Morgunblaðið - 13.10.2018, Síða 24

Morgunblaðið - 13.10.2018, Síða 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Ríkisstjórn Tyrklands hefur greint bandarískum embættismönnum frá því að hún hafi undir höndum upp- tökur sem sanni að blaðamaðurinn Jamal Khashoggi hafi verið myrtur í skrifstofu ræðismanns Sádí-Arabíu í Istanbúl. Bandaríska dagblaðið Washington Post greindi frá þessu í fyrrinótt, en Khashoggi skrifaði reglulega pistla fyrir blaðið. Munu upptökurnar renna stoðum undir þá kenningu að sérstakt teymi leyniþjónustu- manna frá Sádí- Arabíu hafi haft Khashoggi í haldi eftir að hann gekk inn í skrifstofuna hinn 2. október síðastliðinn, myrt hann og hlutað líkið í sundur. Að sögn heim- ildarmanns Washington Post er um að ræða hljóðupptökur, þar sem heyrist þeg- ar Khashoggi sé yfirheyrður, pynd- aður og svo myrtur. Annar heimild- armaður blaðsins sagði að það heyrðist á upptökunni að Khashoggi hefði orðið fyrir barsmíðum. Neikvæð áhrif á viðskiptabönd Málið hefur vakið mikla athygli, og hafa helstu bandamenn Sádí-Araba varað við því að það muni hafa alvar- legar afleiðingar í för með sér, ekki síst á viðskipti við landið, reynist það rétt að Khashoggi hafi verið myrtur að undirlagi yfirvalda þar. Banda- rískir þingmenn hafa haft það á orði að rétt væri að hætta við sölu vopna til Sádí-Arabíu reynist ásakanirnar réttar. Trump Bandaríkjaforseti vildi þó ekki ljá máls á slíku fyrr í vik- unni. Þá tilkynnti auðkýfingurinn Rich- ard Branson í gær að hann hefði ákveðið að draga sig tímabundið út úr tveimur samstarfsverkefnum við ferðaþjónustu landsins, þar til búið væri að leiða í ljós hið sanna í málinu. Bætti hann við að það yrði ómögulegt fyrir alla á Vesturlöndum að eiga í viðskiptum við Sádí-Arabíu ef það reyndist rétt að stjórnvöld þar hefðu átt þátt í hvarfi Khashoggis. Telja Khashoggi látinn  Tyrkir sagðir hafa hljóðupptökur sem sanni að Khashoggi hafi verið myrtur Jamal Khashoggi Evgenía, prinsessa af Jórvík, giftist í gær unnusta sín- um, skoska vínsölumanninum Jack Brooksbank, við há- tíðlega athöfn. Amma brúðarinnar, Elísabet II. Eng- landsdrottning, var viðstödd ásamt fjölskyldu sinni, en viðburðurinn var sýndur beint á sjónvarpsstöðinni ITV. Evgenía er yngri dóttir Andrésar prins og Sarah Ferguson, hertogaynju af Jórvík, og er níunda í erfða- röð breska konungsveldisins. AFP Konunglegt brúðkaup í Bretlandi Evgenía prinsessa gift vínsölumanni Frans páfi tók í gær við af- sagnarbeiðni kardínálans Donalds Wuerl sem erkibiskups af Washington. Wuerl hefur ver- ið gagnrýndur fyrir að hafa ekki gert nóg til þess að koma í veg fyrir kynferðislega misnotkun kaþólskra presta á börnum í Penn- sylvaníu-ríki þegar hann var biskup þar á árunum 1988 til 2006. Í ítarlegri skýrslu sem gefin var út í ágúst síðastliðnum kom í ljós að meira en 300 prestar höfðu brotið af sér í ríkinu gegn meira en 1.000 fórnarlömbum. Wuerl var sér- staklega nefndur í skýrslunni sem einn af þeim leiðtogum kirkjunnar sem höfðu vitneskju um brotin en þögðu yfir þeim. Hafa margir innan kirkjunnar