Morgunblaðið - 21.09.2018, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2018
Atli Heimir og framúrstefnan er
yfirskrift fyrirlesturs sem tón-
skáldið Þráinn Hjálmarsson flytur í
dag í tilefni af áttræðisafmæli Atla
Heimis Sveinssonar tónskálds.
„Sjónum verður einkum beint að
framúrstefnutónsmíðum Atla frá
áttunda áratug síðustu aldar – bæði
í tali og tónum. Þráinn skoðar sam-
band Atla Heimis við evrópska
framúrstefnu og innlent tónlistar-
líf. Skerpla, nýr tilraunatónlistar-
hópur tónlistardeildar LHÍ, flytur
brot úr verkum Atla Heimis frá átt-
unda áratugnum,“ segir í tilkynn-
ingu frá Listaháskóla Íslands, en
stjórnandi Skerplu er Berglind
María Tómasdóttir, dósent í flutn-
ingi og miðlun samtímatónlistar við
LHÍ. Viðburðurinn fer fram í
fræðastofu 1, stofu 633 í Skipholti
31, í dag kl. 12.45 og er aðgangur
ókeypis.
Í tilefni afmælisins standa ýmsir
tónlistarhópar fyrir tónleikahaldi á
næstunni auk þess sem Sinfóníu-
hljómsveit Íslands leikur Örsmá ei-
lífðarbrot Atla Heimis á tónleikum í
febrúar. Í kvöld kl. 21 verða í Mengi
fluttir kaflar úr verkinu For Boys
and Girls sem Atli Heimir samdi
seint á sjöunda áratugnum. Verkið
„kallast á við alþjóðlega strauma og
stefnur í tónlist á þessum tíma en í
því má greina sterk áhrif frá flux-
uslist og grafískum tilraunum við
skrásetningu tónlistar,“ segir í til-
kynningu. Þar kemur fram að tón-
leikarnir séu þeir fyrstu í tónleika-
röðinni Verpa eggjum undir list-
rænni stjórn Berglindar Maríu sem
helguð er tilraunatónlist.
Sólin á þig geislum helli! er yfir-
skrift tónleika sem haldnir verða í
Hörpu á sunnudag kl. 14.30. Þar
flytur Hólmfríður Jóhannesdóttir
söngkona sönglög eftir Atla Heimi
við kvæði Jónasar Hallgrímssonar.
Jón Sigurðsson leikur á píanó og
Victoria Tarevskaia á selló. Að-
gangur er ókeypis. Á raftónlistar-
hátíðinni Erkitíð verða 13. október
tónleikar til heiðurs Atla Heimi í
Norðurljósum Hörpu. Loks má
nefna að Intermezzo úr Dimma-
limm og Tempo di tango úr selló-
sónötu fyrir selló og píanó verða
flutt á tónleikum Kammermúsík-
klúbbsins í Norðurljósum Hörpu 14.
október kl. 16. Hollvinasamtök Atla
Heimis halda úti vefnum atliheimir-
sveinsson.is þar sem hægt er að
kynnast hinu mikla höfundarverki
Atla Heimis og tónskáldinu sjálfu.
Morgunblaðið/Kristinn
Virtur Atli Heimir Sveinsson er í hópi virtustu tónskálda hér á landi. Hann
hefur samið fjölda tónverka, s.s. einleikskonserta, hljómsveitarverk, kamm-
erverk og einleiksverk. Þá hefur hann samið tónlist fyrir leikhús.
Tónskáldinu fagnað
Atli Heimir Sveinsson fagnar áttræðisafmæli sínu í dag
Tónskáldið er heiðrað með fyrirlestri og tónleikum
„Þetta eru allt ný verk,“ segir Jón
Óskar myndlistarmaður um sýn-
inguna sem hann opnar í listhúsinu
Tveimur hröfnum við Baldursgötu í
dag klukkan 17 og kallar Bender.
„Gegnum tíðina hef ég oft notað í
verkunum fígúru sem heitir Bender.
