Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Side 6
ERLENT
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.9. 2018
Þýski erkibiskupinn Georg
Gänswein hefur kallað um-
fang kynferðisofbeldis og af-
hjúpanir þess „11. sept-
ember“ katólsku kirkj-
unnar. Gänswein er einn
æðsti embættismaður kirkj-
unnar, hefur yfirumsjón
með páfabústað og er
einkaritari Benedikts, fyrr-
verandi páfa. Hann lítur svo
á að kirkjan sé í tilvistar-
kreppu, við blasi „Guðs-
myrkvun sem við óttumst
um allan heim“. Sagðist
hann geta tekið undir um-
mæli Benedikts páfa XVI.
frá 2012 um að kirkjan væri
í mestu andlegu
kreppu „frá falli
rómverska
ríkisins í lok
fimmtu aldar –
ljós kristindóms
um allan heim
er að
slokkna“.
Katólska kirkjan í Þýskalandibað á þriðjudag þúsundirfórnarlamba kynferðisof-
beldis afsökunar og sagði æðsti yfir-
maður hennar, Reinhard Marx kard-
ináli, að gerendurna ætti að draga
fyrir dóm. Enn einu sinni skekur mál
af þessum toga katólsku kirkjuna og
fer gagnrýni í garð Frans páfa fyrir
að taka ekki á þeim af festu og veita
jafnvel gerendum skjól vaxandi.
Tilefni afsökunarbeiðninnar var út-
koma skýrslu um kynferðisbrot innan
kirkjunnar frá 1946 til 2014.
Við gerð skýrslunnar voru rann-
sökuð 38.000 mál frá 27 biskups-
dæmum í Þýskalandi. Þar kemur
fram að brotið hafi verið gegn 3677
börnum, undir lögaldri, meirihlutinn
drengir. Brotin frömdu 1670 kirkj-
unnar þjónar. Rúmur helmingur
fórnarlambanna var þrettán ára eða
yngri þegar brotin voru framin.
Höfundar skýrslunnar sögðu að
þetta væri aðeins toppurinn á ísjak-
anum og vöruðu við því að raunveru-
legt umfang brotanna væri mun
meira. Mörg skjöl hefðu verið eyði-
lögð eða breytt. Oft hefðu prestar,
sem gerst hefðu sekir um kynferðis-
brot, verið færðir í annað prestakall
án þess að greint væri frá brotasögu
þeirra. Er það sama aðferð og ráða-
menn katólsku kirkjunnar beittu í
öðrum löndum þegar slík mál komu
upp.
Aðeins um þriðjungur var tekinn í
yfirheyrslu vegna hegðunar sinnar
hjá kirkjunni og refsingar flestra
voru smávægilegar. Mál 38% fóru fyr-
ir dómstóla.
„Kynferðisofbeldi er viðvarandi
vandamál, en ekki sögulegt vanda-
mál,“ sagði Harald Dressing, prófess-
or við sálfræðistofnunina í Mannheim,
sem skipulagði rannsóknina að baki
skýrslunni.
Þýska skýrslan hefur verið gagn-
rýnd. Hún var gerð að beiðni kirkj-
unnar og kirkjan hafði umsjón með
því hvaða gögn voru afhent. Spurt
hefur verið hvaða mælikvarðar hafi
þar ráðið för, hvaða mál hafi verið tal-
in eiga heima í henni og hvaða mál
verið látin óhreyfð. Dressing sagði að
þessi aðferð hefði verið samþykkt á
forsendum persónuverndar, en spurt
hefur verið hvort fræðimennirnir
hefðu ekki getað tekið þessar ákvarð-
anir fremur en kirkjunnar menn og
um leið gætt þess að upplýsingar yrðu
ekki persónugreinanlegar.
Uppljóstranir víða um lönd
Uppljóstranir um kynferðisbrot
presta innan katólsku kirkjunnar ná
langt aftur. Ásakanir byrjuðu að koma
fram á sjötta áratug 20. aldar. Athygli
fjölmiðla fór að beinast að þeim í
Bandaríkjunum og Kanada á þeim ní-
unda. Fleiri lönd bættust við á næstu
árum og þegar kom fram á þessa öld
var kastljósið farið að beinast að kirkj-
unni í heild sinni.
Skýrslan í Þýskalandi er því enn
einn vitnisburðurinn um hvernig kyn-
ferðisofbeldi gegn börnum hefur við-
gengist innan katólsku kirkjunnar og
verið kerfisbundið þaggað niður. Ekki
er nema hálfur mánuður síðan birt
var skýrsla um kynferðisbrot innan
katólsku kirkjunnar í Hollandi frá
1945 til 2010. Þar hylmdi helmingur
yfirmanna yfir kynferðislega mis-
notkun og gerði gerendum kleift að
halda brotum sínum áfram refsilaust.
Meðal þeirra, sem þar eru nafn-
greindir, er Jóhannes Gijsen, fyrrver-
andi biskup katólsku kirkjunnar á Ís-
landi. Getið er ákæra á hendur honum
fyrir tvö kynferðisbrot á milli 1950 og
1970. Einnig er hann sagður hafa tek-
ið þátt í yfirhylmingu og ítrekað fært
til í starfi presta, sem vitað væri að
níðst hefðu á börnum. Þá hefði hann
látið eyða upplýsingum um slæma
hegðun nokkurra presta.
