Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Page 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.9. 2018 Ein af reisulegri byggingum Reykjavíkur er stórhýsi þetta sem stend- ur við Skálholtsstíg. Húsið er í daglegu tali nefnt Næpan, en hver reisti það? MYNDAGÁTA Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hver reisti Næpuna? Svar:Húsið var reist 1903 af Magnúsi Stephensen sem árið eftir lét af embætti landshöfð- ingja þegar Íslendingar fengu heimastjórn. Frá 1873 til 1904 sátu landshöfðingjar á Íslandi; menn sem voru fulltrúar danska konungsins við stjórn landsins. Húsið, með sinn lauklaga turn, dregur nafn sitt af því að Náttúrulækningafélag Íslands rak þar fyrir margt löngu matstofu og þá var talað um að „borða á Næpunni“ og festist nafnið við bygginguna. ÞRAUTIR OG GÁTUR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.