Morgunblaðið - 21.09.2018, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 21.09.2018, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum áreiðanlegur hitagjafi 10 ára ábyrgð Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Marine Le Pen, leiðtogi frönsku Þjóðfylking- arinnar, mót- mælti í gær harðlega að sér skyldi gert að sæta geðrann- sókn fyrir að láta myndir af óhæfuverkum Ríkis íslams fylgja tísti á netinu. Le Pen setti myndirnar á netið í desember 2015, nokkrum vikum eft- ir að hryðjuverkamenn Ríkis íslams myrtu 130 manns í árásum í París. Hún hefur verið svipt þinghelgi og kærð fyrir að birta ofbeldisboðskap sem börn gætu séð. Hún birti í gær afrit af dóm- skjölum frá 11. september þar sem henni er gert að fara í geðrannsókn „eins fljótt og auðið er“ til að athuga hvort hún sé „fær um að skilja það sem sagt er og svara spurningum“. „Þetta er sturlun,“ skrifaði Le Pen, sem er lögmaður, og bætti við að hún héldi að hún hefði séð allt, en nú ætlaði réttarkerfið að láta hana sæta geðrannsókn fyrir að gagnrýna Ríki íslams í tísti: „Hversu langt munu þeir ganga?“ Hún segist ekki ætla að verða við skipuninni. Le Pen deildi myndunum á sínum tíma til að svara gagnrýni fransks blaðamanns sem bar flokk hennar saman við Ríki íslams. Le Pen sæti geð- rannsókn Marine Le Pen Hermenn gengu fram á hræ af dauðum fíl í Chobe-þjóðgarðinum í Botswana í gær. Var dýr- ið að öllum líkindum drepið af veiðiþjófum sem höfðu í kjölfarið á brott með sér tennur fílsins í von um skjótan gróða á svörtum markaði. Fréttaveita AFP greinir frá því að 87 fílshræ hafi fundist síðastliðinn mánuð og eru þau tölu- vert fleiri en verið hefur undanfarið. Sérfræð- ingar segja aukinn veiðiþjófnað mega rekja til fátæktar þeirra Afríkuríkja þar sem fílarnir halda til og vanmáttar stjórnvalda til að taka á málum. Bróðurparturinn af fílabeininu sem er smyglað frá Afríku ratar á markað í Taílandi og Kína. Talið er að ágóði af smyglinu endi í vasa hryðjuverkahópa í Sómalíu, Úganda og Súdan. AFP Aukinn veiðiþjófnaður í ríkjum Afríku Caracas. AFP. | Fyrir þremur árum voru hjónin Francisco og Elena Roj- as komin í slíkar kröggur vegna hruns efnahagslífsins í Venesúela að þau pökkuðu helstu nauðsynjunum í fjórar ferðatöskur og yfirgáfu íbúð sína í Caracas, höfuðborg landsins. Íbúðin hefur verið tóm síðan. Tannburstarnir eru enn á baðher- bergisvaskinum, ísskápurinn malar þótt aðeins sé í honum tómatsósu- flaska og klaki og barinn er tómur fyrir utan einmanalega rommflösku. Auð heimili, yfirgefin fjölbýlishús og staðnaðir markaðir fyrir bæði leigjendur og kaupendur eru enn einn fylgifiskur efnahagsþrenginga landsins sem hafa leitt til þess að fólk flýr landið í stríðum straumum. Elena er 33 ára og þegar henni bauðst starf í Ekvador varð ekki aft- ur snúið. Nú þénar hún jafn mikið á mánuði og hún gerði á fjórum árum í Caracas. Þegar hjónin yfirgáfu Venesúela læstu þau einfaldlega dyrunum að íbúðinni frekar en að selja hana, jafnvel þótt peningarnir hefðu komið sér vel. Þau keyptu íbúðina á 11 milljónir króna 2014 og ári síðar hafði hún fallið um helming í verði. „Við vildum sjá hvernig hlutirnir æxluðust. Nú þegar við höfum komið okkur fyrir væri fáránlegt að selja,“ segir Francisco Rojas, sem er 28 ára gamall íþróttafréttamaður. Í Venesúela fer þeim fjölbýlishús- um fjölgandi, sem breyst hafa í draugabyggingar. Ljósin eru aldrei kveikt, bílastæði eru auð og póst- kassar yfirfullir af bréfum, sem eng- inn sækir. Sprottið hefur upp ný atvinnu- grein, umsjón yfirgefinna heimila. Þau veita þjónustu á borð við að greiða opinber gjöld, fara á húsfundi og kveikja og slökkva ljós í íbúðum til að fæla frá innbrotsþjófa. Rojas-hjónin höfðu fengið nóg af óöryggi í Venesúela, skorti á mat og lyfjum og óðaverðbólgu, sem gerði laun þeirra einskis virði og Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn spáir að nái milljón prósentum á þessu ári. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum hafa um 1,6 milljónir manna flúið Venesúela síðan 2015 og búa um 2,3 milljónir ríkisborgara frá landinu er- lendis eða um 7,5% landsmanna, sem í allt eru 30,6 milljónir. Húsnæðisverð hefur fallið um 70- 80% á undanförunum fimm árum. Fólk sem flýr er því tregt til að selja og vill heldur ekki leigja þar sem gjaldmiðill landsins er verðlaus og það óttast að fá íbúðirnar ekki aftur. Draugablokkunum fjölgar í Caracas  Íbúar Venesúela flýja efnahagsþrengingarnar í stríðum straumum og eftir sitja tóm heimili  Hús- næði hefur fallið í verði um 70-80% á fimm árum  Verðbólga gæti náð milljón prósentum á árinu AFP Ljósin slökkt Það eru fá ljós í gluggum í þessari íbúðargötu í Caracas. Brostinn er á fólksflótti í landinu og eftir sitja tóm heimili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.