Morgunblaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.10.2018, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki. Fyrir fjórum árum þegarlokaumferð ólympíu-skákmótsins rann upp íTromsö í Noregi höfðu þrír meðlimir íslensku skáksveit- arinnar í opna flokknum ekki tapað skák. Fyrir lokaumferð ólympíu- mótsins í Batumi í Georgíu hafði ís- lenska sveitin tapað 15 skákum. Hægt er að grípa til alls kyns sam- anburðar en fyrir mann sem hefur verið í liði sem sat við háborð þess- arar miklu keppni, ólympíumót eftir ólympíumót, er niðurstaðan óásætt- anleg. Á þeim tíma voru liðsmenn á kafi í taflmennsku út um allan heim og dæmi má finna af móti þar sem liðið hafði ekki tapað nema einni skák í fyrstu sjö umferðum þess. Héðinn Steingrímsson sem gaf kost á sér til að tefla á 1. borði byrj- aði ekki vel, tefldi 10 skákir, þar af sjö sinnum með hvítt. Hafði eftir sex umferðir tapað fjórum skákum þar af þrisvar þegar hann hafði hvítt. Að tapa með hvítu á 1. borði „kemur ekki til greina“ á ólympíumóti. Greinarhöfundur tefldi á 1. borði ár- in 1984, 8́6 og 9́0 og í þessum þrem mótum tapaðist ein skák á hvítt – fyrir Anand, en ég átti unnið tafl um tíma. Héðinn tefldi ekki á neinu al- vöru móti í aðdraganda ólympíu- mótsins og réð ekki við verkefnið sem hann tók að sér. Jóhann Hjartarson hefði betur skipað þetta sæti en hann tefldi margar góðar skákir í Batumi, Hannes Hlífar Stefánsson hefur oft teflt betur, Íslandsmeistarinn Helgi Áss Grétarsson er enn ekki búinn að ná fullum styrk eftir langt hlé og Guðmundur Kjartansson missti af mörgum góðum færum. Það sem stóð liðinu fyrir þrifum á mikilvægum augnablikum þessa ól- ympíumóts var þessi skortur á slag- krafti á mikilvægum augnablikum. Tökum nokkur dæmi: 9. umferð: Westerberg – Helgi Áss Staðan kom upp í viðureign Ís- lendinga við Svía. Helgi Áss hafði unnið tvær síðustu skákir og mætti ákveðinn til leiks. Eftir talsvert um- rót á borðinu er nauðsynlegt að að- laga sig breytingum á stöðunni en Helgi lék hinsvegar umsvifalaust: 24. ... fxg2? og eftir 25. Hd4 Dh5? 26. Df5! var hvítur með betri stöðu og vann í 46 leikjum. Hann gat leikið 24. ... Rf4! sem vinnur. Þá dugar ekki 25. Df5 vegna 25. ... Dxf5 26. Rxf5 Re2+ og 27. ... Rxc3, vinnur skiptamun og á auð- unnið tafl. Annar möguleiki er 25. gxf3 en þá vinnur 25. .. Dh5! strax. Að lokum: 25. g3 Hxe3 26. fxe3 Dxe3+ 27. Kh1 f2! og vinnur. 11. umferð: Héðinn – Djukic Þó að hvítur hafi átt peði meira eftir byrjunina virtust jafn- teflisúrslit býsna líkleg. En hér eru menn hvíts tilbúnir fyrir atlögu að kónginum. Héðinn lék ... 36. fxg5? og eftir 36. ... Bd4 37. Ha4 Bf2 38. Bf4 Hb1 hafði svartur nægilegt mótspil til að ná jafntefli. En í þessari stöðu blasir vinning- urinn við: 36. Ha8+ Kg7 37. f5! Bxf5 ( eða 37. ... Hb1 38. f6+! Kh6 39. Hh8+ Bh7 40. Hxh7+ Kxh7 41. Be4+ og hrókurinn fellur ) 38. Bxg5 Kg6 39. Bf6 og vinnur. Á 4. borði kom þessi staða upp í viðureigninni við Svartfjallaland: 11. umferð: Draskovic – Guðmundur Guðmundur lék 27. ... Rd4+? og eftir 28. Kf2 axb4 29. axb4 Kg8 er ekki eftir neinu að slægjast og kepp- endur sömdu um