Morgunblaðið - 21.09.2018, Side 20

Morgunblaðið - 21.09.2018, Side 20
20 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018 ✝ EddaSigurðardóttir fæddist í Reykjavík 6. júní árið 1951. Hún lést á Landspítalanum Fossvogi 10. september 2018. Kjörforeldrar Eddu eru Sigurður Óskar Jónsson, f. 24. desember 1921, d. 16. október 2000, og Anna Kristín Linnet, f. 24. júní 1927. Foreldrar Eddu voru Svavar Ólafsson, f. 7. ágúst 1919, d. 14. janúar 2007, og El- ísabet Lilja Linnet, f. 1. nóv- ember 1920, d. 8. september 1997. Kjörbræður Eddu eru 1) Jón Sigurðsson, f. 25. júní 1953, 2) Kristján Sigurðsson, f. 12. febr- úar 1956, og 3) Hannes Sigurðs- son, f. 20. ágúst 1957. Systkini Eddu eru 1) Guðrún febrúar 1925, d. 9. ágúst 2004. Barn hennar og fyrrverandi sambýlismanns Glúms Baldvins- sonar a) Melkorka Sóley Glúms- dóttir, f. 28. desember 1996. Nú- verandi sambýlismaður Bryndísar er Jón Garðar Hreið- arsson, 3) Guðmundur Óskar Bjarnason, f. 30. september 1979, 4) Guðrún María Linnet Bjarnadóttir, f. 5. febrúar 1981, sambýlismaður hennar er Finn- ur Friðrik Einarsson, barn þeirra a) Hrafnynja Máney Finnsdóttir, f. 28. október 2017, og 5) Styrmir Árnason, f. 16. apríl 1992, sambýliskona hans er Björk Sigurjónsdóttir. Edda lauk grunnskólaprófi frá Mýrarhúsaskóla vorið 1967. Hún hóf störf við bakarí föður síns ung að árum. Hún lauk snyrtifræðiprófi og opnaði Snyrtivöruverslunina Nönu, sem hún rak um skeið. Hún vann ýmis konar sölustörf, m.a. sem auglýsingastjóri tímaritsins Heimsmynd, Sjónvarpsvísis Stöðvar tvö og Skinfaxa. Útför Eddu fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 21. september 2018, og hefst at- höfnin klukkan 13. Svava Svav- arsdóttir, f. 22. desember 1944, 2) Kristján Jóhann Svavarsson, f. 29. október 1947, og 3) Hlíf Svavarsdóttir f. 24. desember 1949. Börn Eddu eru 1) Anna Linnet Þorsteinsdóttir, f. 10. nóvember 1969, börn hennar og fyrrverandi maka Orra Haukssonar a) Styr Orrason, f. 11. janúar 2000, b) Alvar Orrason, f. 28. október 2003. Núverandi sambýlismaður Önnu er Bjartur Guðmundsson, barn þeirra c) Karítas Líf Lin- net Bjartsdóttir, f. 30. nóv- ember 2011 2) Bryndís Bjarna- dóttir, f. 19. júní 1972, ættleidd af Sóleyju Brynjólfsdóttur, f. 21. júlí 1927, d. 4. nóvember 2003, og Bjarna Ágústssyni, f. 14. Þá ertu loksins búin að kveðja okkur, elsku mamma mín. Þó það sé vissulega erfitt að kveðja veit ég að þú ert hvíldinni fegin. Lífs- hlaupið reyndist þér hálfgert hindrunarhlaup, áföllin voru mörg. Ég veit að þú gerðir þitt besta til að sigrast á þeim. Þú eignaðist fimm yndisleg börn sem voru þér mjög kær. Þú ólst mig upp við gott atlæti, sýndir mér ást og umhyggju og brýndir fyrir mér mikilvæg gildi. Það var gott að hlaupa í hlýjan móðurfaðm þegar eitthvað gekk á. Samskipti okkar urðu stirð eft- ir að ég komst á unglingsár. Sjúk- dómur þinn fór versnandi og ég varð fyrir áhrifum af þessum hræðilega fjölskyldusjúkdómi. Ég átti erfitt með að skilja veikindi þín og af hverju þér tókst ekki að vinna bug á þeim. Fyrir mér, ungum drengnum, var þetta svo einfalt, þú þurftir bara að gera eins og læknarnir sögðu. Það var ekki fyrr en ég komst á efri ár að ég skildi þetta betur, þegar ég þurfti sjálfur að horfast í augu við veikindi mín. Að horfast