Morgunblaðið - 21.09.2018, Side 12

Morgunblaðið - 21.09.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 S TA K E H Æ G I N DA S TÓ L L M E Đ S K E M L I k r . 2 5 7 . 7 0 0 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég ætla að nálgast þetta sem starfandisálfræðingur, en mér finnst eftir-sóknarvert að skoða hvað felst í„hygge“ og hvernig hægt er að til- einka sér það,“ segir Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur, en hún verður með námskeið í næstu viku hjá Endurmenntunarstofnun Há- skóla Íslands um danska fyrirbærið hygge, eða eins og það er kallað á íslensku: Að hafa það huggulegt. „Þeir sem hugsa um og vinna með líðan fólks, lífsgæði og heilsu velta fyrir sér hvað valdi því að Danir hafa mælst aftur og aftur ham- ingjusamasta þjóð heims. Auðvitað kemur margt til, svo sem öryggi, afkoma, samfélags- gerðin og fleira sem skiptir máli í hamingju, en við þurfum líka að skoðað þetta lífsviðhorf, sið eða menningu Dana, „hygge“. Forstjóri ham- ingjurannsóknarstöðvar í Kaupmannahöfn, Meik Wiking, skrifaði fyrir nokkru bókina The Little Book Of Hygge, The Danish Way To Live Well. Nú er búið að þýða hana á næstum fjöru- tíu tungumál og í kjölfarið hafa komið út margar bækur um „hygge“ og margir rýnt í fyrirbærið. Spurt er: Hvað felst nákvæmlega í því að „hygge sig“? Getur verið að það sé einn af aðal- áhrifaþáttunum í því að Danir skori svona hátt á hamingjuvoginni? Mér finnst rétt að benda á það í þessu sambandi að líðan fólks, lífsgæði og hamingja skiptir mjög miklu máli, rannsóknir í jákvæðri sálfræði sýna að þeir sem eru að jafn- aði hamingjusamari en annað fólk, þeir hafa betra tengslanet, þeim líður betur í sínu ástar- sambandi, gengur betur að vera foreldrar og gengur betur í framgangi sínum í vinnunni.“ Ekki stór partí, fjölmenni eða hávaði Kristín segir að „hygge“ sé tilfinning um öryggi, hlýju, notalegheit, þægindi og nánd, sem fólk öðlist þegar það er að „hygge sig“. „Þessi tilfinning er sköpuð á einfaldan og afslappaðan hátt í hversdeginum, án mikillar fyrirhafnar, streitu eða átaka en þó á virkan hátt, hygge er ekki bara að kasta sér í sófann með drykk. Rannsóknir hafa sýnt að þegar Danir vilji hafa það huggulegt þá gera þeir það yfirleitt í heimahúsi og um 80% Dana hafa það huggulegt með fjórum manneskjum eða færri. Við erum ekki að tala um stór partí, fjölmenni eða hávaða, ekki samkomur þar sem fólk þarf að berjast fyrir því að koma sínum orðum að. Huggulegheitin skapast með fáum og líka al- gjörlega þegar fólk er eitt með sjálfu sér,“ segir Kristín og bætir við að þetta snúist líka um orð- ræðu og viðhorf, að láta sér ekki leiðast í ein- veru eða setja á hana neikvæðan stimpil. „Segja til dæmis ekki: „Æ, ég hangi bara heima og geri ekki neitt og það gerist aldrei neitt í lífi mínu,“ heldur velja frekar að hafa það huggulegt. Ég mæli með að fólk kveiki á nokkrum kertum þeg- ar það kemur heim, setji á dásamlega tónlist, fái sér heitan ilmandi drykk og njóti þess að láta fara vel um sig undir teppi.“ Hygge eitt andsvara við kulnun í starfi Þegar Kristín er spurð að því hvort það sé mögulega munur á því hvernig þjóðir hafi það huggulegt, hvort Íslendingar leggi aðra merk- ingu í það en Danir, segir hún að Mekka huggu- legheitanna sé í Danmörku en að talað sé um að Skandinavar almennt séu flinkir í að „hygge sig“, og það sé frekar hluti af okkar menningu en til dæmis Bandaríkjamanna, Þjóðverja eða Breta. „Við Íslendingar höfum eitthvað af þessu í okkur en við getum lært mikið af Dönum. Þetta snýst um að velja að vera í þannig um- hverfi utan vinnu að þú látir skjöldinn niður og finnir að þú þurfir ekki að vera og sért ekki í vörn. Og ekki að keppast við að gera eitthvað eða áorka einhverju, heldur njóta af rósemd og notalegheitum. Við Íslendingar eigum það til að vera mjög kappsöm í frístundum að „hygge sig“ snýst til dæmis ekki um að labba upp að Steini í Esjunni í kappi við klukkuna. Þetta snýst frekar um að fara einn eða með fáum í rólegheitum að rölta um í Heiðmörk, og ætla ekki fyrirfram að labba ákveðna vegalengd, láta frekar stemn- inguna ráða og setjast nokkrum sinnum niður á leiðinni, taka eftir öllu í umhverfinu og súpa kannski saman á heitu tei úr brúsa,“ segir Krist- ín og bætir við að þetta snúist heldur ekki um að halda flott hannað boð eða geggjað partí þar sem allir eru uppstrílaðir á háum hælum. „Frekar að bjóða til sín fáum vinum og fólk kemur bara í sínum hygge-fötum, mjúkum nota- legum heimafötum, samt ekki gamla blettótta bolnum. Fær sér kakó og kanilkex, kúrir undir teppi í ullarsokkum og glápir út í loftið. Spila kannski eða spjallar, en er alls ekki að þrátta um pólitík eða spenna sig upp,“ segir Kristín. „Við erum oft of marksækin þegar við er- um í frístundum, við erum að ljúka einhverju af, eða gera eitthvað merkilegt, mælanlegt og mik- ið í stað þess að skapa örugga og nærandi til- finningu, hlýju og nánd og njóta tímans.