Morgunblaðið - 28.09.2018, Qupperneq 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir passann, ökuskírteinið,
ferilskrána o.fl.
Skjót og hröð
þjónusta
Engar tímapantanir
Góð passamynd
skiptir máli
VINNINGASKRÁ
21. útdráttur 27. september 2018
599 9888 20737 28391 39026 50251 59743 70309
856 10102 20755 29078 39172 50361 59744 70341
1273 10153 21035 30247 39181 50438 59787 70485
1490 10500 21264 30551 39230 50582 59977 71035
1875 10806 21357 31428 39281 51140 60274 71328
2006 11032 21577 31457 39897 51146 60536 71365
2220 11830 21650 31564 40153 51190 60796 71872
2312 12261 21674 31746 40367 51381 61304 72081
2557 12591 21703 31756 41081 51601 61845 72781
2833 13532 22599 31980 41653 51784 62232 72923
3026 13708 22778 32073 41696 51979 62271 73039
3243 14240 22894 32574 41894 52042 62574 73363
3683 14248 23100 33214 43046 52222 62858 73592
4348 14410 24014 33275 43171 52259 63173 73604
4734 14854 24096 33372 43546 52580 63318 73720
4805 14978 24345 33503 43596 52795 63374 73754
4993 15164 24827 33712 43613 52807 63719 73760
5006 15188 25054 33880 44043 52869 64014 73763
5166 15543 25258 33973 44054 53196 64271 73859
5217 15915 25489 33998 44058 54245 64281 73892
5769 16247 25715 34490 44364 54247 64373 74266
5862 16417 25874 34637 45389 54515 64664 74649
6068 16977 26211 34714 45406 54780 64853 75916
6507 17589 26275 34881 45570 54842 65399 76078
7756 17617 26514 35166 45960 55034 65467 77640
8436 17867 26577 35377 46065 55046 66031 78081
8575 18458 26587 35474 46150 56487 66804 78146
8578 18567 26640 35865 46657 56505 66998 78281
8634 18646 27041 35881 46913 56874 67707 78569
8731 18787 27133 36127 47127 57273 67910 79507
8741 18930 27212 36634 47565 57893 68451 79780
8888 19279 27428 36833 47654 58118 68534
8975 19631 27516 37660 48292 58143 69275
9038 19691 27712 37677 48552 58230 69388
9069 20046 28087 37851 49172 58444 69531
9203 20121 28126 37997 49540 59016 69535
9775 20704 28127 38110 50210 59538 70203
189 9738 21296 32917 42725 51623 62988 70304
269 10401 22127 34098 43326 52613 63134 70497
1189 10979 22251 35298 43472 53300 64255 72384
3005 12234 23778 35979 45185 53603 64923 73287
3213 12411 24731 36367 45907 54485 65052 74106
4481 13074 25653 36895 45993 55146 65183 74125
5473 13169 30332 39352 47211 55346 66050 75070
6549 14483 30351 39392 47412 56126 66486 76945
6604 14757 30768 39618 48086 56595 67037 78880
6907 18443 30856 41481 48642 57154 67781
7411 18822 31073 41616 48949 59291 69143
8004 18893 32255 41912 51017 59376 69448
9677 19092 32455 42474 51438 62902 69852
Næstu útdrættir fara fram 4., 11., 18., 25. okt & 1. nóv 2018
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
4572 21184 41922 76803
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
4891 20469 28020 38463 58875 65431
8204 22805 29543 39174 62819 66165
16577 26089 35602 43968 64727 69242
17487 27574 37933 48534 65027 70764
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
9 1 4 4
Við finnum okkur
sjaldnast næðisstund
til að hlaða batteríin í
asa nútímans. Það er
hverri manneskju
mikilvægt til að halda
jafnvægi og ferskleika.
Stöðugt áreiti nútíma-
samfélags hlúir ekki
að gömlum gildum
sem rækta andann.
Við erum farin að sjá
áhrif þess t.d. í auknum kvíða ung-
menna sem alltaf eru „á vaktinni“ á
samfélagsmiðlum og kunna ekki að
kúpla sig út. Þetta er langvarandi
álag í ofanálag við skilaboðin sem
samfélagsmiðlarnir gefa. Það sem
ég vildi sagt hafa er að okkur vant-
ar meiri ró og frið inn í hversdag-
inn sem er uppspretta orku og
blessunar. Nútíminn er að bregðast
við þessum halla með Núvitund og
Gjörhygli (Mindfulness). Kristin
hefð hefur í gegnum aldirnar iðkað
Kyrrðarbæn (Centering Prayer)
sem er á pari við aðferð Gjörhygli.
Fyrir nokkrum áratugum var
kyrrðarbæn klaustranna poppuð
upp til að mæta asasótt nútímans.
Almenningur fór að sækja í kyrrð-
arbænina því hún
skapar vörn og jafn-
vægi í dagsins önn.
Þetta er þögul bæn í
20 mínútur með heil-
ögu orði sem stuðn-
ingi. Áhrif af bæninni
eru meiri í hversdags-
lífinu en í bæninni
sjálfri. Hún gefur frið,
þolinmæði, aukna ein-
beitingu, sjálfsskiln-
ing, orku og það sem
kom mér mest á óvart,
aukna gleði. Í bæninni
verður djúpslökun og því vinnur
hún vel á verkjum og hefur nýst
mínum vefjargigtarlíkama vel með
græðsluferli. Bænin verkar vel með
12 sporunum, hún er í raun 11.
spors vinna. Kyrrðarbænin kennir
okkur að kúpla frá og skapar þann-
ig rými fyrir nýja hluti hið innra.
