Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2018 50 ár eru í dag liðin frá því að Kristnihald undir jökli eftir Hall- dór Laxness kom út. „Bókin kom út 3. október 1968 en þá hafði ver- ið beðið í nokkurri eftirvæntingu eftir nýrri skáldsögu frá Halldóri Laxness því átta ár voru liðin frá því að Paradísarheimt kom út,“ segir í tilkynningu frá Gljúfra- steini. Þar er rifjað upp að bókin hafi fljótt vakið mikla athygli. Í danska dagblaðinu Politiken sagði um bókina: ,„Óvæntur hátindur í bók- menntaverki Laxness“, í Morgun- blaðinu sagði: „stórkostlegt lista- verk ... þarna er stórkostlegur skáldskapur á ferðinni“ og í Vísi sagði að með bókinni sýndi Halldór Laxness að hann byggi yfir þeirri náðargáfu snillingsins að vera sí- ungur „Hann lætur sér ekki nægja að fylgjast með tímanum, heldur verður hann að vera í broddi fylk- ingar.“ Haldið verður upp á hálfrar ald- ar útgáfuafmælið í stofunni á Gljúfrasteini í kvöld kl. 20 þegar Ástráður Eysteinsson, prófessor í almennri bókmenntafræði við Há- skóla Íslands, ræðir um verkið frá sjónarhóli samtímans, hálfri öld síðar. Yfirskrift fyrirlesturs hans er: „Að steypa sér í jökulinn. Hug- leiðingar um Kristnihald Halldórs Laxness.“ Aðgangur er ókeypis. Kristnihald undir Jökli í hálfa öld Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Skáldið Halldór Laxness rithöfundur. Margir kannast vafalítiðvið nafnið Marie Jones,en hún er höfundurleikritsins Með fulla vasa af grjóti frá 1996 sem Þjóðleik- húsið sýndi við feikigóðar viðtökur fyrst árið 2000 og aftur 2012 og 2017. Í ljósi þeirra miklu vinsælda sem uppfærslan naut er skiljanlega freistandi að leita aftur í smiðju Jones, en um liðna helgi frumsýndi Þjóðleikhúsið leikritið Fly Me to the Moon frá árinu 2012 í leikstjórn höf- undar. Líkt og í Með fulla vasa af grjóti eru aðeins tveir leikarar í Fly Me to the Moon. Bæði verk draga upp mynd af írsku samfélagi þar sem atvinnuleysi og stéttaskipting eru landlæg og ákveðið vonleysi ríkir. Þar með lýkur samanburðinum því ólíkt leikurunum tveimur í Með fulla vasa af grjóti, sem fengu tæki- færi til að sýna fimi sína þegar þeir skiptu á milli sín fimmtán hlut- verkum verksins, eru leikkonurnar tvær í Fly Me to the Moon fastar í sömu hlutverkum allan leikinn. Verkið gerist í Belfast og hverfist um Lorettu Mackie (Anna Svava Knútsdóttir) og Francis Shields (Ólafía Hrönn Jónsdóttir) sem vinna við aðhlynningu heima hjá hinum 84 ára gamla Davy McGee sem núorð- ið lifir fyrir það eitt að hlusta á tón- list í flutningi Franks Sinatra, veðja á hesta og lesa The Daily Mail. Þeg- ar skjólstæðingur kvennanna hrekkur skyndilega upp af á þeirra vakt sjá þær tækifæri til að eignast örlítinn aur. Með því að láta um- heiminn halda að Davy McGee sé enn á lífi nokkrum tímum eftir and- látið geta þær svikið út ellilífeyri hans, samtals 120 pund eða um 17 þúsund íslenskar krónur, og skipt honum á milli sín. Þar með hefst farsakennd atburðarás sem teygir sig yfir tvo klukkutíma með hléi. Því miður verður að segjast að lopinn er óþarflega teygður í verk- inu og framvindan höktandi. Einn ágætis brandari undir lokin stendur ekki undir heils kvölds sýningu. Þegar við bætist að höfundurinn ætlast til að írsk eftirnöfn og götu- heiti miðli mikilvægum upplýs- ingum til áhorfenda um trúmál per- sóna þá er úr vöndu að ráða. Þýðing Guðna Kolbeinssonar er þjál, en sennilega hefði farið betur á því að staðfæra verkið og skera burt hluti sem augljóslega hafa aðeins þýð- ingu fyrir samlanda höfundar. Raunsæið ríkir í leikmynd og búningum Snorra Freys Hilmars- sonar. Margt er þar ágætlega gert, en í ljósi þess hversu margoft er