Morgunblaðið - 28.09.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 28.09.2018, Qupperneq 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018 ✝ Lúðvíg AlfreðHalldórsson fæddist á Sauðár- króki 7. desember 1932. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 19. september 2018. Foreldrar hans voru Karólína Sigurrós Konráðs- dóttir, f. 17. maí 1902, d. 7. mars 1940, og Hall- dór Stefánsson, f. 3. ágúst 1887, d. 17. desember 1967. Lúðvíg var alinn upp í Skaga- firði og Eyjafjarðarsveit. Eftir lát móður hans gekk föður- systir hans María Stefánsdóttir honum að miklu leyti í móður- stað. Systkini Lúðvígs voru þau Árni, f. 12. apríl 1916, d. 1. jan- úar 1995, og Sigríður Sigur- lína, f. 24. apríl 1919, d. 6. október 1962. Lúðvíg kvæntist 1. septem- ber 1957 eftirlifandi eiginkonu sinni Guðrúnu Rögnu Kristjáns- dóttur, f. 17. febrúar 1937. For- eldrar Guðrúnar voru Rann- veig Guðmundsdóttir, f. 25. júlí 1909, d. 6. febrúar 2003, og Kristján Magnús Rögnvaldsson, býliskona Stephanie Mauler, börn þeirra eru Lilja Ósk og Jacob Már, b) Herdís Rós, eiginmaður Einar Þór Hjalta- son, börn þeirra eru Daníel Þór og Karen María, c) Hjálmar Jakob, sambýliskona Kolbrún Kristjánsdóttir, dætur þeirra eru Nadía Dís og Tinna Rún. Dóttir Hjálmars og Írisar Katr- ínar Barkardóttur er Matt- hildur Embla. Dóttir Kolbrúnar og Gunnars Páls Ólafssonar er Guðrún Katrín. d) Alfreð Ragn- ar, sambýliskona Sandra Rut Vignisdóttir. Lúðvíg lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugar- vatni árið 1954 og hóf skömmu síðar störf við kennslu í Stykkishólmi. Árið 1959 fékk hann Fulbright-styrk og fór til háskólanáms í Pittsburgh í Pennsylvaníu þar sem hann nam eðlis- og efnafræði. Eftir heimkomuna sneri hann aftur til kennslu í Stykkishólmi og nokkrum árum síðar varð hann þar skólastjóri. Hann var mikill náttúruunnandi og íþrótta- maður. Einnig tók hann mikinn þátt í félagsstörfum hvers kon- ar. Eftir að hann lét af störfum sem skólastjóri árið 1994 fluttu þau hjónin til Reykjavíkur. Síðustu árin bjó Lúðvíg með Guðrúnu Ingibjörgu Árna- dóttur í Kópavogi. Útför Lúðvígs fer fram frá Digraneskirkju í dag, 28. september 2018, og hefst at- höfnin klukkan 15. f. 3. október 1900, d. 1. júlí 1965. Börn Lúðvígs og Guðrúnar eru: 1) Lára, f. 12. júní 1958, eiginmaður Sigurður G. Guð- jónsson. Dætur þeirra eru: a) Edda Sif, sonur hennar og Sveins Skúla Pálssonar er Sig- urður Páll, b) Sandra Rún, sambýlismaður Einar Baldur Einarsson, dætur þeirra eru Matthildur og Theó- dóra. 2) Halldór, f. 14. nóvem- ber 1963, eiginkona Margrét Þóra Sigurðardóttir. Dóttir Halldórs og Katrínar Guðjóns- dóttur er Guðbjörg. 