Morgunblaðið - 03.03.2018, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2018
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3
ICQC 2018-20
Hrollvekjan Malevolent, sem Ólaf-
ur de Fleur Jóhannesson leik-
stýrði, verður frumsýnd í streym-
isveitunni Netflix á föstudaginn og
fellur hún í sýningaflokkinn Net-
flix Originals.
Í myndinni segir af systkinum
sem svíkja fé út úr fólki með því að
þykjast ná sambandi við framliðna.
Gamanið kárnar þegar einn við-
skiptavina áttar sig á svikamyll-
unni og raunverulegur drauga-
gangur virðist vera á ferðinni.
Kvikmyndin er sú fyrsta sem
Ólafur leikstýrir í Hollywood, eins
og hann greinir sjálfur frá á Face-
book-síðu sinni. Netflix nær til yfir
190 landa í heiminum og má því
gera ráð fyrir að ansi margir sjái
kvikmyndina sem Ólafur lýsir sem
hryllingsmynd og fullkominni upp-
hitun fyrir hrekkjavöku.
Með aðalhlutverk í Malevolent
fara Florence Pugh, Ben Lloyd-
Hughes og Celia Imrie. Malevolent
þýðir illgjarn/gjörn eða meinfýs-
in/n og af stiklu kvikmyndarinnar
að dæma koma nokkrar illgjarnar
verur við sögu í henni og virðast
flestar vera að handan.
Hrollvekja Ólafs frumsýnd á Netflix
Hollywood Ólafur de Fleur frumsýnir sína
fyrstu Hollywood-mynd á föstudag.
Íslenska hrollvekjan Rökkur verð-
ur endurgerð af framleiðslufyrir-
tækinu Orion Pictures fyrir banda-
rískan markað. Leikstjóri og hand-
ritshöfundur Rökkurs, Erlingur
Óttar Thoroddsen, mun skrifa
handrit bandarísku útgáfunna en
Orion Pictures er í eigu MGM kvik-
myndasamsteypunnar.
Í Rökkri segir af tveimur ungum
mönnum sem kljást við kulnað ást-
arsamband sitt og óhugnalega at-
burði í afskekktum sumarbústað á
Snæfellsnesi. Kvikmyndin var
frumsýnd fyrir tæpu ári og með að-
alhlutverk í henni fara Björn Stef-
ánsson og Sigurður Þór Óskarsson.
Rökkur hefur verið sýnd á yfir 40
kvikmyndahátíðum víða um heim
og hlaut verðlaun á Outfest kvik-
myndahátíðinni fyrir listrænt af-
rek. Þá var hún einnig valin ein af
tíu bestu kvikmyndum ársins 2017
af lesendum CinEuphoria.
Framleiðendur endurgerðar-
innar eru J. Todd Harris og Marc
Marcum, fyrir hönd Branded Pict-
ures Entertainment en Dan Kagan
sér um verkefnið fyrir hönd Orion
Pictures. Kvikmyndavefurinn
Hollywood Reporter greindi fyrst-
ur frá endurgerðinni.
Rökkur endurgerð
í Bandaríkjunum
Hrollvekja Björn Stefánsson í Rökkri.
Studio 54 er áreiðanlega ein-hver frægasti næturklúbb-ur sögunnar þar sem þotu-liðið safnaðist saman og
skemmti sér eins og enginn væri
morgundagurinn. Fyrirfram væri
hægt að ímynda sér að heimildar-
mynd um næturklúbbinn fjallaði
bara um klæðalítið fólk í kókaínvímu
en það er aldeilis ekki svo.
Myndin segir vissulega frá því
hvernig stofnendunum Ian Schrager
og Steve Rubell tekst að búa til
þennan einstaka stað í fyrrverandi
leikhúsi og upptökuveri CBS. Þeir
höfðu rekið næturklúbba í öðrum
hverfum New York sem gengu vel
og ákváðu því að spreyta sig á Man-
hattan. Þetta hverfi á Manhattan
var ekki gott undir lok áttunda ára-
tugarins, „kjörið til að láta ræna sig“
eins og fram kemur í myndinni, en
leikhúsumgjörðin hentaði diskó-
tónlistinni og ljósasýningunum.
Einn viðmælandinn lýsir staðnum
sem „skemmtigarði fyrir fullorðna“.
Þarna virðist hafa verið einstakt
andrúmsloft þar sem fræga og fall-
ega fólkið hittist og samkynhneigðir
áttu athvarf; fólki fannst það vera
frjálsara þarna en á nokkrum öðrum
stað, að minnsta kosti þeim sem
þurftu ekki að bíða úti, hinum megin
við reipið. Svo vinsæll var klúbbur-
inn að Mick Jagger og Keith Rich-
ards fengu ókeypis inn en hinir með-
limir Rolling Stones þurftu að borga.