í augu við fortíðina getur verið gríðarlega erfitt. Þeg- ar gert hefur verið á manns hlut, eða maður hefur gert á annarra hlut, getur verið erfitt að fyrirgefa og að biðjast fyrirgefningar. Að viðurkenna að maður hafi gert mistök og sættast við fortíðina. En það er svo frelsandi, og getur gefið manni svo mikið. Því maður biðst ekki fyrirgefningar fyrir aðra, heldur fyrst og fremst fyrir sig sjálfan. En stærsti sigurinn er þó að fyrirgefa sjálfum sér allt það sem maður hefur gert á annarra hlut. Það veit ég nú og þess vegna skil ég þig svo vel. Baráttan hefur nefnilega reynst mér svolítið erfið. Ég er svo þakklátur fyrir allar okkar góðu stundir saman. En mér þykir líka afskaplega mikið fyrir því hvernig samskipti okkar þróuðust. Dýrmætasta stundin okkar saman, var þegar ég kom til þín einn morguninn fyrir nokkr- um árum. Ég hafði grátið um nóttina, því loksins fannst mér ég skilja allt á annan hátt. Ég hafði alltaf vitað að þú værir veik, en ég skildi veikindi þín samt ekki. Á þessum tíma- punkti rann upp fyrir mér þessi skilningur og ég fór til þín um leið og ég hélt að þú værir vöknuð, brast í grát og bað þig fyrirgefn- ingar á öllu því sem ég hafði gert á þinn hlut. Er við kveðjumst nú um stund, er rétt að staldra við og íhuga allt það góða. Góðu minningarnar okkar saman, það góða sem þú kenndir mér, það góða sem þú varst, en ekki síst, það góða sem þú hefðir viljað vera. Mest er um vert að þakka fyrir allt það sem þú gafst mér, lífið sjálft og allan þann lærdóm sem ég hef getað dregið af því. Fyrirgefðu mér allt, elsku mamma mín. Ég veit að þegar minn tími kemur brosir þú til mín þínu fallega brosi og tekur mér opnum örmum, með opinn, hlýjan faðminn. Þá verður allt eins og það átti að vera. Þinn sonur, Guðmundur Óskar Bjarnason. Einu sinni var bakarí í gamla Vesturbænum. Þangað lögðu ung- ir menn leið sína í hrönnum. Ekki vegna snúðanna eða annars bakk- elsis. Ó nei. Það að kaupa snúð var bara yfirvarp. Þangað komu þeir í þeirri von að líta fegurstu stúlku Íslands í þann tíð augum. Fellini sjálfur hefði mætt hefði hann haft spurnir af bakaríinu. Skær firðblá augu stungu í stúf við hið suðræna yfirbragð. Hið dökka fljóð. Þetta vita sosem allir sem þekktu hana. Þessi stúlka hét Edda Sigurðar- dóttir. Pabbi kenndi henni meira að segja í Hagaskóla löngu áður en hún varð tengdamamma mín. Hún tók mér vel við fyrstu kynni og mér þótti vænt um hana þá og þegar. Ég held það hafi ver- ið gagnkvæmt. Svo liðu árin og hlutirnir æxluðust og leiðir skildu. Hún ól upp yndisleg börn – að mestu ein á báti. Og guð veit að hún á barnaláni að fagna. Farvel mín kæra, fagra, Edda Sigurðar- dóttir. Þú ert amma dóttur minn- ar og hún saknar þín – og ég reyndar líka. Glúmur Baldvinsson. Edda Sigurðardóttir var falleg manneskja í öllu tilliti. Ég minnist hennar fyrst þegar ég var stelpa og við fjölskyldan fórum í heim- sóknir til Lólóar föðursystur þar sem hún bjó um tíma. Þá heyrðist oft kallað: „Ragga, nennirðu að fara út í sjoppu fyrir mig?