3) María Ragna, f. 11. janúar 1970, sam- býlismaður Björgvin G. Sig- urðsson. Dætur þeirra eru Guð- rún Ragna og Elísabet. Börn Maríu eru: a) Stefanía Ýrr, dóttir hennar og Eiðs Birgis- sonar er Manúela Tanja, b) Lúðvíg Árni, c) Karólína og d) Þóra Andrea. Uppeldissonur Lúðvígs og Guðrúnar er Grétar Fjeldsted Jakobsson, f. 7. júní 1950, eiginkona Guðrún Hjálmdís Hjálmarsdóttir. Börn þeirra eru: a) Róbert Már, sam- Það er okkur erfitt að færa í orð þakklætið sem okkur er í huga þegar við minnumst hans Lúðvígs A. Halldórssonar. Hvað hún móðir okkar og tengdamóðir var ótrúlega heppin að eignast í honum vin. Ástin gaf þeim annað tækifæri og þau gripu það tveim höndum. Lúlli náði til allra við fyrstu kynni. Skipti þar engu hvort ættu í hlut börnin okkar eða skyldfólk. Góðmennskan geislaði einhvern veginn af hon- um og þessi eiginleiki að sýna öll- um áhuga fékk fólk til að líða vel í návist hans. Það var gaman að fylgjast með þeim eins og ástföngnum ung- lingum síðustu ár. Í upphafi var um lítið leyndarmál að ræða þar sem augljós spenna var í lofti þegar síminn hringdi og oftar en ekki þurfti að loka að sér þegar símtölin áttu sér stað. Og mikið var fyrir því haft að hafa sig til fyrir böll og aðrar samkomur. Við vorum rétt búin að hitta Lúlla þegar mamma fékk heila- blóðfall og í veikindum hennar og endurhæfingu fengum við að kynnast hve mikill kærleikur hafði myndast milli þeirra. Lúlli reyndist mömmu svo ótrúlega vel að við stóðum álengdar full aðdá- unar. Líklega fengum við einnig að kynnast gamla skólastjóran- um þegar kom að endurhæfing- unni. Hann mætti með mömmu í alla tíma og lærði þær æfingar sem fyrir hana voru lagðar. Þeg- ar heim var komið var hann svo með stíft prógramm og lét hana puða og púla daginn út og inn. Hann var kröfuharður en sann- gjarn. En umfram allt hjartahlýr og elskandi. Þannig birtist hann okkur frá fyrsta degi og þessi ein- kenni komu svo oft sterklega fram. Lúlli var mikill heimsmaður í öllu fasi en heimsmanni hefur verið lýst sem fáguðum og sjálfs- öruggum manni sem ferðast hef- ur víða. Hann var auk þess ein- staklega fróður um alla skapaða hluti. Það var sérstaklega gaman að fá hann í heimsókn hvort sem það var á stórhátíðum, barnaaf- mælum eða við hversdagslegri tilefni. Hann var alltaf svo þakk- látur og hrósaði í hástert ef hon- um líkaði matseldin. Fágaður á allan hátt, sannkallaður heims- maður. Ferðir Lúlla og mömmu í Skagafjörð urðu nokkrar og farn- ar með mikilli tilhlökkun. Við minnumst þess að Lúlli fékk mömmu til að samþykkja tillögu sína um að prófa að fara norður. Það þurfti nokkrar fortölur og var mikið lagt í að sannfæra hana á kaffihúsi einu hér í bæ enda treysti mamma sér vart til að vera í bústaðnum. Þegar hún féllst á að prófa ljómaði Lúlli. Síðustu daga og vikur áttum við í daglegum samskiptum við Lúlla í veikindum hans og einnig við börn hans, tengdabörn og barnabörn. Endalaust má hann vera stoltur af hópnum sínum og augljós áhrifin sem hann hefur haft því þar fer vel gert fólk. Fjöl- skylda hans tók mömmu einstak- lega vel og hefur stutt hana í veikindum hennar umfram það sem ætlast mætti til. Fyrir það verðum við ævinlega þakklát. Við kveðjum elsku Lúlla af virðingu og minnumst hans með ást í hjarta. Takk fyrir allt. Páll og Hulda, Ingibjörg og Skúli. Það var um páska 2016 að mamma sagði okkur að hún ætti orðið vin. Sá héti Lúðvíg Hall- dórsson, væri Skagfirðingur en hefði lengi verið skólastjóri í Stykkishólmi. Það skal alveg viðurkennt að fyrstu viðbrögð voru svolítil