Morgunblaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018
BAKARÍ
til sölu.
Nánari upplýsingar gefur Gunnar Svavarsson:
gunnar@kontakt.is
Ha
uk
ur
10
.1
8
Um er að ræða framleiðslubakarí með
tvo útsölustaði á góðum stað miðsvæðis
á höfuðborgarsvæðinu.
Húsnæði getur fylgt ef óskað er.
13. október 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 115.87 116.43 116.15
Sterlingspund 153.06 153.8 153.43
Kanadadalur 88.75 89.27 89.01
Dönsk króna 17.963 18.069 18.016
Norsk króna 14.105 14.189 14.147
Sænsk króna 12.898 12.974 12.936
Svissn. franki 117.29 117.95 117.62
Japanskt jen 1.0329 1.0389 1.0359
SDR 161.74 162.7 162.22
Evra 134.03 134.77 134.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 160.0505
Hrávöruverð
Gull 1201.1 ($/únsa)
Ál 2028.0 ($/tonn) LME
Hráolía 82.47 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Hagfræðideild
Landsbankans spá-
ir því að vísitala
neysluverðs hækki
í október um 0,6%
milli mánaða, en
Hagstofa Íslands
mun birta næstu
vísitölumælingu
sína þann 29. októ-
ber.
Í Hagsjá bank-
ans segir að gangi spáin eftir hækki
ársverðbólgan úr 2,7% í 2,9%.
Helstu áhrifaþættir milli mánaða eru
nú, samkvæmt spánni, hressileg hækk-
un sem fyrirséð er að verði á reiknaðri
húsaleigu, eins og það er orðað. Þá
hækka ökutæki vegna lækkunar á gengi
krónunnar. Matur og drykkur hækka
einnig, sem og bensín vegna hækkunar
á heimsmarkaðsverði. tobj@mbl.is
Verðbólguhorfur versna
í spá Landsbankans
Húsnæði Hressileg
hækkun.
STUTT
BAKSVIÐ
Þór Steinarsson
thor@mbl.is
Mikill áhugi Íslendinga á golfi og golf-
ferðum til útlanda er ekki nýtilkom-
inn en svo virðist sem hann sé engu að
síður enn að aukast. Samkvæmt upp-
lýsingum frá ferðaskrifstofum sem
Morgunblaðið ræddi við hefur bókun-
um í golfferðir fjölgað mikið á milli
ára auk þess sem fólk fer í auknum
mæli í golfferðir á eigin vegum.
Úrval áfangastaða hefur að sama
skapi aukist mikið og er orðið fjöl-
breyttara en áður. Hefðbundnir
áfangastaðir eins og Spánn, Portúgal
og Flórída virðast enn sem fyrr vera
vinsælastir en áhugi á meira framandi
áfangastöðum er einnig til staðar. Nú
er hægt að kaupa pakkaferðir til Pól-
lands, Kúbu, Egyptalands, Marokkó
og Arabísku furstadæmanna svo
dæmi séu tekin.
Byrjendur einnig áhugasamir
„Eins og þetta hefur þróast hjá
mér þá finn ég fyrir verulegri aukn-
ingu milli ára. Árið 2018 hefur verið
alveg frábært og farið langt fram úr
væntingum, bæði vorið og haustið. Ég
held að það sé tvennt sem spilar inn í;
Það er annars vegar gengi gjaldmiðla
og svo er það hagstæðara verð á ferð-
um,“ segir Júlíus Geir Guðmundsson,
framkvæmdastjóri TA Sport Travel,
sem var staddur í Barcelona á Spáni
með tæplega 100 manna hóp þegar
ViðskiptaMogginn náði tali af honum.
TA Sport Travel býður upp á ferðir til
Spánar og Póllands.
Júlíus finnur fyrir aukinni eftir-
spurn í golfferðir frá fólki sem er ný-
byrjað að stunda golf og hefur ekki
farið í slíkar ferðir áður.
„Þetta er kannski fólk sem hefur
aldrei spilað golf og er kannski komið
á miðjan aldur. Allir tala um að þeir
séu komnir með miklu meiri tilgang í
golfferðum heldur en í hefðbundnum
utanlandsferðum. Þá eru þeir að gera
eitthvað ákveðið að degi til en geta
svo slappað af um kvöldið. Það er
gaman að því,“ bætir Júlíus við.
Íslendingar sem leita eftir því að
fara í golfferðir til útlanda virðast
skiptast í tvo hópa: Það er annars
vegar sá hópur sem sækir frekar í
ódýrustu ferðirnar og hins vegar hóp-
urinn sem vill fara á óhefðbundna
staði og upplifa meiri gæði.