Hér eru dæmi frá iðkendum hjá
mér. Kona sagði: „Sko ég er ótrú-
lega óþolinmóð en ég skil ekki hvað
er að koma yfir mig, ég er hætt að
kippa mér upp yfir því sem angraði
mig áður.“ Eldri kona sagði: „Ég
er alla daga undirlögð af verkjum
en þegar ég sest í þennan stól í
bænina þá hverfa allir verkir.“
Þátttakandi sagði: „Ég sef miklu
betur þessar nætur eftir kyrrðar-
bænina.“ Margir tala um frið og
jafnvægi.
„Við stöðuga iðkun til lengri tíma
finn ég eins og meiri skerpu, það
bætist eitthvað tært inn í lífið og
eftirvænting til hversdagsins vex.“
Það verður haldið dags námskeið
um Kyrrðarbænina í Digranes-
kirkju 29. september (kl. 10-15.30)
og vikuleg iðkun í framhaldinu.
Skráning er á barafrid@digra-
neskirkja.is, sjá nánar á
www.digraneskirkja.is.
Kyrrðarbænin er stunduð í hóp-
um víða um land, nánari upplýs-
ingar má sjá á www.kristin-
ihugun.is/bænahópar. Það er gott
að fjárfesta í sjálfum sér með iðkun
kyrrðarbænar.
Vantar þig kyrrð
og ró inn í hversdaginn?
Eftir Báru
Friðriksdóttur »Margir tala um áhrif
kyrrðarbænar sem
frið og jafnvægi. Þátt-
takandi sagði: „Ég sef
miklu betur þessar næt-
ur eftir kyrrðarbæn-
ina.“
Bára Friðriksdóttir
Höfundur er prestur og öldrunar-
fræðingur.
barafrid@gmail.com
Hver skapar um-
hverfið, hver er
mannauðurinn og
hvert stefnir félagið,
ágætu stjórnendur
Icelandair, hvað varð
um gömul slagorð
eins og fjölskyldu-
vænt fyrirtæki eða
jöfn tækifæri til
vinnu?
Oft kveður við
gömul vísa þar sem græðgihugsun
stjórnenda er tekin fram yfir hinn
glæsilega mannauð sem skapað
hefur velgengi Icelandair hverju
sinni, þ.e.a.s. starfsfólkið.
Að hugsa sér að Icelandair skuli
voga sér að koma með svona út-
spil á sama tíma og ASÍ, heildar-
samtök launþega, sem og ráða-
menn þjóðarinnar tala um
styttingu vinnuviku og það án
skerðingar.
Það má segja að þetta nýjasta
óréttláta útspil Icelandair í garð
flugfreyja og flugþjóna félagsins
sé ekki til þess fallið
að einhver ró verði
yfir komandi kjara-
samningum, það er al-
veg dagljóst.
Skoðum hlutina að-
eins í réttu samhengi:
Icelandair gerir kröf-
ur um að starfsfólkið
geti staðið í framlínu
félagsins, bæði í blíðu
og stríðu, standist all-
ar þær kröfur sem
gerðar eru til félags-
ins af hálfu alþjóða
flugmálastofnana hverju sinni.
Vissulega er aðaláherslan lögð á
að flugliðar séu með öryggisþætti
flugvélanna á hreinu og viti ná-
kvæmlega hvernig á að bregðast
við í neyð og geti ávallt staðið sína
pikt undir oft á tíðum miklu álagi
og skiptir þá engu þó að álagið
heima fyrir fylgi umræddum
starfsmönnum í vinnuna. Einmitt í
ljósi ofangreinds fæ ég ekki skilið
hvers vegna félagið vill fara út í
það að auka það álag, þ.e.a.s.
skapa nýtt starfsumhverfi með
auknu álagi heima fyrir og í vinnu
Ágætu stjórnendur, verið með-
vitaðir um að ákvörðun sem þessi
er bara til þess fallin að skapa
óánægju og óþarfa áhyggjur sem
munu auka á andlegt álag starfs-
manna. Eitt er það sem oft vill
gleymast og það eru fjölskyldu-
meðlimir umræddra starfsmanna,
þ.e.a.s. börn umrædds starfshóps
spyrja sig hvenær tími sé fyrir
mömmu og pabba að kynnast
þeim, þ.e.a.s. ef annar aðilinn er
aldrei heima. Hvar er skilningur-
inn á því ákalli og hvar er velvild
atvinnurekandans Icelandair í
garð þess glæsilega mannauðs
sem fyrirtækið hefur á að skipa í
dag.
Er það virkilega þannig að ofan-
greint skipti félagið Icelandair
bara engu máli og allt tal um fjöl-
skylduvænt starfsumhverfi sé
bara í orði en ekki á borði.
Sem fjölskyldufaðir giftur flug-
freyju tala ég af reynslu og við
ykkur, ágætu flugfreyjur og flug-
þjóna Icelandair, vil ég segja: Það
er bara eitt í stöðunni og það er
samstaða gegn svona vinnubrögð-
um, einn fyrir alla og allir fyrir
einn.
Er hið framsækna og fjölskyldu-
væna Icelandair komið á villigötur?
Eftir Sigurjón
Hafsteinsson » Ágætu stjórnendur,
verið meðvitaðir um
að ákvörðun sem þessi
er bara til þess fallin að
skapa óánægju sem er
Icelandair ekki til fram-
dráttar.
Sigurjón Hafsteinsson
Höfundur er í slökkvi- og björgunar-
þjónustu Keflavíkurflugvallar.
molikarlinn@simnet.is
Allt um sjávarútveg
Matur
SMARTLAND
MÖRTUMARÍU