Morgunblaðið - 13.10.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 13.10.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 Veður víða um heim 12.10., kl. 18.00 Reykjavík 8 skýjað Akureyri 6 alskýjað Nuuk -3 léttskýjað Þórshöfn 12 rigning Ósló 14 skýjað Kaupmannahöfn 15 súld Stokkhólmur 14 heiðskírt Helsinki 11 þoka Lúxemborg 22 heiðskírt Brussel 22 léttskýjað Dublin 14 skýjað Glasgow 13 rigning London 19 skýjað París 24 léttskýjað Amsterdam 21 heiðskírt Hamborg 22 heiðskírt Berlín 23 heiðskírt Vín 18 heiðskírt Moskva 11 heiðskírt Algarve 23 léttskýjað Madríd 21 léttskýjað Barcelona 24 léttskýjað Mallorca 25 léttskýjað Róm 21 heiðskírt Aþena 18 skýjað Winnipeg 0 heiðskírt Montreal 8 skýjað New York 14 rigning Chicago 5 skýjað Orlando 27 skýjað  13. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:13 18:16 ÍSAFJÖRÐUR 8:23 18:16 SIGLUFJÖRÐUR 8:06 17:58 DJÚPIVOGUR 7:44 17:44 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á sunnudag og mánudag Fremur hæg suðlæg átt, skýjað með köflum og stöku skúrir sunnan- og vest- antil en víða bjartviðri norðanlands. Hiti 0 til 7 stig að deginum, svalast i innsveitum fyrir norðan. Suðvestan 3-10 m/s og skúrir síðdegis en léttir til norðaustan- og austanlands. Kólnandi veður, hiti 0 til 6 stig, svalast í innsveitum fyrir norðan. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta er niðurstaðan. Nú þurfum við að skoða málið heildstætt, hvað þetta þýðir,“ segir Gunnar Björns- son, formaður samninganefndar rík- isins, við Morgunblaðið. Hæstiréttur staðfesti á fimmtu- dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli BHM gegn ríkinu vegna þess að laun ljósmæðra sem stóðu vaktir í verkfalli ljósmæðra árið 2015 voru skert. Ríkinu var gert að endur- greiða umræddar skerðingar launa auk dráttarvaxta og málskostnaðar. Landspítalinn dró sama hlutfall af launum allra ljósmæðra meðan á verkfalli stóð, burtséð frá vinnufyrirkomu- lagi einstakra starfsmanna. Þannig fengu sumir starfsmenn greitt fyrir stund- ir sem þeir unnu ekki en aðrir fengu ekki að fullu greitt fyrir þá vinnu sem þeir inntu af hendi. Fimm ljósmæður sem fengu ekki að fullu greitt fyrir vinnu sína höfð- uðu málið með aðstoð BHM. Félagið telur að niðurstaðan hafi fordæmis- gildi gagnvart öðrum fagstéttum sem vinna vaktavinnu á Landspítal- anum og sættu launaskerðingum ár- ið 2015. Á annað hundrað ljósmæður gætu átt inni laun hjá ríkinu. Gunnar segir í samtali við Morg- unblaðið að hann geti lítið tjáð sig um hvernig ríkið bregðist við þess- um dómi. Nú sé verið að skoða hvað dómur Hæstaréttar þýðir, hverju þurfi hugsanlega að breyta og hvar. „Þessi niðurstaða snýr að öllum í félaginu. Hún getur líka haft áhrif á þær sem áttu vinnuskyldu í verkfall- inu en hún féll niður. Á þá að draga meira af þeim? Miðað við þessar for- sendur er það svo. Ég veit ekki hvernig við komum til með að útfæra þetta. Við erum rétt að máta okkur við dóminn. Nú þurfum við að eiga samráð við alla aðila,“ segir Gunnar. Hann bendir á að umrædd reikni- regla ríkisins hafi lengi verið notuð og dómar fallið um túlkun á viðkom- andi lagagrein sem staðfest hafi gildi hennar. „Framkvæmdin hefur alltaf verið með þessum hætti, allt frá því BHM fékk verkfallsrétt,“ segir Gunnar. Ríkið vinnur að útfærslu dómsins  Dómur um laun ljósmæðra snýr að öllum félagsmönnum  Ríkið boðar samráð við alla aðila Gunnar Björnsson Morgunblaðið/Eggert Samstaða Ljósmæður stóðu m.a. mótmælastöðu vegna deilunnar. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Aðalsteinn Ingi Pálsson, fram- kvæmdastjóri Icewear, segir ljóst að veiking krónunnar muni ýta und- ir sölu til er- lendra ferða- manna. Fyrirtækið rekur sjö versl- anir í miðborg- inni. Þar er með- al annars seldur fatnaður, minja- gripir og útivist- arvörur. Þá er fyrir- tækið með versl- anir við Sundahöfn, í Garðabæ, Smáralind og úti á landi. Eins og fjallað var um í Morg- unblaðinu í gær hefur gengi krónu gefið eftir undanfarið. Evran kostar nú 134 krónur en kostaði um 124 krónur í byrjun ágúst. Hefur nafn- gengi evru ekki verið á þessum stað frá sumri 2016. Selja meira af ódýrari hlutum Aðalsteinn Ingi segir gengi hafa áhrif á kauphegðun neytenda. Það hafi spurst út að verðlag á Íslandi hafi hækkað með styrkingu krónu. „Nú erum við að selja fleiri en ódýrari hluti. Það getur líka haft áhrif að mögulega hafi samsetning ferðamanna breyst á síðustu árum. Ef það spyrst út að landið sé dýrt fælir það ákveðna hópa frá.“ Spurður hvort neikvæð áhrif gengisstyrkingar hafi leitt til þess að sumar verslanir standi jafnvel ekki lengur undir húsaleigu segir Aðal- steinn Ingi að stóru fasteignafélögin hafi fyrir 2-3 árum sópað til sín eign- um og sprengt upp fermetraverð. Það vegi mun þyngra en möguleg gengisáhrif. „Ég held að sú þróun sé nú að sliga margan kaupmanninn.“ Kortavelta minnkar milli ára Áhrif gengisstyrkingarinnar birt- ast í tölum um veltu erlendra greiðslukorta. Hún var 5% minni fyrstu átta mánuði ársins en í fyrra. Hún er hins vegar 9% meiri en 2016 og sú önnur mesta í sögunni. Síðasta ár var metár í erlendu kortaveltunni. Má hér rifja upp að búist er við fleiri ferðamönnum í ár en í fyrra, eða rúmlega 2,3 milljónum. „Það er offramboð af hótelum og það er offramboð í rútubransanum. Það sama hefur gerst í verslunar- geiranum. Verslunum sem tengjast ferðaþjónustu hefur fjölgað gríðar- lega í miðbænum. Sama má segja um veitingageirann,“ segir hann. Spurður um sölu á dýrari hlutum bendir Aðalsteinn Ingi á að fjölgun efnaðra ferðamanna hafi haft áhrif. Þeir séu t.d. líklegri til að kaupa dýrari flíkur en aðrir ferðamenn. Hefur áhrif á kauphegðun Árni Sverrir Hafsteinsson, for- stöðumaður Rannsóknaseturs versl- unarinnar, segir gengisstyrkinguna hafa haft áhrif á kortaveltuna í ár. „Kaupákvörðun fólks frá öðrum ríkjum byggist í flestum tilvikum á því hvað varan kostar í þeirra gjald- miðli. Við þekkjum það sjálf að um- reikna verð í útlöndum í krónur. Við höfum séð fylgni á milli gengis krónu og kortaveltu á mann í vörukaupum. Það virðist sveiflast með genginu hvað fólk er tilbúið að kaupa af vörum. Þegar við skoðum sérvöru- flokka sjáum við að fólk er ekki að eyða ósvipað og áður í erlendum gjaldmiðli. Þegar gengið gefur eftir, eins og nú er útlit fyrir, eru það því ágætis fréttir fyrir þá sem selja sér- vöru,“ segir Árni Sverrir. Hann telur þó ekki hægt að full- yrða að þessi sala aukist í beinu hlut- falli við veikingu krónunnar, enda séu sumir kostnaðarliðir verslana einnig í erlendri mynt. Þá skipti gengi bandaríkjadals jafnvel meira máli en gengi evru í þessu samhengi. Bæði sé bandarískum ferðamönnum að fjölga og þeir kaupglaðari en dæmigerðir Evrópubúar. Veiking krónu þykir líkleg til að örva verslun í miðborginni  Icewear reiknar með meiri sölu samhliða veikingu krónunnar  Rannsóknasetur bendir á áhrif gengisins Velta erlendra greiðslukorta, innanlands Samtals velta í janúar til ágúst 2009-2018, milljarðar króna Veltuaukning árið 2018 miðað við sama mánuð 2017 -5,1% er samtals breyting á veltu í janúar-ágúst milli ára 200 150 100 50 0 0% -4% -8% -12% -16% 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst 178,1 187,6 163,2 112,1 83,5 67,7 55,1 47,5 36,336,2 Heimild: Hagstofa Íslands, Borgun og Valitor milljarðar kr. -9,2% -4,1% -7,7% -15,8% -1,0% -1,6% -2,9% -3,4% Aðalsteinn Ingi Pálsson Morgunblaðið/Þórður Lundabúð Minjagripaverslanir eru ófáar í miðborg Reykjavíkur. Tilbúinn til neyslu, en má hita. Afbragðs vara, holl og næringarík. Söluaðilar: Hagkaup, Iceland verslanir, Melabúðin, Nettó, Samkaup kjörbúðir, Samkaup krambúðir og Pure Food Hall í flugstöðinni Keflavík. Heitreyktur lax

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.