“ Hvort ég nennti, að fara út í sjoppu fyrir þessa ofurfögru frænku var heið- ur, fyrir nú utan að ég fékk alltaf eitthvað fyrir minn snúð ásamt öðrum. Edda Sigurðardóttir Á degi hverj- um eru um 500 manns á biðlista eftir meðferð hjá Samtökum áhugafólks um áfengisvanda (SÁÁ). Und- anfarin ár hefur fjölgað á þess- um biðlista, á meðan ríkið hef- ur ekki tryggt viðeigandi fjármögnun á þeirri þjónustu sem SÁÁ veitir. SÁÁ rekur sjúkrahúsið Vog, þar sem rekstrarkostnaður árið 2017 var um 925 milljónir en ríkið greiddi 694 milljónir. Að auki rekur SÁÁ meðferðarstöðina Vík og nam kostnaður við þá starfsemi um 327 milljónum árið 2017 en ríkisframlagið til þess rekstrar var um 219 millj- ónir. Að endingu rekur SÁÁ göngudeildarþjónustu sem hefur gefið góða raun og kost- aði rekstur deildarinnar 2017 um 177 milljónir en ríkið legg- ur nákvæmlega enga krónu til þeirrar þjónustu. SÁÁ rekur mikilvæga þjónustu fyrir fólk með áfengis- og vímuefnasjúk- dóma fyrir um 1,4 milljarða á ári. Ríkisvaldið legg- ur til samtakanna um 914 milljónir. Því vantar um hálfan milljarð í rekstur SÁÁ svo að endar nái sam- an. SÁÁ hefur brú- að bilið með sjálfsaflafé sínu, m.a. með sölu Álfsins. SÁÁ rekur mjög mik- ilvæga heilbrigðisþjónustu með samningi við ríkið. Þjón- usta SÁÁ snýst um að veita sjúku fólki með áfengis- og vímuefnasjúkdóma meðferð til að ná tökum á sjúkdómi sínum og halda sjúkdómnum í skefj- um. Þjónusta SÁÁ er veitt sjúklingum, sem hennar þarfnast, af faglega menntuðu fólki á sviði heilbrigðisfræða. Auk þess á SÁÁ í miklu sam- starfi við opinberar stofnanir eins og bráðamóttökur, geðsv- ið Landspítala, heilsugæslur, barnaverndarnefndir, Félags- þjónustu sveitarfélaga, lög- reglu o.fl. SÁÁ rekur mikil- væga og árangursríka þjónustu sem hefur alla burði til að verða enn árangursríkari ef samtökin fá viðunandi fjár- mögnun frá ríkinu til að sinna þjónustu sinni. Í allri umræðu um aukna geðlæknisþjónustu hefur gleymst að SÁÁ hefur staðið sína plikt og gott betur. SÁÁ vill auka þjónustu á veg- um samtakanna enda full þörf á, en til að það gangi eftir verð- ur ríkisvaldið að leggja til meiri framlög svo að rekstur- inn standi undir sér. Það er ekki boðlegt að ríkisvaldið ætl- ist til þess að SÁÁ veiti svo mikilvæga og nauðsynlega heilbrigðisþjónustu eins og raunin er með góðmennskunni einni saman! Gert út á góðmennsku Eftir Gunnar Alexander Ólafsson Gunnar Alexander Ólafsson »Undanfarin ár hefur fjölgað á þessum biðlista, á meðan ríkið hefur ekki tryggt viðeig- andi fjármögnun á þeirri þjónustu sem SÁÁ veitir. Höfundur er heilsuhagfræðingur. Á undanförnum vikum hefur tölu- verð umræða ver- ið í samfélaginu um þá stöðu sem uppi er í dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun. Langur biðlisti á höfuðborgar- svæðinu endur- speglar þann vanda sem uppi er. Á meðan ekkert rætist úr eru aðstand- endur settir í þá erfiðu stöðu að þurfa að hugsa um sína nán- ustu í 24 tíma á sólarhring, oft með röskun á nætursvefni og lítilli hvíld. Svona ástand getur enginn búið við til lengdar. Nú nýverið var biðlisti höf- uðborgarsvæðisins endurskoð- aður og er heildarfjöldi þeirra sem eru í fyrsta forgangi 164. Það eru einstaklingar sem eru í brýnni þörf fyrir dagdvöl. Á svæðinu eru 8 staðir fyrir sér- hæfða dagdvöl með samtals 150 rýmum. Þessi fjöldi rýma leysir vanda um 220 einstakl- inga, en sumir notendur eru ekki alla virka daga vikunnar. Æskileg stærð fyrir sérhæfða dagdvöl er 20-25 rými og með nýtingarstuðulinn 1,5 vantar a.m.k. sjö