Morgunblaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 34
34 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Söngur, brúðuleikhús og gleði fyrir börn á
öllum aldri. Prestur er Þór Hauksson ásamt Ing-
unni Björk Jónsdóttur djákna. Benjamín Gísli
Einarsson leikur á flygilinn. Kaffi og safi í lokin.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Séra
Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari. Kristný Rós Gústafsdóttir djákni og
Benjamín Hrafn Böðvarsson guðfræðinemi ann-
ast samverustund sunnudagaskólans. Félagar
úr Kór Áskirkju leiða sönginn. Orgelleikari er
Bjartur Logi Guðnason. Kaffisopi í Ási eftir
messu.
Ástjarnarkirkja | Messa kl. 11. Kór Ástjarn-
arkirkju syngur undir stjórn Keiths Reed tónlist-
arstjóra. Prestur er Arnór Bjarki Blomsterberg.
Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn
Bjarka Geirdal Guðfinnssonar. Hressing og
samfélag á eftir.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í
Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stundinni
hafa Sigrún Ósk og Þórarinn.
BORGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta sunnu-
dag kl. 11.
Kór eldri borgara í Borgarnesi syngur við mess-
una undir stjórn Zsuzsönnu Budai. Sr. Jón Ás-
geir Sigurvinsson þjónar fyrir altari.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur er Sigurjón Árni Eyjólfsson. Félagar úr
Kór Breiðholtskirkju syngja undir stjórn Arnar
Magnússonar. Sunnudagaskóli kl. 11 undir
stjórn Steinunnar Þorbergsdóttur og Steinunnar
Leifsdóttur.
Ensk bæna- og lofgjörðarstund kl. 14. Prestur
er Ása Laufey Sæmundsdóttir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf sunnudaga kl.
11 í Bústaðakirkju fyrir Grensás- og Bústaða-
sóknir
Brúðuleikhús, ratleikir, spurningaleikur, bænir,
söngur, tónlist, gestir.
Umsjón Daníel Ágúst, Sóley Adda, Jónas Þórir
og Pálmi. Samvera fyrir alla fjölskylduna
Trond Kverno listamessa kl. 14.
Kór Bústaðakirkju og Jónas Þórir. Nýir sálmar og
ný nálgun í messusöng.
Messuþjónar aðstoða. Prestur er Pálmi Matt-
híasson.
DIGRANESKIRKJA | Sunnudaginn 14. októ-
ber flyst safnaðarstarf Digranessafnaðar yfir í
Hjallakirkju.
Þar verður guðsþjónusta kl. 11 og sunnudaga-
skóli á sama tíma. Jónína Ólafsdóttir leiðir
stundina.
Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir og Kór
Hjallakirkju.
Kaffisopi á eftir.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á
íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18 og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl.
16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Prestsvígsla í Dómkirkjunni kl.
11. Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands vígir
mag. theol. Henning Emil Magnússon og mag.
theol. Hjalta Jón Sverrisson. Dómkórinn syngur,
dómorganisti er Kári Þormar. Sunnudagaskól-
inn á kirkjuloftinu. Minnum á bílastæðin við Al-
þingi.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskólinn kl.
10.30. Guðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu
Dyngju kl. 17. Messa kl. 18 í kirkjunni. Sr. Þor-
geir Arason, organisti er Torvald Gjerde og Kór
Egilsstaðakirkju.
FELLA- og Hólakirkja | Sunnudagurinn 14.
október er tileinkaður átaki krabbameinsfélags-
ins, Bleiku slaufunni, með því að vera með
Bleika messu kl. 11. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson og Kristín Kristjánsdóttir djákni
þjóna fyrir altari. Laufey Tryggvadóttir frá
Krabbameinsfélaginu flytur hugvekju.
Kór kirkjunnar flytur fallega og fjölbreytta tónlist,
einsöng syngja Inga J. Backman og Hulda Jóns-
dóttir, Reynir Þormar leikur á saxófón. Sunnu-
dagaskólinn á sama tíma.
