Morgunblaðið - 13.10.2018, Qupperneq 1
Kýs fólkiðfram yfirnáttúruna
14. OKTÓBER 2018SUNNUDAGUR
m vera tilhlið við hlið
EistneskileikarinnPääru Oja fermeð eitt aðal-hlutverkannaí Undir hala-stjörnu 2
Vilju
Byrjaði ákaffihúsumUnnur Sara Eldjárn steig fyrstu skrefin ítónlist með því að syngja og spila á gítar ákaffihúsum. Nýverið gaf hún út plötu þarsem hún syngur lög Serge Gainsbourg 34 Sendiherra Palestínu vill aðallir gerist fulltrúar friðar 18
ENN ER MIKIL
SKÖMMUSTU-
TILFINNING
HLUSTI OG
SJÁI FYRIR
SÉR MYNDIR
MARC COPLAND 47FYRSTA SKIPTIÐ 12
Morgunblaðið/Kristinn
Landssímareitur Miklar framkvæmdir
standa nú þar yfir vegna hótelbyggingar.
Jafnt kristnar grafir sem heiðnar
minjar frá upphafi byggðar á Ís-
landi fundust við fornleifauppgröft-
inn á bílastæði Landssímans 2016
til 2017. Annars staðar á
Landssímareitnum, þar sem grafið
var, fundust m.a. gripir sem benda
til járnvinnslu og útgerðar á 9. og
10. öld og varnargarðar frá því fyr-
ir 1200. Þetta kemur fram í gögn-
um um rannsóknina sem Morgun-
blaðið aflaði frá Minjastofnun á
grundvelli upplýsingalaga. Skýrsla
VG fornleifarannsókna ehf. um
uppgröftinn sem berast átti í júní er
enn ókomin til Minjastofnunar.
Samtals voru 22 heillegar grafir
undir bílastæðinu, en þar var áður
hluti hins forna Víkurkirkjugarðs.
»16
Minjar frá upphafi
byggðar á Íslandi
Við nýjan tón kveður í myndlist Errós á sýningu
sem opnuð verður í Hafnarhúsinu í dag. Þar
verður engin litadýrð en þrjátíu ný og nýleg mál-
verk og tilraunakenndar svart-hvítar stutt-
myndir sem hann gerði á sjöunda áratugnum.
Sýningin ber enda heitið Erró: Svart og hvítt.
Erró segist hafa verið að gera svartar og hvítar
myndir á undanförnum árum, stundum tvær og
stundum fimm á ári og sumar mjög stórar. Hann
segist hafa gaman af því að vinna í svörtu og
hvítu. „Það er alltaf gaman að vera kontróler-
aður af einhverju og þessi sýning er helmingur
af sýningu sem var fyrir utan París. Hinn helm-
ingurinn er núna í París, í galleríi sem ég hef
unnið með í 15 ár núna,“ segir Erró. »46
Erró opnar sýningu á verkum í svörtu og hvítu
Morgunblaðið/Hari
Borgarstjóri hefur lagt fyrir borg-
arráð tillögu um viðauka við fjár-
hagsáætlun vegna borgarstjórnar
upp á tæpar 70 milljónir kr. Ástæð-
an er kostnaður vegna fjölgunar
borgarfulltrúa úr 15 í 23 og biðlauna
vegna fráfarandi borgarfulltrúa. Ey-
þór Laxdal Arnalds, oddviti sjálf-
stæðismanna, segir ljóst að fjölgunin
sem upphaflega hafi verið sögð ekk-
ert kosta muni kosta hundruð millj-
óna á kjörtímabilinu.
Eyþór segir að kostnaðurinn við
fjölgun borgarfulltrúa sé smám sam-
an að koma í ljós. Laun fulltrúanna
átta sem bætt var við nemi hundr-
uðum milljóna á kjörtímabilinu auk
annars kostnaðar. Breytingar á sal
borgarstjórnar og vinnuaðstöðu
kosti tugi milljóna og jafnvel yfir 100
milljónir. Nú bætist þessar 70 millj-
ónir við.
Frávik mikil og kostnaður hár
Fulltrúar meirihlutans í borgar-
ráði létu bóka að þegar fjárhags-
áætlun var undirbúin hefði ekki ver-
ið unnt að sjá fyrir með vissu hver
kostnaður yrði vegna fjölgunar
borgarfulltrúa og hver útgjaldaauk-
inn yrði vegna biðlauna. Eyþór segir
að frávikin séu mikil og kostnaður-
inn hár. Telur hann að þetta verði
ekki síðasti aukareikningurinn.
