Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 41

Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018 Hurðaskellur Nóru undirlok Dúkkuheimilis Hen-riks Ibsen vakti mikla at-hygli þegar leikritið var frumsýnt í Kaupmannahöfn í árslok 1879. Á þeim tíma var fáheyrt að kona teldi skyldurnar við sjálfa sig sem manneskju vera mikilvægari en skyldurnar sem eiginkona og móðir. Þegar leikritið rataði á svið í Þýska- landi 1880 neitaði leikkonan Hedwig Niemann-Raabe að láta Nóru yfir- gefa heimilið þar sem slíkt væri í hennar huga óhugsandi og neyddist Ibsen því til að semja „hamingju- saman“ endi, sem féll reyndar ekki í kramið hjá áhorfendum. Mörgum ár- um seinna sá þýski leikstjórinn Thomas Ostermeier í uppfærslu Schaubühne það sem einu leið Nóru út úr hjónabandinu að skjóta Þorvald Helmer, eiginmann sinn, til bana. Ýmsir höfundar hafa í gegnum tíð- ina velt vöngum yfir hvað biði Nóru að hjónabandi loknu. Þeirra á meðal er Nóbelsverðlaunaskáldið Elfriede Jelinek sem í leikriti frá 1979 sá fyrir sér að Nóra yrði undir í hinu kapítal- íska feðraveldi sem starfskona í verksmiðju og ástkona ríks manns meðan Þorvaldur fengi sér nýja brúði á dúkkuheimili sitt. Ekkert framhaldsleikritanna um Nóru hefur þó hlotið viðlíka vinsældir og leikrit bandaríska leikskáldsins Lucasar Hnath sem frumsýnt var vorið 2017 og rataði fljótt á Broadway þar sem uppfærslan hlaut átta Tony- verðlaun, m.a. fyrir besta leikrit. Samkvæmt nýlegri úttekt tímarits- ins American Theater verður leikrit Hnath það mest leikna í Bandaríkj- unum á yfirstandandi leikári, en það var Evrópufrumsýnt í Borgarleik- húsinu í Stokkhólmi sl. föstudag. Í verki sínu lætur Hnath Nóru (Unnur Ösp Stefánsdóttir), árið 1894, snúa aftur til heimilisins sem hún yf- irgaf 15 árum áður. Nóra hefur ekki látið heyra frá sér í öll þessi ár. Henni hefur vegnað vel og skapað sér nafn sem umdeildur en samt vin- sæll rithöfundur. Líkt og ensku Brontë-systurnar hefur hún valið að skrifa kvennabókmenntir sínar undir dulnefni. Og líkt og hjá sænsku skáldkonunni og kvenréttindafröm- uðinum Fredriku Bremer hafa skrif hennar um kúgun kvenna í samfélag- inu, þó einkum innan ramma hjóna- bandsins, vakið mikla athygli. Kven- kyns lesendur Nóru hafa komið sér úr hamingjusnauðum hjónaböndum fyrir hvatningu hennar og af þeim sökum er Nóra komin í ákveðin vandræði. Meðal yfirgefinna eigin- manna er dómari sem komist hefur að snoðum um að Nóra er enn lög- formlega gift Þorvaldi Helmer (Hilmir Snær Guðnason) – nokkuð sem kom henni í opna skjöldu. Sjálf treysti hún nefnilega á að Þorvaldur myndi sækja um skilnað á sínum tíma og hefur því lifað sem fráskilin kona, átt fjölda elskhuga og skrifað undir samninga sem eru lögum sam- kvæmt ógildir án undirskriftar eigin- mannsins. Tilefni heimsóknar hennar er því að fara þess á leit að Þorvaldur komi öllum í skilning um að þau hafi ekki lifað sem hjón síðustu 15 árin og sæki formlega um skilnaðinn, enda auð- veldara fyrir hann þar sem hann þarf ekki að geta sannað illa meðferð eða svik makans líkt og lög þess tíma krefjast af konum. Verkið byggist að mestu upp á tveggja manna senum þar sem Nóra miðlar efasemdum sínum um hjóna- bandið í samtölum við Þorvald, Önnu Maríu fyrrverandi fóstru sína (Mar- grét Helga Jóhannsdóttir) og loks Emmu gjafvaxta dóttur (Ebba Katr- ín Finnsdóttir). Mun minna fer fyrir gagnrýni á feðraveldið, samfélags- gerðina og lögin sem héldu konum niðri – og gera enn víða um heim. Nóru gremst að fóstran, sem ól fyrst hana upp og síðan börnin