Eða það er að minnsta kosti ýjað að
því.
Myndin er byggð upp í kringum
viðtöl við Ian Schrager, sem nú er
umfangsmikill í hótelrekstri, og
fleiri sem tengdust klúbbnum á sín-
um tíma en Schrager er aðalviðmæl-
andinn. Einnig eru sýndar margar
ljósmyndir og fréttamyndir frá þess-
um tíma auk blaðaúrklippa og fleira
sem setja klúbbinn í gott samhengi
við samtímann. Schrager var maður-
inn á bak við tjöldin á meðan hinn sí-
brosandi Rubell sá um stjörnurnar
og fjölmiðlaviðtölin. Eftirminnileg-
asta gamla viðtalið í myndinni er
einmitt við Michael Jackson sem er
á klúbbnum undir verndarvæng
Rubell.
En það sem fer upp fer einhvern
tímann niður og þannig var það með
Studio 54 líka. Ef fyrri helmingur
myndarinnar héti „skemmtigarður-
inn“ þá væri við hæfi að sá seinni
héti „paradísarmissir“. Schrager og
Rubell voru ákærðir fyrir skattsvik
og dæmdir í fangelsi. Partíið var bú-
ið og næturklúbburinn varð aldrei
samur aftur þó að kvöldið áður en
þeir hófu afplánun hafi verið haldið
eitthvert svakalegasta partíið sem
haldið var á staðnum. Þetta var samt
ekkert gamanmál, þeir þjáðust í
fangelsinu og Schrager, sem er lög-
fræðingur að mennt, missti lög-
mannsleyfið en hann var síðan náð-
aður til fulls af Obama Bandaríkja-
forseta árið 2017. Rubell náði því
aldrei því hann lést árið 1989. Bana-
meinið var sjúkdómar tengdir HIV-
smiti þó það hafi ekki verið sagt á
sínum tíma. Margir af fastagestun-
um og starfsfólkinu hlutu sömu ör-
lög.
Studio 54 var ekki bara nætur-
klúbbur heldur samfélagstilraun og
myndin gerir tíðarandanum og ákaf-
lega áhugaverðri sögu góð skil.
Félagar Steve Rubell og Ian Schrager, stofnendur Studio 54.
Skemmtigarður
fyrir fullorðna
RIFF- Bíó Paradís
Studio 54 bbbbn
Leikstjóri: Matt Tyrnauer. Bandaríkin
2018. 98 mínútur. Flokkur: Heimildar-
myndir.
INGA RÚN SIGURÐ-
ARDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Sýnd 5. október kl. 22.45.
Charles Aznavour, einn vinsælasti
söngvari Frakklands, er látinn, 94
ára að aldri. Aznavour var einnig
tónskáld og kvikmyndastjarna, lék
í 79 kvikmyndum, stuttmyndum
og sjónvarpsþáttum skv. vefnum
Internet Movie Database og naut
ekki síður vinsælda meðal Armena
þar sem hann var af armenskum
uppruna.
Aznavour lét ekki deigan síga
þrátt fyrir háan aldur og söng
þekkt lög sín fyrir fjölda tónleika-
gesta, að því er fram kemur í frétt
New York Times. Þar segir að
honum hafi þótt það hlægileg hug-
mynd að setjast í helgan stein.
Í frétt dagblaðsins Guardian um
andlát Aznavours segir að hann
hafi selt yfir 100 milljónir platna í
80 löndum og sungið um 1400 lög
og þar af hafi hann samið 1300.
Aznavour hafi oft verið kallaður
hinn franski Sinatra vegna ein-
kennandi og tregafulls söngstíls
síns.
Aznavour hætti í skóla níu ára
þegar hann byrjaði að leika í kvik-
myndum og átti farsælum ferli að
fagna sem leikari, lék m.a. í ný-
bylgjumyndum François Truffaut
og Claude Chabrol. Söngferilinn
hóf hann á tímum hernámsins í
París í seinni heimsstyrjöldinni og
söng þar í kabarettum. Foreldrar
hans voru í andspyrnuhreyfing-
unni og veittu gyðingum og öðrum
sem ofsóttir voru af nasistum
skjól á heimili sínu. Aznavour var
meðal á fjórða hundrað franskra
fyrirmenna og vinsælla einstak-
linga sem skrifuðu undir opið bréf
til frönsku þjóðarinnar í maí á
þessu ári og fordæmdu gyðinga-
hatur á grundvelli íslamskrar rót-
tækni.
Aznavour látinn
AFP
Vinsæll Charles Aznavour naut
mikilla vinsælda sem söngvari,
lagasmiður og leikari.