Morgunblaðið - 28.09.2018, Side 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018
✝ RíkharðurÁrnason fædd-
ist í Reykjavík 11.
nóvember 1939.
Hann varð bráð-
kvaddur í sumar-
bústað sínum í Ei-
lífsdal í Kjós 14.
september 2018.
Foreldrar Rík-
harðs voru hjónin
Árni Þ.K. Jóhann-
esson pípulagn-
ingamaður, f. í Reykjavík 23.
júlí 1904, d. 28. ágúst 1956, og
Ingileif Magnúsdóttir, f. á
Staðarfelli í Dölum 19. mars
1905, d. 13. nóvember 2004.
Systkin: Jóhanna Kristín, f. 4.
september 1932, Jón Jóhannes,
f. 19. september 1934, d. 19.
september 2009, Friðrik Magn-
ús, f. 28. ágúst 1938, Ólafur
Brynjar, f. 27. október 1941, og
Hrönn, f. 27. febrúar 1945.
Hinn 13. mars árið 1965
kvæntist Ríkharður Hrefnu
Jónsdóttur, f. 8. febrúar 1942 í
Reykjavík. Foreldrar hennar
voru Jón Benjamín Einarsson,
f. 13. mars 1913 í Flatey á
Fineza, f. 6. ágúst 2009. Dóttir
Árna og Berglindar Huldu
Jónsdóttur er Guðbjörg Hrefna,
f. 5. janúar 1993, gift Einari
Erni Adolfssyni, f. 11. septem-
ber 1993. Dætur þeirra eru a)
Anja Mist, f. 26. nóvember
2014, og Kristel Nótt, f. 3. apríl
2018. Dóttir Önu eiginkonu
Árna er Jenný Fineza Davíðs-
dóttir, f. 23. desember 2002,
faðir Davíð Sigurðsson. 3) Sæv-
ar Þór, f. 21. júlí 1971, í sambúð
með Láru Fanneyju Jónsdóttur,
f. 13. mars 1972. Börn þeirra a)
Jón Arnar, f. 8. september
1996, b) Ríkharður Daði, f. 17.
júlí 2001.
Ríkharður ólst upp á Skóla-
vörðuholtinu og eftir að skóla-
göngu lauk vann hann ýmis
verkamannastörf. Hóf störf hjá
Ríkisskipum árið 1957 og árið
1962 réð hann sig við símalínu-
lagnir hjá Pósti og síma og síð-
ar við uppsetningu símtækja til
ársins 2004.
Ríkharður byggði sumar-
bústað í Eilífsdal í Kjós árið
1975 og var umhirða bústaðar-
ins og viðhald hans helsta
áhugamál alla tíð. Auk þess
gróðursetti hann talsvert í
sumarbústaðarlandinu ásamt
eiginkonu sinni.
Útför hans fer fram frá
Breiðholtskirkju í dag, 28.
september 2018, klukkan 13.
Breiðafirði, d. 26.
maí 1969, og k.h.
Jónína Ragnheiður
Gissurardóttir, f.
12. júní 1913 á
Hvoli í Ölfusi, d. 5.
desember 2000.
Börn þeirra: 1) Jón
Ragnar, f. 28.
ágúst 1965, kvænt-
ur Katrínu S. Jó-
hannsdóttur, f. 9.
september 1968.
Börn þeirra: a) Jóhann Blær, f.
17. apríl 1997, b) Sigmundur
Bjarki, f. 5. maí 1999, c) Rík-
harður Björn, f. 5. nóvember
2003. Dætur Jóns Ragnars a)
Guðrún Bryndís, f. 10. desem-
ber 1985, gift Kristjáni Guðna-
syni, f. 28. janúar 1985, og eiga
þau soninn Jóhann Ragnar, f. 1.
febrúar 2015. Móðir Bryndísar
er Harpa Þráinsdóttir, b) Heba
Dögg, f. 17. október 1989. Móð-
ir Hebu er Guðný Kjartans-
dóttir. 2) Árni Ingi, f. 6. júní
1969, k.h. Ana Augusta Fineza
Manuel, f. 23. desember 1977.
Börn þeirra a) Ríkharður Fi-
neza, f. 3. júní 2007, b) Camilla
Í dag verður faðir minn Rík-
harður Árnason borinn til hinstu
hvílu og af einlægni hjartans
þakka ég almættinu fyrir að hafa
fengið að njóta hans öll þessi ár.
