Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 27
(1977) og Íslensku þýðingarverðlaun- in fyrir þýðingu á Wuthering Heights eftir Emily Brontë (2006). Meðal margra annarra þýðinga má nefna Hroka og hleypidóma eftir Jane Aust- en (1988), Lífið að leysa eftir Alice Munro (2014) og Grimms ævintýri fyrir unga og gamla (2015); tvær þær síðarnefndu voru tilnefndar til Ís- lensku þýðingarverðlaunanna. Silja hefur mörg áhugamál: „Ég er leikhúsfíkill og syng líka í kór – Sen- jórítukórnum – ásamt rúmlega sjötíu konum á góðum aldri! Svo stunda ég pilates hjá henni Lóló í World Class til að halda mér liðugri. En aðaláhugamálið er fjölskyldan mín. Við hittumst reglulega, borðum alltaf saman á miðvikudögum og njót- um þess að vera saman.“ Fjölskylda Eiginmaður Silju er Gunnar Karls- son, f. 26.9. 1939, sagnfræðingur og prófessor emeritus við HÍ. Foreldrar hans voru Karl Jónsson, f. 1.7. 1904, d. 4.6. 1979, bóndi í Gýgjarhólskoti, og k.h., Sigþrúður Guðnadóttir, f. 8.10. 1896, d. 29.4. 1967, húsfreyja. Dæturnar eru: 1) Sif Gunnars- dóttir, f. 25.5 1965, skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg, en maður hennar er Ómar Sigurbergsson arkitekt; 2) Sigþrúður Gunnarsdóttir, f. 8.6. 1971, ritstjóri á Forlaginu en maður hennar er Jón Yngvi Jóhannsson, lektor við HÍ, og 3) Elísabet Gunnarsdóttir, f. 21.12. 1982, félagsráðgjafi hjá Reykja- víkurborg en maður hennar er Sig- hvatur Arnmundsson blaðamaður. Barnabörnin eru orðin sjö: Áróra, f. 1990, Valgerður, f. 1993, Silja, f. 1998, Steinunn, f. 1999, Arnmundur, f. 2008, Aðalsteinn, f. 2011 og Ragnar Þorlák- ur, f. 2018. Uppeldisbróðir Silju er Gunnar Aðalsteinsson, f. 1.7. 1958, pípulagn- ingamaður í Kópavogi. Hálfsystkini Silju, samfeðra: Björg, Ragnheiður, Stefán, Gunnar og Berg- þóra. Hálfsystkini Silju, sammæðra: Þór- dís, Guðmundur Víðir, Hafsteinn og Sigurlaug. Foreldrar Silju voru Karl Gunnars- son, f. 16.4. 1914, d. 30.4. 1988, bóndi í Hofteigi á Jökuldal, og Jónína Hall- grímsdóttir, f. 1.7. 1922, d. 30.9. 2013, húsfreyja á Hrauni í Fljótum, á Gauksmýri í Vestur-Húnavatnssýslu og á Hvammstanga. Kjörforeldrar Silju voru Aðalsteinn Gunnarsson, f. 20.10. 1909, d. 21.6. 1988, verkamaður, og Valgerður Stef- ánsdóttir, f. 1.2. 1919, d. 26.5. 1994, húsfreyja. Ragnheiður Hermannsdóttir kennari Hermann Gunnarsson pr. á Skútustöðum Hermann Ragnarsson blikksmiður í Rvík Ragnar Gunnarsson b., vegaverkstj. og símstöðvarstj. á Fossvöllum Þórdís unnarsdóttir b. í Þingnesi í Borgarfirði G Ragnheiður veinbjörnsdóttir bæjarfulltr. í Hafnarfirði og vþm. S Sveinbjörn Eyjólfsson forstöðum. Nauta- stöðvarinnar á Hesti Anna Kristinsdóttir húsfreyja á Hvanneyri Guðrún Ingimarsdóttir söngkona í Þýskalandi Jónína Gunnarsdóttir ljósm. í Bakkagerði í Hlíðarhreppi Úr frændgarði Silju Aðalsteinsdóttur Silja Aðalsteinsdóttir Una Einarsdóttir húsfreyja á Hrafnabjörgum Eiríkur Jónsson b. og dbrm. á Hrafnabjörgum Guðrún Eiríksdóttir húsfreyja á Hrafnabjörgum Gísli Sigurður Hallgrímsson skólastj. og b. á Hallfreðarstöðum á Héraði Jónína Hallgrímsdóttir húsfreyja á Hrauni í Fljótum, Gauksmýri, V.