Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Síða 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.9. 2018
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is
Það er erfitt að sjá að borgaryfirvöld geti komist hjá því að taka athuga-semdir fjögurra heiðursborgara Reykjavíkur við framkvæmdir í Vík-urgarði í miðborginni til rækilegrar skoðunar.
Eftir að þau Vigdís Finnbogadóttir, Friðrik Ólafsson, Þorgerður Ingólfs-
dóttir og Erró (sem er með í hópnum þótt hann hafi ekki verið á blaðamanna-
fundinum) stigu fram í vikunni og skoruðu á borgaryfirvöld að hætta beinlín-
is við nýbyggingu á svokölluðum Landsímareit hafa þau hreyft allhressilega
við umræðunni og sett málið á dagskrá í borginni.
Margar spurningar vakna – og þær eiga að vakna. Hvernig miðbæ viljum
við? Hvað er í lagi að setja mörg hótel í miðbæinn? Er komið nóg? Þarf fleiri?
Hvað með virðingu fyrir því liðna? Er hún ekkert mikilvæg? En líðan þeirra
sem um miðborgina fara, skiptir hún
máli?
Fátt er eins viðkvæmt í almennri
umræðu og skipulagsmál. Það
þekkja allir sem fylgst hafa með
opinberri umræðu undanfarin ár og
áratugi. Og allir blaðamenn sem
skrifað hafa um slík mál þekkja vel
að engin umfjöllunarefni fjölmiðla fá
viðlíka viðbrögð eins og skipulags-
mál. Skipulagsmál eru alltaf hita-
mál. Þau eru alltaf tilfinningamál.
Flestum er nefnilega ekki sama í
hvernig umhverfi þeir búa.
Það að hafa skoðun á umhverfi
sínu, að hafa sýn á það hvernig
byggja eigi upp miðbæ sem geymir
fornar og merkar minjar er ekki
pólitík. Það er einfaldlega mannlegt
að láta sig umhverfi sitt og sögu varða. Í Sunnudagsblaðinu í dag er viðtal við
Vigdísi, Friðrik og Þorgerði þar sem ástríða þeirra fyrir baráttunni kemur
glögglega fram. Þau nefna að fjögur sjónarmið ráði för í þeirra baráttu gegn
nýbyggingu í Víkurgarði. Það sé sögulega hliðin, virðing fyrir hinum látnu,
skipulagshliðin og svo tilfinningalega hliðin. Þetta síðastnefnda er merkilegt
að skuli nefnt, því það er gjarnan tabú. Tilfinningarök eru nánast sjálfkrafa
sett skör lægra en önnur rök. En þau ættu ekki að þurfa að vera neitt
ómerkilegri. Það skiptir líka máli hvernig okkur líður í umhverfi okkar og
hvaða áhrif það hefur á okkur. Tilfinningahliðina á uppbyggingu hótels á
helgum reit ætti því ekki síður að skoða en aðrar. Og í þessu máli hlýtur að
skipta máli að fólkið sem þarna berst við borgina var einmitt heiðrað af þess-
ari sömu borg, vafalaust hafa tilfinningar spilað inn í þá eins og vera ber.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Í hart við borgina
sem heiðraði þau
Pistill
Eyrún Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
’Það að hafa skoðun áumhverfi sínu, aðhafa sýn á það hvernigbyggja eigi upp miðbæ
sem geymir fornar og
merkar minjar er ekki
pólitík. Það er einfaldlega
mannlegt að láta sig um-
hverfi sitt og sögu varða.
Páll Hróar Helgason
Einhvern góðan heitan rétt, kjúk-
ling eða heitan pastarétt.
SPURNING
DAGSINS
Hvað er
best að
hafa í mat-
inn í haust-
lægðum?
Hlynur Hákonarson
Gott sushi. Eitthvað örlítið framandi
matur sem kemur mér í gott skap.
Arnar Leó Ágústsson
Ef ég sef lítið og er lítill í mér langar
mig í pítsu eða eitthvað sveitt en ef
ég næ að sofa vel langar mig í eitt-
hvað ferskt.
Anna Kristín Vilbergsdóttir
Yfirleitt finnst mér best að fá mér
einhverja matarmikla súpu, til dæm-
is kjúklingasúpu með góðu brauði.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Hari
Nýtt ævintýri um Maxímús Músíkús er að fara af stað og nú fer
músin upp á fjöll. Í nýrri dagskrá skipa íslensk þjóðlög stóran
sess en tónverkin sem fléttast við söguna eru af ýmsum toga.
Sögumaður í nýja ævintýrinu um Maxa er Unnur Eggertsdóttir
en hún tók þátt í frumflutningi verksins undir stjórn Daníels
Bjarnasonar í Los Angeles.
Verkið var pantað af Sinfóníuhljómsveit Íslands og Fílharm-
óníusveit Los Angeles sem frumflutti verkið á Reykjavíkur-
hátíð sinni í Walt Disney-tónlistarhöllinni en verndari verkefn-
isins er Vladimir Ashkenazy, aðalheiðursstjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands.
MAXÍMÚS MÚSÍKÚS
SITUR FYRIR SVÖRUM
Var síðast í
Kuala Lumpur
Hvað er að frétta?
Allt gott og spennandi, ný bók að koma út með frábærri
tónlist og tónleikar í Eldborg!
Hvað ertu orðin gamall og hvað hefurðu
verið að bralla síðustu árin?
Ég er sko síungur enda finnst mér allt svo skemmtilegt
og spennandi. Á þessum fjórum árum sem liðin eru frá
síðustu bókinni um mig hef ég verið að skemmta krökk-
um á tónleikum með stórum hljómsveitum í Evrópu,
Ameríku og Ástralíu auk þess að vera með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands í Reykjavík og á fleiri stöðum.
Núna síðast var ég í Kuala Lumpur í Malasíu
og hjá frændum okkar í Noregi, þann-
ig að sögurnar um mig passa sko
fyrir alla krakka alls staðar í heim-
inum.
Hvað er best við haustin?
Gómsætu berin eru það besta við haustin.
Hvað geturðu sagt okkur um nýjasta
ævintýrið þitt?
Það er fjörugt og skemmtilegt, um sveitaferð. Ég
fór upp á jökul með nýjum vinum mínum frá út-
löndum, þau voru svo spennt að fá að sjá Ísland.
Við sáum líka eldgos! Við fengum að ferðast með
barni sem ég þekki, fórum í þyrlu og í bústað og
heyrðum afa og ömmu segja frá tröllum og lífinu í
torfbænum. Svo lentum við á sveitaballi.
Ævintýrið var frumflutt í sólríku borginni Los Angel-
es í fyrra og spilað fyrir níu þúsund börn í Walt
Disney-tónleikahöllinni. Það var gaman, sérstaklega
þegar þau hjálpuðu henni Unni við að búa til veðurhljóð,
regn og vind og haglél.
Ertu með einhverjar lífsins gullnu reglur?
Jahá, ég lifi lífinu lifandi með því að vera alltaf syngj-
andi og að hlusta á tónlist. Það er nefnilega þannig að
hvar sem tónlist hljómar þar verða allir glaðir.