Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Blaðsíða 10
VETTVANGUR 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.9. 2018 Staðnæmumst við tvær nýlegargreinar þar sem utanríkismálog aldur koma við sögu. „Það steðja nýjar hættur að Íslandi í breyttum heimi“ er fyrirsögnin á laugardagspistli Styrmis Gunnars- sonar, fyrrverandi ritstjóra þessa blaðs, fyrir réttri viku. Tilefnið var fréttir af samningaviðræðum við er- lenda fjárfesta um uppbyggingu hafnarinnar í Þorlákshöfn og að þar hefðu kínverskir fjárfestar komið við sögu. Niðurlagsorðin í grein Styrmis eru þessi: „Sjálfstæði Íslands er hætta búin úr nýjum áttum í breyttum heimi. Sjálfstæði Íslands getur reyndar líka verið í hættu vegna þess að nýjar kynslóðir stjórnmálamanna virðast ekki hafa næga þekkingu á okkar eigin sögu til þess að skilja hvað er að gerast í kringum okkur hvort sem um er að ræða orkupakka ESB eða kínverska stórveldið sem læðist með veggjum í viðleitni við að endurheimta fyrri stöðu Kína á heimsbyggðinni. Þá er ekki um ann- að að ræða en að hin aldna sveit rísi upp!“ Þar kom aldurinn. Ég skildi þessi orð svo að lífs- reynslan ætti að hafa kennt okkur að varast það að undirgangast, hvort heldur væri, mið- stýrða markaðs- kreddu eða ítök erlendrar vald- stjórnar í inn- viðum Íslands. Þessu er ég sam- mála. Sjálfum hafði mér brugðið við að lesa hraustlega yfirlýsingu ágæts sveitarstjórnar- manns sem greinilega gaf lít- ið fyrir varnaðar- orð úr ranni reynslunnar en honum hafði mælst svo: „Auðvitað þekkjum við um- ræðuna um hina stórhættulegu „auð- menn“ sem vilja komast í fjárfest- ingar. Við óttumst hins vegar ekki aðkomu þeirra að hinu öfluga Ölf- usi.“ Um hin skrifin, sem fjalla um út- lönd og aldur, hef ég meiri efasemd- ir. Þar er því fagnað sérstaklega, og þykir mikið þroskamerki af hálfu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sem nú fari með forsætis- ráðuneytið, að leyfð hafi verið á Ís- landi „myndarleg“ heræfing NATÓ og önnur slík, væntanlega enn mynd- arlegri, í bígerð. Hér er vísað í leið- ara Morgunblaðsins frá 25. sept- ember: „Flokkur fullorðnast“. Ég get mér þess til að höfundur leiðarans sé vel að sér í stjórnmálum kalda stríðsins enda sækir hann þangað í gamalkunna þrætubók. Heimurinn sé að vísu breyttur en vinirnir hinir sömu og vélarnar til varnar óbreyttar. Þar hafi ekkert breyst, eða öllu heldur, þar megi ekkert breytast! Þarna ætla ég að leyfa mér að efast um að rétt sé að leggja að jöfnu aldur og yfirvegun því staðreyndin er sú að heimurinn er ekki samur og áður var og þar hefur margt breyst og riðlast, sem aftur kallar á breytt viðhorf, tæki og tól. Í vikunni sem leið var sýndur í Sjónvarpinu þáttur sem tekinn var í Írak um ofbeldið sem kynlífsþrælar Íslamska ríkisins höfðu sætt á yfir- ráðasvæði ISIS í Norður-Írak og Norðaustur-Sýrlandi fyrir fáeinum misserum. Rætt var við konu sem hafði mátt þola slíkt ofbeldi en einnig var rætt við ISIS-liða, geranda í of- beldinu. Bæði viðtölin voru hroll- vekjandi, hvort á sinn hátt. Sjálfum finnst mér það slæm tilhugsun að „við“, þ.e. bandamenn Ís- lands, skulum hafa stutt ISIS á þessu örlagaríka tímaskeiði. Samkvæmt þrætubók kalda stríðsins var í framangreindum leiðara spurt hvar Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefði verið þegar ráðist var á Líbíu um árið; hvort VG hefði ekki setið þá í ríkisstjórn. Mikið rétt, en ófá voru þau sem mótmæltu, höfðu með öðr- um orðum ekki fullorðnast