Morgunblaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 ✝ Ágúst Erlings-son fæddist í Vestmannaeyjum 4. október 1954. Hann lést á Hvid- ovre-spítala í Kaup- mannahöfn 25. september 2018. Foreldrar hans eru Erling Adolf Ágústsson, f. 9.8. 1930, d. 8.1. 1999, og Ingibjörg Krist- ín Gísladóttir, f. 11.4. 1935. Þau bjuggu í Vestmannaeyjum til 1962. Systkini Ágústar eru Gísli, f. 31.10. 1953, Sigurborg, f. 4.3. 1958. Eftirlifandi eiginkona Ágúst- ar er Gitta Sörensen, f. 11.7. 1960. Fyrrverandi eiginkona Ágústar er Eygló Guðmunds- dóttir, f. 17.4. 1956, og áttu þau tvö börn: 1. Erling Adolf Ágústs- son, f. 30.4. 1974, kvæntur Hlín Elfu Birgisdóttur, börn þeirra eru Elísa Sif, Ágúst Óliver, Ísa- bella Birta og Hrafnhildur Krista. 2. Halldóra Kristín Ágústsdóttir, f. 11.2. 1978, gift Taugarnar til Eyja voru alltaf sterkar og eftir að fjölskyldan fluttist suður var það fastur lið- ur hjá systkinum að halda til Eyja þar sem dvalið var sum- arlangt við leik og störf og til að mynda var Gústi ekki hár í loft- inu, þegar hann var farinn að vinna við að flokka humar. Að lokinni skólagöngu ákvað Gústi að flytja aftur til Vest- mannaeyja þar sem hann vann við ýmis störf, einkum á stór- virkum vinnuvélum. Hann sýndi það frá fyrstu tíð að hann var ákaflega ósérhlífinn til allra starfa – það sást ekki hvað síst þegar eldgos hófst á Heimaey, þá var Gústi stóran hluta gos- tímans í Eyjum og vann við að bjarga munum og verðumætum Eyjamanna – oft við ákaflega erfiðar og hættulegar aðstæður. En fyrir tæpum aldarfjórð- ungi ákvað Gústi að venda kvæði sínu í kross og ákvað að flytjast út fyrir landsteinana, bjó fyrst í Noregi, en fluttist svo fljótlega til Danmerkur þar sem hann bjó á Amager í Kaup- mannahöfn, ævigönguna á enda og sinnti ýmsum störfum. Þar kynntist hann Gitte Sörensen, þau gengu í heilagt hjónaband. Minningarathöfn um Ágúst fer fram frá Seljakirkju í dag, 13. október 2018, klukkan 11.30. Sverri Erni Sveins- syni, börn þeirra eru Heimir Freyr, Eygló Rós og Sig- urrós. Ágúst átti soninn Þóri Arnar Ágústs- son, f. 15.10. 1990, með Karítas Jóns- dóttur, f. 20.12. 1965. Gústi bjó fyrstu átta ár ævigöng- unnar í Vestmannaeyjum og hóf skólagönguna í barnaskólanum á staðnum – en þegar föður hans bauðst gott starf á Keflavíkur- flugvelli, ákvað fjölskyldan að flytjast á Suðurnesin, bjó fyrst um sinn í Keflavík en settist svo að í Ytri-Njarðvík, þar sem Gústi hóf nám í Njarðvíkurskóla og hélt þaðan í Gagnfræðaskól- ann í Keflavík. Þegar hugurinn var ekki bundinn yfir skólabókunum voru viðfangsefnin af fjöl- breyttum toga. Meðal annars æfði Gústi íþróttir af kappi, bæði knattspyrnu og körfubolta. Í stjörnum og sænum við snarkandi eld. Í brjósti og bænum bíður ástin í kveld. Hún segir mér sögur og syngur til mín. Er falleg og fögur sem fingurgull þín. Hún velkist um veður og villist um skeið. En kemur og kveður og heilsar um leið. Hún er stríður strengur og stundum of kalt. Hún er falinn fengur og fyrirgefur allt. Ég er gjöfin sem gefur ég er gömul en ný. Er í sálinni sefur og sorginni bý. Ég lokka og læðist úr launsátri renn. Í huganum hrærist og hjartanu brenn. (Stefán Finnsson) Hvíl í friði. Mamma. Það er mjög sárt og snúið að setja saman orð til þess að kveðja á þessum erfiðu tímamótum, elsku pabbi. Þegar maður skoðar þessi 44 ár sem ég hef átt með þér er margs að minnast. Það er óhætt að segja að við höfum brallað margt og mikið saman. Þó hefur okkar tími ekki alltaf verið dans á rósum. Pabbi, þú varst duglegur og ótrúlega ósérhlífinn maður, hugsaðir fyrst um aðra og nánast alltaf um alla aðra nema sjálfan þig. Alveg sama við hvern