Sömu blíðuhótin fékk ég kominn
á sextugsaldur og strax við fæð-
ingu. Reglulega fékk maður að
heyra hversu stoltur hann var af
okkur bræðrum og barnabörnun-
um. Tengdadætrunum var hann
líka mjög hrifinn af. Að öðru leyti
var hann lítið fyrir að tjá tilfinn-
ingar sínar með orðum. En hann
sýndi það alltaf í verki hversu
mikið hann elskaði eiginkonu sína
og afkomendur – við vorum alltaf
í fyrsta sæti.
Hann var frumkvöðull án þess
að vekja mikla athygli á því, enda
var honum alltaf mjög fjarri skapi
að miklast af eigin verkum. Stofn-
aði eina af fyrstu kvikmynda- og
vídeóleigum landsins heima hjá
okkur og það gekk nokkuð vel.
En þegar samkeppnin fór að
harðna ákvað hann að hætta.
Áhugamál hans voru kvikmyndir
og alls kyns myndagrúsk. Hann
tók fjölda kvikmynda af okkur
bræðrum á 8 mm vél og það er
gaman að horfa á sjálfan sig lítinn
dreng í alls kyns leikjum. Svo tók
hann líka margar vídeómyndir
sem hafa mikið heimildargildi
fyrir fjölskylduna.
Hann var einstaklega vilja-
sterkur og dugmikill maður sem
komst þangað sem hann ætlaði
sér. Hann langaði að byggja sér
sumarbústað því það bjó alltaf
sveitamaður í honum. En það
þótti eflaust ansi bratt fyrir ríkis-
starfsmann á lágum launum sem
þurfti að vinna fyrir eiginkonu og
þremur börnum. Margir hefðu
örugglega látið sér drauminn
nægja en hann ákvað að gera
draum sinn að veruleika.
Án þess að eiga nægt fjár-
magn, og lán voru ekki í boði, hóf
hann framkvæmdir við byggingu
sumarbústaðar í Eilífsdal í Kjós.
Það voru sníktir kassar sem við
bræður ásamt honum rifum í
sundur og naglhreinsuðum, redd-
að afgangstimbri frá hinum og
þessum. Hann langaði í bústað og
þá einfaldlega byggði hann sér
bústað. Öllum frístundum eyddi
hann í sumarbústaðnum og ásamt
móður minni ræktaði hann landið
og hlúði vel að bústaðnum. Hon-
um féll aldrei verk úr hendi með-
an heilsan var í lagi.
En síðustu árin þjáðist hann af
elliglöpum og aldurstengdum
sjúkdómum. Þess vegna var það
gæfa fyrir hann að fá að kveðja
snöggt í bústaðnum sem hann
unni og hafði byggt af dugnaði og
óvanalegri elju. Duglegir menn
þurfa nefnilega ekki mikla pen-
inga til að láta drauma sína ræt-
ast. Þótt sorgin sé sár er óhjá-
kvæmilegt að gleðjast fyrir hans
hönd. Eins og að ofan greinir var
hann óskaplega viljasterkur og
þrjóskur maður. Ekki er ólíklegt
að hann hafi sjálfur valið sér
dauðdaga – a.m.k. var þetta óska-
stund fyrir hann. Bráðkvaddur á
þeim stað sem honum leið best á.
Katrín minnist tengdaföður
sem sýndi henni alltaf góðvild og
hlýju og börnin okkar eiga góðar
og skemmtilegar minningar með
honum í bústaðnum sem aldrei
gleymast.
Við kveðjum með gleðiblöndn-
um söknuði föður, tengdaföður og
afa og þökkum honum fyrir að
hafa verið til og auðgað okkar líf
meir en nokkur orð fá lýst.
Jón Ragnar Ríkharðsson,
Katrín og börn.
Elsku pabbi.
