Morgunblaðið - 13.10.2018, Side 29

Morgunblaðið - 13.10.2018, Side 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 Í ljósi þess hvernig umræðan um fiskeldi og búsetuþróun á sunnaverðum Vest- fjörðum hefur verið af- vegaleidd með upp- hrópunum, rangfærslum og áróðri, sjáum við okkur knún- ar til þess að koma eft- irfarandi athugasemd- um á framfæri. Umhverfismál Það er mikilvægt að árétta að leyf- issviptingin sem allt fjaðrafok hefur verið út af er ekki vegna þess að fyr- irtækin uppfylli ekki umhverf- iskröfur, heldur af því að aðrar leiðir voru ekki skoðaðar. Þær leiðir þóttu svo augljóslega ekki koma til greina á sínum tíma að ekki þótti ástæða til að skoða þær sérstaklega. Núverandi leið hefur staðist allt umhverfismat, en mikil vinna var lögð í það um- hverfismat á árunum 2012-2015 og leyfið loks veitt eftir margra ára ferli í desember 2017. Ekki var byrjað á framkvæmdum fyrr en öll leyfi voru komin. Öllum kröfum og reglugerð- um um umhverfismál er fylgt eftir og hvergi hefur verið gefinn afsláttur af þeim. Það er Vestfirðingum mikið hagsmunamál að hér sé rekin um- hverfisvæn matvælaframleiðsla í sátt við bæði náttúru og samfélag. Sveit- arfélögin á Vestfjörðum hafa lagt mikinn metnað í umhverfisstefnu sína á undanförnum árum og hafa fengið alþjóðlega umhverfisvottun sem viðurkenningu fyrir árangur sinn á því sviði. Atvinnustarfsemi á svæðinu, hvort sem er ferðaþjónusta eða matvælaframleiðsla, á allt sitt undir vönduðum vinnubrögðum og góðu sambýli við náttúruna. Því hef- ur ekki og verður ekki slegið af kröf- um um umhverfisvernd í tengslum við uppbyggingu nýrra atvinnu- greina á svæðinu. Íbúaþróun Samfélaginu hér vestra hefur brugðið talsvert við að sjá hvernig umræðan hefur snúist yfir í orðræðu sem er bæði lítilsvirðandi og mann- meiðandi. Þar sem málsmetandi fólk kemur fram í fjölmiðlum eða á sam- félagsmiðlum og reynir að gera lítið úr því uppbyggingarstarfi og þeirri samfélagsþróun sem átt hefur sér stað. Við hér í Vesturbyggð metum alla íbúa til jafns. Hér eru allir jafn- miklir Bíldælingar eða Tálknfirð- ingar hvort sem þeir eru fæddir á Þingeyri, í Varsjá, Höfðaborg eða í Garðabæ. Hér eru allir hluti af sam- félagsheildinni og mikilvægur þáttur í því samfélagi sem við byggjum. Mest uppbygging hefur átt sér stað á Bíldudal og hefur íbúafjöldi þar meira en tvöfaldast á örfáum árum. Til merkis um þær breytingar sem orðið hafa er fyrsta íbúðahúsið í byggingu í þorpinu í 30 ár. Uppbygg- ing í Tálknafirði og á Patreksfirði er komin skemmra á veg, en þar fer stór hluti af núverandi uppbyggingu fram og er fólki að fjölga þar aftur. Starfsmannafjöldi Hjá fyrirtækjunum Arnarlaxi og Arctic Sea Farm eru 165 manns á launaskrá, auk á annað hundrað manns sem starfa hjá verktökum og þjónustufyrirtækjum við eldið. Í heild eru það því um 300 manns sem starfa við eldið beint, af um það bil 700 manns sem eru á atvinnumarkaði á svæðinu. Það er því ljóst að fisk- eldið snertir beint stóran hluta þeirra fjölskyldna sem búa á svæðinu. Upp- bygging annarrar þjónustu byggist jafnframt á því að hér sé nægur fjöldi íbúa til að slík þjónusta beri sig, hvort sem það eru grunnskólar og önnur samfélagsþjónusta, verslanir, veit- ingahús eða annað. Aðkoma erlendra fjárfesta Reynt hefur verið að gera lítið úr mikilvægi fyrirtækjanna og starf- semi þeirra á þeirri forsendu að er- lendir fjárfestar eigi bróðurpartinn af hlutafénu. Fiskeldi hefur verið stund- að á Suðurfjörðunum í áratugi, en upphaf laxeldis í Arnarfirði á rætur sínar að rekja til Bílddælings sem flutti til Noregs og starfaði að upp- byggingu laxeldis þar. Í samstarfi við aðra heimamenn fékk hann til liðs við sig bæði innlenda og erlenda fjár- festa til að byggja upp öfluga, um- hverfisvæna matvælaframleiðslu á heimaslóðunum. Aðkoma norskra fjárfesta að verkefninu er mjög mik- ilvæg, enda hafa Norðmenn meiri reynslu en nokkur önnur þjóð af lax- eldi. Þeir koma því ekki bara með fjármagn inn í verkefnið heldur einn- ig hafsjó af reynslu og þekkingu og er margt sem Íslendingar geta lært af þeirra uppbyggingu, bæði því sem hefur gengið vel og því sem miður hefur farið. Alls hafa Arnarlax og Arctic Sea Farm fjárfest fyrir um 21 milljarð króna og skila á öðrum millj- arði króna á ári í launatekjur á svæð- inu. Áróður og umræða Því miður hefur mikið borið á því í umræðunni að slengt sé fram „stað- reyndum“ sem eiga við engin rök að styðjast. Að sjálfsögðu er fiskeldi ekki án umhverfisáhrifa, frekar en önnur matvælaframleiðsla, en fá ef nokkur önnur matvælaframleiðsla hefur jafn lágt kolefnisspor og fisk- eldi í sjó. Afkoma heimamanna er undir því komin að fiskeldi sé rekið samkvæmt ströngustu umhverf- isstöðlum og gangi ekki of nærri líf- ríkinu í fjörðunum. Þó fiskeldi sé orð- inn stærsti atvinnuvegurinn hér er hann ekki sá eini og gæta þarf þess að jafnvægi sé á milli manns og nátt- úru, sem og á milli hinna mismunandi atvinnugreina. Hér starfa metn- aðarfullir líffræðingar og aðrir sér- fræðingar við rannsóknir og eftirlit til að tryggja að svo sé. Við hvetjum fólk eindregið til þess að halda áfram að fylgjast með um- hverfisáhrifum og mengunarvörnum, líkt og við gerum sjálf. En til þess að umræða um slík mál sé árangursrík þarf hún að vera yfirveguð og fagleg og byggð á staðreyndum og veru- leika. Rangfærslur og áróður er eng- um til framdráttar, hvorki náttúrunni né samfélaginu og síst þeim sem á bakvið hann standa. Rangfærslur og áróður engum til framdráttar Eftir Rebekku Hilmarsdóttur og Bjarnveigu Guðbrandsdóttur Rebekka Hilmarsdóttir » Afkoma heima- manna er undir því komin að fiskeldi sé rek- ið samkvæmt ströng- ustu umhverfisstöðlum og gangi ekki of nærri lífríkinu í fjörðunum. Rebekka er bæjarstjóri Vesturbyggðar. Bjarnveig er oddviti Tálknafjarðarhrepps. Bjarnveig Guðbrandsdóttir fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 26. október PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 22. október. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ Vertu viðbúinn vetrinum –– Meira fyrir lesendur Fasteignir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.