Morgunblaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það getur reynst þér erfitt að taka
ákvörðun í viðkvæmu máli. Efastu ekki um
hæfileika þína því þú ert baráttumaður og
hefur þann stuðning sem þú þarft á að halda.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú virðist vera rétta tækifærið fyrir þig
að koma málum þínum áfram. Þótt sjálfs-
gagnrýni sé góður kostur má hún ekki ganga
svo langt að drepa allt frumkvæði í dróma.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú færð tækifæri til þess að ýta
undir starfsframa þinn og gott mannorð í
dag. Láttu ekki utanaðkomandi aðila trufla
þig og láttu neikvætt umtal sem vind um
eyru þjóta.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ef þú ert alltaf að búast við vandræð-
um, leita þau þig uppi. Sestu niður með fjöl-
skyldumeðlimum í dag til að ræða mikilvæg
málefni og gera langtímaáætlanir.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þarfir þínar skipta miklu máli. Líttu vel í
kringum þig og þú munt sjá ýmis merki sem
leiða þig á næsta tímabil í lífi þínu. Gamlir
vinir mundu skjóta upp kollinum næstu daga.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ekki er það gaman en það er ekki um
annað að ræða en taka fjármálin fastari tök-
um. Nú væri gott að koma skipulagi á líf sitt
og taka upp betri siði.
23. sept. - 22. okt.
Vog Fólk opnar sig og tengist þér og þú verð-
ur ríkari fyrir vikið. Hafðu í huga að þú verður
að styðja félaga þinn eins og hann styður þig
ef sambandið á að ganga.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að gefa þér betri tíma
til að sinna þeim hlutum sem raunverulega
skipta máli. Láttu ekki góðar hugmyndir
renna út í sandinn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú veltir fyrir þér lífinu og tilver-
unni þessa dagana. Það getur reynst þrautin
þyngri að fást við verk annars manns sem
hefur allt önnur viðhorf til hlutanna en þú.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ef eitthvað hvílir þungt á þér þá er
gott að leita uppi aðra sem hafa lent í ein-
hverju svipuðu. Sannleikurinn glitrar kannski
ekki og ljómar en nær eyrum fólks.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú sérð framtíðina frá nýrri hlið
sem þú hefur aldrei nokkurn tímann séð áð-
ur. Sannfæringarkraftur þinn getur fengið
hlédrægasta fólk til að taka áhættu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það gengur ekki lengur að sitja með
hendur í skauti og láta tímann líða án þess að
aðhafast nokkuð. Nú er röðin komin að þér
að njóta lífsins.
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Bæjarnafn það alþekkt er.
Upphækkun á landi.
Efstur á blaði einnig hér.
Ýmis föng berandi.
Ég hitti karlinn á Laugaveginum
og sagði honum að mér þætti gátan
þung. Hann bað mig fara með hana,
saug upp í nefið og sönglaði:
Á Bakka voru bræður þrír
Bakka malar gróður flýr
Á hníf er bæði bakki og egg
Á bakkann krásir góðar legg.
Og rölti burtu án þess að líta um
öxl.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Bakki, þekktur bær er sá.
Bakka mishæð kalla má.
Bakki efstur blaði á.
Á bakka ýmis föng má sjá.
Þá er limra:
Helgi bóndi á Bakka,
má Bótólfi gamla þakka,
greiðviknum granna,
góðverkið sanna,
að konan hans eignaðist krakka.
Og loks ný gáta eftir Guðmund:
Sæinn gyllir sunna hlý,
sendir burtu næturský,
góðu stuði er ég í,
óðar fæðist gáta ný:
Þetta bil á bolla er.
Báðum megin hefur fat.
Víða sést á húsum hér.
Haft er líka undir mat.
„Erum við að endurtaka leikinn
eftir 10 ár?“ spyr Ármann Þor-
grímsson:
Þessi spurning erfið er
einfalt varla svarið,
játa fyrir sjálfum sér
að svona geti farið.