Þessir peningar hefðu betur farið í
leikskólana eða önnur þörf verkefni.
helgi@mbl.is
70 millj-
óna króna
viðauki
Fjölgun fulltrúa kost-
ar hundruð milljóna
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hjúkrunarheimili og önnur fyrirtæki
innan raða Samtaka fyrirtækja í vel-
ferðarþjónustu (SFV) telja sig verða
að skerða þjónustu við skjólstæðinga
sína á næsta ári vegna skertra fjár-
veitinga samkvæmt fjárlagafrum-
varpi. Þá stefni í frekari skerðingar á
næstu árum. Fyrirtækin hafa óskað
eftir því að rekstrarframlög verði
aukin um tæpa 1,9 milljarða frá því
sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrum-
varpi.
Málin voru rædd á félagsfundi
SFV í gær en í samtökunum eru flest
hjúkrunarheimili landsins, SÁÁ,
Krabbameinsfélag Íslands, Sjálfs-
bjargarheimilið og fleiri fyrirtæki.
Ekki í samræmi við sáttmála
Pétur Magnússon, formaður sam-
takanna, segir að forsvarsmenn fyr-
irtækjanna undrist það mjög að þau
sæti áframhaldandi skerðingum. Þau
hafi fengið miklar skerðingar eftir
hrun og sýnt því skilning en telji að
nú hljóti að vera möguleiki á að bæta í
rekstrargrunn. Hann bætir því við að
niðurskurðurinn sé sérstakur í ljósi
þess að í stjórnarsáttmála ríkis-
stjórnarinnar sé tiltekið sérstaklega
að huga þurfi að rekstrargrunni
hjúkrunarheimila.
„Við getum ekki hagrætt meira,“
segir Pétur. Í tilkynningu SFV segir
að ekki sé ólíklegt að sum aðildar-
félög muni þurfa að taka rekstur sinn
til endurskoðunar til að mæta niður-
skurði framlaga, annaðhvort með því
að leggja niður ákveðna þjónustu-
þætti eða breyta rekstrarfyrirkomu-
lagi til að afla annarra tekna.
Samþykkja þjónustuskerðingu
Pétur segir að fundað verði um
málið með heilbrigðisráðherra næst-
komandi miðvikudag. Þá verði sent
bréf til allra alþingismanna þar sem
þeim verði gerð grein fyrir því að með
samþykkt óbreyttra framlaga séu
þeir að samþykkja þjónustuskerð-
ingu hjá hjúkrunarheimilum og öðr-
um fyrirtækjum.
Náist ekki fram breytingar þurfi
að taka upp viðræður við Sjúkra-
tryggingar Íslands um það hvaða
þætti í þjónustu hjúkrunarheimil-
anna eigi að hætta að veita.
Þarf að skerða þjónustu
á hjúkrunarheimilum
Gagnrýna áframhaldandi niðurskurð fjárveitinga
Morgunblaðið/Eggert
Skemmtun Heimilisfólk fagnar
gestum á skemmtidagskrá.
Gengislækkun krónunnar er sögð
munu örva sölu verslana í miðborg
Reykjavíkur. Þá með því að verðlag
sé nú hagstæðara fyrir ferðamenn.
Velta erlendra korta fyrstu átta
mánuði ársins var minni en í fyrra.
Aðalsteinn Ingi Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Icewear, segir fjölgun
efnaðra ferðamanna hafa haft áhrif á
verslun í miðborginni. Þeir séu t.d.
líklegri en aðrir til að kaupa dýr föt.
„Mín tilfinning er að salan á þess-
um dýrustu hlutum gæti hafa auk-
ist,“ segir Aðalsteinn Ingi sem telur
að veiking krónu muni örva sölu.
Árni Sverrir Hafsteinsson, for-
stöðumaður Rannsóknaseturs versl-
unarinnar, segir gengisstyrkingu
fyrr í ár hafa haft áhrif á kortavelt-
una. „Kaupákvörðun fólks frá öðrum
ríkjum byggist í flestum tilvikum á
því hvað varan kostar í þeirra gjald-
miðli. Við þekkjum það sjálf að um-
reikna verð í íslenskar krónur þegar
við erum í útlöndum.“ »4
Ódýrari
króna þýði
meiri sölu
Kaupmaður segir
gengið hafa áhrif
Stofnað 1913 241. tölublað 106. árgangur
L A U G A R D A G U R 1 3. O K T Ó B E R 2 0 1 8