maður talar, það elskuðu allir Gústa brunahana. Þú varst vinur vina þinna enda var vinahópur þinn Bakkabæjarfjölskyldan ótrúlega flottur hópur sem þér þótti gríð- arlega vænt um, held að ég geri þér og vinum úr Bakkarbæjar- fjölskyldunni greiða að fara ekki yfir sögur þessa hóps. Það var auðvitað við hæfi að þú varst for- maður þess hóps. Þegar þú fluttir út til Noregs og síðar til Danmerkur þá var auðvitað langt á milli þess að maður heyrði í þér, nema sum- arið sem ég flutti til þín og áttum við yndislegan tíma sem ég mun aldrei gleyma. Við unnum saman, bjuggum saman og áttum gríð- arlega góðar stundir og fyrir það er ég þakklátur. Þrátt fyrir allt áttir þú bresti sem ég átti erfitt með að sætta mig við en það var ekki mitt að breyta þér! Ég átti mjög erfitt með að sætta mig við hvað Bakk- us var þér kær á tímum, en verð samt að hrósa þér, og hvað ég var stoltur þegar þú fórst í afvötnun og hættir í þrjú og hálft ár. Á þeim tíma lék lífið við þig og allt gekk upp. Eins og með þennan sjúkdóm þá verður maður að sætta sig við þá bresti og vinna með þá en það reyndist mér erfitt á tímum. Það var lítið sem ekkert samband á milli okkar í nokkur ár en árið 2016 náðum við saman á ný sem mér þótti vænt um og þróaðist aftur með okkur gott samband. En ég á þér svo margt að þakka, en það var mikill lær- dómur að eiga þig sem föður og fyrir það er ég þakklátur. Tónlist var þér mikilvæg og allir sem þig þekkja vita hvað tónlist var stór partur af lífi þínu. Bítlarnir, Gilbert og Sullivan, Fleetwood Mac, Dire Straits, Bee Gees og Coldplay svo eitthvað sé nefnt. Við erum jú líkir á þessu sviði að vera alætur á tónlist en það er svolítið lýsandi að þú og við börnin elskum öll Coldplay, held að við börnin verðum bara að drífa okkur á tónleika og þú kemur og kíkir á okkur, færð frítt inn. Það sem mér þótti vænt um að koma til ykkar Gittu með krakk- ana mína í byrjun september og að þú skyldir ná að koma með okkur í Tívolí, en þar leið þér allt- af vel. Krakkarnir nutu sín í botn með afa sínum þessa helgi. Við Dóra fengum síðan símtal- ið sem við óttuðumst að væri að nálgast ansi hratt, en sunnudag- inn 16. september fengum við þær fregnir að þér hefði hrakað svo hratt, að þú ættir nokkrar klukkustundir til þrjá daga eftir. Þá drifum við okkur út til þín til þess að vera þér við hlið. En þess- ir sex dagar sem við vorum hjá þér á spítalanum í Hvidovre voru besti tími sem ég gat hugsað mér með þér. Þrátt fyrir að þú varst mjög veikur þá áttum við yndis- legan tíma saman, eftir að við komum til þín sáum við hvað lífs- vilji þinn var mikill og stutt í húmorinn sem mér þótti alltaf vænt um í þínu fari. Því miður var baráttuvilji þinn það mikill að ekki gátum við klárað síðasta spölinn með þér en þegar við fór- um heim þá var lítið eftir nema að fá hvíldina. Eitt langar mig að segja, elsku pabbi. Ég elska þig og mun minning þín lifa með mér þangað til við hittumst á ný. Hvíl í friði. Erling Adolf Ágústsson. Mig langar að minnast elsku pabba með nokkrum orðum. Þó hann hafi búið erlendis síðustu ár finn ég fyrir svo miklu tómarúmi núna þegar hann er farinn. Þó fjarlægðin væri mikil var sam- bandið alltaf gott. Við heyrðumst mikið í síma og síðustu ár var auðvitað æðislegt að geta notað tæknina og talað saman á Skype eða Facebook. Ferðirnar til Dan- merkur hafa verið ansi margar í gegnum árin og þá sérstaklega síðasta árið. Ég er mikið þakklát fyrir þær stundir sem við áttum saman og eru minningarnar dýr- mætar. Pabbi var mörgum kostum gæddur, þeir sem þekktu hann lýsa honum gjarnan sem skemmtilegum, hláturmildum, ljúfum og einstaklega hjálpsöm- um, alltaf