GLERÁRKIRKJA | Fjölskylduguðþjónusta kl.
11. Sunna Kristrún djákni þjónar. Barna- og
æskulýðskórinn syngur undir stjórn Margrétar
Árnadóttur kórstjóra. Undirleikari er Agnes
Gísladóttir.
GRAFARVOGSKIRKJA | Útvarpsmessa kl.
11. Séra Guðrún Karls Helgudóttir þjónar fyrir
altari. Auður Hafsteinsdóttir spilar á fiðlu og kór
Grafarvogskirkju syngur. Hákon Leifsson stjórn-
ar.
Sunnudagaskólinn er á sínum stað á neðri hæð
kirkjunnar kl. 11. Dans, söngvar, sögur taka yfir
stundina og í þetta sinn verður bleikur dagur
svo endilega komið í einhverju bleiku. Umsjón
hefur Pétur Ragnhildarson.
GRAFARVOGUR – KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG |
Selmessa í Kirkjuselinu í Spöng kl. 13, guðs-
þjónusta með íhugunarívafi. Séra Arna Ýrr Sig-
urðardóttir þjónar. Vox Populi leiðir söng og org-
anisti er Hilmar Örn Agnarsson.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. María
Ágústdóttir þjónar ásamt messuhópi og hluta af
fermingarhópnum. Ásta Haraldsdóttir er við org-
elið og félagar úr Vox Feminae leiða sönginn
undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Samskot
verða tekin til Bleiku slaufunnar í tilefni af bleik-
um október. Umfjöllunarefni dagsins er: Að vera
í þjónustu lífsins. Hressing eftir messu.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjón-
usta og barnastarf kl. 11. Prestar eru Karl V.
Matthíasson og Leifur Ragnar Jónsson. Org-
anisti er Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju
syngur. Barnastarf er í umsjá Bryndísar Böðv-
arsdóttur og Ágúst Böðvarsson spilar á gítar.
Fermingarbörn úr Úlfarsárdal sjá um Pálinu-
kaffiboð eftir messuna. Hvetjum foreldra, afa
og ömmu að koma í messuna.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Prestur er Jón Helgi Þór-
arinsson. Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni en síðan
fara börnin með leiðtogum sunnudagaskólans í
safnaðarheimilið. Hressing eftir stundina.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Sigfús
Kristjánsson þjónar og prédikar. Tónlistina leiðir
Gísli Magna ásamt Léttsveit Reykjavíkur.
Sunnudagaskóli er á sama tíma í umsjón Þor-
gerðar Ásu Aðalsteinsdóttur. Í sunnudagaskól-
anum er sungið, hlýtt á sögur og brugðið á leik.
Nánar á: hateigskirkja.is
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta kl.
11. Kór Hjallakirkju leiðir söng undir stjórn Láru
Bryndísar Eggertsdóttur organista. Jónína Ólafs-
dóttir leiðir stundina. Sunnudagaskóli er á
sama tíma í safnaðarheimilinu og það eru þau
Markús og Heiðbjört sem leiða hann. Kaffi og
samfélag á eftir.
HVALSNESSÓKN | Fjölskyldumessa í Safn-
aðarheimilinu í Sandgerði kl. 17. Barnakórinn
syngur.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Translation into English.
Samkoma á spænsku kl. 13. Reuniónes en
español.
Samkoma á ensku kl. 14. English speaking ser-
vice.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Afmælismót ÍKK í
Vatnaskógi.