krafist afsagnar hans vegna þessa. Wuerl kardínáli segir af sér Donald Wuerl BANDARÍKIN Roelof „Pik“ Botha, fyrrver- andi utanríkis- ráðherra Suður- Afríka, lést í fyrrinótt, 86 ára að aldri, eftir skammvinn veik- indi. Botha var utanríkis- ráðherra í 17 ár í aðskiln- aðarstjórn hvíta minnihlutans. Botha þótti frjálslyndur og var stundum lýst sem „góðum manni í slæmri ríkisstjórn“. Laust honum oft saman við þáverandi forseta, P.W. Botha, en þeir voru ekki skyldir. Þegar aðskilnaðarstefn- unni lauk gekk hann til liðs við rík- isstjórn Nelsons Mandela og Afr- íska þjóðarflokkinn árið 1994. Cyril Ramaphosa, forseti Suður- Afríku, sagði að Botha yrði minnst fyrir að hafa stutt vegferð landsins í átt til lýðræðis. Pik Botha látinn, 86 ára að aldri Pik Botha SUÐUR-AFRÍKA Björgunarmenn leituðu ákaft í gær að fólki sem hugsanlega væri enn á lífi í rústum eftir að fellibylurinn Mikael reið yfir suðausturhorn Bandaríkjanna. Að minnsta kosti ell- efu manns eru látnir eftir hamfar- irnar og er óttast að sú tala gæti enn hækkað. Fellibylurinn hélt snemma í gærmorgun út yfir Atlantshafið, en hann skilur eftir sig mikla eyðilegg- ingarslóð. Er áætlað að fjártjón vegna Mikaels gæti verið allt að 13 milljörðum bandaríkjadala. Staðfest var í gær að fjórir hefðu látist í Flórída, einn í Georgíu og einn í Norður-Karólínu. Þá létust að minnsta kosti fimm manns þegar Mikael fór yfir Virginíu-ríki í fyrra- kvöld, en að minnsta kosti 520.000 manns í ríkinu eru nú án rafmagns. Þá hefur þurft að loka um 1.200 veg- um vegna óveðursins. Rick Scott, ríkisstjóri Flórída, sagði að stormurinn hefði valdið ótrúlegum skaða og að öll áhersla væri nú á að finna fólk sem hefði ekki hlýtt fyrirskipunum um að yfirgefa heimili sín. Þá kom fram að mörg hús í Flórída hefðu ekki verið byggð til þess að standast byl af þessari stærð. Minnst ellefu manns látnir AFP Mikael Fellibylurinn Mikael skildi eftir sig ótrúlega slóð eyðileggingar, meðal annars í Flórída, þar sem mörg hús voru ekki nógu traust. Nicos Anastasiades, forseti Kýpur, tilkynnti í gær að Sameinuðu þjóð- irnar hygðust skipuleggja fund með honum og Mustafa Akinci, forseta Kýpur-Tyrkja, á næstunni, í þeirri von að hægt yrði að hefja á ný frið- arviðræður milli þjóðarbrotanna tveggja sem byggja Kýpur. Fulltrúar Kýpur-Grikkja og Kýp- ur-Tyrkja ræddust síðast formlega við í júlí 2017 en þá steyttu viðræð- urnar á skeri. Forsetarnir tveir ræddust óformlega við í ágúst síð- astliðnum en náðu ekki saman um að hefja viðræðurnar á ný. Anastasiades sagði að Akinci hefði tekið vel í hugmynd Sameinuðu þjóðanna og nú væri bara eftir að finna tímasetningu sem hentaði báð- um. Hann varaði þó við of mikilli bjartsýni þar sem enn skildi mikið á milli aðila. Eyjan hefur verið tvískipt frá árinu 1974 þegar tyrkneskar her- sveitir gerðu innrás til þess að verja hagsmuni Kýpur-Tyrkja. Fundað um fram- tíð Kýpur  Vona að við- ræður hefjist á ný ROYAL VANILLUBÚÐINGUR ... OG FÆST Í ÖLLUM BETRI MATVÖRUVERZLUNUM LANDSINS A�taf góður!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.