Þetta er teiknimyndafígúra sem ég
rakst á á netinu fyrir mörgum árum
og þótti svo falleg að ég hef nokkr-
um sinnum lagt út af henni.“
Í texta sem fylgir sýningunni úr
hlaði segir Jón Óskar frá draumi
sem hann vaknaði af við að heyrast
einhver kalla: „Three star general in
the garden!“ Það er heiti annars
stóru málverkanna á sýningunni og
hitt heitir „Staðarhóll“ en það segir
hann hafa verið heiti á frægum garði
á æskuslóðum í Kleppsholtinu – og
hann rifjar upp nöfn blómakvenna í
hverfinu á þeim árum og leggur
jafnframt út frá þeim minningum, og
draumnum, í verkunum.
Jón Óskar hugsaði líka við gerð
verkanna til fyrstu ljósmyndarinnar
sem hann tók sem barn, „sem var úr
fókus og myndefnið að mestu utan
rammans. Hins vegar var nóg af
grasi og blómum enda myndin tekin
í einum þessara garða“. Og hann
segir þessa ljósmynd hafa verið eins
konar „mind-bender“ fyrir sig. „Ég
hef oft notað ljósmyndir sem eru
ekki góðar vegna þess að þær fanga
eitthvert andrúmsloft sem ég er
hrifinn af. Og ég rek það alltaf til
þessarar fyrstu myndar sem ég taldi
mig hafa tekið en líklega var það eft-
ir allt bara fölsk minning eða draum-
ur, því serían sem ég hélt myndina
vera úr er öll í albúmi hjá foreldrum
mínum og engin mynd hefur verið
tekin úr henni.“
Í verkum Jóns Óskars eru oft
brotakenndar vísanir í minningar,
fjölmiðla, dægurheiminn …
„… og ég hræri því öllu saman í
einn pott. Mér finnst fínt að hræra
saman óskilgreindum heimum sem
segja ekkert ákveðið en áhorfandinn
skynjar andrúmsloft sem vísar til
hins og þessa. Og ég hef þurft að
passa mig á titlum, ég vil ekki að
verkin leiði fólk of stíft, það þarf að
geta nálgast myndflötinn á eigin for-
sendum,“ segir hann. efi@mbl.is
Hrærir saman óskil-
greindum heimum
Jón Óskar opnar sýninguna Bender í Tveimur hröfnum
Morgunblaðið/Eggert
Listamaðurinn „Sumt kann að virðast órætt krot en fólk fer alltaf að sjá eitthvað út úr þessu – við búum alltaf til
myndir í huganum af einhverju sem við þekkjum,“ segir Jón Óskar um verkin á sýningu sinni.
Lifandi tónlist mbl.is/tonleikar
Ronja Ræningjadóttir (None)
Sun 23/9 kl. 13:00 4. s Lau 20/10 kl. 18:30 Auka Sun 25/11 kl. 17:00 22. s
Sun 23/9 kl. 16:00 5. s Sun 21/10 kl. 13:00 12. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka
Sun 30/9 kl. 13:00 6. s Sun 21/10 kl. 16:00 13. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s
Sun 30/9 kl. 16:00 7. s Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka
Lau 6/10 kl. 17:00 Auka Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Sun 2/12 kl. 17:00 24. s
Sun 7/10 kl. 13:00 8. s Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Sun 9/12 kl. 14:00 Auka
Sun 7/10 kl. 16:00 9. s Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Sun 9/12 kl. 17:00 25. s
Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Sun 30/12 kl. 13:00 26. s
Sun 14/10 kl. 13:00 10. s Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 30/12 kl. 16:00 27. s
Sun 14/10 kl. 16:00 11. s Sun 18/11 kl. 13:00 20. s
Lau 20/10 kl. 15:00 Auka Sun 18/11 kl. 16:00 21. s
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Fös 28/9 kl. 19:30 Frums Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Sun 28/10 kl. 19:30 11. s
Sun 30/9 kl. 19:30 2. s Fim 18/10 kl. 19:30 7. s Fös 2/11 kl. 19:30 12. s
Lau 6/10 kl. 19:30 3. s Lau 20/10 kl. 19:30 8. s Lau 3/11 kl. 19:30 13. s