Það er erfitt að kveðja, það er
erfitt að sætta sig við að þú sért
farinn. Það er óraunverulegt að
setjast niður og skrifa þessi
kveðjuorð, eina stundina er þetta
eins og fjarlægur draumur en
hina ýtir raunveruleikinn við
manni. Á svona stundum ylja
minningarnar og munu lifa til
hinstu stundar. Það er margt sem
skýtur upp kollinum. Allir bíltúr-
arnir sem þú fórst með okkur um
bæinn. m.a. á æskuslóðir þínar á
Skólavörðuholtinu, sögurnar frá
braggalífinu og leikvöllurinn var
miðbærinn. Ferðalögin, hring-
vegurinn, Vestfirðir og Austur-
land. Árið 1974, þá rétt um 35 ára,
berst í bökkum að reka fimm
manna fjölskyldu í tveggja her-
bergja íbúð í Breiðholti þá færðu
þá farsælu hugmynd að byggja
sumarbústað í Eilífsdal. Einhver
myndi segja galið þegar nóg var
um að vera og hver króna fullnýtt,
en þú lést það ekki á þig fá,
byggðir bústaðinn með hjálp
góðra vina úr litlum efnum. Þarna
var komið okkar annað heimili,
flest sumur og helgar uppi í bú-
stað, yndislegur tími. Í Eilífsdal
myndaðist lítið samfélag sem þú
og mamma tókuð þátt í að byggja
upp enda meðal frumbyggja dals-
ins. Félagsstörf, alls konar vinna
fyrir svæðið, svo ekki sé talað um
skemmtanirnar sem þið ásamt
góðu fólki voruð frumkvöðlar í að
koma á legg. Það er huggun
harmi gegn að vita að þú fékkst
að kveðja á þeim stað sem stóð
þér svo nærri og þið mamma haf-
ið ræktað upp og hlúð að öll þessi
ár.
Þú varst frumkvöðull og
grúskari. Ljósmyndun, kvik-
myndataka og seinna vídeóupp-
tökur. Kvikmyndaáhuginn varð
til þess að þú stofnaðir kvik-
myndaleigu, þetta litla fyrirtæki
var rekið heima, þrátt fyrir að
plássið væri ekki mikið dugði það
til. Seinna þegar ný tækni fór að
ryðja sér braut breyttist leigan í
vídeóleigu, myndir og tæki, eina
af þeim fyrstu á landinu. Allt
heima. Við bræður nutum góðs af,
gátum séð myndir sem ekki voru
komnar í kvikmyndahús og opn-
uðum okkar eigið bíó í kjallaran-
um á blokkinni sem við seldum
aðgang að. Þú áttir trausta vini og
kunningjahópurinn var stór, enda
búinn að koma inn í næstum hvert
einasta hús í Breiðholtinu og
reyndar í flestum hverfum borg-
arinnar að tengja síma. Það er
minnisstætt okkur bræðrum að
ekki var hægt að fara í neina
verslun með þér án þess að þurfa
að bíða, þú virtist þekkja alla.
Alltaf leið þér best með mömmu
og okkur bræður þér við hlið og
þá helst uppi í bústað. Þar var
þinn griðastaður. Síðastliðin ár
var heilsan farin að segja til sín,
elliglöp og líkamlegir kvillar, allt-
af naustu góðs stuðnings frá
mömmu, klettinum í lífi þínu.
Það er svo margt sem ég vildi
hafa sagt þér oftar, hversu ást-
kær og góður faðir þú varst. Við
ólumst ekki upp í miklum verald-
legum gæðum og eignum en af
því meiri ást og alúð, okkur skorti
aldrei neitt. Lára minnist þín sem
ástríks tengdaföður sem þú tókst
strax opnum örmum inn í fjöl-
skylduna, alltaf reiðubúinn þegar
þurfti. Jón Arnar og Ríkharður
Daði sakna afa síns en minnast
allra góðu stundanna með þér,
heima, erlendis og uppi í bústað.
Þú varst yndislegur afi,
tengdafaðir og faðir.
Sævar, Lára, Jón Arnar og
Ríkharður Daði.
Árin færast yfir og fyrr eða síð-
ar kemur að leiðarlokum. Kveðju-
stund er alltaf sár en með tím-
anum safnast góðar minningar
sem lifa í hug okkar sem kveðjum
í dag Ríkharð Árnason, eða Rikka
eins og hann var jafnan kallaður.
Þó að bræðrabönd hafi tengt
okkur voru aðstæður okkar þann-
ig að við kynntumst ekki fyrr en
við vorum komnir að fullorðins-
árum. Í áranna rás heyrði ég
systkini okkar segja frá ýmsum
skondnum og frumlegum uppá-
tækjum Rikka þegar hann var að
alast upp og það fer ekki hjá því
að ég sakni þess að hafa ekki ver-
ið viðstaddur eða þátttakandi í
ýmsum hugdettum hans.
Rikki var ávallt glaðsinna og
átti auðvelt með að vekja hlátur
og létta lund þeirra sem hann átti
samskipti við og var því vel met-
inn af vinum og starfsfélögum.
Þegar við systkinin hittumst fyrir
nokkrum vikum í áttræðisafmæli
bróður okkar átti Rikki mikinn
þátt í því að kátína og gleði væru
ríkjandi þó að líkamlegt atgervi
hafi ekki verið eins og áður. Hann
kvartaði ekki þó þrekið væri
þverrandi heldur hélt föstu taki í
það jákvæða hugarfar sem ein-
kenndi hann alla tíð.