stutt í smitandi hlát- urinn sem ég á eftir að sakna svo ofsalega mikið. Það var aldrei neitt mál að rétta hjálparhönd. Þegar pabbi hans veiktist flutti hann til Íslands í sex mán- uði til að vera foreldrum sínum innan handar, hann vann þar sína vinnu og kom svo heim og sinnti heimilinu, rauk í öll verk, hvort sem það var að elda eða þvo þvott. Hann var með allt sitt á hreinu, var mikill snyrtipinni, og vildi hafa allt hreint og fínt í kringum sig. Pabbi var ótrúlega kraftmikill og duglegur sem ungur maður og vann mikið meðan hann hafði heilsu til. Hann var til sjós, vann á krana og síðustu árin sem hann var búsettur á Íslandi starfaði hann hjá Slökkviliðinu á Kefla- víkurflugvelli. Pabbi fór það sem hann ætlaði sér, það var mjög lýsandi fyrir hann þegar hann fór með okkur systkinunum, börnum okkar og Gittu eiginkonu sinni í Tívolí tíu dögum áður en hann dó. Heilsan var ekki upp á marga fiska en hann lét það ekki stoppa sig. Það fór ekki framhjá neinum hvað hann naut þess að fylgjast með gleði barnabarnanna þar sem þau hlupu á milli tívolítækj- anna í gleðivímu. Tónlist hefur alltaf skipað stóran sess í lífi pabba, hvert sem hann fór var hann hlustandi á tónlist, labbaði um göturnar með heyrnartólin og ef fólk mætti til hans í heimsókn ómaði tónlist út á götu. Bee Gees, Bítlarnir, Coldplay og fleiri tónlistarmenn eiga alltaf eftir að minna mig á pabba. Dálæti á Coldplay er reyndar eitthvað sem við eigum öll sameiginlegt systkinin og pabbi. Stefnan var alltaf að fara saman á tónleika en aldrei varð úr því, við systkinin þurfum að bæta úr því og þá veit ég að hann verður með okkur. Síðustu vik- una sem hann lifði áttum við sam- an yndislegar stundir, við feng- um að gista hjá honum á spítalanum, við hlustuðum á tón- list og ræddum um lífið og til- veruna. Það var ótrúlegt hvað hann hélt lengi í húmorinn og svo dýrmætt að sjá hann brosa út í annað þó veikindin væru farin að taka sinn toll. Elsku pabbi var magnaður karakter og elskaður af mörgum, dásamlega blíður en á sama tíma algjör þrjóskupúki og talaði hreint út um hlutina. Ég trúi því að nú sé hann kominn á góðan stað þar sem honum líður vel og að vel hafi verið tekið á móti hon- um. Elska þig alltaf og sakna þín, elsku pabbi. Þín dóttir, Halldóra Kristín Ágústsdóttir. Það kom mér ekki á óvart sím- talið að morgni 26. september sl. með þeim tíðindum að Ágúst, mágur minn, hefði kvatt þetta líf um morguninn. Það var líkn með þraut að vita að nú væru þján- ingar hans á enda komnar. Sjúk- dómurinn, sem hann hafði glímt við í tvö ár, hafði náð yfirhöndinni og lokið sínu verki. Gústi mágur var fæddur í Eyj- um og bjó þar ásamt foreldrum sínum, bróður og systur, þar til hann var níu ára. Þá flutti fjöl- skyldan til Keflavíkur. En þeir bræður, Gústi og Gísli, voru ekki tilbúnir að segja bless við Eyj- arnar. Strax að loknum vorprófum voru þeir mættir til ömmu sinnar og afa á Brekastígnum og voru þar sumar eftir sumar í góðu yf- irlæti, eins og „kóngar og prins- ar“. Það var stundum haft á orði að nú væri komið vor því að strákarnir hennar Imbu og Er- lings væru mættir til Eyja. Gústi ílengdist í Eyjum og kvæntist fyrrverandi konu sinni, Eygló Guðmundsdóttur. Þau eignuðust saman tvö börn, Erling og Dóru, en seinna eignaðist Gústi svo soninn Þóri Arnar með barnsmóður sinni, Kæju. Upp úr 1990 flutti Gústi frá Ís- landi og settist að í Danmörku þar sem hann bjó æ síðan. Nokkru síðar fluttumst við Gísli einnig tímabundið til Kaup- mannahafnar og þá urðu sam- skipti okkar aftur mikil og náin. Gústi var ávallt til staðar og hjálpaði okkur mikið, bæði við að koma okkur fyrir á nýjum stað