Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Page 10
VETTVANGUR
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.9. 2018
Staðnæmumst við tvær nýlegargreinar þar sem utanríkismálog aldur koma við sögu. „Það
steðja nýjar hættur að Íslandi í
breyttum heimi“ er fyrirsögnin á
laugardagspistli Styrmis Gunnars-
sonar, fyrrverandi ritstjóra þessa
blaðs, fyrir réttri viku. Tilefnið var
fréttir af samningaviðræðum við er-
lenda fjárfesta um uppbyggingu
hafnarinnar í Þorlákshöfn og að þar
hefðu kínverskir fjárfestar komið við
sögu.
Niðurlagsorðin í grein Styrmis eru
þessi: „Sjálfstæði Íslands er hætta
búin úr nýjum áttum í breyttum
heimi. Sjálfstæði Íslands getur
reyndar líka verið í hættu vegna þess
að nýjar kynslóðir stjórnmálamanna
virðast ekki hafa næga þekkingu á
okkar eigin sögu til þess að skilja
hvað er að gerast í kringum okkur
hvort sem um er að ræða orkupakka
ESB eða kínverska stórveldið sem
læðist með veggjum í viðleitni við að
endurheimta fyrri stöðu Kína á
heimsbyggðinni. Þá er ekki um ann-
að að ræða en að hin aldna sveit rísi
upp!“
Þar kom aldurinn.
Ég skildi þessi orð svo að lífs-
reynslan ætti að hafa kennt okkur að
varast það að undirgangast, hvort
heldur væri, mið-
stýrða markaðs-
kreddu eða ítök
erlendrar vald-
stjórnar í inn-
viðum Íslands.
Þessu er ég sam-
mála.
Sjálfum hafði
mér brugðið við
að lesa hraustlega
yfirlýsingu ágæts
sveitarstjórnar-
manns sem
greinilega gaf lít-
ið fyrir varnaðar-
orð úr ranni
reynslunnar en honum hafði mælst
svo: „Auðvitað þekkjum við um-
ræðuna um hina stórhættulegu „auð-
menn“ sem vilja komast í fjárfest-
ingar. Við óttumst hins vegar ekki
aðkomu þeirra að hinu öfluga Ölf-
usi.“
Um hin skrifin, sem fjalla um út-
lönd og aldur, hef ég meiri efasemd-
ir. Þar er því fagnað sérstaklega, og
þykir mikið þroskamerki af hálfu
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, sem nú fari með forsætis-
ráðuneytið, að leyfð hafi verið á Ís-
landi „myndarleg“ heræfing NATÓ
og önnur slík, væntanlega enn mynd-
arlegri, í bígerð. Hér er vísað í leið-
ara Morgunblaðsins frá 25. sept-
ember: „Flokkur fullorðnast“.
Ég get mér þess til að höfundur
leiðarans sé vel að sér í stjórnmálum
kalda stríðsins enda sækir hann
þangað í gamalkunna þrætubók.
Heimurinn sé að vísu breyttur en
vinirnir hinir sömu og vélarnar til
varnar óbreyttar. Þar hafi ekkert
breyst, eða öllu heldur, þar megi
ekkert breytast!
Þarna ætla ég að leyfa mér að
efast um að rétt sé að leggja að jöfnu
aldur og yfirvegun því staðreyndin
er sú að heimurinn er ekki samur og
áður var og þar hefur margt breyst
og riðlast, sem aftur kallar á breytt
viðhorf, tæki og tól.
Í vikunni sem leið var sýndur í
Sjónvarpinu þáttur sem tekinn var í
Írak um ofbeldið sem kynlífsþrælar
Íslamska ríkisins höfðu sætt á yfir-
ráðasvæði ISIS í Norður-Írak og
Norðaustur-Sýrlandi fyrir fáeinum
misserum. Rætt var við konu sem
hafði mátt þola slíkt ofbeldi en einnig
var rætt við ISIS-liða, geranda í of-
beldinu. Bæði viðtölin voru hroll-
vekjandi, hvort á
sinn hátt. Sjálfum
finnst mér það
slæm tilhugsun
að „við“, þ.e.
bandamenn Ís-
lands, skulum
hafa stutt ISIS á
þessu örlagaríka
tímaskeiði.
Samkvæmt
þrætubók kalda
stríðsins var í
framangreindum
leiðara spurt hvar
Vinstrihreyfingin
– grænt framboð
hefði verið þegar ráðist var á Líbíu
um árið; hvort VG hefði ekki setið þá
í ríkisstjórn. Mikið rétt, en ófá voru
þau sem mótmæltu, höfðu með öðr-
um orðum ekki fullorðnast sam-
kvæmt kenningum leiðarahöfundar.
