Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Blaðsíða 6
ERLENT 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.9. 2018 Þýski erkibiskupinn Georg Gänswein hefur kallað um- fang kynferðisofbeldis og af- hjúpanir þess „11. sept- ember“ katólsku kirkj- unnar. Gänswein er einn æðsti embættismaður kirkj- unnar, hefur yfirumsjón með páfabústað og er einkaritari Benedikts, fyrr- verandi páfa. Hann lítur svo á að kirkjan sé í tilvistar- kreppu, við blasi „Guðs- myrkvun sem við óttumst um allan heim“. Sagðist hann geta tekið undir um- mæli Benedikts páfa XVI. frá 2012 um að kirkjan væri í mestu andlegu kreppu „frá falli rómverska ríkisins í lok fimmtu aldar – ljós kristindóms um allan heim er að slokkna“. Katólska kirkjan í Þýskalandibað á þriðjudag þúsundirfórnarlamba kynferðisof- beldis afsökunar og sagði æðsti yfir- maður hennar, Reinhard Marx kard- ináli, að gerendurna ætti að draga fyrir dóm. Enn einu sinni skekur mál af þessum toga katólsku kirkjuna og fer gagnrýni í garð Frans páfa fyrir að taka ekki á þeim af festu og veita jafnvel gerendum skjól vaxandi. Tilefni afsökunarbeiðninnar var út- koma skýrslu um kynferðisbrot innan kirkjunnar frá 1946 til 2014. Við gerð skýrslunnar voru rann- sökuð 38.000 mál frá 27 biskups- dæmum í Þýskalandi. Þar kemur fram að brotið hafi verið gegn 3677 börnum, undir lögaldri, meirihlutinn drengir. Brotin frömdu 1670 kirkj- unnar þjónar. Rúmur helmingur fórnarlambanna var þrettán ára eða yngri þegar brotin voru framin. Höfundar skýrslunnar sögðu að þetta væri aðeins toppurinn á ísjak- anum og vöruðu við því að raunveru- legt umfang brotanna væri mun meira. Mörg skjöl hefðu verið eyði- lögð eða breytt. Oft hefðu prestar, sem gerst hefðu sekir um kynferðis- brot, verið færðir í annað prestakall án þess að greint væri frá brotasögu þeirra. Er það sama aðferð og ráða- menn katólsku kirkjunnar beittu í öðrum löndum þegar slík mál komu upp. Aðeins um þriðjungur var tekinn í yfirheyrslu vegna hegðunar sinnar hjá kirkjunni og refsingar flestra voru smávægilegar. Mál 38% fóru fyr- ir dómstóla. „Kynferðisofbeldi er viðvarandi vandamál, en ekki sögulegt vanda- mál,“ sagði Harald Dressing, prófess- or við sálfræðistofnunina í Mannheim, sem skipulagði rannsóknina að baki skýrslunni. Þýska skýrslan hefur verið gagn- rýnd. Hún var gerð að beiðni kirkj- unnar og kirkjan hafði umsjón með því hvaða gögn voru afhent. Spurt hefur verið hvaða mælikvarðar hafi þar ráðið för, hvaða mál hafi verið tal- in eiga heima í henni og hvaða mál verið látin óhreyfð. Dressing sagði að þessi aðferð hefði verið samþykkt á forsendum persónuverndar, en spurt hefur verið hvort fræðimennirnir hefðu ekki getað tekið þessar ákvarð- anir fremur en kirkjunnar menn og um leið gætt þess að upplýsingar yrðu ekki persónugreinanlegar. Uppljóstranir víða um lönd Uppljóstranir um kynferðisbrot presta innan katólsku kirkjunnar ná langt aftur. Ásakanir byrjuðu að koma fram á sjötta áratug 20. aldar. Athygli fjölmiðla fór að beinast að þeim í Bandaríkjunum og Kanada á þeim ní- unda. Fleiri lönd bættust við á næstu árum og þegar kom fram á þessa öld var kastljósið farið að beinast að kirkj- unni í heild sinni. Skýrslan í Þýskalandi er því enn einn vitnisburðurinn um hvernig kyn- ferðisofbeldi gegn börnum hefur við- gengist innan katólsku kirkjunnar og verið kerfisbundið þaggað niður. Ekki er nema hálfur mánuður síðan birt var skýrsla um kynferðisbrot innan katólsku kirkjunnar í Hollandi frá 1945 til 2010. Þar hylmdi helmingur yfirmanna yfir kynferðislega mis- notkun og gerði gerendum kleift að halda brotum sínum áfram refsilaust. Meðal þeirra, sem þar eru nafn- greindir, er Jóhannes Gijsen, fyrrver- andi biskup katólsku kirkjunnar á Ís- landi. Getið er ákæra á hendur honum fyrir tvö kynferðisbrot á milli 1950 og 1970. Einnig er hann sagður hafa tek- ið þátt í yfirhylmingu