Morgunblaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018
Ný forysta stéttarfélagsinsEflingar hefur komið sér í
afar sérkennileg mál. Hún ræð-
ur eiginkonu
helsta for-
sprakka fram-
boðs formanns-
ins til að taka
að sér verkefni, sem alls óljóst
er að ástæða hafi verið til að
vinna, og greiðir fyrir það
nokkrar milljónir króna á
skömmum tíma.
Þegar frá þessu er sagt ogfrá átökum sem urðu vegna
þess á skrifstofu félagsins birta
forystumennirnir yfirlýsingu
um að fréttir af því séu ósann-
indi.
Það fæst svo betur staðfest,meðal annars með skrifum
fyrrnefnds forsprakka fram-
boðsins, að allt var rétt sem
sagt hafði verið í fréttum.
Nokkrum dögum síðar segirforysta Eflingar frá því í
nýrri yfirlýsingu að góð samtöl
hafi átt sér stað við starfsmenn.
Þegar Morgunblaðið ræðirvið starfsmenn um þau mál
kemur í ljós mikil óánægja
starfsmanna með framgöngu
forystunnar. Þær lýsingar
stangast algerlega á við yfir-
lýsingu forystunnar.
Í gær bættist svo við enn einyfirlýsingin frá forystunni,
nú um verkefnið sem eiginkona
forsprakkans vann. Sú yfirlýs-
ing vekur spurningar og á
henni getur aðeins verið sú
skýring að forystan hafi loks
áttað sig á þeirri miklu
óánægju sem orðin er með það
hvernig hún heldur á málum við
stjórn félagsins.
Forysta Eflingar í
undarlegum málum
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Íslendingar taka á móti allt að 75
flóttamönnum á næsta ári. Að
stærstum hluta eru það Sýrlend-
ingar úr flóttamannabúðum í Líb-
anon en einnig hinsegin flóttamenn
og fjölskyldur þeirra frá Kenýa.
Ríkisstjórnin ákvað þetta í gær að
fengnum tillögum flóttamanna-
nefndar.
Sýrlendingar eru fjölmennastir í
hópi fólks á flótta í heiminum. Yfir
milljón er í Líbanon. Þess er getið í
tilkynningu ráðuneytisins að yfir
helmingur sýrlenskra barna í Líb-
anon hafi ekki aðgang að formlegri
menntun.
Samið við sveitarfélög
Þetta er í fjórða sinn sem stjórn-
völd taka á móti sýrlensku flóttafólki
en fyrsti hópurinn kom hingað árið
2015. Þá er þetta í þriðja skiptið sem
tekið er á móti hinsegin fólki. Staða
hinsegin fólks er viðkvæm í Afríku
vegna útbreiddra fordóma. Algengt
er að hinsegin flóttafólk og fjöl-
skyldur þeirra verði fórnarlömb of-
beldis í flóttamannabúðum.
Ráðuneytið mun óska eftir upp-
lýsingum frá Flóttamannastofnun
Sþ um einstaklinga sem hún telur
koma til greina að bjóða til Íslands.
Þegar allar upplýsingar liggja fyrir
semur velferðarráðuneytið við eitt-
hvert sveitarfélag eða sveitarfélög
um móttöku fólksins.
Bjóða 75 flóttamönnum til landsins
Sýrlendingar frá Líbanon verða fjölmennastir Einnig kemur hinsegin fólk
Bessastaðir Forsetahjónin bjóða
sýrlenska flóttamenn velkomna.
„Nú vakna ég útsofinn og hv
Skúli Sigurðsson
Minnkar óþægindi við þvaglá
Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna.
Brizo™ er fæðubótarefni sérhannað
fyrir karlmenn sem þjást af
einkennum góðkynja stækkunar á
blöðruhálskirtli.
Rannsóknir hafa sýnt að með
þriggja mánaða inntöku á Brizo™ hefur
blöðruhálskirtill minnkað töluvert.
™
t
íldur“
Meðal þess sem Katrín Jakobsdóttir,
forsætisráðherra og formaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, gerði að umtalsefni í ræðu
sinni við upphaf flokksráðsfundar
flokksins í Smáranum í Kópavogi í
gær var staða hans þegar styttist í 20
ára afmælið á næsta ári. Sagði hún
flokkinn, líkt og annað, hafa tekið
breytingum.
Þannig væri VG ekki nákvæmlega
sami flokkurinn og hefði verið stofn-
aður fyrir tæpum tveimur áratugum.
Stjórnmálaflokkur væri enda ekki
safn eða stofnun með hlutverk sem
skráð væri í lög heldur hreyfing, sem
eins og nafnið gæfi til kynna væri
ekki kyrrstæð. Hreyfing fólks breytt-
ist, þroskaðist, lærði og skipti stund-
um um skoðun.
Þegar talað væri um stjórnmál og
stefnu skiptu gildin mestu máli. Sjálf
sagðist Katrín hafa lært mikið á þeim
áratug sem hún hefði setið á þingi og
skoðanir hennar á ýmsu hefðu breyst
og þróast í gegnum tíðina. Til að
mynda á bankamálum, landbúnaðar-
málum og sjávarútvegsmálum.
Reynslan hefði ennfremur mótað VG
sem stjórnmálaafl.
Katrín sagði að þátttaka VG í ríkis-
stjórninni 2009-2013 hefði talsvert
breytt flokknum. Þar hefði ekki verið
hægt að láta nægja að gagnrýna og
setja fram óskir heldur hefði þurft að
starfa með öðrum og leysa ófyrirsjá-
anleg og flókin verkefni sem kallað
hefði á málamiðlanir. Margir aðrir
flokkar hefðu síðan tekið við því hlut-
verki að hafa aldrei þurft að miðla
málum. VG hefði á sama tíma lært að
ekki fengist allt á óskalistanum í rík-
isstjórnarsamstarfi. Jafnvel gæti sú
staða komið upp að fleiri en eitt af
mikilvægustu gildum flokksins köll-
uðu á ólíkar niðurstöður. Stundum
stönguðust gildin á og þá þyrfti að
viðurkenna það og vinna úr því.
Tekið breyting-
um í gegnum árin
Flokkurinn verður 20 ára á næsta ári
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinir Katrín Jakobsdóttir hitti m.a.
þennan unga dreng á fundinum.