hennar, skuli ekki sjá líkindin milli þeirra þar sem Anna María yfirgaf sjálf eigið barn til að geta hugsað um börn Nóru. Hér skautar leikskáldið létti- lega yfir aðstöðumun kvennanna tveggja sem birtist í fjárhagslegu baklandi þeirra – eða skorti þar á. Þó að gaman hafi verið að sjá Margréti Helgu aftur á leiksviðinu var heldur ótrúverðugt að fyrir aðeins 15 árum hefði hún yfirgefið eigið barn til að ala upp börn Helmer-hjónanna. Í uppgjöri mæðgnanna reynir Nóra að vara Emmu við því að ham- ingjuna sé ekki að finna í hjónaband- inu, en Emma þráir ekkert heitar en eðlilegt heimilislíf sem hún sakar móður sína um að hafa svipt sig. Emma er samt ekki ólíkari móður sinni en svo að hún er tilbúin að fremja skjalafals til að tryggja ham- ingju sína. Ebba Katrín gerði sitt besta til að gæða Emmu lífi, en fær ekki mikla hjálp frá leikskáldinu sem lætur hana sífellt vera að rifja upp hluti sem hún í hinu orðinu bendir réttilega á að hún geti að sjálfsögðu ekki munað sökum ungs aldurs þeg- ar Nóra fór. Í meðförum Hnath hefur Þorvald- ur á þeim 15 árum sem liðin eru síðan Nóra gekk út öðlast ótrúlegt innsæi í vanda hjónalífs þeirra og er merki- lega tilbúinn að ræða málin. Hann áfellist hana fyrir að hafa stungið af í stað þess að vinna sameiginlega úr vanda þeirra. Þegar kemur að þeim sinnaskiptum sem Þorvaldur tekur í verkinu í von um betri eftirmæli frá Nóru hefði leikskáldið þurft að und- irbyggja þau mun betur. Að forskrift höfundar eru persón- ur verksins klæddar fatnaði sem henta sögutímanum. Stefanía Adolfs- dóttir hefur töfrað fram glæsilegan fatnað þar sem litadýrðin ríkir. Nóra fær rúbínrauða silkiblússu og flauels- pils í stíl meðan Þorvaldur klæðist kóngabláum jakkafötum, en í dans- senu þeirra hjóna tekst Birni Berg- steini Guðmundssyni með lýsingunni að umbreyta fatnaðinum og gera hann einslitan sem undirstrikar tengsl þeirra þrátt fyrir allt sem á undan er gengið. Emma er björt sem sólin meðan fóstran er í mildum bleik- gráum lit sem undirstrikar aldur hennar og valdaleysi. Börkur Jónsson skapar í leikmynd sinni kalt og skjóllaust heimili með hráum, gráum veggjum og stórum gluggum. Hurðin sem Nóra skellti svo rækilega á eftir sér er ekki sýni- leg á sviðinu, aðeins heyrist bankað á hana í upphafi verks. Hvort sem hurðarleysinu var um að kenna eða ekki gætti ákveðins óöryggis í fyrstu samskiptum Nóru og Önnu Maríu í upphafi sýningar. Björn Bergsteinn leikur sér með skuggana sem rýmið býður upp á ásamt því að notast við kröftuga liti sem kallast á við bún- ingana. Tónlist Unu Sveinbjarnar- dóttur er ágeng og óróleg sem kallast vel á við innihaldið. Sýningin hefst á mekanískum dansi úr smiðju Svein- bjargar Þórhallsdóttur þar sem Nóra minnir helst á dansandi dúkku í spila- dós – dans sem dóttir hennar leikur eftir milli þátta síðar í verkinu. Þessi vélræni dans á mögulega að undir- strika að konur verksins eru leiksopp- ar samfélagsgerðar sem mótuð er af körlum. Höfundurinn teflir í verkinu saman persónum sem tala eins og nútíma- fólk, en upplifa atburðina í kringum aldamótin 1900. Slíkt stefnumót í tíma og rúmi hefði getað verið spenn- andi, en verður það því miður ekki í meðförum Hnath. Til þess er textinn, í annars ágætri þýðingu Sölku Guð- mundsdóttur, alltof bragðdaufur, yf- irborðslegur og klisjukenndur auk þess sem allan undirtexta skortir. Höfundinum tekst aldrei að fara á dýptina í samtölum persóna um hjónabandið sem sáttmála og öfugt við Dúkkuheimili Henriks Ibsen fá persónur framhaldsins heldur engin tækifæri