Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 38

Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018 »RIFF, Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykja- vík, hófst í gær og er hún nú haldin í fimmtánda sinn. Opnunarmynd hátíðarinnar, Donbass, var frumsýnd í Bíó Paradís en hún er eftir leikstjórann Sergei Loznitsa sem er einn heiðursgesta RIFF að þessu sinni. Að sýningu lokinni var haldin opnunar- teiti í Iðnó þar sem menntamálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, veitti Loznitsa heiðursverðlaun há- tíðarinnar. Hátt í 70 leiknar kvikmyndir, heimildar- myndir og fjöldi stuttmynda frá yfir 30 löndum eru á dagskrá hátíðarinnar. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hófst Morgunblaðið/Eggert Góður gestur Hrönn Marinósdóttir stofnandi og stjórnanda RIFF og Mads Mikkelsen sem fær verðlaun RIFF fyrir framúrskarandi listrænan leik. VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Æfingar ganga vel og leikkon- urnar eru bráðfyndnar, spreng- hlægilegar reyndar, og þeim hefur tekist að fá mig til að hlæja að leik- ritinu á ný,“ segir norðurírska leik- skáldið Marie Jones um Fly Me to the Moon, gamanleikrit sem hún skrifaði og frumsýndi fyrir sex ár- um og leikstýrir nú í uppsetningu Þjóðleikhússins. Verkið verður frumsýnt í kvöld í Kassanum og leikkonurnar sem hún nefnir eru meðal þeirra fyndustu á landinu, þær Anna Svava Knútsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Fleiri eru leikararnir ekki í verki Jones. Tungumálið ekki fyrirstaða Anna og Ólafía fara með hlutverk Lorettu og Francis sem starfa við heimaþjónustu við aldraða. Þær hafa alltaf þurft að hafa fyrir lífinu en standa skyndilega frammi fyrir möguleikanum á að eignast svolít- inn pening með auðveldum hætti, eins og segir á vef leikhússins. En til þess þurfa þær kannski að svindla dálítið. Jones segist hafa leikstýrt verk- inu áður, í heimaborg sinni Belfast. „Og það var sýnt víðar og hefur m.a. verið sýnt á Norðurlönd- unum,“ segir hún. Hún segir tungu- málið, íslensku, ekki fyrirstöðu þar sem hún þekki verkið svo vel að hún viti hvað Anna og Ólafía eru að segja hverju sinni. Og viti hún það ekki geti hún alltaf leitað til aðstoð- arleikstjórans, Önnu Katrínar Ein- arsdóttur. Athygli vekur að titill verksins er á ensku, þrátt fyrir að það sé sýnt á Íslandi, en ástæðan er sú að hér er um eitt þekktasta lag Franks Sinatra að ræða. „Einn karlanna sem konurnar annast er mikill aðdáandi Franks Sinatra og hefur aðeins unun af tvennu í lífinu; að veðja á hesta og hlusta á Sinatra,“ segir Jones og brosir. Allir hljóti að kannast við þetta lag og blaðamað- ur segist vona að hún hafi rétt fyrir sér. Stigvaxandi örvænting Jones er beðin um að segja að- eins meira frá söguþræði verksins. „Þessar konur þurfa að gera það sama alla daga, fara milli heimila og sinna öldruðum. Þetta er erfiðis- vinna því þær hafa bara 20 mínútur á hverjum stað til að gera allt sem þarf að gera áður en haldið er í næsta hús. Því vita þær lítið sem ekkert um skjólstæðinga sína,“ seg- ir Jones. Dag einn kemur babb í bátinn þegar þær eru heima hjá fyrr- nefndum Sinatra-unnanda. „Fyrstu viðbrögð þeirra eru að reyna að leysa vandann en því miður gerast þær sekar um dómgreindarleysi, gera mistök sem hver sem er gæti gert og vandinn vex svo svakalega að þær fá ekkert við hann ráðið.“ Jones segir að vinkonurnar verði æ örvæntingarfyllri eftir því sem líði á verkið og reyni sífellt meir að réttlæta gjörðir sínar. „Þetta eru tvær venjulegar manneskjur við mjög óvenjulegar aðstæður og eina markmið þeirra er að komast út úr þeim aðstæðum með þeim aðferð- um sem þær kunna,“ segir Jones kankvís og að undir lokin megi leik- húsgestir búast við stórkostlegum hörmungum. „Þetta eru mjög fyndnar leik- konur og líka frábært hvað þær eru sannfærandi í túlkun sinni. Þær eru í skelfilegum aðstæðum sem breyta lífi þeirra og ógna þeim,“ útskýrir Jones kímin og greinilegt að hún er með bleksvart skopskyn. Jones segir þær Lorettu og Francis býsna ólíkar og taka við stjórninni á ólíkum tímum í verkinu. Þær séu hvor með sínar lausnir og nálgist vandamálin með ólíkum hætti. Samt sem áður fái þær ekki við neitt ráðið. Hugmynd þróuð í helgarfríi – Hvernig fékkstu hugmyndina að þessu verki? „Það komu tvær leikkonur til mín og sögðu lítið fyrir þær að gera, að fá almennileg hlutverk væru í boði. Þetta eru mjög fyndn- ar leikkonur og þær spurðu hvort ég gæti ekki skrifað eitthvað fyrir þær og ég svaraði því til að við ætt- um bara að fara í helgarfrí saman og spjalla og sjá hvaða lífsreynslu við ættum sameiginlega,“ segir Jones. Þær hafi gert það og í ljós komið að tvær þeirra áttu mæður sem voru ýmist á dvalarheimilum eða með heimahjúkrun og amma þeirrar þriðju hafði notið slíkrar þjónustu. „Við sáum að við þekkt- um allar vel til þessara mála og lét- um á það reyna hvort hægt væri að skrifa gamanleik um þetta efni,“ segir Jones. Þær hafi hlegið alla helgina og upp úr þeirri miklu gleði hafi verkið sprottið. Fámenn verk þægilegri Jones hóf að skrifa leikrit í sam- vinnu við aðra fyrir leikhópinn Charabanc í Belfast sem hún starf- aði með til ársins 1990. Þá stofnaði hún ásamt öðrum leikhópinn Double Joint og hefur starfað mikið með honum og skrifað flest leikrit sín fyrir hann. Hún hefur starfað sem leikkona, leikskáld og leikstjóri í yfir 30 ár og hennar þekktasta og vinsælasta verk, Með fulla vasa af grjóti, sló í gegn hér á landi þegar það var Konur á barmi taugaáfalls  Gamanleikritið Fly Me to the Moon frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í kvöld  Höfundur leikritsins og leikstjóri, Marie Jones, skrifaði það vegna skorts á bitastæðum kvenhlutverkum Morgunblaðið/Hari Leikskáldið Marie Jones, höfundur og leikstjóri Fly Me To The Moon, í Kassanum í Þjóðleikhúsinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.