“ Kristín segist óhikað ráðleggja fólki í starfi sínu sem sálfræðingur að æfa sig í að „hygge sig“. „Okkur veitir ekkert af því, hér á landi upplifa margir kulnun í starfi, örmögnun og streitu og þurfa jafnvel að víkja vegna þess kon- ar veikinda af vinnumarkaði um lengri eða skemmri tíma, auk þess sem það hefur áhrif á líðan og lífsgæði einstaklingsins. Að mínu mati er „hygge“ eitt af andsvörunum við þessu, þetta getur virkað eins og móteitur fyrir fólk sem lifir streitufullu lífi. Ég var til dæmis að tala við ein- stakling á sálfræðistofunni í gær sem starfar í mjög erilsömu starfi með börnum í skóla. Fjöldi fólks er í kringum hann allan daginn, hávaði og mikið að gerast og hann þarf að fylgjast með öllu og vera snöggur að bregðast við. Ég sagði við hann að fyrir hann til að leita jafnvægis væri ekki málið að fara eftir vinnu í fjörugan zumba- tíma, þar sem hann væri í stórum sal með hóp af fólki. Slíkt er ekki „hygge“ fyrir þennan ein- stakling en það gæti verið frábært fyrir þann sem situr kannski einn við bókhald allan daginn í vinnunni. Okkur Íslendingum hættir til að hægja ekki nógu mikið á okkur og einfalda ekki nógu mikið líf okkar eftir að starfsdegi lýkur og svo er hið gullna jafnvægi alltaf mikilvægt.“ Enginn reynir að toppa annan Kristín segir að „hygge“ sé í eðli sínu ekki rafvætt fyrirbæri, snjallasímar með öllu sínu áreiti eru því ekki hluti af því. „En auðvitað er alveg hægt að slaka á sam- an yfir bíómynd, Danir leyfa sér það í hugguleg- heitum. En þá erum við að tala um til dæmis fá- ar vinkonur í kósífötum kúrandi undir teppi og horfa saman, ekki ósvipað og að hittast í bóka- klúbbi og spjalla saman um bækur. Almennt ef talað er um að minka áreiti og hafa „hygge“ sem andsvar við álaginu og til að auka lífsgæði, þá snýst þetta um að skapa aðstæður þar sem fólk getur látið skjöldinn sinn niður og fundið fyrir öryggi, nánd og hlýju. Við Íslendingar eig- um það til að hittast eftir vinnu eða um helgar og vera með skjöldinn uppi, allar varnir við- búnar og tilbúin í slaginn, það þarf jú að koma svo miklu frá! Afreka eitthvað eða stilla sér upp í aðhaldsfötum á háum hælum eða í stífum jakka, snappa og taka selfie, þá setjum við skjöldinn ekki niður. Í hygge-samveru er fólk á staðnum heilshugar og afslappað, enginn reynir að toppa annan, vera skemmtilegastur eða snjallastur heldur er samveran notaleg og kröfulaus og einkennist af rósemd, virðingu og þakklæti.“ Við erum of kappsöm í frístundum Íslendingar geta lært af Dönum sem eru sérlega flinkir í því að hafa það huggulegt, eða „hygge sig“, en það er talið eiga sinn þátt í því að þeir hafa oft mælst þjóða hamingjusamastir. Morgunblaðið/Eggert Notalegt Kristín Linda gefur sér tíma til að „hygge sig“ í vinnunni, kveikir á kerti og slakar á. Námskeiðið, Aukum eigin lífsgæði og hamingju með hygge, verður haldið 26. sept. kl. 19.30. Þar getur fólk kynnt sér hvernig hægt er að nýta danska lífsstíllinn að hygge, til að bæta lífið, enda slítandi að sækjast eftir hamingju með sífelldri eftirsókn eftir nýjum sigrum. Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig hægt er að nota hygge sem viðmið og gildi í eig- in lífi og öðlast þannig léttara, ljúfara og streituminna líf og aukna sæld, gleði og hamingju á einfaldan hátt. Á námskeiðinu er fjallað um: Hvað er hygge; lífsstíll, viðhorf, viðmið, orðræða og siðir. Að skapa hygge heima í hversdeginum og útbúa sitt huggulega horn. Huggulegur lífsstíll á vinnustað. Hygge samvera, boð, klúbbar og samtöl án streitu. Huggu- legur lífsstíll í frístundum og útivist. Kvöldið er fræðandi en líka létt og huggulegt og kjörin samvera fyrir vini og hópa. Þátttakendur hafi með sér teppi eða stórt sjal, því ætlunin er að hafa það huggulegt. Kennari er Kristín Linda sálfræð- ingur sem rekur eigið fyrirtæki Hug- lind ehf. Gestakennari er Anna Jóna Guðmundsdóttir, kennari og ráðgjafi. Hygge-námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands Hygge er leið til að öðlast létt- ara, ljúfara og streituminna líf Getty Images/iStockphoto Góð slökun Lopasokkar, teppi yfir kropp, heitt te, góðgæti og bók.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.