Í kjölfar þess að reynt var að eitra
fyrir manni að nafni Sergei Skripal í
enska bænum Salisbury fyrr á árinu
ákvað hin fullorðna ríkisstjórn, sem
nú situr, að afpanta miða á HM í fót-
bolta í Rússlandi. Sennilega ekki
vegna þess að Skripal hafi verið val-
inn, af öllum fórnarlömbum ofbeldis í
heiminum, til að taka upp hanskann
fyrir. Skripal þessi var njósnari
Rússa sem síðan seldi Bretum þjón-
ustu sína til að njósna um sína fyrri
húsbændur. Við stóðum með öðrum
orðum varla með fórnarlambinu
Skripal heldur bandamönnum okkar
í NATÓ sem í heimi hinna fullorðnu
bar að sýna stuðning.
En hve langt erum við reiðubúin
að ganga til að sýna Trump slíka
hollustu, einræðisherranum Erdog-
an, May, Merkel eða Macron?
Hversu fullorðin viljum við verða?
Um utanríkismál og aldur
’Þar er því fagnaðsérstaklega, og þykirmikið þroskamerki afhálfu Vinstrihreyfing-
arinnar – græns fram-
boðs, sem nú fari með
forsætisráðuneytið, að
leyfð hafi verið á Íslandi
„myndarleg“ heræfing
NATÓ og önnur slík,
væntanlega enn mynd-
arlegri, í bígerð.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur @ogmundur.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þórdís Gísla-
dóttir rithöfundur
og þýðandi með
meiru tísti: „Var að
lesa um konu sem
er að fara að taka
þátt 400 kílómetra ofurhlaupi í
Gobi-eyðimörkinni, sem tekur um
fjóra sólarhringa. Ég sjálf nenni ekki
einu sinni að labba út í Krónuna.“
Katrín Atla-
dóttir borgar-
fulltrúi tísti: „Veit
ekki hvort er
fyndnara að dóttir
mín hafi bitið
bróður sinn í tána
eða að hann hafi öskurgrenjað á mig
að gefa henni rautt spjald.“
Dagur Hjart-
arson rithöfundur
tísti: „Það sem
Tiger Woods var
að gera jafnast á
við ef Michael
Owen hefði aftur
byrjað að æfa og skorað 30 mörk í
Premier League. Eða eitthvað. Eitt-
hvað rugl. Besti íþróttamaður sög-
unnar, þ.e. Tiger.“
Jón Ólafsson
tónlistarmaður
skrifaði á Face-
book: „Okkur fé-
lögunum í Ný-
dönsk er tamt að
slá á létta strengi og sumir myndu
vilja ganga svo langt að kalla okkur
skemmtilega.
Í Eldborg síðasta laugardag var
þessi brandari sagður áður en talið
var í lag númer sjö á Himnasendingu.
Stefán: „Viltu ís Björn?“
Björn: „Má ekki bjóða þér Camel
Jón?“
Jón: „Er ekki komið hlé Barði?“
Rétt er að geta þess að niðurlag
brandarans kallast á við téð lag.“
Valdimar
Guðmundsson
tónlistarmaður
tísti um gamla
góða daga: „Ohh,
það var svo mikil
stemning að skrifa disk. Búa til lista
af geggjuðum lögum, bíða í korter á
meðan tölvan skrifaði diskinn, skrifa
kannski Valdamix Vol. 7 með tússi
og fara svo á rúntinn og hlusta á
þetta stanslaust í nokkrar vikur þar
til maður skrifaði næsta. Geggjað
dæmi.“
Erla Hlyns-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
Pírata skrifaði m.a.
á Facebook: „Stór
dagur í íslenskri
réttarsögu í dag. Faðir minn heitinn
var fangavörður í Síðumúlafangels-
inu og myndaði tengsl við bæði Sæv-
ar og Erlu. Hann var sá fyrsti sem
greindi opinberlega frá því ofbeldi
sem sakborningarnir í Guðmundar-
og Geirfinnsmálinu voru beittir - sá
fyrsti utan sakborninganna sjálfra. Í
dag hugsa ég hversu sárt er að Sævar
hafi ekki lifað þennan dag.“
AF NETINU
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
Aster ix sóf i Kr. 276.900
kr. 2.900 / 3.250 / 3.600
Kr. 33.200
Kr. 8.700
Kr. 9.400
Kr. 29.800
Marvel Motta Kr. 56.300
Tripod
Gólflampi
Velvet
Snagar
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST