Morgunblaðið - 28.09.2018, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Epicurean skurðarbretti
Verð frá 2.690 kr.
Ný sending
Veður víða um heim 27.9., kl. 18.00
Reykjavík 6 léttskýjað
Bolungarvík 2 léttskýjað
Akureyri 6 skýjað
Nuuk 5 rigning
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 10 skýjað
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Stokkhólmur 10 súld
Helsinki 9 heiðskírt
Lúxemborg 21 heiðskírt
Brussel 21 heiðskírt
Dublin 15 súld
Glasgow 12 skýjað
London 21 heiðskírt
París 25 heiðskírt
Amsterdam 17 heiðskírt
Hamborg 19 skýjað
Berlín 22 heiðskírt
Vín 20 heiðskírt
Moskva 8 heiðskírt
Algarve 27 léttskýjað
Madríd 28 léttskýjað
Barcelona 23 heiðskírt
Mallorca 26 léttskýjað
Róm 23 heiðskírt
Aþena 16 rigning
Winnipeg 7 alskýjað
Montreal 14 skýjað
New York 15 heiðskírt
Chicago 16 skýjað
Orlando 30 skýjað
28. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:29 19:09
ÍSAFJÖRÐUR 7:35 19:13
SIGLUFJÖRÐUR 7:18 18:56
DJÚPIVOGUR 6:58 18:38
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á laugardag Norðan og norðvestan 8-15 m/s og
skúrir, en síðar él, á Norður- og Austurlandi
Á sunnudag Vestlæg eða breytileg átt, 5-10 m/s og
yfirleitt léttskýjað. Hiti 2 til 6 stig.
Talsverð rigning um vestanvert landið og útlit fyrir hríð á fjallvegum norðanlands fram eftir
morgni, en lengst af þurrt á Austfjörðum. Dregur úr úrkomu og fer að lægja í kvöld.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Kaflaskil urðu í hinu sögufræga Guð-
mundar- og Geirfinnsmáli í gær þeg-
ar Hæstiréttur sýknaði alla fimm sak-
borninga, en málið var endurupptekið
fyrir réttinum. Þar með lýkur saka-
máli sem nær allt aftur til ársins 1974.
Það ár hurfu tveir menn, Guðmundur
Einarsson í janúar og Geirfinnur Ein-
arsson í nóvember. Þeir hafa aldrei
fundist og enn er það ráðgáta hvað
varð um þá. Segja má að Guðmundar-
og Geirfinnsmálið hafi verið meira og
minna í fréttum síðustu 44 árin.
Í dómsorði Hæstaréttar í gær segir
svo:
Dómfelldu Kristján Viðar Júlíus-
son, Sævar Marinó Ciesielski og
Tryggvi Rúnar Leifsson eru sýknir af
1. lið I. kafla ákæru 8. desember 1976
um brot gegn 211. gr. almennra hegn-
ingarlaga nr. 19/1940, með því að hafa
aðfaranótt sunnudagsins 27. janúar
1974 í félagi ráðist á Guðmund Ein-
arsson í kjallaraíbúð á Hamarsbraut
11, Hafnarfirði og misþyrmt honum
svo, að hann hlaut bana af, og komið
líki hans fyrir í ókunnum stað, en
háttsemin var heimfærð undir 218.
gr. og 215. gr. almennra hegningar-
laga með dómi Hæstaréttar 22. febr-
úar 1980 í máli nr. 214/1978.
Dómfelldi, Albert Klahn Skaftason,
er sýkn af 2. lið I. kafla ákæru 8. des-
ember 1976 um brot gegn 2. mgr. 112.
gr. almennra hegningarlaga, fyrir að
tálma rannsókn á fyrrnefndu broti
dómfelldu Kristjáns Viðars, Sævars
Marinós og Tryggva Rúnars, með því
að veita dómfelldu liðsinni við að fjar-
lægja og koma líki Guðmundar fyrir í
hrauninu sunnan Hafnarfjarðar
aðfaranótt 27. janúar 1974.
Dómfelldu Kristján Viðar, Sævar
Marinó og Guðjón Skarphéðinsson
eru sýknir af I. kafla ákæru 16. mars
1977 um brot gegn 211. gr. almennra
hegningarlaga, með því að hafa að-
faranótt miðvikudagsins 20. nóvem-
ber 1974 í félagi ráðist á Geirfinn Ein-
arsson í Dráttarbrautinni í Keflavík
og misþyrmt honum þar svo, að hann
hlaut bana af, og að hafa flutt lík Geir-
finns þaðan á Grettisgötu 82, Reykja-
vík, og að hafa degi síðar flutt líkið
upp í Rauðhóla og grafið það þar, en
háttsemin var heimfærð undir 218.
gr. og 215. gr. almennra hegningar-
laga í fyrrnefndum dómi Hæstarétt-
ar.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Þorgeir Örlygsson, Greta Bald-
ursdóttir, Helgi I. Jónsson, Ólafur
Börkur Þorvaldsson og Viðar Már
Matthíasson.
Allur áfrýjunarkostnaður málsins
greiðist úr ríkissjóði, þar með talin
málsvarnarlaun verjenda í málinu,
lögmannanna Jóns Steinars Gunn-
laugssonar, verjanda Kristjáns Við-
ars, 11.904.000 krónur, Oddgeirs Ein-
arssonar og Unnars Steins Bjarndal,
verjenda Sævars Marinós, 11.904.000
krónur til hins fyrrnefnda og
2.480.000 krónur til hins síðarnefnda,
og Jóns Magnússonar, verjanda
Tryggva Rúnars, Guðjóns Ólafs Jóns-
sonar, verjanda Alberts Klahn, og
Ragnars Aðalsteinssonar, verjanda
Guðjóns, 9.672.000 krónur til hvers
um sig.