staði eftir að á Hrafnistu verður opnuð 30 rýma eining í byrjun næsta árs. Í byrjun þessa árs óskuðu Alz- heimersamtökin eftir því að fá leyfi til að opna 20 rýma ein- ingu en þeirri beiðni var hafnað af heilbrigðisráðherra og því borið við að fjárhagslegar for- sendur lægju að baki ákvörð- uninni, auk þess sem ekki væri enn búið að ganga frá ramma- samningi á milli Sjúkratrygg- inga Íslands og þeirra stofnana sem reka dagdvöl. Þessi nið- urstaða er ekki ásættanleg með tilliti til alvarleika málsins og munu Samtökin því end- urnýja umsóknina. Á meðan bíðum við. Í nýframlögðu frumvarpi til fjárlaga ársins 2019 segir í texta að stefnt sé að 95 dagd- valarrýmum fram til ársins 2023. Ekki er skilgreint í text- anum hvort þarna sé um að ræða almenn dagdvalarrými eða sérhæfð, en einungis þau sérhæfðu munu hafa áhrif á bið- listann. Þannig er ekki hægt að meta hver vilji stjórnvalda er til að leysa þann vanda sem þegar er til staðar og ef mið er tekið af mannfjöldaspá mun þetta ekki gera neitt annað en að halda í horfinu. Biðlistinn verður þá óbreyttur eftir 5 ár. Þessar staðreyndir undirstrika alvarleika málsins og staðfesta að aðgerðir stjórnvalda eru engan veginn að bæta ástand- ið. Í besta falli verður ástandið óbreytt. Á meðan bíðum við. Á síðasta degi vorþings á sl. ári var samþykkt einróma á Alþingi þingsályktunartillaga þar sem kveðið var á um að heilbrigðisráðherra skyldi móta stefnu í málefnum ein- staklinga með heilabilun. Alz- heimersamtökin hafa lagt mikla áherslu á að stefna þessi verði sem fyrst að veruleika og þannig fylgjum við fordæmi yf- ir 30 Evrópuríkja, sem þegar hafa mótað slíka stefnu. Stefna um málefni einstaklinga með heilabilun kveður á um réttindi einstaklingsins frá því að grun- ur vaknar um að heilabilun sé að gera vart við sig til alls umönnunarferils viðkomandi, ásamt réttindum aðstandenda þeirra. Samkvæmt þeim upp- lýsingum sem liggja fyrir í dag er beðið með að hefja stefnu- mótun þessa fram til þess að ný heilbrigðisstefna liggur fyrir. Undirbúningur að þeirri vinnu er í gangi og er stefnt að því að ný heilbrigðisstefna líti dagsins ljós í byrjun næsta árs. Á meðan bíðum við. Alzheimersamtökin eru með umfangsmikla þjónustu fyrir einstaklinga með heila- bilun og aðstandendur þeirra. Þjónusta þessi er í formi fræðslu, sem við höldum uppi víðsvegar um landið. Við erum með ráðgjafaviðtöl fyrir ein- staklinga og fjölskyldur, gef- um upplýsingar og leiðbein- ingar í síma, erum með sam- verustundir í húsakynnum okkar í Hátúni 10 og Alzheim- erkaffi í félagsmiðstöðinni í Hæðargarði í Reykjavík. Tenglar Samtakanna eru nú á 18 stöðum á landsbyggðinni. Nánari upplýsingar um þessa þjónustu má finna á heimasíðu Samtakanna – alzheimer.is. Þá hefur verið í undirbúningi sl. þrjú ár að bjóða upp á sér- hæft nám í umönnun einstakl- inga með heilabilun. Verkefn- ið hefur verið unnið í sam- starfi við kollega okkar í Noregi og Danmörku. Undir- búningi er lokið og hefur End- urmenntun HÍ tekið að sér að sjá um þetta nám sem er að hefjast núna á haustönn og er sérstaklega sniðið fyrir starfs- fólk þeirra stofnana sem veita þessum einstaklingum þjón- ustu eins og hjúkrunarheimili og dagdvöl. Hefur eitthvað áunnist? Þegar litið er til síðustu ára og fram til dagsins