Morgunblaðið - 28.09.2018, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Hari
Léttir Aðstandendur Tryggva Rúnars Leifssonar, eins sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, fyrir utan dómhús Hæstaréttar Íslands í gær, að lokinni dómsuppkvaðningu. Rétturinn
setti í gær punkt aftan við endurupptöku sakamálsins, fyrst féll í því dómur í Hæstarétti árið 1980. Fjölmiðlafólk, aðstandendur sakborninga og fjölmargir aðrir hlýddu á dómsuppkvaðninguna í
Hæstarétti í gær, en margir horfðu einnig á beinar útsendingar fjölmiðla úr dómsalnum. Sumir aðstandenda lýstu tilfinningum sínum þannig að þungu fargi væri af þeim létt með dóminum.
F Ö S T U D A G U R 2 8. S E P T E M B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 228. tölublað 106. árgangur
KONUR Á BARMI
TAUGAÁFALLS
Í KASSANUM
HEIMILI OG
HÖNNUN
56 SÍÐNA
SÉRBLAÐFLY ME TO THE MOON 38
Magnús Heimir Jónasson
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
Sigtryggur Sigtryggsson
Kaflaskil urðu í stærsta sakamáli Íslandssög-
unnar í gær þegar Hæstiréttur Íslands sýkn-
aði fimm sakborninga í Guðmundar- og Geir-
finnsmálinu af þeim brotum sem þeim voru
gefin að sök árið 1980 við endurupptöku máls-
ins fyrir réttinum. Sakargiftirnar voru að
mennirnir hefðu ráðið Guðmundi Einarssyni
og Geirfinni Einarssyni bana árið 1974.
„Í 43 ár var pabbi minn fórnarlamb“
Fyrst var dæmt í málinu í sakadómi
Reykjavíkur 19. desember árið 1977 og síðan í
Hæstarétti þar sem dómur féll 22. febrúar
1980.
Aðstandendur og verjendur lýstu yfir
ánægju með niðurstöðu réttarins, en þeir sem
nærri standa sakborningum málsins lýstu þó
blendnum tilfinningum í gær. „Auðvitað er
þetta sigur en ég er líka alveg hundfúl. Þetta
er ekkert réttlæti. Jú, það er komin sýkna í
málinu en það breytir því ekki að í 43 ár var
pabbi minn fórnarlamb,“ sagði Kristín Anna
Tryggvadóttir, dóttir Tryggva Rúnars Leifs-
sonar, eins dómfelldu.
„Ég vildi fá að sjá það svart á hvítu á blaði,
með opinberum stimpli, að þetta væri búið. Að
það væri enginn hali, enginn hluti af málinu
væri skilinn eftir eða einhverju bætt við.
Reynslan hefur kennt mér að taka ekki öllu
sem gefnu. En nú er þetta búið,“ sagði hún.
Sjöfn Sigurgeirsdóttir, ekkja Tryggva Rún-
ars, kvaðst fegin að málinu væri lokið. „Þetta
er búið að vera í fanginu á mér í mjög mörg
ár,“ sagði hún. Sjöfn telur að mannorð
Tryggva Rúnars hafi nú verið hreinsað.
Klara Bragadóttir, eiginkona Guðjóns
Skarphéðinssonar, eins dómfelldu, sagði að
þungu fargi væri af þeim létt með sýknudóm-
inum.
„Sigur réttlætis er ekki kominn fyrr en búið
er að sýkna alla af meinsæri líka,“ sagði Erla
Bolladóttir. Hún var fundin sek um meinsæri í
málinu á sínum tíma, en sá hluti málsins var
ekki endurupptekinn í gær. Erla hyggst kæra
niðurstöðu endurupptökunefndar um hennar
hluta málsins til Héraðsdóms.
Verjendur ánægðir með málalokin
Blæbrigðamunur var á nálgun verjenda
fimmmenninganna í dómsal en þeir lýstu þó
mikilli ánægju með málalokin. Þannig krafðist
Ragnar Aðalsteinsson, verjandi Guðjóns
Skarphéðinssonar, þess að lýst yrði yfir sak-
leysi dómfelldu, en það gerði Hæstiréttur
ekki. „Ég gerði mér ekki miklar vonir um að
slíkt áræði og kjarkur kæmi fram í dómnum
[…],“ sagði hann. Hluti verjendanna fór einnig
fram á að Hæstiréttur opinberaði afstöðu sína
til málsmeðferðar sakborninganna, en varð
ekki að þeirri ósk sinni. Jón Steinar Gunn-
laugsson, verjandi Kristjáns Viðars Viðars-
sonar, sagði dóminn fullnægjandi fyrir
ákærðu. „Sýknaður maður er saklaus sam-
kvæmt íslenskum lögum og öllum sjónarmið-
um,“ sagði hann.
Eðlilegt að ríkið greiði leið fyrir bætur
Ekki er útilokað að bætur verði sóttar fyrir
tjón hinna dómfelldu, en Jón Magnússon, verj-
andi Tryggva Rúnars, sagði að leggjast þyrfti
yfir það með hvaða hætti það væri hægt. „Mér
finnst eðlilegt að ríkisvaldið greiði leið fyrir
það að greiddar séu bætur þegar svona illa er
farið að einstaklingum,“ sagði hann.
Allir fimm sýknaðir
Hæstiréttur Íslands kvað upp dóm í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu Allir sakborningar saklausir
Ekki er útilokað að farið verði fram á bætur Erla Bolladóttir fer með sitt mál fyrir héraðsdóm
MGuðmundar- og Geirfinnsmálið »4, 6 & 20