Sun 7/10 kl. 19:30 4. s Sun 21/10 kl. 20:00 9. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s
Fös 12/10 kl. 19:30 5. s Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Ég heiti Guðrún (Kúlan)
Fös 5/10 kl. 19:30 Frums Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Fös 19/10 kl. 19:30 Auka
Lau 6/10 kl. 17:00 Auka Lau 13/10 kl. 19:30 5. s Lau 20/10 kl. 19:30 8. s
Sun 7/10 kl. 17:00 2. s Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Sun 21/10 kl. 17:00 9. s
Mið 10/10 kl. 19:30 3. s Þri 16/10 kl. 19:30 Auka Þri 23/10 kl. 19:30 10. s
Fim 11/10 kl. 19:30 4. s Mið 17/10 kl. 19:30 7. s
Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fös 21/9 kl. 19:30 11. s Fim 27/9 kl. 19:30 12. s
Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 22/9 kl. 19:30 39. s Fös 5/10 kl. 19:30 41. s
Lau 29/9 kl. 19:30 40. s Fös 19/10 kl. 19:30 42. s
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s
Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Lau 10/11 kl. 19:30 5. s Lau 24/11 kl. 19:30 8. s
Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6. s
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Insomnia (Kassinn)
Fös 9/11 kl. 19:30 Frums Fös 16/11 kl. 19:30 3. s Fös 23/11 kl. 19:30 5. s
Lau 10/11 kl. 19:30 2. s Lau 17/11 kl. 19:30 4. s
Brandarinn sem aldrei deyr
Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 6/10 kl. 13:00 Lau 13/10 kl. 13:00 Lau 20/10 kl. 13:00
Lau 6/10 kl. 15:00 Lau 13/10 kl. 15:00 Lau 20/10 kl. 15:00
Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim
Reykjavík Kabarett (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 21/9 kl. 22:00 Fös 28/9 kl. 22:00
Daður og dónó
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 3/10 kl. 20:00 Mið 24/10 kl. 20:00 Mið 14/11 kl. 20:00
Mið 10/10 kl. 20:00 Mið 31/10 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00
Mið 17/10 kl. 20:00 Mið 7/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 58. s Fös 5/10 kl. 20:00 60. s Fös 12/10 kl. 20:00 62. s
Lau 29/9 kl. 20:00 59. s Fim 11/10 kl. 20:00 61. s
Besta partýið hættir aldrei!
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 3. s Fim 27/9 kl. 20:00 6. s Lau 6/10 kl. 20:00 9. s
Lau 22/9 kl. 20:00 4. s Fös 28/9 kl. 20:00 7. s Sun 7/10 kl. 20:00 10. s
Sun 23/9 kl. 20:00 5. s Lau 29/9 kl. 20:00 8. s Fös 12/10 kl. 20:00 11. s
Gleðileikur um depurð.
Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið)
Fös 21/9 kl. 20:00 Frums. Fös 28/9 kl. 20:00 5. s Lau 6/10 kl. 20:00 8. s
Lau 22/9 kl. 20:00 2. s Lau 29/9 kl. 20:00 6. s Sun 7/10 kl. 20:00 9. s
Sun 23/9 kl. 20:00 3. s Sun 30/9 kl. 20:00 aukas. Mið 10/10 kl. 20:00 aukas.
Fim 27/9 kl. 20:00 4. s Fös 5/10 kl. 20:00 7. s Fim 11/10 kl. 20:00 10. s
Athugið, sýningum lýkur 3. nóvember.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s
Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s
Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s
Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s
Sungin sagnfræði á hundavaði.
Elly (Stóra sviðið)
Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 28/9 kl. 20:00 150. s Sun 7/10 kl. 20:00 154. s
Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sun 30/9 kl. 20:00 151. s Lau 13/10 kl. 20:00 155. s
Mið 26/9 kl. 20:00 148. s Fim 4/10 kl. 20:00 152. s Sun 14/10 kl. 20:00 156. s
Fim 27/9 kl. 20:00 149. s Lau 6/10 kl. 20:00 153. s Fim 18/10 kl. 20:00 157. s
Síðasta uppklappið.