Morgunblaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018
Í ljósi þess hvernig
umræðan um fiskeldi
og búsetuþróun á
sunnaverðum Vest-
fjörðum hefur verið af-
vegaleidd með upp-
hrópunum,
rangfærslum og áróðri,
sjáum við okkur knún-
ar til þess að koma eft-
irfarandi athugasemd-
um á framfæri.
Umhverfismál
Það er mikilvægt að árétta að leyf-
issviptingin sem allt fjaðrafok hefur
verið út af er ekki vegna þess að fyr-
irtækin uppfylli ekki umhverf-
iskröfur, heldur af því að aðrar leiðir
voru ekki skoðaðar. Þær leiðir þóttu
svo augljóslega ekki koma til greina á
sínum tíma að ekki þótti ástæða til að
skoða þær sérstaklega. Núverandi
leið hefur staðist allt umhverfismat,
en mikil vinna var lögð í það um-
hverfismat á árunum 2012-2015 og
leyfið loks veitt eftir margra ára ferli
í desember 2017. Ekki var byrjað á
framkvæmdum fyrr en öll leyfi voru
komin. Öllum kröfum og reglugerð-
um um umhverfismál er fylgt eftir og
hvergi hefur verið gefinn afsláttur af
þeim. Það er Vestfirðingum mikið
hagsmunamál að hér sé rekin um-
hverfisvæn matvælaframleiðsla í sátt
við bæði náttúru og samfélag. Sveit-
arfélögin á Vestfjörðum hafa lagt
mikinn metnað í umhverfisstefnu
sína á undanförnum árum og hafa
fengið alþjóðlega umhverfisvottun
sem viðurkenningu fyrir árangur
sinn á því sviði. Atvinnustarfsemi á
svæðinu, hvort sem er ferðaþjónusta
eða matvælaframleiðsla, á allt sitt
undir vönduðum vinnubrögðum og
góðu sambýli við náttúruna. Því hef-
ur ekki og verður ekki slegið af kröf-
um um umhverfisvernd í tengslum
við uppbyggingu nýrra atvinnu-
greina á svæðinu.
Íbúaþróun
Samfélaginu hér vestra hefur
brugðið talsvert við að sjá hvernig
umræðan hefur snúist yfir í orðræðu
sem er bæði lítilsvirðandi og mann-
meiðandi. Þar sem málsmetandi fólk
kemur fram í fjölmiðlum eða á sam-
félagsmiðlum og reynir að gera lítið
úr því uppbyggingarstarfi og þeirri
samfélagsþróun sem átt hefur sér
stað. Við hér í Vesturbyggð metum
alla íbúa til jafns. Hér eru allir jafn-
miklir Bíldælingar eða Tálknfirð-
ingar hvort sem þeir eru fæddir á
Þingeyri, í Varsjá, Höfðaborg eða í
Garðabæ. Hér eru allir hluti af sam-
félagsheildinni og mikilvægur þáttur
í því samfélagi sem við byggjum.
Mest uppbygging hefur átt sér stað á
Bíldudal og hefur íbúafjöldi þar
meira en tvöfaldast á örfáum árum.
Til merkis um þær breytingar sem
orðið hafa er fyrsta íbúðahúsið í
byggingu í þorpinu í 30 ár. Uppbygg-
ing í Tálknafirði og á Patreksfirði er
komin skemmra á veg, en þar fer stór
hluti af núverandi uppbyggingu fram
og er fólki að fjölga þar aftur.
Starfsmannafjöldi
Hjá fyrirtækjunum Arnarlaxi og
Arctic Sea Farm eru 165 manns á
launaskrá, auk á annað hundrað
manns sem starfa hjá verktökum og
þjónustufyrirtækjum við eldið. Í
heild eru það því um 300 manns sem
starfa við eldið beint, af um það bil
700 manns sem eru á atvinnumarkaði
á svæðinu. Það er því ljóst að fisk-
eldið snertir beint stóran hluta þeirra
fjölskyldna sem búa á svæðinu. Upp-
bygging annarrar þjónustu byggist
jafnframt á því að hér sé nægur fjöldi
íbúa til að slík þjónusta beri sig, hvort
sem það eru grunnskólar og önnur
samfélagsþjónusta, verslanir, veit-
ingahús eða annað.
