Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.9. 2018
MATUR
GettyImages/iStockphoto
Algjör sveppur
Það er eitthvað sérstaklega haustlegt við
sveppi enda er náttúrulegur uppskerutími
þeirra þá. Þeir eru góðir hvort sem þeir eru í
aðalhlutverki eða aukahlutverki í réttum. Hér
fylgja nokkrar góðar sveppauppskriftir sem
hæfa þessari árstíð.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Fólk hefur safnað villtum sveppum í skógum Evrópu í
mörg hundruð ár. Grikkir fluttu inn sveppi til Rómar
og hjá Egyptum til forna voru þeir forréttindi far-
aóanna. Sveppir búa yfir ákveðinni dulúð og þeir sem
tína sveppi halda bestu stöðunum sínum gjarnan fyrir
sig.
Það eru til margar sveppategundir og eru sveppir
ræktaðir innandyra allt árið. Byrjað var að rækta þá
markvisst í Evrópu á sautjándu öld og þá átti rækt-
unin sér stað í holum neðanjarðar.
Best er að hreinsa sveppi með rökum klút eða
bursta þó það megi líka setja þá örstutt undir ískalda
vatnsbunu en þá þarf að þerra þá með viskastykki.
Heppilegast er að borða sveppi innan nokkurra
daga eftir að þeir eru keyptir. Flesta ferska sveppi er
hægt að frysta en þeir missa þá einstaka áferð sína
þegar búið er að affrysta þá þó að bragðið haldist. Matur sveppir
500 g þurrkað pasta, t.d. penne
500 g sveppir, ein eða fleiri teg-
undir, skornir í bita
1 dl ólífuolía
1 laukur skorinn smátt
3 stór hvítlaukskrif, skorin í þunnar
sneiðar
100 g parmesan
Sjóðið pastað samkvæmt leið-
beiningum á pakkanum. Sigtið
vatnið frá en geymið 2 dl.
Á meðan pastað sýður eru
sveppirnir hreinsaðir og síðan
steiktir í helmingnum af olíunni
í 5 mínútur. Þeir eru teknir af
pönnunni og restinni af olíunni
bætt við. Steikið laukinn og
hvítlaukinn þangað til laukurinn
verður glær og bætið þá svepp-
unum við og hitið þá aftur í
gegn. Blandið saman heitu
pastanu og soðvatninu við
sveppablönduna. Hrærið vel
saman og smakkið til með salti
og pipar.
Berið strax fram með nýrifn-
um parmesan.
Einfaldur pastaréttur
Það er um að gera að nota sveppi á pizzu en það er
svo miklu meira hægt að gera með sveppi á pizzu
heldur en að nota þá með skinku eins og er algengt
hérlendis.
Notið uppáhalds uppskrift ykkar að pizzubotni
eða notið tilbúinn botn.
Sveppir passa vel með hefðbundinni pizzusósu úr
tómötum en þeir fara líka vel með svokallaðri hvítri
pizzu en þá er hægt að gera sósuna t.d. úr ricotta-
osti og mozzarella og setja sveppablöndu yfir.
HUGMYNDIR AÐ ÁLEGGI SEM PASSAR
VEL MEÐ SVEPPUM:
gráðostur
karamellaður laukur og rósmarín
fontina- eða gruyere-ostur og truffluolía
grænar og rauðar paprikur
klettasalat (blandað saman við ólífuolíu
og sett á eftir bökun)
salami
fennel og hvítlaukur
Frábærir á flatbökuna