Ath! Samkoma fellur niður sunnudaginn 14.
október.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Messa kl. 14. Kór
Kálfatjarnarkirkju syngur undir stjórn Elísabetar
Þórðardóttur organista. Prestur er Arnór Bjarki
Blomsterberg. Fermingarbörn og aðstandendur
þeirra eru boðin sérstaklega velkomin. Hress-
ing og samfélag á eftir.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudaginn kl. 11
verður taize messa í Keflavíkurkirkju. Slík
messa á uppruna sinn að rekja til Suður-
Frakklands nánar tiltekið bæjarins Taizé. Kór-
félagar, við stjórn Arnórs organista, syngja taize
sálma er byggjast á endurteknu söngstefi sem
kallar fram hughrif kyrrðar. Sr. Erla Guðmunds-
dóttir þjónar. Fermingarforeldrar reiða fram
súpu. Jón Ísleifsson kemur með brauð er Sig-
urjónsbakarí gefur. Systa og leiðtogar halda
uppi fræðslu og fjöri fyrir yngri sem eldri í sunnu-
dagaskólasamfélagi
Kirkja heyrnarlausra | Guðsþjónusta 14.
október kl. 14 í Grensáskirkju.
Prestur er Kristín Pálsdóttir og táknmálskórinn
syngur undir stjórn Eyrúnar Ólafsdóttur. Kaffi og
meðlæti eftir guðsþjónustu.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sigurður Arnarson sóknarprestur þjónar fyrir alt-
ari. Við fáum heimsókn frá Úganda í guðsþjón-
ustuna. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn
Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimili kl. 11 undir stjórn
þeirra Ástráðs Sigurðssonar og Salóme Páls-
dóttur.
Unglingaguðsþjónusta kl. 20.
Digraneskirkja, Hjallakirkja og Kópavogskirkja
standa í sameiningu fyrir unglingaguðsþjón-
ustu, Skólakór Kársness syngur.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Jóhanna Gísladóttir þjónar. Organisti
er Magnús Ragnarsson. Gradualekór Langholts-
kirkju og nemendur úr Söngskóla Reykjavíkur
gleðja kirkjugesti með fallegum söng undir
stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar. Aðalsteinn
Guðmundsson kirkjuvörður og messuþjónar að-
stoða við helgihaldið.
Sunnudagaskólinn fer fram á sama tíma. Sara
og Hafdís taka vel á móti börnum á öllum aldri.
Kaffi og morgunmatur í safnaðarheimili eftir
messu.
LÁGAFELLSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Prestur er Ragnheiður Jónsdóttir. Berg-
lind Hönnudóttir, æskulýðsfulltrúi, aðstoðar.
Kirkjukór Lágafellskirkju leiðir söng undir stjórn
Þórðar Sigurðarsonar. Sunnudagaskóli kl. 13.
sjá nánar www.lagafellskirkja.is
LINDAKIRKJA í Kópavogi | kl. 11:00 Sunnu-
dagaskóli kl. 11, aldrei að vita nema Rebbi kíki í
heimsókn. Kvöldguðsþjónusta kl. 20 þar sem
kór Lindakirkju mun leiða söng undir stjórn Ósk-
ars Einarssonar. Sr. Dís Gylfadóttir þjónar. Kaffi
og samfélag eftir á.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Kór Neskirkju
leiða safnaðarsöng. Organisti er Steingrímur
Þórhallsson. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Söng-
ur, sögur og gleði í barnastarfinu. Umsjón Katr-
ín, Heba og Ari. Samfélag og kaffisopi á Torginu
eftir messu.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Fjölskylduguðsþjón-
usta og töfrabrögð kl. 14. Galdra-klerkurinn, sr.
Pétur, þjónar fyrir altari. Messugutti er Petra
Jónsdóttir. Óháðikórinn leiðir sönginn við undir-
leik organistans Kristjáns Hrannars Pálssonar.
Svetlana Veschagina og Valeriia Astakhova
flytja lag við upphaf messu úr rússneskum tón-
listararfi. Markús og Heiðbjört sjá um barna-
starfið. Hlaðborð til styrktar Óháða kórnum á
eftir. Athugið að ekki verður posi á staðnum.