-Hún og á Hvammstanga Hallgrímur Gíslason b. á Hrafnabjörgum í Jökulsárhlíð Guðrún Björg Oddsdóttir húsfreyja á á Birnufelli Ólafur Kjartan igurðar- son óperu- söngvari SFjölnirÓlafsson söngvari Jón igurðs- son bassa- eikari S l Sigurður Rúnar Jónsson (Diddi fiðla) tónlistar- maður Bergþóra Benedikts- dóttir húsfreyja í Kópavogi Benedikt Svein- björnsson aðalbókari Norðlenska áAkureyri Gunnar Ben tónlistar- maður, m.a. í Skálmöld Bjarni Benediktsson frá Hofteigi rith. og bókmenntafr. í Rvík Kolbeinn Bjarna- son flautuleikari og tónskáld Benedikt Gíslason frá Hofteigi Sigurður Z.Gíslason prestur á Söndum í Dýrafirði Gísli Helgason ráðsm. á Birnufelli í Fellum og b. á Egilsstöðum Björg Þorleifsdóttir húsfreyja í Teigaseli Stefán Bjarnason b. í Teigaseli á Jökuldal Ragnheiður Stefánsdóttir húsfreyja á Fossvöllum Karl Gunnarsson b. á Hofteigi á Jökuldal Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Háreksstöðum Sindri igurjónsson skrifstofu- stjóri í Rvík S Heimir Sindra- on tann- æknir og ónskáld s l t Kristín Heimis- dóttir tannlæknir og fv. form. Tannlækna- félags Íslands Fjalar Sigurjónsson prófastur á Kálfafellsstað Máni Fjalarsson læknir í Rvík Sigurjón Jónsson pr. á Kirkjubæ í Hróarstungu Jón Benjamínsson b. á Háreksstöðum á Jökuldalsheiði Gunnar Jónsson b. á Fossvöllum í Jökulsárhlíð ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2018 SKECHERS BRAVER HERRASKÓR MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI. STÆRÐIR 41-47,5. FÁST EINNIG BRÚNIR. HERRASKÓR KRINGLU OG SMÁRALIND 13.995 Emilía Biering fæddist íReykjavík 3.10. 1908. For-eldar hennar voru Þorbjörg Biering húsfreyja, og Moritz Wil- helm Biering skósmiður. Systkini Emilíu: Pétur Wilhelm, Magnús Þorbjörn, Anna Kristín, Lo- uise, Vilhelmína Ch., Hulda Ingi- björg og Hilmar. Emilía var á fyrsta ári er hún var send til ömmu sinnar að Krossi þar sem hún ólst upp í stórum frænd- systkinahópi, með börnum Guð- rúnar Kristófersdóttur og Valdi- mars Sæmundssonar. Fyrri eiginmaður Emilíu var Helgi Hálfdánarson, sjómaður og síðar netagerðarmeistari. Þau bjuggu fyrst á Patreksfirði og eign- uðust tvö börn, Esther Biering, og Rafn Biering. Á Patreksfirði rak Emilía kaffi- sölu uns hún tók sig upp frá börnum og búi, réði ráðskonu á heimilið og lauk ljósmóðurnámi í Reykjavík. Emilía stundaði ljósmóðurstörf heima á Patreksfirði og í nágranna- byggðum til 1945. Vitjanir hennar lágu oft um torsóttar leiðir og gjarn- an farið á hestum eða bátum, hve- nær sem var sólarhrings og hvernig sem viðraði. Fjölskyldan flutti til Reykjavíkur 1945. Emilía og Helgi slitu samvistir allnokkru síðar en seinni maður Em- ilíu var Sigurjón Sigmundsson, f. 1911, d. 1991, ættaður frá Hamra- endum. Emilía lét af ljósmóðurstörfunum sökum heyrnarskerðingar. Hún hafði alllengi kostgangara á heimili sínu, sinnti ýmsum öðrum störfum, skrifaði m.a. greinar fyrir blöð og tímarit, s.s. í Lesbók Tímans og í Dýraverndarann og fékk sérstaka viðurkenningu fyrir skrif sín. Emilía hafði á heimili sínu for- eldra seinni manns síns, blindan mann móðursystur sinnar og síðar einnig móður sína, uns hún lagðist á sjúkrahús. Á sjöunda áratugnum tók Emilía svo að sér að strekkja dúka og gardínur og sinnti því starfi allt fram undir áttræðisaldur. Emelía lést 25.11. 