Fengu ævilangt fangelsi
Fyrsti dómur í Guðmundar- og
Geirfinnsmálinu var kveðinn upp í
sakadómi Reykjavíkur 19. desember
1977. Með dóminum var Albert Klahn
gert að sæta fangelsi í 15 mánuði,
Guðjóni fangelsi í 12 ár, Kristjáni Við-
ari og Sævari Marinó báðum fangelsi
ævilangt og Tryggva Rúnari fangelsi
í 16 ár. Hinir þungu dómar yfir Sæv-
ari og Kristjáni áttu sér ekki fordæmi
á Íslandi.
Málinu var áfrýjað til Hæstaréttar
og þar féll dómur 22. febrúar 1980.
Hæstiréttur stytti refsingu sakborn-
inga. Sævar Marínó var dæmdur í 17
ára fangelsi, Kristján Viðar í 16 ára
fangelsi, Tryggvi Rúnar 13 ára fang-
elsi, Guðjón 10 ára fangelsi og Albert
Klahn í 12 mánaða fangelsi. Erla
Bolladóttir var dæmd í þriggja ára
fangelsi, en hennar mál var ekki end-
urupptekið fyrir Hæstarétti nú. Í öll-
um tilvikum kom gæsluvarðhaldsvist
ákærðu til frádráttar.
Allir sakborningar voru sýknaðir
Kaflaskil í frægasta sakamáli Íslandssögunnar Niðurstaða Hæstaréttar í gær að þeir menn sem
ákærðir voru í málinu hafi ekki ráðið Guðmundi Einarssyni og Geirfinni Einarssyni bana árið 1974
Morgunblaðið/Hari
Dómur kveðinn upp Þorgeir Örlygsson, forseti Hæstaréttar, las upp dóminn klukkan 14 í gær. Við hlið hans sitja
Helgi Ingólfur Jónsson og Ólafur Börkur Þorvaldsson. Settur ríkissaksóknari og verjendur hlýða á dóminn.
Dómsuppkvaðning i Guðmundar- og Geirfinnsmálinu
„Mér líður mjög vel, en það eru blendnar til-
finningar. Þetta er gleðidagur en jafnframt
sorgardagur því hann er búinn að eyða 40 ár-
um í þetta. Allt lífið hefur verið í skugga
þessa máls hjá honum. Það er sorglegt,“ segir
Klara Bragadóttir, kona Guðjóns Skarphéð-
inssonar, sem var viðstödd dómsuppkvaðn-
ingu í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu í
Hæstarétti. Sjálfur treysti Guðjón sér ekki til
að vera viðstaddur og sendi Klöru í sinn stað.
Hún segir að þungu fargi sé af þeim létt með
sýknudómnum.
„Ég hefði persónulega viljað að lýst hefði
verið yfir sakleysi hans, en auðvitað er þetta
mjög góður dagur,“ sagði hún, en dómurinn
fór ekki að kröfu Ragnars Aðalsteinssonar,
lögmanns Guðjóns, um að hann yrði ekki að-
eins sýkn saka, heldur einnig lýstur saklaus.
Aðspurð sagði Klara að fjölskyldan myndi
njóta dagsins saman og fagna niðurstöðunni.
„Guðjón er heima og dætur okkar þrjár eru
hjá honum. Við ætlum bara að fá okkur kaffi
saman. Systir hans og mágur eru hérna með
mér. Nú ætlum við að fara heim til Guðjóns
og gera okkur glaða stund,“ sagði hún.
Allt lífið verið í skugga Guð-
mundar- og Geirfinnsmála
Morgunblaðið/Hari
Dómþing Klara Bragadóttir, eiginkona Guð-
jóns Skarphéðinssonar, eins hinna sýknuðu.
„Mér líður ofsalega vel en ég er ofsalega feg-
in að þetta er búið,“ segir Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir, ekkja Tryggva Rúnars Leifssonar,
sem í gær var sýknaður af því að hafa banað
Guðmundi Einarssyni í janúar árið 1974,
ásamt Sævari Ciesielski. „Þetta er búið að
vera í fanginu á mér í mjög mörg ár,“ bætir
hún við. Allir dómfelldu í málinu voru sýkn-
aðir í Hæstarétti í dag, 44 árum eftir að
meintur glæpur var framinn. Tryggvi hafði
áður verið dæmdur í 13 ára fangelsi fyrir að-
ild sína að málinu.
Sjöfn bendir á að sumum þyki réttlætinu
enn ekki fullnægt, en hún er sátt. Hún hafði
allavega ekki vonast eftir neinu öðru en að
Tryggvi Rúnar og aðrir dómfelldu yrðu sýkn-
aðir í málinu.
„Þetta er það sem ég fór af stað með og var
ekki að hugsa um neitt annað. Ég var bara að
hugsa um mannorð hans og hann,“ segir
„Ég var bara að hugsa
um mannorð hans og hann“
Morgunblaðið/Hari
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir Hún segist telja að
nú sé mannorð Tryggva Rúnars hreinsað.
Sjöfn, en henni finnst mannorð Tryggva Rún-
ars nú hafa verið hreinsað.
„Auðvitað ber einhver ábyrgð á þessu. Það
ætti allavega að vera þannig. En ég er ánægð
með þetta svona núna.“ solrun@mbl.is