Ólafur Kristjánsson tekur vel á móti öllum.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60. 3.
hæð. Fjölskyldusamkoma yfirskrift: Þú ert frá-
bær. Barnastarf. Túlkað á ensku.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Sunnudagaskóli
kl. 11. Gospelmessa kl. 20. Kirkjukórinn syngur
ásamt gestasöngkonum. Organisti er Rögnvald-
ur Valbergsson, prestur er Sigríður Gunn-
arsdóttir.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er
Axel Árnason Njarðvík. Organisti er Ester Ólafs-
dóttir. Kirkjukórinn syngur. Sunnudagaskóli á
sama tíma í umsjón Jóhönnu Ýrar Jóhanns-
dóttur ásamt leiðtogum. Kammerkórinn Eup-
honia frá Kaupmannahöfn sem mun taka þátt í
messunni og syngja hluta af messu eftir Duruflé
sem felld verður inní messuliðina hjá okkur og
svo syngja auk þessa nokkur stutt verk. Súpa í
hádeginu gegn vægu gjaldi.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Óli
og Bára leiða stundina.
Guðsþjónusta kl. 14, kirkjudagur Rangæinga.
Séra Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skál-
holti, prédikar og séra Ólafur Jóhann Borgþórs-
son þjónar fyrir altari.
Félagar úr Kór Seljakirkju leiða söng. Organisti
er Tómas Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn
kl. 10. Sverrir Jakobsson, prófessor í mið-
aldasögu, talar um bók sína Kristur – saga hug-
myndar. Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl.
11. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur, þjónar.
Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Leiðtogar
sjá um sunnudagaskólann. Félagar í Kamm-
erkór Seltjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar
og samfélag eftir athöfn í safnaðarheimilinu.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Sunnudagaskóli
kl. 11. Biblíusaga, kirkjubrúður og Hafdís og
Klemmi. Djús og ávextir í safnaðarheimili eftir
stundina.
Bleik messa – kvöldmessa í léttum dúr með al-
varlegum undirtóni kl. 18. Sigrún Ólafsdóttir,
hjúkrunarfræðingur deilir reynslu sinni. Prestur
er Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari Jó-
hann Grétar Einarsson. Kjötsúpa a la Óla Lomm
í safnaðarheimili eftir messu.
SÓLHEIMAKIRKJA | Kirkjuskóli í dag, laug-
ardag, kl. 14.
Messa í Sólheimakirkju sunnudag kl. 14.
Sr. Sveinn Alfreðsson þjónar fyrir altarið og pré-
dikar
Bænir: Gunnlaugar Ingimarsson og María K. Ja-
cobsen
Kirkjuvörður: Gunnlaugur Ingimarsson
Reynir Pétur Steinunnarson leikur á munnhörpu
fyrir messuna. Meðhjálpari: Valdís Ólöf Jóns-
dóttir.
Kaffi í Grænu könnunni eftir messu
ÚTSKÁLAKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20. Al-
mennur söngur á ljúfum nótum við undirleik
sóknarprests.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Stefán Már
Gunnlaugsson héraðsprestur prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Kór Vídalínskirkju syngur undir
stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista.
Sunnudagaskóli á sama tíma, biblíufræðsla,
söngur og brúðuleikhús. Kaffi og djús að lokinni
messu. Þennan sama dag verður nýr prestur í
Garðaprestakalli, Henning Emil Magnússon,
vígður í Dómkirkjunni kl. 11.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Messa kl.
11. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn
Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur er
Bragi J. Ingibergsson. Sunnudagaskólinn kl. 11.
Fjölbreytt og fræðandi dagskrá. Hressing í safn-
aðarsalnum á eftir.
ÞORLÁKSKIRKJA | Messa kl. 14. Ester Ólafs-
dóttir á orgelinu. Kór Þorlákskirkju. Baldur og
Guðmundur við altarið. Fermingarbörn og for-
eldrar þeirra hvött til að mæta.
Orð dagsins:
Brúðkaupsklæðin
(Matt. 22)
Morgunblaðið/Kristinn
Kjalarnes Brautarholtskirkja.
SMÁRALIND – KRINGLAN
Vertu klár fyrir veturinn