Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Blaðsíða 35
30.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
BÓKSALA 19.-25. SEPTEMBER
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Sænsk gúmmístígvélHenning Mankell
2 MúmíuráðgátanMartin Widmark
3
Binna B. Bjarna – Djúpa
laugin
Sally Rippin
4 Heyrðu, Jónsi! – ReiðtúrinnSally Rippin
5
Heyrðu, Jónsi! Barnapíu-
kúnstir
Sally Rippin
6 Verstu börn í heimi 2David Walliams
7 Binna B. Bjarna – TjaldpartíSally Rippin
8 Heyrðu Jónsi - GistivinirSally Rippin
9 Þrír dagar og eitt lífPierre Lemaitre
10
Binna B. Bjarna - Hermi-
kráka
Sally Rippin
1 OriginDan Brown
2 FallenDavid Baldacci
3
Tom Clancy’s Power and
Empire
Marc Cameron
4 ThirstJo Nesbø
5 Rooster BarJohn Grisham
6 Midnight LineLee Child
7 People vs. Alex CrossJames Patterson
8 Leaving BerlinJoseph Kanon
9 No Middle NameLee Child
10 Lying GameRuth Ware
Allar bækur
Erlendar bækur
Ég er dottin í Netflix, hef verið að
horfa á víetnamskar sápur sem
mér finnst opna fyrir mér heim-
inn. Les þess vegna næstum ekk-
ert sem stendur en dett bráðum
inn í lesturinn aftur.
Ég er reyndar að
lesa eina bók fyrir
Hljóðbókasafnið,
Napóleon eftir Her-
man Lindqvist sem
Borgþór Kjærne-
sted þýddi. Það er
svo margt merkilegt
við sögu Napóleóns, til dæmis það
hve viðkvæmur hann var og
hvernig konurnar í kringum hann
stýrðu honum með því að komast
í uppnám – hann gat ekki staðist
þær. Svo líka það hvernig honum
hefur verið lýst sem smávöxnum
manni en hann var ekkert smá-
vaxinn; á þeim tíma sem hann lifði
var hann yfir meðalhæð en sigur-
vegararnir skrifa söguna.
Hann var dúndurklár og rosa-
lega ákveðinn, ætlaði sér að kom-
ast langt. Minnir mig á menn eins
og boxarann Anthony Joshua eða
hlauparann Usain Bolt.
Ég er ekki búin með hana, þótt
við vitum náttúrlega hvernig
þetta endaði, en ég hlakka til að
sjá hver það var sem að lokum
hefur stungið hann í bakið.
ÉG ER AÐ LESA
Arndís Björk
Ásgeirsdóttir
Arndís Björk Ásgeirsdóttir er dag-
skrárgerðarkona og tónlistarkennari.
Sovétríkin leystust upp áárinu 1991, lokahnykkurinnum jólin það ár, og kvödd
með lítilli eftirsjá. Nema kannski á
Kúbu, því hrun Sovétríkjanna boð-
aði líka efnahagslegt hrun á Kúbu
– þegar Comecon, viðskipta-
bandalag kommúnistaríkja, lagði
upp laupana um mitt ár 1991 gátu
kúbversk stjórnvöld ekki lengur
lifað á sníkjum og við tók snarpur
samdráttur – þjóðarframleiðsla
dróst saman um rúman þriðjung
með tilheyrandi hörmungum fyrir
íbúa landsins. Þótt ekki hafi orðið
hungursneyð þá varð hungur við-
varandi næstu árin og almennur
skortur – período especial kölluð
menn tímann, sérstaka tímabilið.
„Að fróa sér er eins og að dansa
einn: í fyrstu er maður glaður og
þetta virkar, en svo gerir maður
sér grein fyrir því að maður er
hálfviti. Hvað er ég að gera hér,
ber fyrir framan spegilinn að
runka mér? Ég klæði mig og fer
út. Fer í skítug föt, svituð. Í dag
er ég tvímælalaust ógeðslegur.“
Svo hefst einn kaflinn í öðrum
hluta Soralega Havanaþríleiksins,
skáldsögu Pedros Juans Gutiérrez,
sem gerist einmitt á árunum sér-
stöku, en áðurnefndur annar hluti
heitir því lýsandi nafni: Ekkert að
gera. Í bókinni, sem kom út á ís-
lensku nýverið, í þýðingu Kristins
R. Ólafssonar, segir frá lífinu í
Havana á hinu sérstaka tímabili
„þegar eina glætan er kynlíf,
romm og marijúana“ eins og því
er lýst á kápu íslensku útgáf-
unnar.