„Það er mikill áhugi hjá Íslending-
um fyrir golfferðum og ég hef það á
tilfinningunni að fólk sé líka að fara í
auknum mæli á eigin vegum. Fólk er
líka að átta sig á því að það vilji prófa
öðruvísi staði og vilji meiri lúxus en
áður. Við erum ekki í þessum ódýrari
ferðum og viljum frekar bjóða upp á
meiri gæði,“ segir Dýrleif Guðmunds-
dóttir, meðeigandi Icegolf, í samtali
við Morgunblaðið. Icegolf býður með-
al annars upp á ferðir til Grikklands,
Búlgaríu og Marokkó.
Bragi Hinrik Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Gaman ferða, tekur
undir að fólk leiti eftir öðruvísi upp-
lifun í auknum mæli og segir að kylf-
ingar vilji sífellt prófa ný lönd, nýja
staði og nýja golfvelli.
Peter Salmon hjá Vita hefur sömu
sögu að segja og hefur sömuleiðis tek-
ið eftir aukinni eftirspurn. Hann segir
Vita stöðugt vera að bæta og breyta
til, bjóða upp á nýja áfangastaði og
betri þjónustu: „Það hefur sýnt sig að
fólk vill fá góða þjónustu og ekki vera
í veseni með að ferðast með golfsettið
til dæmis.“
Mikil fjölgun í golfferðum
Íslendinga á milli ára
Sól Eftir rigningarsumar á Íslandi getur verið freistandi að lengja tímabilið og fara til útlanda.
Áhugi
» Kylfingar vilja sífellt prófa
ný lönd, nýja staði og nýja golf-
velli.
» Menn sjá meiri tilgang“ í
golfferðum en hefðbundnum
utanlandsferðum.
Gengi gjaldmiðla og hagstæð-
ara verð á ferðum hefur já-
kvæð áhrif á eftirspurnina.
» Ekki er alltaf nauðsynlegt að
ferðast með golfsettið með
sér.
Fjölbreyttari og meira framandi áfangastaðir Margir á eigin vegum
Morgunblaðið/Eggert
Søren Rasmussen, arkitekt hjá
ONV Arkitekter í Kaupmannahöfn,
sagði frá áhugaverðri þróun þar í
landi í hönnun hagkvæmra íbúða á
morgunverðarfundi leigufélagsins
Heimavalla í gær. Søren er einn af
hönnuðum Billigbolig-verkefnsins í
Danmörku sem hrundið var af stað
árið 2006 þar sem markmiðið var að
byggja íbúðir með það að leiðarljósi
að leiga yrði ekki hærri en 5 þúsund
danskar krónur á mánuði. Søren
hefur einbeitt sér að hönnun hag-
kvæms húsnæðis úr verksmiðju-
framleiddum einingum til þess að
leysa þann vanda sem húsnæðis-
skortur er í mörgum borgum en
fram kom í erindi Guðbrands Sig-
urðssonar, framkvæmdastjóra
Heimavalla, að allt að 10 þúsund
íbúðir skorti á húsnæðismarkaði á
Íslandi sé horft á fjölda íbúa á
hverja íbúð.
Miklir möguleikar á Íslandi
„Ég sé mikla möguleika fyrir
þessar hugmyndir á Íslandi. Það
áhugaverða við þetta er að það má
flytja út iðnaðararkitektúr. Eftir því
sem ég kemst næst er of dýrt að
byggja hús á Íslandi. Þess vegna
gæti verið sniðugt að flytja þetta
hreinlega inn,“ segir Søren sem seg-
ir að 30% séu eftir af vinnu svo að
einingin, sem jafnan er að mestu úr
við og framleidd að 95% leyti í Dan-
mörku, sé fullgerð. Hundruð leigu-
íbúða hafa verið byggð eftir hug-
myndum hans í Danmörku. Veðrið
er auðvitað frábrugðið hér á landi
en Søren segist einnig hafa hannað
íbúðir í Færeyjum og segir að hann
myndi vinna með innlendum arki-
tektastofum að útfærslu á Íslandi.
Hann er mjög áhugasamur um það
en Søren bendir á að hægt sé að
flytja inn um 60-80 einingar á einu
skipi. „Einn gallinn við verklag í ís-
lenskum byggingariðnaði er að það
tekur langan tíma að fá íbúðir á
markað. Þá er auðvitað spennandi
að sjá að það er hægt að stytta við-
bragðstímann með þessum lausnum
sem Søren hefur verið að sýna okk-
ur. Það myndi minnka áhættu og
tryggja fljótari viðbrögð við breyttri
stöðu á markaði,“ segir Guðbrand-
ur. peturhreins@mbl.is
Kassi Søren segir sjálfbært að byggja úr við. Hér má sjá þekktustu bygg-
ingu ONV Arkitekter; Nordre Fælled-hverfið, á vesturhluta Amager.
Húsnæði úr verksmiðju-
framleiddum einingum
Hannar hagkvæmar íbúðir sem henta einnig á Íslandi