Í ágúst kom fram skýrsla um að
rúmlega 300 prestar í Pennsylvaníu í
Bandaríkjunum hefðu í sjö áratugi
beitt að minnsta kosti þúsund börn
kynferðisofbeldi.
Benedikt páfi XVI. fyrirskipaði
2011 að tilkynna ætti grun um kyn-
ferðisbrot beint til lögreglu. Áður átti
að vísa þeim til Rómar.
Frans páfi hvatti til „afgerandi að-
gerða“ þegar hann var kjörinn 2013,
en hann hefur legið undir ámæli
fyrir að fylgja málum ekki eftir.
Skipuð var sérstök páfanefnd
um verndun barna undir lög-
aldri. Hún hefur sjaldan komið saman
og einkum vakið athygli vegna út-
göngu tveggja nefndarmanna, sem
voru fórnarlömb misnotkunar og
kröfðust meira gagnsæis.
Gagnrýni beinist að páfa
Þá hefur Frans verið legið á hálsi fyr-
ir að vernda biskupa og kardinála,
sem hafa legið undir grun um að
hylma yfir eða jafn vel fremja kyn-
ferðisofbeldi. Í predikunum biðji
hann fórnarlömb afsökunar og hvetji
til umbóta, en þegar komi að ein-
stökum tilfellum hiki hann og aðhafist
ekki fyrr en þrýstingur sé orðinn svo
mikill að hann geti ekki annað.
Þekktasta dæmið er mál Theo-
dores McCarricks, sem sagði af sér
embætti kardinála í Bandaríkjunum
fyrr á árinu. Lengi var reynt að
hylma yfir að McCarrick hefði kerfis-
bundið leitað á lærlinga í kirkjunni.
Benedikt páfi hafði, að hermt er, tak-
markað störf hans og ferðir vegna
þessa, en Frans mun hafa aflétt þeim
kvöðum. McCarrick var náinn ráð-
gjafi Frans og leiddi páfi hinar þrá-
látu ásakanir hjá sér í fimm ár.
Þegar páfi komst til valda gaf hann
fyrirheit um breytta tíma með opnari
vinnubrögðum og auknum jöfnuði.
Ný hvílir skuggi á kirkjunni og styr-
inn stendur ekki síst um hann.
Viðvarandi
vandi, ekki
sögulegur
Í vikunni kom út skýrsla í Þýskalandi um kyn-
ferðisofbeldi innan katólsku kirkjunnar gegn
börnum. Slíkar skýrslur birtast reglulega, kirkjan
er í djúpri kreppu og deilt er á páfa.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
11. sept-
ember
Georg Gänswein
AFP
Reinhard Marx, æðsti yfirmaður katólsku kirkjunnar í Þýskalandi, stýrir guðsþjónustu á biskupaþinginu í Fulda þar sem
skýrslan um kynferðisofbeldi kirkjunnar þjóna og yfirhylmingu þess áratugum saman var gerð opinber.
BANDARÍKIN
NEW YORK Donald
Trump Bandaríkjaforseti
ávarpaði allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna og
sagði meðal annars að
stjórn sín hefði komið
meiru í verk en nokkur
ríkisstjórn í sögu Banda-
ríkjanna. Yfi rlýsingin vakti hlátur. „Þau hlógu ekki að
mér, þau hlógu með mér,“ sagði Trump. Forsetinn
gagnrýndi Írana harkalega og hrósaði Kim Jong-un,
forseta Norður-Kóreu.
KENÍA
NAÍRÓBÍ Dómstóll skikkaði kvikmyndaeftirlit Kenía til að leyfa
sýningar á myndinni Rafi ki í viku. Myndin hafði verið bönnuð á
þeirri forsendu að hún ýtti undir samkynhneigð. Myndin fjallar
um tvær stúlkur, sem verða ástfangnar. Engin kynlífsatriði eru í
myndinni, sem var sýnd í vikunni. Til að myndin verði gjaldgeng
til Óskarsverðlauna þarf hún að hafa verið sýnd að lágmarki í sjö
daga. Rafi ki merkir vinur á swahili.
SAMEINUÐU ARABÍSKU FURSTADÆMIN
DÚBAÍ Skósmiður í Dúbaí kynnti í vikunni skópar, sem mun
vera það dýrasta í heimi. Skórnir eru alsettir demöntum og
hljóðar verðmiðinn upp á 17 milljónir dollara eða 1,8 millj-
arða króna. Hægt er að fá skóna sérsmíðaða eftir óskum
viðskiptavinarins – eftir að fullt verð hefur verið greitt.
INDLAND
NÝJU-DELÍ
Hæstiréttur Indlands
úrskurðaði á fi mmtu-
dag að framhjáhald
væri ekki lengur
ólöglegt. Dómstóllinn
skar úr um það að
lög frá nýlendutíman-
um, sem eru rúmlega
aldar gömul, stæðust
ekki stjórnarskrá og
mismunuðu konum. Samkvæmt lögunum átti karl,
sem svaf hjá giftri konu án leyfi s eiginmanns hennar,
yfi r höfði sér fi mm ára fangelsi.