Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 44
Hljómsveitin ADHD heldur tónleika
í kvöld kl. 21 í Mengi við Óðinsgötu.
Hljómsveitin hefur verið starfandi í
rúman áratug og hefur haldið tón-
leika víða um Evrópu. Hún hefur
gefið út sex hljómplötur og sú sjö-
unda er í vinnslu. ADHD skipa Ósk-
ar og Ómar Guðjónssynir, Tómas
Jónsson og Magnús Trygvason Eli-
assen. Sveitin mun leika gömul lög
og ný í Mengi.
ADHD leikur gömul lög
og ný í Mengi í kvöld
FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 271. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad-áskrift 6.173 kr.
„Við spiluðum vináttuleik við lið frá
Brussel. Daginn eftir var ég stífur í
náranum en fann þó ekki fyrir sárs-
auka. Ég tók það rólega í einn dag
en á æfingu daginn eftir rann ég til
í polli á æfingu,“ segir Haukur Helgi
Pálsson, landsliðsmaður í körfu-
bolta, um upptök meiðsla sem hann
hefur glímt við á leiktíðinni hjá sínu
nýja félagi í Frakklandi. »1
Rann til í polli og er
enn að jafna sig
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Grínistinn Ari Eldjárn kemur fram
með Sinfóníuhljómsveit Íslands á
þrennum tónleikum. Þeir fyrstu
fóru fram í gær og þeir næstu fara
fram í kvöld og annað kvöld. Sam-
bærilegir tónleikar voru haldnir í
fyrra og seldist upp á þrenna tón-
leika. Var því ákveðið að endurtaka
leikinn. Ari mun fara með gaman-
mál og kynna með sínum hætti vin-
sæl hljómsveitarverk.
Hljómsveitarstjóri
er Bernharður
Wilkinson.
Ari Eldjárn slær á létta
strengi með Sinfó
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Snorre Greil, stýrimaður hjá Land-
helgisgæslunni, útskrifaðist með
meistaragráðu í herfræðum frá For-
svarsakademiet, skóla danska herafl-
ans, um liðna helgi og er fyrstur
starfsmanna Gæslunnar sem það
gerir.
Snorre er með tvöfaldan ríkisborg-
ararétt, bæði danskan og íslenskan.
Hann er kvæntur Guðbjörgu Karls-
dóttur og hefur búið á Íslandi um
árabil, en vann áður sem stýrimaður
á danska eftirlitsskipinu Vædderen í
danska sjóhernum. „Árið 2000 var
skipið við landfestar í Hafnarfirði
vegna viðgerða,“ segir Snorre um
tenginguna við Ísland. „Þá hitti ég
Guðbjörgu, við felldum hugi saman,
giftum okkur og eigum þrjú börn.“
Árið 2006 byrjaði Snorre að vinna
sem stýrimaður hjá Landhelgisgæsl-
unni. Hann hefur unnið á varð-
skipum Gæslunnar sem og í flug-
deildinni, en starfar nú á aðgerða-
sviði hennar og er tengiliður við
danska heraflann.
Töluverð áskorun
Skóli danska heraflans, Forsvars-
akademiet, bauð Landhelgisgæsl-
unni að senda starfsmann í meistara-
nám henni að kostnaðarlausu og varð
Snorre fyrir valinu, ekki síst vegna
þess að kennslan fór fram á dönsku.
Um var að ræða almennt stjórn-
unarnám, þar sem stjórnun og her-
fræði voru tekin fyrir. Lokaritgerð
Snorre fjallar um mengunarmál,
rannsókn og löggæslu í sambandi við
mengun í hafi. Þar skrifar hann um
mál viðkomandi Landhelgisgæslunni
og samstarf við Dani. Námið fór
fram í mörgum lotum. „Ég varð að
sinna fjölskyldu, vinnu og námi á
sama tíma í þrjú ár og það var tölu-
verð áskorun,“ segir Snorre, sem
þurfti að fljúga til Kaupmannahafnar
um það bil mánaðarlega vegna náms-
ins. „Mér gekk samt mjög vel,“ árétt-
ar hann en um 20 nemendur útskrif-
uðust að þessu sinni. Fyrir utan
Snorre voru þeir frá danska flug-,
sjó- og landhernum, en einnig komu
nemendur frá danska heimavarnar-
liðinu og ráðuneytum.
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar
hafa sótt sér fróðleik víða, meðal
annars hjá bandaríska sjóhernum og
bandarísku strandgæslunni, en
Snorre er fyrstur til að stunda nám
við skóla danska heraflans, að sögn
Auðuns F. Kristinssonar, verkefna-
stjóra aðgerðasviðs. „Allt nám nýtist
okkur vel, því fyrir utan aukna
menntun starfsmanna byggjum við
upp tengsl við þjóðir sem við vinnum
náið með á sviði leitar og björgunar,
löggæslu og varnarmála,“ segir
hann.
Ljósmynd/Guðbjörg Karlsdóttir
Kaupmannahöfn Snorre Greil stýrimaður og Auðunn F. Kristinsson verkefnisstjóri við útskriftina.
Ruddi brautina í skóla
danska heraflans
Rannsókn og löggæsla í sambandi við mengun í hafi
WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
*Til að nýta afsláttinn þarf að bóka flug framog til baka fyrir kl.23:59,
mánudaginn 1.október 2018, ferðatímabil 1.október - 10. febrúar,2019.
Afsláttur reiknast af fargjaldi á flugi frá Íslandi án skatta á fyrirfram völdum
dagsetningum.Skilmálar gilda:wowair.is/smattletur