Við Anna þökkum fyrir sam-
fylgdina gegnum árin og njótum
þess að eiga minningar um góðan
bróður og mág. Við vottum
Hrefnu og sonum þeirra, Jóni
Ragnari, Árna Inga og Sævari og
fjölskyldunni allri innilega samúð
okkar.
Ólafur Kristinsson.
Lánið lék við Rikka mág minn
eins og svo oft. Nú hafði hann
fengið gefins stóran glugga-
ramma. Á þeim árum fyrir margt
löngu var hann með miklum
dugnaði að draga að sér efni í
sumarbústað uppi í Eilífsdal í
Kjós og meðal annars að rífa
kassa úr forláta timbri utan af
nýjum rússneskum bílum.
Gluggaramminn var fluttur
upp í Eilífsdal og þar var honum
stillt upp á undirstöðurnar og var
hann fyrsti vísir að bústaðnum. Á
eftir var drukkið kaffi úr brúsa og
horft yfir dalinn í gegnum ramm-
ann og skeggrætt um bústaðinn
sem átti að byggjast í kringum
rammann.
Af einhverjum ástæðum hafði
Rikki tröllatrú á mér sem hönn-
uði bústaðarins en í þá daga
þurfti engar samþykktar teikn-
ingar eða að fylgja flóknu reglu-
verki. Smám saman um sumarið
fór bústaðurinn að taka á sig
mynd en á ákveðnu byggingar-
stigi hnykkti okkur félögunum við
og okkur féllust nánast hendur.
Eitthvað hafði misfarist því til-
sýndar lágu þaksperrurnar lægst
í miðjunni en risu bratt upp til
beggja enda. Með þessu yrði bú-
staðurinn ákaflega framandi í út-
liti, líkastur fornri kínverskri pa-
góðu.
En sem betur fer átti Friðrik
bróðir Rikka þarna leið um og
fyrr en varði hafði hann leyst úr
vandanum og lagað mestu mis-
smíðina.
Úr því dró úr verkstjórn minni
en það var í raun ekki aðalatriðið
hvort öll horn væru rétt eða gólfið
alveg lárétt heldur að Rikki bjó
þarna fjölskyldu sinni notalegt af-
drep í sveitinni þar sem gleði
ríkti, væntumþykja og einstök
hlýja sem einkenndi alltaf heimili
Rikka og Hrefnu systur minnar.
Nágrannar, vinir og ættingjar
voru tíðir gestir og oft þröngt set-
inn bekkurinn í Eilífsdalnum.
Mikið masað og mikið hlegið og
krakkarnir undu sér vel þarna í
sveitasælunni þar sem húsráð-
endur voru ekki að takmarka at-
hafnafrelsið.
Alltaf var leitað til Rikka um
hvaðeina; vandamál með síma,
rafmagn og ekki síst bíla, enda
var hann óvenjugreiðvikinn og
alltaf reiðubúinn til aðstoðar með
glöðu geði. Hann var drengur
góður, kær vinur og félagi öll árin
frá fyrstu kynnum fyrir rúmri
hálfri öld. Öllum þótti vænt um
Rikka og Rikka þótti vænt um
alla.
Tíminn líður. Trén sem voru
gróðursett eru núna uppvaxinn
skógur. Nýr bústaður byggður
fyrir langa löngu með nýjum
glugga þar sem Rikki kvaddi lífið
á staðnum þar sem hann undi sér
best.
Einar Jónsson.
Laugardagskvöld og ég er ný-
skriðinn af 10 tíma vakt. Síminn
hringir og pabbi segir mér tíðind-
in að hann Rikki frændi sé dáinn.
Ég með tár í augum og minningar
streyma fram. Þegar ég var lítil
og Rikki var stærstur. Gat kastað
manni svo hátt og látið mann
hlæja svo dátt. Alltaf með ein-
dæmum nýjungagjarn en bar þó
óm fortíðar alltaf með sér. Veröld
sem var. Lífsbaráttan hörð,
braggabarn, „Nína, gólfið var
stundum eitt svell.“ En hugurinn
var annars staðar, lífið svo miklu
meira en brauðstrit. Hjól með
mótor, kanasjónvarp og dillandi
músík. Seinna dáðist ég að því í
laumi að þrátt fyrir harðindin var
ljúfleikinn allsráðandi. Rikki var
ljúfur maður og svo góður. Vildi
allt gera fyrir alla í símaúlpunni.