Aðkoma erlendra fjárfesta
Reynt hefur verið að gera lítið úr
mikilvægi fyrirtækjanna og starf-
semi þeirra á þeirri forsendu að er-
lendir fjárfestar eigi bróðurpartinn af
hlutafénu. Fiskeldi hefur verið stund-
að á Suðurfjörðunum í áratugi, en
upphaf laxeldis í Arnarfirði á rætur
sínar að rekja til Bílddælings sem
flutti til Noregs og starfaði að upp-
byggingu laxeldis þar. Í samstarfi við
aðra heimamenn fékk hann til liðs við
sig bæði innlenda og erlenda fjár-
festa til að byggja upp öfluga, um-
hverfisvæna matvælaframleiðslu á
heimaslóðunum. Aðkoma norskra
fjárfesta að verkefninu er mjög mik-
ilvæg, enda hafa Norðmenn meiri
reynslu en nokkur önnur þjóð af lax-
eldi. Þeir koma því ekki bara með
fjármagn inn í verkefnið heldur einn-
ig hafsjó af reynslu og þekkingu og er
margt sem Íslendingar geta lært af
þeirra uppbyggingu, bæði því sem
hefur gengið vel og því sem miður
hefur farið. Alls hafa Arnarlax og
Arctic Sea Farm fjárfest fyrir um 21
milljarð króna og skila á öðrum millj-
arði króna á ári í launatekjur á svæð-
inu.
Áróður og umræða
Því miður hefur mikið borið á því í
umræðunni að slengt sé fram „stað-
reyndum“ sem eiga við engin rök að
styðjast. Að sjálfsögðu er fiskeldi
ekki án umhverfisáhrifa, frekar en
önnur matvælaframleiðsla, en fá ef
nokkur önnur matvælaframleiðsla
hefur jafn lágt kolefnisspor og fisk-
eldi í sjó. Afkoma heimamanna er
undir því komin að fiskeldi sé rekið
samkvæmt ströngustu umhverf-
isstöðlum og gangi ekki of nærri líf-
ríkinu í fjörðunum. Þó fiskeldi sé orð-
inn stærsti atvinnuvegurinn hér er
hann ekki sá eini og gæta þarf þess
að jafnvægi sé á milli manns og nátt-
úru, sem og á milli hinna mismunandi
atvinnugreina. Hér starfa metn-
aðarfullir líffræðingar og aðrir sér-
fræðingar við rannsóknir og eftirlit
til að tryggja að svo sé.
Við hvetjum fólk eindregið til þess
að halda áfram að fylgjast með um-
hverfisáhrifum og mengunarvörnum,
líkt og við gerum sjálf. En til þess að
umræða um slík mál sé árangursrík
þarf hún að vera yfirveguð og fagleg
og byggð á staðreyndum og veru-
leika. Rangfærslur og áróður er eng-
um til framdráttar, hvorki náttúrunni
né samfélaginu og síst þeim sem á
bakvið hann standa.
Rangfærslur og
áróður engum til
framdráttar
Eftir Rebekku
Hilmarsdóttur og
Bjarnveigu
Guðbrandsdóttur
Rebekka
Hilmarsdóttir
» Afkoma heima-
manna er undir því
komin að fiskeldi sé rek-
ið samkvæmt ströng-
ustu umhverfisstöðlum
og gangi ekki of nærri
lífríkinu í fjörðunum.
Rebekka er bæjarstjóri
Vesturbyggðar. Bjarnveig er
oddviti Tálknafjarðarhrepps.
Bjarnveig
Guðbrandsdóttir
fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 26. október
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 22. október.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
Vertu viðbúinn
vetrinum
–– Meira fyrir lesendur
Fasteignir