undrun, enda ekki á hverjum degi sem miðaldra fólk fær svona fréttir! Við lögðumst því í ofurlitla rannsóknarvinnu en reyndar var hann Njalli okkar, sem líka var úr Hólminum, fljótur að sannfæra okkur um að Lúðvíg þessi væri einstakur heiðursmaður. Það kom sannarlega á daginn. Það er óhætt að segja að sam- band þeirra mömmu og Lúlla hafi verið einstakt. Á svo margan hátt. Og að á það hafi reynt með ýmsum og ólíkum hætti. Það lét ekki nokkurt okkar sem með þeim fylgdist ósnortið. Þau báru svo greinilega, ótak- markaða virðingu hvort fyrir öðru og þeim aðstæðum sem þeim var úthlutað. Ef hægt er að tala um að fólk bæti hvort annað upp þá átti það við þau. Þau nutu samvistanna sannarlega og tóku því sem að höndum bar af full- komnu æðruleysi. Dugnaðurinn og eljan í Lúlla í skyndilegum og óvæntum veik- indum mömmu var nokkuð sem hvorki er hægt að lýsa né þakka fyrir í fáum minningarorðum. En hann sýndi sannarlega úr hverju hann var gerður. Uppgjöf kom aldrei til greina. Hann lagði línuna og eftir henni var gengið. Oft var eins og það hefði tekið sig upp gamall skólastjóri við þessar aðstæður. Skipulagður, ákveðinn en sanngjarn. Það er ekki laust við að „Börn náttúrunnar“ hafi komið upp í hugann þegar þau, með öllu sem þeim fylgdi, fóru að fara fyrstu ferðirnar saman norður í Skaga- fjörð, hvar þau undu sér einstak- lega vel. Og það jaðraði meira að segja við að Lúlli viðurkenndi að fjörðurinn væri ekki síður fagur austan vatna! Þótt við fylgdumst með þeim úr fjarlægð var í raun aldrei langt á milli okkar. Við minnumst tvennra lágstemmdra jóla með þeim mömmu og Lúlla, rjúpur og jólamessa. Friður og ró. Eða gómsætar gellur og kinnar með þeim í eldhúsinu í Kópavog- stúninu. Lúlli eldaði og maturinn var sælgæti. Og svo símtölin öll á sunnudagskvöldum þar sem allt- af var sett á „speaker“. Svo var það fyrir rétt rúmum mánuði að þau lögðu land undir fót, flugu með okkur hingað til Búdapest til að vera með okkur nokkra daga. Tilhlökkunin hjá okkur öllum var mikil enda hafði þetta lengi staðið til. Úr urðu minningar sem lifa með okkur öllum það sem eftir er. En það fór ekki hjá því að okkur grunaði að ekki væri allt með felldu hjá Lúlla. Orkan og einurðin var ein- hvern veginn að dala. Einbeiting- in sömuleiðis. Og meira að segja matarlystin. Og nú, aðeins örfáum vikum eftir að þau flugu aftur heim hef- ur Lúlli kvatt í síðasta sinn. Við söknum hans sárt en minningin lifir. Við höfum fyrir mikið að þakka og gerum það sannarlega. Við þökkum fyrir kynnin af Lúð- víg A. Halldórssyni og ekki síður kynnin af fólkinu hans. Öll hafa þau reynst mömmu svo einstak- lega vel við þessar aðstæður að annað eins þekkist tæpast. Vand- aðra fólk er varla að finna. Fyrir það þökkum við af heilum hug um leið og kveðjum góðan vin. Far í friði, okkar kæri. Árni Magnússon, Berglind Bragadóttir og börn. Handartak þitt var hlýtt og blíða í augunum þegar við hitt- umst fyrst á bryggjunni í Stykkishólmi á réttardaginn í september 1973. Þú skólastjórinn í Stykkishólmi en ég nýráðinn kennari. Þessi stund markaði upphaf samstarfs okkar um tveggja ára skeið, en það sem mest er um vert, vináttu okkar allar götur síðan, sem innsigluð var sérstaklega 2. júlí 1983 þegar þið Guðrún Ragna gáfuð mér hönd Láru. Fjörutíu og fimm árum frá okkar fyrsta handabandi kvödd- umst við hinsta sinni að kvöldlagi í Kópavogi, líf þitt að fjara út, augun lokuð, púlsinn hægur, en höndin hlý sem forðum. Kvöld- himinninn yfir Kópavogi var fag- ur, veður lygnt og milt. Það var eins og náttúran væri að reyna að endurspegla lífsviðhorf þitt, þar sem hógværð og hófsemi sátu í öndvegi ásamt hinni endalausu hlýju. Þú varst metnaðarfullur skóla- maður, sannur jafnaðarmaður, íþróttamaður góður, afburða veiðimaður, en á sama tíma náttúruelskur. Fyrst og síðast varstu drengur góður í þess orðs dýpstu og feg- urstu merkingu. Vinátta þín var gulls ígildi. Fyrir hana er ég þakklátur. Far í friði, vinur. Sigurður G. Guðjónsson. Stórkostlegt lífshlaup að baki. Að ljúka farsælli ævi sáttur og við fulla andlega og líkamlega heilsu þar til ólæknandi krabbamein tók völdin á undraskömmum tíma er ómetanlegt. Lúðvíg tengdafaðir minn skildi við eins og hann lifði lífinu. Allt undir skipulagi, engir lausir end- ar og rætt opið og hispurslaust um endataflið. Síðasta ferðin norður í Skaga- fjörð var farin í faðm stórfjöl- skyldunnar á ættarmót á Hofs- ósi. Með í för ættingja og afkomenda var Guðrún Ingibjörg Árnadóttir, sem Lúðvíg var svo gæfusamur að kynnast og eiga einstaklega góðan tíma með síð- ustu árin. Erfið glíma Guðrúnar Rögnu eiginkonu Lúðvígs við grimman Alzheimer-sjúkdóminn tók á en hann óx í hverju skrefi í þeirri baráttu og sinnti henni óendan- lega vel. Lokaferðin var farin til hennar á hjúkrunarheimilið. Þar með var hringnum lokað og hægt að skilja við bæði guð og menn. Lúðvíg var sannfærður sósíal- demókrat allt frá unga aldri og það var gaman að heyra hann segja frá því hvernig hann las sig til fylgis við lýðræðislega jafnað- arstefnu, líkt og hann kallaði það, sem ungur maður. Því pólitíska leiðarljósi fylgdi hann alla tíð og var hugsjón sinni trúr til orðs og æðis. Starfsferill Lúðvígs var í skól- anum. Skólastjóri af hugsjón og hafði hann mikil áhrif á gæfu og gjörvileik fjölda nemenda sinna. En honum var margt til lista lagt. Sérlega laginn penni, snjall ræðumaður og litlu munaði að hans vettvangur yrði verkfræðin, svo vítt var svið áhugans og hæfi- leikanna. Skömmu fyrir andlát sitt sagði Lúðvíg að stoltastur væri hann af því að hafa tekið Grétar systur- son sinn í fóstur á erfiðum tímum í lífi Sillu systur sinnar. Það segir meira um hann en mörg orð og ef eitthvað dregur upp mynd af honum frekar en annað er það að honum var einkar annt um fólk og lét sig hlutskipti þess miklu varða. Minningin lifir um úrvalsmann sem lifði merka ævi með glæsi- brag. Björgvin G. Sigurðsson. Á vængjum morgunroðans um röðulglitrað haf fer sála þín á guðs vors helga stað. Þar er engin þjáning né kvöl né sorgartár. Aðeins ró og friður í hverri mannsins sál. (Kolbrún Harpa Kolbeinsdóttir) Með þessu ljóði og nokkrum orðum vil ég minnast Lúðvígs tengdaföður míns, sem nú hefur kvatt eftir stutt veikindi og skilur eftir sig stórt skarð í fjölskyld- unni. Árið 1975 kynntist ég þér fyrst, flutti ég ung í Hólminn og fór að búa með Grétari fóstursyni þínum og systursyni sem þið hjónin tókuð að ykkur móður- lausan 10 ára. Það segir allt um umhyggjusemi og kærleika þinn sem þú áttir svo auðvelt með að sýna. Knúsaðir og kysstir alltaf þegar þú komst í heimsókn og kvaddir alla svo einlæglega. Þegar við eignuðumst börnin hef ég aldrei séð glaðari afa og alltaf með opin faðminn og hænd- ust þau svo mikið að þér að þau voru aðeins tveggja og þriggja ára þegar þau stálust fyrst til þín á Sundabakkann. Seinna þegar þau fóru í skólann hjálpaðir þú þeim með stærðfræðina. Það voru forréttindi að búa samtímis ykkur í Hólminum í 20 ár. Einnig þegar við fluttum suð- ur var stutt á milli okkar og nut- um við þess að heimsækja ykkur og fá ykkur í heimsókn. Áttum við afskaplega góðar stundir saman. Þegar barnabörnin komu þá hafðir þú svo gaman af að spjalla við þau og þau dýrkuðu langafa sinn. Jákvæðni þín hjálp- aði þér í veikindum tengda- mömmu. Eðalmaður varstu og enginn eins og þú þegar þurfti að ráð- færa sig við einhvern, einnig að hugga og hughreysta þegar þess þurfti við. Þegar brotið var á fjöl- skyldumeðlimi var réttlætis- kenndin þín mikil. Mannvinur varstu mikill og gáfaðri og hæfi- leikaríkari manni hef ég aldrei kynnst fyrr né síðar. Áhugamál þín voru mörg, til dæmis golf og skotveiðar, þú veiddir alltaf rjúpu í jólamatinn meðan þið bjugguð í Hólminum. Lax- og silungsveiði, bókalestur, ferðalög innan lands og utan. Fyrir 13 árum keyrðir þú frá Danmörku til Lúxemborgar og heimsóttir fyrsta langafabarnið. Minnist ég göngutúrana í Elliða- árdalinn með ykkur þar sem þú kenndir og fræddir okkur um blómin, trén og jurtirnar. Þú sást alltaf það fallega í allri sköpun Guðs. Þér þökkum samfylgdina og minninguna um þig. Við biðjum góðan Guð að geyma þig. (K.H.K.) Guðrún Hjálmdís. Elsku afi. Í vetur þegar við kvöddum vin okkar Atlas sendir þú mér línur úr ljóðinu Hjá fljótinu eftir skáld- ið þitt, Skagfirðinginn Hannes Pétursson. Þau stóðu þar sem þaut með björtum lit hið þunga fljót og horfðu í vatnsins strengi og heyrðu að sunnan sumarvinda þyt um síki og engi. Og armlög þeirra minntu á fyrsta fund, þó fölur beygur hægt um sviðið gengi er laut hann höfði og sagði í sama mund: Veiztu hvað gleðin tefur tæpa stund en treginn lengi. Síðustu tvær línurnar hafa aldrei átt jafn vel við. Ég kveð þig, elsku afi, og þakka þér fyrir allar stundirnar okkar saman. Þín Edda Sif. Elsku afi. Tárin falla og minningarnar streyma fram. Betri afa var ekki hægt að hugsa sér; glæsilegur, klár, ákveðinn og góðhjartaður. Hvert einasta faðmlag innilegt og sterkt. Ég minnist þess hversu gaman var að segja þér frá þeim verk- efnum sem ég tók mér fyrir hendur. Þú varst alltaf stoltur, áhugasamur og var ekkert meira gefandi en að fá hrós frá þér. Þú meintir það innilega og bjó mikið þakklæti á bak við orð þín. Þakk- læti fyrir að mér skyldi ganga vel. Tíminn sem þú og amma bjugguð hjá mömmu og pabba er mér sérlega kær. Þá kynntist