Minningarnar streyma. Rikki og
Hrefna komu til mín til Danmerk-
ur, ógleymanlegt. Rikki fór strax
í að laga sjónvarpsskápinn minn.
Svo komu árin og árin setja mark
á hugann, aldrei samt hárið sem
var alltaf þétt og hrokkið. Alltaf
tók hann vel á móti mér. „Er
þetta ekki Nína“ og svo innilegt
faðmlag. Kærleikurinn svo tær.
Mér þótti innilega vænt um Rikka
frænda enda ekki hægt annað.
Nú er hann farinn, kvaddi í bú-
staðnum í Eilífsdal. Þar leið hon-
um vel. Minningarnar streyma,
eftir stendur þakklæti fyrir ljúf-
leikann, fyrir kærleikann og fyrir
brúna yfir i veröld sem var.
Hvíl í friði, elsku vinur.
Jónína Ragnheiður
Einarsdóttir.
Ríkharður
Árnason
✝ Hjörtína Krist-ín Gestdóttir
fæddist á Siglufirði
26. október 1923.
Hún lést í Keflavík
17. september 2018.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Lára
Thorsen, f. á Hjalt-
eyri 21.6. 1887, d.
16.11. 1976, og
Gestur Guðmunds-
son frá Bakka á
Siglufirði, f. 21.8. 1892, d. 8.3.
1937. Foreldrar Láru voru Lars
Thorsen frá Noregi og Hjörtína
Kristín Kristjánsdóttir, en for-
eldrar Gests voru Guðmundur
Bjarnason og Halldóra Björns-
dóttir sem bjuggu í Bakka á
Siglufirði. Systkini Hjörtínu
Kristínar eru:
Halldór Þorsteinn,
f. á Siglufirði 15.4.
1917, d. 3.11. 2008,
Svava, f. 1921, og
Óskar Leó, f. 1925,
en þau létust bæði
í æsku.
Synir Hjörtínu
Kristínar eru
Richard Dawson
Woodhead, Svavar
Óskar Bjarnason,
látinn, og Hilmar Grétar Bjarna-
son.
Hjörtína Kristín bjó lengst af í
Keflavík.
Útför hennar fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag, 28.
september 2018, og hefst athöfn-
in klukkan 13.
Elsku Stína frænka! Stína
frænka var hún alltaf nefnd
þegar hana bar á góma innan
fjölskyldunnar. Nú ert þú fallin
frá og komin í faðm þeirra ást-
vina sem á undan eru gengnir
úr fjölskyldunni.
Við, bróðurfjölskylda þín frá
Hlíðarvegi 11, Siglufirði, þökk-
um alla samfylgd og samveru
liðinna ára. Við eigum margar
góðar minningar um þig sem
munu fylgja okkur og lifa áfram
með okkur öllum. Við minnumst
þín og þökkum allar góðu gjaf-
irnar sem þú færðir okkur. Við
minnumst gleði og góðra
stunda í hlátri, glensi og frá-
sögnum. Við minnumst líka
stunda þar sem sorgin kom við
sögu.
Þær eru líka systur sorgin og
gleðin og tvinnast saman í lífi
hvers manns og þá er það sam-
staða og samvera fjölskyldunn-
ar sem er okkur öllum svo
mikilvæg, ekki síður en á gleði-
stundum.
Bróðurfjölskyldan þín kveð-
ur þig nú með kærleik og þakk-
læti fyrir allt. Far þú í friði,
elsku Stína frænka.
Við færum fjölskyldunni
hennar Stínu frænku, Rikka og
hans fjölskyldu, fjölskyldunni
hans elsku Svavars (sem er lát-
inn, langt um aldur fram),
Hilmari og hans fjölskyldu okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Elsku Stína frænka!
Þá jarðlífs göngu lokið er,
við ljúfa kveðju sendum þér.
Minning um þig mæt og blíð,
mun okkur fylgja alla tíð.
Við munum góðu gjafirnar,
sem gafst þú okkur, fallegar.
Allt sem gott og gleði bar,
það gladdi litlu sálirnar.
Hlíðarvegs ellefu, hópurinn,
höfði drúpir nú um sinn.
Við trúum að tryggur englaher,
taki vel á móti þér.
(G.H.H.)
Með samúðarkveðjum.
Líney Bogadóttir, börn
og fjölskyldur, frá Hlíðar-
vegi 11, Siglufirði.
Hjörtína Kristín
Gestdóttir
Allar minningar
á einum stað
MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að
geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst
hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is.
Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni
mbl.is/minningar.
Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa
frá árinu 2000 til dagsins í dag.