Grimmilegt líf og
ólgandi lífskraftur
Soralegi Havanaþríleikurinn, Tri-
logía sucia de La Habana, er
þekktasta verk Pedros Juans
Gutiérrez. Hann fæddist í Mat-
anzas, sem er skammt austan við
Havana, en ólst upp í Pinar del
Río sem er mun vestar á eynni.
Hann starfaði við ýmislegt; seldi ís
og dagblöð, gegndi herþjónustu,
var sundkennari og verkamaður,
iðnhönnuður, útvarpsmaður og
blaðamaður áður en hann sneri sér
alfarið að ritstörfum, en þess má
geta að hann er líka listmálari og
myndhöggvari.
Gutiérrez var hálffertugur þegar
hann kom fyrst til Havana,
skömmu fyrir hrunið, og hefur lýst
því hvað það kom honum á óvart
hve lífið í höfuðborginni var
grimmilegt, en hann hafi fundið
fyrir heillandi, ólgandi lífskrafti.
Þessi blanda af grimmd og lífsorku
meðal hinna lægst settu í sam-
félagi sósíalismans hefur verið
honum yrkisefni og hann hefur
verið kallaður meistari sóða-
raunsæis fyrir vikið, enda dregur
hann ekkert undan og færir heldur
í stílinni með subbuskap, rudda-
legu klámi, karlrembu og kyn-
þáttaníði. Að þessu sögðu hefur
höfundur augsjáanlega dálæti á
kúbverskri menningu og lýsir hug-
myndaauðgi borgarbúa á jákvæðan
hátt.
Lifað á snapi og sníkjum
Söguhetjan í þríleiknum heitir
Pedro Juan, líkt og höfundurinn,
og starfar sem blaðamaður. Bókin
lýsir ævintýrum hans í tveimur
fyrri hlutum hennar, en síðasti
hlutinn eru smásögur þar sem
Pedro Juan bregður stundum fyr-
ir. Þegar kreppan hefst er hann
giftur barnamaður en hinn nýi
raunveruleiki þrengir sér inn í líf
hans og molar það; ekki líður á
löngu þar til hann er á götunni,
fjölskyldu- og vinalaus, og sam-
félagið sem hann svamlar í, undir-
heimar Havanaborgar, speglast í
upplausninni í kollinum á honum.
Þegar bókin hefst er Pedro Juan í
ónáð, upp á kant við stjórnvöld, og
lifir á snapi og sníkjum á milli
þess sem hann drekkur, dópar og
hórast.
Gutiérrez skrifaði Soralega
Havanaþríleikinn á kreppuárunum,
1994 til 1997, en bókin kom út
1998. Þegar hún fagnaði tuttugu
ára afmælinu fyrr á árinu segist
hann hafa lesið hana aftur í fyrsta
sinn frá því hún kom út og hann
hafi í senn hatað bókina og dáðst
að því hvað hún hafi verið bylting-
arkennd og átakanleg.
Á þeim tuttugu árum sem liðið
hafa frá því Gutiérrez lauk við
bókina hefur hún komið út á 24
tungumálum í ríflega 80 löndum,
en ekki á Kúbu – hún þótti gefa of
subbulega, og of raunsanna, mynd
af lífinu á Kúbu á hinu „sérstaka
tímabili“. Í viðtali við mexíkóska
dagblaðið El Sur í tilefni af afmæli
bókarinnar segist Gutiérrez vonast
til þess að bókin verði fljótlega
gefin út á Kúbu, en ekki hafa
nema 16 bóka hans komið þar út
þó 26 titlar hafi komið út í öðrum
löndum.
Drukkið, dópað og hórast
Hinn soralegi Havanaþríleikur Kúbverjans Pedros Juans Gutiérrez, sem ger-
ist í Kúbukreppu tíunda áratugarins, er svo soralegur að hann hefur ekki
enn komið út í heimalandi höfundar, en í áttatíu löndum öðrum.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Sóðaraunsæis-
skáldið Pedro
Juan Gutiérrez.
Ljósmynd/Lola del Castillo.