Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.09.2018, Qupperneq 37
30.9. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
FÓLK Kvikmyndastjarnan og framleiðandinn
Reese Witherspoon getur nú líka kallað sig met-
söluhöfund en fyrsta bók hennar Whiskey in a
Teacup komst á topp metsölulista New York
Times. Undirtitill bókarinnar er, „það sem það
að alast upp í suðrinu kenndi mér um lífið, ástina
og smákökubakstur“. Titilinn er fenginn frá
ömmu leikkonunnar, Dorotheu, sem sagði að
blanda af fegurð og styrk léti konur frá suður-
ríkjum Bandaríkjanna vera eins og „viskí í te-
bolla“. Þær litu út fyrir að vera viðkvæmar og
skrautlegar en væru að innan sterkar og kraft-
miklar.
Í bókinni lýsir hún því hvernig hefðir suður-
ríkjanna móti allt sem hún geri, hvernig hún
haldi veislur, skreyti heimili sitt, dansi og greiði
sér.
Í bókinni lýsir hún því að hún hafi verið mjög
spennt fyrir því að hitta Kate Middleton árið
2011. Hún hafi talið sig vera frekar ónæma fyrir
kóngafólksæði en hafi ekki getað ráðið við sig af
spenningi þegar hún fékk boð um að hitta her-
togaynjuna, skömmu eftir að hún gekk í hjóna-
band með Vilhjálmi Bretaprinsi. „Þann daginn
var ég vöknuð kl. 4 til að undirbúa hárgreiðsl-
una, það er snemmt, meira að segja fyrir mig.“
Reese Witherspoon, metsöluhöfundur Reese Wither-
spoon nýtur
mikilla vinsælda.
AFP
Bókakápan. Kannski
er Witherspoon með
viskí í tebollanum?
Leikkonan Isabella Rossellini naut
mikilla vinsælda og var þekkt leik-
kona og fyrirsæta og reis stjarna
hennar hvað hæst á árunum í kring-
um 1990. Þessi dóttir sænsku leik-
konunnar Ingrid Bergman og
ítalska leikstjórans Robertos Ross-
ellini er til dæmis þekkt fyrir leik
sinn í myndunum Blue Velvet
(1986), Wild at Heart (1990) og
Death Becomes Her (1992).
Hún hefur líka verið á forsíðu 23
tölublaða Vogue-tímaritsins og var
andlit franska snyrtivöruframleið-
andans Lancôme frá 1982. Ross-
ellini gegndi þessu hlutverki í 14 ár
en hún var rekin 42 ára gömul.
Ástæðan var að hún var orðin of
gömul. Nú eru breyttir tímar og
leikkonan sem er nú 66 ára hefur
skrifað undir nýjan samning við
Lancôme. „Ég er aftur í tísku,“
sagði Rossellini í samtali við New
York Times fyrr á árinu. Viðtalið
fór fram á bóndabæ hennar á Long
Island, utan við New York. Þar
ræktar hún kjúklinga, lífrænt græn-
meti og framleiðir hunang og egg.
Hún hefur meira að segja skrifað
stutta bók, My Chickens and I , sem
kom út í mars. Hún segir að hún
hafi ákveðið að fara aftur í skóla
þegar hún datt úr tísku. Hún er um
þessar mundir að klára meistara-
gráðu í atferli dýra og verndun við
Hunter College á Manhattan. En
núna er spurning hversu mikinn
tíma hún mun hafa til að sinna bú-
störfum þar sem nú er meira að
gera hjá henni sem leikkona og
fyrirsæta. Nýjasta fyrirsætustarfið
var þegar hún gekk sýningarpallana
og sýndi ásamt tveimur börnum
sínum og barnabörnum sumartísk-
una 2019 fyrir Dolce & Gabbana.
Vonandi fáum við að sjá sem mest
af henni á næstunni.
ingarun@mbl.is
Þrjár kynslóðir samankomnar í tískusýningu Dolce & Gabbana í Mílanó á dög-
unum. Frá vinstri: Elettra Rossellini Wiedemann með átta mánaða son sinn í
fanginu, Isabella Rossellini og Roberto Rossellini.
AFP
HVAÐ VARÐ UM ISABELLU ROSSELLINI?
Ræktar kjúklinga
Gömul auglýsing en Rossellini var
lengi andlit Lancôme.
Í Blue Velvet (1986).
AFP
Í veislu hjá
David Lynch-
stofnuninni
í maí.
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
Með Firmavörn+ geta stjórnendur fylgst með og
stýrt öryggiskerfi, myndeftirliti og snjallbúnaði
fyrirtækisinsmeð appi í símanum hvar og hvenær
sem er. Stjórnstöð Securitas er á vaktinni allan
sólarhringinn, alla daga ársins.
www.firmavorn.is
HVAR SEM ÞÚ ERT