og að komast inn í samfélagið. Það var oft glatt á hjalla hjá okkur þegar kvöldið kom, eftir amstur dagsins, t.d. Bítlakvöldin. Þá hljómuðu Bítlarnir og fleiri góðir á Englandsvej, stundum svo að undir tók í íbúðinni. Gústi var mikill músíkmaður. Við hjónin sóttum með honum tónleika á Parken, að ógleymdum Kim Lar- sen í Tívolí. Gústi var þúsundþjalasmiður. Ekkert óx honum í augum hvort sem það var að mála, smíða eða gera við vélar og tæki. Allt lék í höndunum á honum. Við nutum þessa ásamt mörgum öðrum. Hjálpsemi var honum í blóð borin. Ógleymanleg er sú stund sem við Gísli, bróðir hans, mamma hans og Hrönn frænka áttum með Gústa og sambýliskonu hans, Gittu, síðasta haust. Þá þvældist Gústi með okkur um Amager sárlasinn, en gaf ekkert eftir. Það var honum líkt. Þar sýndi hann sinn gamla og sterka kar- akter, hann var blátt áfram, hreinskilinn og lét allt flakka. Þannig var hann. Þegar minn elskulegi mágur nú gengur inn um hallarhliðið hjá Sankti Pétri, veit ég að pabbi hans, Erling Ágústsson, söngvar- inn góði, tekur vel á móti syni sín- um með brosi á vör og syngur sitt flotta lag: „Við gefumst aldrei upp þó móti blási“. Ég bið góðan Guð að styrkja Gittu, móður hans, börn, barna- börn og fjölskylduna alla á þess- um erfiðu tímum. Þuríður Bernódusdóttir. Ágúst Erlingsson Elsku hjartans sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi, KRISTJÁN KETILSSON, lést á heimili sínu, sambýlinu Hlein í Mosfellsbæ, í faðmi fjölskyldunnar miðvikudaginn 3. október. Útför fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 15. október kl. 13:00. Auður Ásta Sigríður Jónasdóttir Bára A. Ketilsdóttir Örn Gunnarsson Írunn Ketilsdóttir Tómas Sigurðsson Steinunn Ketilsdóttir Snorri Þórisson Jónas Ketilsson Sigríður M. Óskarsdóttir frændsystkin og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BENEDIKT HANS ALFONSSON, skólastjóri Siglingaskólans, Vatnsholti 8, Reykjavík, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Grund laugardaginn 29. september. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 15. október klukkan 13. Katrín Jónsdóttir Guðleif Hlíf Benediktsdóttir Jan Lönnqvist Jón Atli Benediktsson Stefanía Óskarsdóttir Kristín Benediktsdóttir Jón Pétur Friðriksson Anna Þóra Benediktsdóttir Helgi Benediktsson María S. Norðdahl Kjartan Benediktsson Lísa Anne Libungan og barnabörn Davíð útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur útfararstjóri Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ MARGRÉT ÁRNADÓTTIR, Rauðalæk 19, Reykjavík, lést föstudaginn 28. september á Landspítalanum í Fossvogi. Útför verður frá Háteigskirkju föstudaginn 19. október klukkan 13. Þorgrímur Jónsson Bára Þorgerður Þorgrímsd. Ólafur Jónsson Sigurður Trausti Þorgrímss. Zhanna Þorgrímsdóttir Jón Þór Þorgrímsson Aldís Yngvadóttir Herdís Þorgrímsdóttir Kristinn G. Hjaltalín barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, JÓHANNA GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR, Borgartúni 30b, sem lést á gjörgæslu Landspítalans í Reykjavík laugardaginn 6. október, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 15. október klukkan 13. Kristján Georgsson Gunnar Heimir Kristjánsson Selma Gísladóttir Marín Kristjánsdóttir Íris Björg Kristjánsdóttir Þórir Bergsson Kristján Unnar Kristjánsson Soffía Marín Magnúsdóttir og barnabörn Ástkær faðir minn, JÓN ÞÓRARINN BÁRÐARSON frá Vík í Mýrdal, Engihjalla 3, Kópavogi, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 2. október. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 18. október klukkan 13. Bárður Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.