Hallmundur Kristinsson yrkir á
Boðnarmiði:
Margt ber við á lífsins leið.
Lægðirnar koma og fara.
Áfram rennnur æviskeið,
– af því bara!
Ólína Andrésdóttir orti um stúlk-
urnar í Breiðafirði:
Öllum stundum starfsamar,
sterkum mundum konurnar
ýttu á sundin áramar,
öxluðu og bundu sáturnar.
Hér er að lokum gömul vísa:
Með þeim ljá er mér vannst ljá
mikil ljá var slegin.
Aflinn sá komst ofan í sá
öll þar sáust heyin.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Klórað í bakkann
Í klípu
„ALLT SEM ÉG VILDI VAR MÖGULEIKI Á
AÐ BERJAST.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„SJÁIÐI HVAÐ GERIST ÞEGAR ÞIÐ SEGIÐ
ÞÁ VERA SÝKN ALLRA SAKA?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fara ekki í fýlu
ef þú færð ekki þínu
framgengt.
AF HVERJU
HORFI ÉG Á
ÞIG?
ÞVÍ ÞÚ VEIST
HVERNIG Á AÐ
SKEMMTA SÉR
HELGA! ÉG TÝNDI GIFTINGARHRINGNUM
MÍNUM!
ÞAÐ ER Í
LAGI… ÞÚ
LÍTUR ENN
ÚT FYRIR
AÐ VERA
GIFTUR!
ÞÚ GENGUR MEÐ 27 ÁR AF
HEIMILISMATNUM UTAN Á ÞÉR!
Víkverji reynir að fara varlegaþegar sólin skín og gæta þess
að brenna ekki. Lítil ástæða var
reyndar til þess að hafa áhyggjur af
sólbruna í sumar og meiri ástæða til
að huga að regnvörn en sólvörn.
x x x
Nýverið var Víkverji hins vegar ásólarströnd. Þar var full
ástæða til að hafa áhyggjur af sól-
vörn. Víkverji gætir þess að bera á
sig mikla sólvörn og sólvarnarbrús-
arnir tæmast fljótt. Þegar hann ber
á sig vörnina er honum sagan af
Sigurði Fáfnisbana efst í huga. Eft-
ir að hafa myrt orminn Fáfni baðaði
Sigurður sig í blóði hans svo húð
hans varð eins og brynja. Einn
blettur varð eftir vegna þess að þar
sat laufblað og var það hans veik-
leiki.
x x x
Sagan um Akkilles er af svipuðumtoga. Móðir hans, Þetis, dýfði
honum í undirheimafljótið Styx eða
Stígsfljót svo ekkert myndi fá hon-
um grandað. Hún hélt um hæl hans
þegar hún kaffærði honum og
reyndist það hans veiki blettur.
Þaðan er komið hugtakið
Akkillesarhæll.
x x x
Víkverji er sem sagt haldinn þeimótta að einhver blettur lík-
amans muni gleymast þegar hann
ber á sig sólvarnarglussann með
þeim afleiðingum að þar muni hann
skaðbrenna. Því fer hann varlega í
sólinni og ímyndar sér að hann sé
að baða sig í drekablóði eða svamla í
Stígsfljóti þegar hann setur á sig
áburðinn.
x x x
Honum hefur líka verið minnis-stæð sagan af skyldmenni
hans, sem lét sér fátt um sólvörn
finnast. Sólardag einn hafði hann
hjálpað öðrum við að bera á sólvörn
þar sem erfitt er að ná til, en taldi
enga ástæðu til að bera á sjálfan
sig. Um leið og hann sagði þetta
með nokkurri vandlætingu þurrkaði
hann af lófa sér á maganum. Eftir
daginn var viðkomandi rauður eins
og karfi fyrir utan snjóhvítt lófafar
á maganum. vikverji@mbl.is
Víkverji
En það er hið eilífa líf að þekkja þig,
hinn eina sanna Guð, og þann sem þú
sendir, Jesú Krist.
(Jóh: 17.3)