ég nýrri hlið á þér; hlið sem ég sem barn og unglingur hafði ekki tek- ið eftir. Þú sýndir mér hversu fal- leg manneskja er hægt að vera. Þín lífssýn og hæfileiki til að njóta líðandi stundar var öfunds- verð en tilkomin af upplifunum sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum. Það var erfitt en fallegt að sjá hversu sterkur þú varst í veik- indum ömmu og hve vel þú hugs- aðir um hana. Á þessum erfiða tíma var Matthildur mín mikið hjá ykkur. Þú kenndir henni margt, eins og þér einum var lag- ið. Þolinmæðin sem þú hafðir fyr- ir henni og gleðin sem hún veitti ykkur ömmu er ólýsanleg. Hug- myndaflugið í leikjum ykkar var mikið og þroskandi. Ég ætla að vera dugleg að segja henni frá þessum stundum ykkar tveggja. Stundum stóðum við tvö fyrir utan Lækjarásinn. Þú horfðir til himins á stjörnurnar, dáðist að fegurð þeirra og kenndir mér að þekkja þær. Síðustu daga hefur næturhiminninn skartað sínu fegursta fyrir þig. Um ókomna tíð verður hinn bjarti næturhim- inn tileinkaður þér. Við eigum stjörnurnar ég og þú. Kveðjustund ykkar Atlasar í janúar var falleg. Þú settist á gólfið, faðmaðir hann og hvíslaðir í eyra hans. Mér fannst ég skynja að þið vissuð báðir að þið mynduð hittast fljótlega aftur. Minningarnar um þig geymi ég í hjartanu sem mitt dýrasta djásn. Það er gott til þess að vita hve sáttur þú varst síðustu daga lífs þíns. Kveðjustund fjölskyld- unnar með þér var falleg og deyf- ir sorgina sem fylgir því að missa þig. Þú varst klettur í lífi okkar allra, alltaf til staðar fyrir okkur. Ég veit að þú fylgist með okkur, stoltur og brosandi þínu breið- asta, eins og þú ávallt gerðir. Að leiðarlokum þakka ég þér fyrir allt sem þú kenndir mér og stelpunum mínum Matthildi og Theódóru, alla hjálpina, um- hyggjuna og hvatninguna. Ég ætla að halda áfram að gera þig stoltan og heiðra minningu þína. Hvíldu í friði, heimsins besti afi. Ég endurtek mín síðustu orð til þín á dánarbeði: Ég elska þig, afi. Þín Sandra Rún. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, líf mannlegt endar skjótt. (Hallgrímur Pétursson) Elsku besti afi minn, ég trúi því ekki enn að þú sért farinn, mig langar svo að sjá fallega brosið þitt einu sinni enn og aug- un þín sem ljómuðu af ást og þakklæti. Það var erfitt að fá fréttir af veikindum þínum, þú sem alltaf hefur verið svo hraust- ur og nýkominn heim úr sól og sumaryl. En þú tókst þessu verk- efni með svo mikilli jákvæðni og yfirvegun eins og þér einum er lagið. Það sama var með veikind- in ömmu, þú studdir svo þétt við bakið á henni. Þegar ég veiktist aðeins fjögurra ára gömul og átti að fara til Boston í stóra aðgerð tókst þú ekki annað í mál en að fara með, okkur mömmu til halds og trausts. Þetta sýnir vel hvaða mann þú hafðir að geyma. Ég var aðeins tveggja ára gömul þegar mér tókst að stelast alein og óséð frá Árnatúni heim til ykkar ömmu á Sundabakka. Svo gott var að vera hjá ykkur og eftir að Stöð 2 byrjaði með barna- efnið um helgar „Með afa“ feng- um við Róbert bróðir að koma til Lúðvíg Alfreð Halldórsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.