í dag þá er hægt að svara þessari spurn- ingu játandi, en ávinningurinn er engan vegin nægjanlegur. Samtökin eru að gera eins vel og kostur er og það var mikið framfaraspor að ráða til sam- takanna fræðslustjóra fyrir tveimur árum. Mikið og gott samstarf við minnismóttöku LSH á Landakoti er til staðar og gerir starf samtakanna markvissara, og nú liggur fyr- ir ný stefnumótun hjá samtök- unum til næstu 5 ára og verð- ur hún kynnt fljótlega. En vandinn liggur hjá stjórnvöld- um eins og hér hefur komið fram, sem skýrist af forgangs- röðun fjárveitinga og faglegri stefnumótun heilbrigðisyf- irvalda. Á meðan bíðum við. Heilabilun – hefur eitthvað áunnist? Eftir Árna Sverrisson Árni Sverrisson » Alzheimersam- tökin eru með umfangsmikla þjónustu fyrir ein- staklinga með heilabilun og að- standendur þeirra. Höfundur er formaður Alzheimersamtakanna. arni@alzheimer.is Okkur yngri systkinin frá Skála- nesi, Sæunni, Sigga, Maju, Ellu og Björk langar til að minnast móðurbróður okkar, ljúf- mennisins Jósefs Sigurðssonar, eða Jobba, eins og hann var allaf kallaður. Hann var næstyngstur alsystkinanna í Skálanesi en þau eru: elstur var Eiríkur Kúld, Anna Guðrún, Ólafur, Jósef, Ólöf og fóstursystir Svala. Í Skálanesi ólst hann upp með foreldrum sínum og systkinum við leik og störf, bæði á sjó og landi Heima í Skálanesi var umtalað Jósef Sigurðsson ✝ Jósef Sigurðs-son fæddist 4. nóvember 1926. Hann lést 7. ágúst 2018. Jósef var jarð- sunginn í kyrrþey frá Hjallakirkju í Kópavogi. hvað Jobbi hafi verið skemmtilegt barn, alltaf á harðahlaup- um og gladdi gjarn- an þá, sem á vegi hans urðu, enda varð hann harðduglegur til allra verka og eft- irsóttur í vinnu. Snemma barst hug- urinn að sjónum og var hann var mjög ungur þegar hann sigldi frá Skutulsey upp í Skála- nes, en í Skutulsey var hann um tíma með pabba sínum. Seinna fór hann á vertíðir á Suðurnesjum og síðan lá leiðin á fragtskip og var hann í siglingum um tíma og kom þá oft upp í Skálanes á milli túra. Þá var nú oft mikið fjör þegar hann var að segja okkur sögur úr siglingunum, svo ekki sé minnst á sælgæti og annað góðgæti sem hann færði okkur. Okkar bestu minningar frá þess- um árum eru þegar Jobbi og Ei- ríkur bróðir hans voru á lundaveið- um nokkur sumur í Vogi og var þá oft glatt á hjalla þegar ekki var veður til veiða og stundum farið í heimsóknir á nágrannabæi. Alltaf lifnaði yfir mannskapnum þegar sást til ferða bátsins þeirra, Haf- rænings, koma siglandi frá Reykjavík. Þegar fram liðu stundir tóku við önnur störf sem tengdust sjónum að miklu leyti. Alltaf voru ættar- tengslin jafn sterk hvar sem um heimshöfin hann sigldi. Um tíma bjó hann í Garðhúsum í Grindavík og Siggi bjó þar hjá honum þegar þessi atburðarás var sem lýsir honum svo vel. Þeir unnu saman í Kreppunni (fiskverkunar- húsi). Siggi vaknaði kl. 7.15 og hit- aði sér kaffi og fékk sér með því og fór af stað gangandi í vinnu kl. 7.50. Þegar klukkan var 7.55 þá kom Jobbi stormandi fram úr Sigga og beint í vinnuna. Þegar Siggi kom kl. 8.00 var Jobbi vinnuklæddur og kominn til starfa og ekkert að hangsa yfir hlutunum. Svona voru allir morgnar hjá þeim. Í okkar huga voru þeir bræð- urnir Óli og Jobbi óaðskiljanlegir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.