sam- kvæmt kenningum leiðarahöfundar. Í kjölfar þess að reynt var að eitra fyrir manni að nafni Sergei Skripal í enska bænum Salisbury fyrr á árinu ákvað hin fullorðna ríkisstjórn, sem nú situr, að afpanta miða á HM í fót- bolta í Rússlandi. Sennilega ekki vegna þess að Skripal hafi verið val- inn, af öllum fórnarlömbum ofbeldis í heiminum, til að taka upp hanskann fyrir. Skripal þessi var njósnari Rússa sem síðan seldi Bretum þjón- ustu sína til að njósna um sína fyrri húsbændur. Við stóðum með öðrum orðum varla með fórnarlambinu Skripal heldur bandamönnum okkar í NATÓ sem í heimi hinna fullorðnu bar að sýna stuðning. En hve langt erum við reiðubúin að ganga til að sýna Trump slíka hollustu, einræðisherranum Erdog- an, May, Merkel eða Macron? Hversu fullorðin viljum við verða? Um utanríkismál og aldur ’Þar er því fagnaðsérstaklega, og þykirmikið þroskamerki afhálfu Vinstrihreyfing- arinnar – græns fram- boðs, sem nú fari með forsætisráðuneytið, að leyfð hafi verið á Íslandi „myndarleg“ heræfing NATÓ og önnur slík, væntanlega enn mynd- arlegri, í bígerð. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur @ogmundur.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Þórdís Gísla- dóttir rithöfundur og þýðandi með meiru tísti: „Var að lesa um konu sem er að fara að taka þátt 400 kílómetra ofurhlaupi í Gobi-eyðimörkinni, sem tekur um fjóra sólarhringa. Ég sjálf nenni ekki einu sinni að labba út í Krónuna.“ Katrín Atla- dóttir borgar- fulltrúi tísti: „Veit ekki hvort er fyndnara að dóttir mín hafi bitið bróður sinn í tána eða að hann hafi öskurgrenjað á mig að gefa henni rautt spjald.“ Dagur Hjart- arson rithöfundur tísti: „Það sem Tiger Woods var að gera jafnast á við ef Michael Owen hefði aftur byrjað að æfa og skorað 30 mörk í Premier League. Eða eitthvað. Eitt- hvað rugl. Besti íþróttamaður sög- unnar, þ.e. Tiger.“ Jón Ólafsson tónlistarmaður skrifaði á Face- book: „Okkur fé- lögunum í Ný- dönsk er tamt að slá á létta strengi og sumir myndu vilja ganga svo langt að kalla okkur skemmtilega. Í Eldborg síðasta laugardag var þessi brandari sagður áður en talið var í lag númer sjö á Himnasendingu. Stefán: „Viltu ís Björn?“ Björn: „Má ekki bjóða þér Camel Jón?“ Jón: „Er ekki komið hlé Barði?“ Rétt er að geta þess að niðurlag brandarans kallast á við téð lag.“ Valdimar Guðmundsson tónlistarmaður tísti um gamla góða daga: „Ohh, það var svo mikil stemning að skrifa disk. Búa til lista af geggjuðum lögum, bíða í korter á meðan tölvan skrifaði diskinn, skrifa kannski Valdamix Vol. 7 með tússi og fara svo á rúntinn og hlusta á þetta stanslaust í nokkrar vikur þar til maður skrifaði næsta. Geggjað dæmi.“ Erla Hlyns- dóttir, fram- kvæmdastjóri Pírata skrifaði m.a. á Facebook: „Stór dagur í íslenskri réttarsögu í dag. Faðir minn heitinn var fangavörður í Síðumúlafangels- inu og myndaði tengsl við bæði Sæv- ar og Erlu. Hann var sá fyrsti sem greindi opinberlega frá því ofbeldi sem sakborningarnir í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu voru beittir - sá fyrsti utan sakborninganna sjálfra. Í dag hugsa ég hversu sárt er að Sævar hafi ekki lifað þennan dag.“ AF NETINU BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 Aster ix sóf i Kr. 276.900 kr. 2.900 / 3.250 / 3.600 Kr. 33.200 Kr. 8.700 Kr. 9.400 Kr. 29.800 Marvel Motta Kr. 56.300 Tripod Gólflampi Velvet Snagar jakkafatajoga.is ÁNÆGJA EFLING AFKÖST

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.