ítrekað að Davy McGee búi einn í húsi á jarðhæð stingur óneitanlega í stúf að útsýnið út um gluggann, sem staðsettur er fyrir miðju sviði, gefi tilfinningu fyrir að íbúðin sé staðsett ofarlega í háhýsi. Hljóð- mynd Kristjáns Sigmundar Ein- arssonar tekur mið af dálæti hins látna á Frank Sinatra, en í ljósi þess hversu miðlægur Sinatra er í verkinu er illskiljanlegt að höfundur leikritsins geri sér ekki meiri mat úr slíkri tengingu. Stærstur hluti verksins gerist í íbúð Davy McGee, en framvindan er reglulega brotin upp með lýsingu Jóhanns Friðriks Ágústssonar sem gefur til kynna að stöllurnar tvær séu í yfirheyrslu hjá lögreglunni. Frá höfundarins hendi fáum við lítið að vita um konurnar tvær annað en að þær hafa ekki efni á að komast með í gæsapartí til Barcelona, son- ur Francis var rekinn úr skóla og þénar nú peninga á því að selja ólöglegt niðurhal á kvikmyndum og dóttir Lorettu kemst ekki í Disney- ferð með skólanum sínum vegna peningaleysis auk þess sem eig- inmaður hennar missti vinnu sína sem múrari í kjölfar efnahags- kreppunnar. Þessir dýpri und- irtónar verksins um fjárhagslega örbirgð kvennanna tveggja sem vinna fyrir sex pund á tímann (sem samsvarar 870 íslenskum krónum) týnist hins vegar í öllum vandræða- gangi farsans. Ólafía Hrönn Jónsdóttir drífur framvinduna áfram af krafti í hlut- verki Francis sem framan af er sú sem fær allar hugmyndirnar að því hvernig þær vinkonur geti krækt í örfáa þúsundkalla. Anna Svava Knútsdóttir nær vel að miðla vand- ræðagangi Lorettu sem jaðrar við taugaveiklun, en báðar hafa kon- urnar þekkingu sína af glæpum úr misgóðum sjónvarpsþáttum. Leik- konurnar tvær ná samt ekki að gera sér almennilegan mat úr efniviðn- um, enda takmarkað hversu góða máltíð hægt er að elda þegar hrá- efnið er einfaldlega ekki nógu gott. Marie Jones hefur leikstýrt Fly Me to the Moon bæði á Írlandi og í Bandaríkjunum við misjafnar við- tökur. Íslenska uppfærsla verksins virkaði á köflum ekki fullæfð auk þess sem sviðsumferðin var of oft kauðaleg. Niðurstaða kvöldsins var því að fyrri frægð og velgengni er ekki endilega ávísun á gæðastund í leikhúsinu. Með tóma vasa Ljósmynd/Olga Helgadóttir Vandasamt „Leikkonurnar tvær ná samt ekki að gera sér almennilegan mat úr efniviðnum, enda takmarkað hversu góða máltíð hægt er að elda þegar hráefnið er einfaldlega ekki nógu gott,“ segir í rýni um Fly Me to the Moon. Þjóðleikhúsið Fly Me to the Moon bbnnn Eftir Marie Jones í leikstjórn höfundar. Íslensk þýðing: Guðni Kolbeinsson. Leikmynd og búningar: Snorri Freyr Hilmarsson. Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson. Hljóðmynd: Kristján Sig- mundur Einarsson. Leikarar: Anna Svava Knútsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Frumsýning í Kassanum í Þjóðleikhúsinu 28. september 2018. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Ronja Ræningjadóttir (None) Lau 6/10 kl. 17:00 Auka Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 7/10 kl. 13:00 8. s Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 7/10 kl. 16:00 9. s Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 14/10 kl. 13:00 10. s Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 14/10 kl. 16:00 11. s Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Lau 20/10 kl. 15:00 Auka Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Lau 20/10 kl. 18:30 Auka Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Lau 29/12 kl. 13:00 Auka Sun 21/10 kl. 13:00 12. s Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Lau 29/12 kl. 16:00 Auka Sun 21/10 kl. 16:00 13. s Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Fly Me To The Moon (Kassinn) Lau 6/10 kl. 19:30 3. s Sun 21/10 kl. 20:00 9. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s Sun 7/10 kl. 19:30 4. s Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Þri 13/11 kl. 19:30 16.s Fös 12/10 kl. 19:30 5. s Sun 28/10 kl. 19:30 11. s Fös 16/11 kl. 19:30 17.s Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Fim 1/11 kl. 19:30 13.s Lau 17/11 kl. 19:30 18.s Fim 18/10 kl. 19:30 7. s Fös 2/11 kl. 19:30 12. s Lau 20/10 kl. 19:30 8. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Ég heiti Guðrún (Kúlan) Fös 5/10 kl. 19:30 Frums Lau 13/10 kl. 19:30 5. s Sun 21/10 kl. 17:00 9. s Lau 6/10 kl. 17:00 Auka Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Þri 23/10 kl. 19:30 10. s Sun 7/10 kl. 17:00 2. s Þri 16/10 kl. 19:30 Auka Fim 25/10 kl. 19:30 11.s Mið 10/10 kl. 19:30 3. s Mið 17/10 kl. 19:30 7. s Fös 26/10 kl. 17:00 Auka Fim 11/10 kl. 19:30 4. s Fös 19/10 kl. 19:30 Auka Lau 27/10 kl. 20:00 12.s Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Lau 20/10 kl. 17:00 Auka Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi Slá í gegn (Stóra sviðið) Fös 5/10 kl. 19:30 41. s Fös 19/10 kl. 19:30 42. s Lau 3/11 kl. 19:30 LOKA Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Samþykki (Stóra sviðið) Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu. Insomnia (Kassinn) Fös 9/11 kl. 19:30 Frums Fim 15/11 kl. 19:30 4.s Fim 29/11 kl. 19:30 7.s Lau 10/11 kl. 19:30 2. s Lau 17/11 kl. 19:30 5.s Mið 14/11 kl. 19:30 3.s Fös 23/11 kl. 19:30 6.s Brandarinn sem aldrei deyr Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið) Lau 6/10 kl. 11:00 Lau 13/10 kl. 13:00 Lau 27/10 kl. 11:00 Lau 6/10 kl. 13:00 Lau 20/10 kl. 11:00 Lau 27/10 kl. 13:00 Lau 13/10 kl. 11:00 Lau 20/10 kl. 13:00 Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim Reykjavík Kabarett (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 5/10 kl. 22:00 Fös 12/10 kl. 22:00 Fös 19/10 kl. 22:00 Daður og dónó Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 3/10 kl. 20:00 Mið 24/10 kl. 20:00 Mið 14/11 kl. 20:00 Mið 10/10 kl. 20:00 Mið 31/10 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00 Mið 17/10 kl. 20:00 Mið 7/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Elly (Stóra sviðið) Fim 4/10 kl. 20:00 152. s Sun 14/10 kl. 20:00 156. s Fim 25/10 kl. 20:00 160. s Lau 6/10 kl. 20:00 153. s Fim 18/10 kl. 20:00 157. s Fös 26/10 kl. 20:00 161. s Sun 7/10 kl. 20:00 154. s Fös 19/10 kl. 20:00 158. s Sun 28/10 kl. 20:00 162. Lau 13/10 kl. 20:00 155. s Sun 21/10 kl. 20:00 159. s Lau 3/11 kl. 20:00 aukas. Stjarna er fædd. Allt sem er frábært (Litla sviðið) Lau 6/10 kl. 20:00 9. s Lau 13/10 kl. 20:00 12. s Fös 26/10 kl. 20:00 15. s Sun 7/10 kl. 20:00 10. s Lau 20/10 kl. 20:00 13. s Lau 27/10 kl. 20:00 16. s Fös 12/10 kl. 20:00 11. s Sun 21/10 kl. 20:00 14. s Fös 2/11 kl. 20:00 17. s Gleðileikur um depurð. Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið) Fös 5/10 kl. 20:00 7. s Mið 10/10 kl. 20:00 aukas. Fös 19/10 kl. 20:00 15. s Lau 6/10 kl. 20:00 8. s Fim 11/10 kl. 20:00 10. s Lau 20/10 kl. 20:00 16. s Sun 7/10 kl. 20:00 9. s Fim 18/10 kl. 20:00 14. s Fim 25/10 kl. 20:00 aukas. Athugið, sýningum lýkur 3. nóvember. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Tví-skinnungur (Litla sviðið) Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Ást er einvígi. Rocky Horror (Stóra sviðið) Fös 5/10 kl. 20:00 60. s Fös 12/10 kl. 20:00 62. s Lau 27/10 kl. 20:00 Sing-a-long Fim 11/10 kl. 20:00 61. s Lau 20/10 kl. 20:00 63. s Fös 2/11 kl. 20:00 aukas. Besta partýið hættir aldrei! SMARTLAND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.