til að fara í flókið tilfinninga- ferðalag fyrir augum áhorfenda. Af- staða persóna breytist lítið sem ekk- ert í framvindu verksins og undir lokin hefur ekkert breyst. Snemma í verkinu segist Nóra vera „allt önnur manneskja“ en þegar hún gekk út af heimilinu 15 árum áð- ur. Markmið hennar var þá að læra betur á reglur hins karllæga sam- félags sem skipað höfðu henni á bekk sem viðfangi og meinuðu henni að falsa undirskrift til að bjarga lífi eig- inmanns síns. Erfitt er að trúa því að sú sjálfstæða og sjálfsörugga Nóra sem birtist áhorfendum í upphafi framhaldsverksins hafi ekkert lært af samskiptum sínum við Níels Krogs- tad í upprunalega leikritinu og hafi aldrei gengið úr skugga um að allir pappírar væru í lagi, enda lykillinn að frelsi hennar og því lífi sem hún vill lifa. Þegar við bætist að innri rökvísi verksins virðist ekki ganga upp er úr vöndu að ráða fyrir leikhópinn undir stjórn Unu Þorleifsdóttur. Leikstjórinn nálgast efniviðinn með mjög stílfærðum hætti þar sem dans, tónlist, lýsing, leikmynd og búningar skapa afgerandi ramma sem oft er áhugavert að horfa og hlusta á. Í ljósi þess hversu mínímal- ísk uppfærslan er fær hver hlutur sem birtist á sviðinu meira vægi. Út- litslega stungu stólar heimilisins í stúf og virtust hvorki vísa í hráa leik- myndina né íburðarmikla búningana. Gaman var hins vegar að sjá hvernig Nóra og Þorvaldur merktu sér stól- ana með jökkum sínum, en sér- kennilegt að Nóra skyldi ætla að rjúka út án yfirhafnar um miðbik verksins – nema ætlunin hafi verið að gefa áhorfendum vísbendingu um að hún væri bara að þykjast sem væri heldur langsótt. Í heild virtist leikur- inn agaður fram að öskuruppgjöri Helmer-hjónanna. Unnur Ösp og Hilmir Snær gera eins vel og hægt er miðað við þann efnivið sem þau hafa úr að moða, sem er miklum mun rýr- ari en sá sem stóð til boða á stóra sviði sama leikhúss fyrir tæpum fjór- um árum. Sársaukinn og örvæntingin sem Ibsen nær svo meistaralega að miðla í upprunalega leikritinu vék í framhaldsverki Hnath fyrir laga- tækni sem hreyfir lítið sem ekkert við hjartanu. Hefur ekkert breyst? Ljósmynd/Grímur Bjarnason Bragðdauft „Sársaukinn og örvæntingin sem Ibsen nær svo meistaralega að miðla í upprunalega leikritinu vék í fram- haldsverki Hnath fyrir lagatækni sem hreyfir lítið sem ekkert við hjartanu,“ segir í rýni um Dúkkuheimili, 2. hluta. Borgarleikhúsið Dúkkuheimili, 2. hluti bbmnn Eftir Lucas Hnath. Íslensk þýðing: Salka Guðmundsdóttir. Leikstjórn: Una Þor- leifsdóttir. Leikmynd: Börkur Jónsson. Búningar: Stefanía Adolfsdóttir. Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson. Dans- höfundur: Sveinbjörg Þórhallsdóttir. Tónlist: Una Sveinbjarnardóttir. Hljóð- mynd: Garðar Borgþórsson og Una Sveinbjarnardóttir. Leikgervi: Guðbjörg Ívarsdóttir. Leikarar: Unnur Ösp Stefánsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Margrét Helga Jóhannsdóttir og Ebba Katrín Finnsdóttir. Frumsýning á Nýja sviði Borgarleikhússins 21. september 2018, en rýnt í þriðju sýningu sunnu- daginn 23. september 2018. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is DUX PASCAL SYSTEM Sérsniðna gormakaerfið Líkamar allra eru einstakir. Þess vegna býður Pascal de Luxe yfirdýnan upp á sérsniðin þægindasvæði sem gerir tveimur einstaklingum kleift að velja fullkomnu stillinguna fyrir axlirnar, neðra bakið og fótleggina þeirra. Pascal kerfið er í boði fyrir öll DUX rúm, annað hvort sem fellt inn í rúmið eða sem sérstök yfirdýna. ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.