2006. Merkir Íslendingar Emilía Biering 90 ára Þórunn Júlíusdóttir 85 ára Árni Halldórsson Guðmunda Nielsen Hjalti Skagfjörð Jósefsson Ingibjörg Guðmundsdóttir Sigurveig H. Björnsdóttir Sonja J. Andrésdóttir 80 ára Guðmundur Daníelsson Hildegunn Bieltvedt Kristinn H. Þórhallsson 75 ára Aðalbjörg Karlsdóttir Auður Sigurbjörnsdóttir Björn Theodórsson Hrafnhildur Sigurbjörnsdóttir Ingibjörg Hargrave Karl Jónsson Kolbrún Einarsdóttir Sigurður Guðjónsson 70 ára Einar Sigurður Sveinsson Helgi Baldursson Ingunn Kristín Jakobsdóttir Kolbrún Þorsteinsdóttir Kristín Magnúsdóttir Lilja Guðmundsdóttir Stefán Baldursson Stefán Jónsson 60 ára Áslaug E. Guðmundsdóttir Ásrún Sólveig Ásgeirsdóttir Bergur Þór Arthúrsson Guðbjörg Halldórsdóttir Haukur Stefánsson Magnús Ö. Markússon Margrét H. Þórarinsdóttir María A. Sigmundsdóttir Ólína Margrét Haraldsdóttir Sigurborg Þórarinsdóttir Silvia D. Salinas Martinez Snjólaug Einarsdóttir Stefán Gíslason Þórdís Jónsdóttir 50 ára Einar Eyfjörð Brynjarsson Esther Ágústsdóttir Guðjón Leifsson Guðrún Gunnarsdóttir Gunnar Stefán Richter Kolbrún Elfarsdóttir Kristbjörn M. Harðarson Tomasz Brzuchalski Þóra Lilja Magnúsdóttir 40 ára Angelika Elzbieta Kocko Árni Sigurður Hafdal Einar Ísfeld Steinarsson Elvar Þór Óskarsson Guðmundur H. Sigurðarson Guðmundur Smárason Heiðrún Ó. Steindórsdóttir Lara Wolny Mariusz Andruszkiewicz Przemyslaw Adamczyk Robert S. Rutkowski Sigríður Jóhannesdóttir Styrmir Már Sigmundsson Svanberg Snorrason Urszula Teresa Oleksiej 30 ára Agnieszka Weronika Kruk Arnþór Sigurðsson Björn Þórsson Björnsson Guðný Birna Ólafsdóttir Jökull Ernir Jónsson Marek Grygo Monika Pelkowska Przemyslaw Jankowski Sigurður Óli Þorvaldsson Svava K. Þorsteinsdóttir Thomas Patrick Hudson Til hamingju með daginn 30 ára Heiðrún ólst upp á Selfossi, býr þar, lauk prófi í sjúkraþjálfun í Dan- mörku og er sjúkraþjálfari hjá HNLFÍ í Hveragerði. Maki: Pelle Damby Caro- ee, f. 1987, framhalds- skólakennari. Börn: Erna Caroee, f. 2013, og Gunnar Caroee, f. 2014. Foreldrar: Sigríður Sverr- isdóttir, f. 1956, og Hlöð- ver Örn Rafnsson, f. 1954. Þau búa á Selfossi. Heiðrún Erna Hlöðversdóttir 30 ára Elmar ólst upp á Akureyri, býr þar, lauk sveinsprófi í húsasmíði og er húsasmiður hjá ÁK Smíði. Maki: María Valgerður Jónsdóttir, f. 1991, starfs- maður á leikskóla. Börn: Aron Ingi, f. 2007; Viktor Levi, f. 2011, og Sara Lind, f. 2015. Foreldrar: Ingibjörg Sæv- arsdóttir, f. 1962, og Magnús Sigurbjörnsson, f. 1960. Elmar Magnússon 30 ára Björn Viggó ólst upp í Rauðanesi í Borgar- firði, lauk sveinsprófi í húsasmíði og er nú bóndi á Ási í Vatnsdal. Maki: Ragnheiður Lauga Jónsdóttir, f. 1979, bóndi og lífeindafræðingur. Dóttir: Sunna Katrín, f. 2018. Foreldrar: Björn Zoëga Björnsson, f. 1964, og Guðbjörg Guðjónsdóttir, f. 1965. Björn Viggó Björnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.