og ítrekað fært til í starfi presta, sem vitað væri að níðst hefðu á börnum. Þá hefði hann látið eyða upplýsingum um slæma hegðun nokkurra presta. Í ágúst kom fram skýrsla um að rúmlega 300 prestar í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum hefðu í sjö áratugi beitt að minnsta kosti þúsund börn kynferðisofbeldi. Benedikt páfi XVI. fyrirskipaði 2011 að tilkynna ætti grun um kyn- ferðisbrot beint til lögreglu. Áður átti að vísa þeim til Rómar. Frans páfi hvatti til „afgerandi að- gerða“ þegar hann var kjörinn 2013, en hann hefur legið undir ámæli fyrir að fylgja málum ekki eftir. Skipuð var sérstök páfanefnd um verndun barna undir lög- aldri. Hún hefur sjaldan komið saman og einkum vakið athygli vegna út- göngu tveggja nefndarmanna, sem voru fórnarlömb misnotkunar og kröfðust meira gagnsæis. Gagnrýni beinist að páfa Þá hefur Frans verið legið á hálsi fyr- ir að vernda biskupa og kardinála, sem hafa legið undir grun um að hylma yfir eða jafn vel fremja kyn- ferðisofbeldi. Í predikunum biðji hann fórnarlömb afsökunar og hvetji til umbóta, en þegar komi að ein- stökum tilfellum hiki hann og aðhafist ekki fyrr en þrýstingur sé orðinn svo mikill að hann geti ekki annað. Þekktasta dæmið er mál Theo- dores McCarricks, sem sagði af sér embætti kardinála í Bandaríkjunum fyrr á árinu. Lengi var reynt að hylma yfir að McCarrick hefði kerfis- bundið leitað á lærlinga í kirkjunni. Benedikt páfi hafði, að hermt er, tak- markað störf hans og ferðir vegna þessa, en Frans mun hafa aflétt þeim kvöðum. McCarrick var náinn ráð- gjafi Frans og leiddi páfi hinar þrá- látu ásakanir hjá sér í fimm ár. Þegar páfi komst til valda gaf hann fyrirheit um breytta tíma með opnari vinnubrögðum og auknum jöfnuði. Ný hvílir skuggi á kirkjunni og styr- inn stendur ekki síst um hann. Viðvarandi vandi, ekki sögulegur Í vikunni kom út skýrsla í Þýskalandi um kyn- ferðisofbeldi innan katólsku kirkjunnar gegn börnum. Slíkar skýrslur birtast reglulega, kirkjan er í djúpri kreppu og deilt er á páfa. Karl Blöndal kbl@mbl.is 11. sept- ember Georg Gänswein AFP Reinhard Marx, æðsti yfirmaður katólsku kirkjunnar í Þýskalandi, stýrir guðsþjónustu á biskupaþinginu í Fulda þar sem skýrslan um kynferðisofbeldi kirkjunnar þjóna og yfirhylmingu þess áratugum saman var gerð opinber. BANDARÍKIN NEW YORK Donald Trump Bandaríkjaforseti ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna og sagði meðal annars að stjórn sín hefði komið meiru í verk en nokkur ríkisstjórn í sögu Banda- ríkjanna. Yfi rlýsingin vakti hlátur. „Þau hlógu ekki að mér, þau hlógu með mér,“ sagði Trump. Forsetinn gagnrýndi Írana harkalega og hrósaði Kim Jong-un, forseta Norður-Kóreu. KENÍA NAÍRÓBÍ Dómstóll skikkaði kvikmyndaeftirlit Kenía til að leyfa sýningar á myndinni Rafi ki í viku. Myndin hafði verið bönnuð á þeirri forsendu að hún ýtti undir samkynhneigð. Myndin fjallar um tvær stúlkur, sem verða ástfangnar. Engin kynlífsatriði eru í myndinni, sem var sýnd í vikunni. Til að myndin verði gjaldgeng til Óskarsverðlauna þarf hún að hafa verið sýnd að lágmarki í sjö daga. Rafi ki merkir vinur á swahili. SAMEINUÐU ARABÍSKU FURSTADÆMIN DÚBAÍ Skósmiður í Dúbaí kynnti í vikunni skópar, sem mun vera það dýrasta í heimi. Skórnir eru alsettir demöntum og hljóðar verðmiðinn upp á 17 milljónir dollara eða 1,8 millj- arða króna. Hægt er að fá skóna sérsmíðaða eftir óskum viðskiptavinarins – eftir að fullt verð hefur verið greitt. INDLAND NÝJU-DELÍ Hæstiréttur Indlands úrskurðaði á fi mmtu- dag að framhjáhald væri ekki lengur ólöglegt. Dómstóllinn skar úr um það að lög frá nýlendutíman- um, sem eru rúmlega aldar gömul, stæðust ekki stjórnarskrá og mismunuðu konum. Samkvæmt lögunum átti karl, sem svaf hjá giftri konu án leyfi s eiginmanns hennar, yfi r höfði sér fi mm ára fangelsi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.