við framgöngu og við- horf Íslendinga, jafnt almennings sem stjórn- málaforingja, og komi það glöggt fram í dagbók- unum. Þegar Íslendingar krefjast jafnréttis á við Dani í ríkinu spyr hann hvort þeir séu að biðja um að forréttindi þeirra, svo sem til náms og uppihalds í Kaupmannahafnarháskóla og undanþágu frá herskyldu, verði afnumin. Kraf- an um sérfána vakti gremju hans. Hann komst í mikið uppnám þegar múgur manns hrópaði „niður með konungsvaldið!“ í þingrofinu 1931. „Þá ætlaði hann bara að fara með póstskipinu til Reykjavíkur til að bera klæði á vopnin og sætta stjórnmálaöflin,“ segir Borgþór. Sjálfstæð- ismenn hafi skotið það í kaf með því að segja að fyrst yrði hann að draga þingrofið til baka. „Það gat hann ekki sem þingbundinn konungur, það var verkefni forsætisráðherrans Tryggva Þór- hallssonar. Stauning forsætisráðherra ráðlagði konungi þá að vera bara í Kaupmannahöfn og láta Íslendinga sjá um sitt rifrildi upp á eigin spýtur.“ Dagbækurnar byrja 1908 þegar Kristján var enn krónprins. Þegar Íslendingar felldu í þing- kosningunum það ár Uppkastið svonefnda, til- lögur um samband landanna, reiddist hann heiftarlega fyrir hönd föður síns. Hann skrifaði: „Eins og stendur virðist eina meðalið sem dugir vera eftirfarandi: Að senda skip þangað norður eftir, rjúfa skeyta- og símasamband, eyðileggja blaðaprentsmiðjur, brenna alla bláa fána, taka óróaseggina fasta og færa þá um borð í skip og flytja þá hingað tafarlaust. Hér mætti koma þeim fyrir á heilsuhælum fyrir máttfarna tauga- sjúklinga og menn sem hafa ofreynt sig vits- munalega! Fjármunina sem verja átti í ræðis- skrifstofur væri við hæfi að nota til að greiða fyrir meðferðina. Allt myndi þetta fara fram með ró og spekt – og yrði eingöngu gert í mann- úðarskyni: til að stuðla að bættum skilningi milli Danmerkur og Íslands.“ Viðbrögð við atvikum á Íslandi Meðal þess sem dagbækurnur geyma eru við- brögð Kristjáns X. við óróanum hér á landi í tengslum við kröfuna um íslenskan sérfána. Sjá má að konungur reiddist framkomu Íslendinga þegar þeir fóru að halda bláhvíta fánanum á lofti. Allt fór úr böndum hér heima þegar skip- stjóri á dönsku varðskipi gerði slíkan fána upp- tækan í Reykjavíkurhöfn sumarið 1913. Múgæs- ingar urðu og danski fáninn var víða rifinn niður. Þetta frétti konungur og lét sér þá koma til hugar að senda herskip hingað til að skakka leikinn. Faðir hans hafði í lok Íslands- heimsóknar 1907 undirritað tilskipun um að Dannebrog skyldi vera eini ríkisfáninn á Íslandi. Hún var aðeins til í einu handriti og tókst ís- lenslu stjórnarskrifstofunni í Kaupmannahöfn að „týna“ henni, konungi til mikillar gremju. Hann fyrirgaf aldrei Hannesi Hafstein, þegar ráðherrann sneri sér beint til Georgs Grikkja- konungs, föðurbróður Kristjáns, og spurði hvort honum væri sama þótt Íslendingar notuðu blá- hvítan krossfána, líkan gríska konungsfánanum. Sú útgáfa dagbókanna sem Margrét drottn- ing kemur með til Íslands er á dönsku, en fyr- irhuguð útgáfa Sögufélagsins var íslensk þýð- ing. Dagbækur Kristjáns X. gefnar út  Margrét Danadrottning hefur látið skrifa upp dagbækur afa síns, Kristjáns X., um íslensk málefni  Kemur með þær í útgefinni bók í heimsókn hingað til lands á fullveldisafmælinu 1. desember Ljósmynd/Ólafur Magnússon/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Konungur Kristján X. með fjölskyldu sinni á tröppum konungsbústaðarins á Þingvöllum 28. júní 1921. Hann var þá í fyrstu opinberu heimsókn sinni til Íslands. F.v. Alexandrína drottning, Kristján X., ónafngreind, Knútur prins og Friðrik krónprins, síðar Friðrik IX., faðir Margrétar drottningar. Flugfreyjufélag Íslands heldur opinn fund með félagsmönnum sínum í hádeginu í dag vegna að- gerða Icelandair í starfsmanna- málum. Félagið hefur tilkynnt flugfreyjum og flugþjónum í hlutastarfi að annaðhvort ráði þau sig í fulla vinnu eða láti af störfum um áramótin. „Fólk er bara í áfalli. Því finnst þessar aðgerðir ganga töluvert lengra en góðu hófi gegnir,“ seg- ir Berglind Hafsteinsdóttir, for- maður Flugfreyjufélags Íslands, um viðbrögð félagsmanna sinna við þessum tíðindum. Berglind segir ákvörðun Ice- landair um að setja flugfreyjum og flugþjónum afarkosti hafa gíf- urleg áhrif á starfsmenn. Um sé að ræða alvarlegar þvingunar- aðgerðir af hálfu Icelandair. Und- irbúningur er hafinn að því að stefna málinu til Félagsdóms enda segir Berglind að Icelandair sé að brjóta gegn kjarasamningi. Bogi Nils Bogason, starfandi forstjóri Icelandair Group, segir að félagið sé ekki að brjóta gegn kjarasamningum með aðgerð- unum og að um nauðsynlega hag- ræðingu sé að ræða. freyr@mbl.is Flugfreyjur funda  Ósáttar við skilyrði Icelandair um að allir vinni fulla vinnu  „Fólk í áfalli“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Flug Fundur verður hjá Flugfreyjufélaginu í dag vegna krafna Icelandair. Po ul H en ni ng se n: „P H -5 /3 “. St an dl am pi m eð st ön g og fe st in ga rú r pa tin er uð u, br ún uð u m es si ng i, m eð sk er m iú rr au ðu /b ro ns uð u zi nk i. H am ar sh ög g: 17 0. 00 0 DK K. Sundkrogsgade 30 2150 Nordhavn, Kbh. Tel +45 8818 1111 Søren Frichs Vej 34 D 8230 Åbyhøj, Aarhus Tel +45 8818 1100 S já ná na r á br uu n- ra sm us se n. dk Hittið sérfræðinga Bruun Rasmussen Verið velkomin í Norræna húsið, Sæmundargötu 11, 101 Reykjavík Þriðjudaginn 2. október kl. 17-20 Þar munu reynslumiklir sérfræðingar okkar meta listaverk af öllu tagi, með sérstakri áherslu á nútímalist, „design“, fornmuni, silfurmuni, skartgripi, armbandsúr, bækur, mynt og frímerki. Matið er án endurgjalds og án skuldbindinga – með hugsanlega sölu á uppboði í huga. Dagana 3. – 4. október er boðið upp á heimsóknir í heimahús, eftir því sem tími leyfir Nánari upplýsingar veita Össur Kristinsson, 5554991 og 6984991, Peter Beck +45 8818 1186 / e-mail pb@bruun-rasmussen.dk Torben Ringtved +45 8818 1225 / tr@bruun-rasmussen.dk Fáið mat á verðmætin ykkar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.