jafntefli eftir 36 leiki. En svartur gat leikið 27. ... Df6! því að 28. Dxb5 er svarað með milli- leiknum 28. ... Db2+! og tekur síðan hrókinn með skák. Sigur í stað taps hefði skilað okk- ur 30 sætum ofar. Slagkrafts er þörf Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Bergvin Oddsson útgerðarmaður og skipstjóri á Glófaxa VE sem lést þann 22. september sl. var mikill stuðningsmaður skákarinnar í Vestmannaeyjum, tefldi á fjölmörg- um mótum á vegum Taflfélags Vestmannaeyja og var ásamt Hrafni bróður sínum meðal bestu skákmanna í Eyjum. Á árunum fyr- ir gos kom til tals að Bergvin færi við annan mann til þátttöku á skák- mót í Bergen í Noregi. Ungur mað- ur í Taflfélagi Vestmannaeyja spurði Bergvin hvort þeir ætluðu ekki örugglega að fljúga: – Nei, nei, við siglum auðvitað til Noregs, var svarið. Myndin var tekin á afmæl- ismóti Sparisjóðs Vestmannaeyja árið 2003. Þeir sitja að tafli Arnar Sigurmundsson t.v. og Bergvin, sem er að tefla fram drottning- arpeðinu. Fjær sjást t.v. Viktor Stefán Pálsson og Einar Sigurðs- son. Morgunblaðið/Óskar Pétur Bergvin Oddsson Ríkisfyrirtækið Ís- landspóstur sendi Nýju sendibílastöðinni nýlega erindi þar sem óskað var tilboða í flutningsþjónustu. Á meðal þeirra verkefna sem leitað var eftir þjónustu í var almenn sendibílaþjónusta á höfuðborgarsvæðinu, flutningsþjónusta til Akureyrar og Egilsstaða og loks heimkeyrsla fyrir Ikea. Þessi beiðni kom undirrituðum nokkuð á óvart þar sem ekki verður séð í fljótu bragði hvaða erindi ríkisfyrirtækið telur sig eiga í heimkeyrslu fyrir hús- gagnaframleiðandann vinsæla. Biður um samkeppnis- upplýsingar Það væri fróðlegt að vita hvernig Íslandspóstur hyggst nýta þessar verðupplýsingar sem félagið biður okkur, minni samkeppnisaðilana á markaðnum, að útvega sér, verði yf- irhöfuð farið í þá ókeypis greining- arvinnu fyrir ríkisfyrirtækið. Maður vill helst ekki trúa því árið 2018 að ríkisfyrirtæki sé að bjóða í heimsend- ingarþjónustu fyrir húsgagnafram- leiðanda en ætli sér svo að fá aðra til að vinna verkið. Það er ekkert í lög- um um póstþjónustu sem ætlar rík- isfyrirtækinu það hlutverk að vera milliliður um heimsendingarþjónustu þar sem helsta tekjuhliðin er þóknun á þeirri þjónustu. Hér er Íslands- póstur kominn í örvæntingarfulla vegferð og langt út fyrir lögbundið hlutverk sitt. Ríkisfyrirtæki í harðri samkeppni Samkvæmt lögum um póstþjón- ustu fer Íslandspóstur með einkarétt ríkisins vegna póstsendinga á bréfum undir 50 g. Þá er ríkisfyrirtækinu skylt að veita alþjónustu upp að vissu marki. Það er þó öllum ljóst að í dag fer meginþorri starfsemi Íslands- pósts fram í harðri samkeppni við einkaaðila. Í rúman áratug hefur fé- lagið varið gífurlegum fjármunum í uppbyggingu á þeim hluta dreif- ingakerfisins sem starfræktur er í samkeppni við einkaaðila. Brennir opinbert fé Í ársskýrslum Íslandspóst hefur ítrekað verið talað um skilvirkasta og stærsta dreifingarkerfi landsins. Það er aftur á móti merkilegt að á síðast- liðnum tveimur árum hefur Íslands- póstur hagnast um tæpar 870 millj- ónir króna vegna þeirrar þjónustu sem fellur undir einkarétt. Þrátt fyrir fækkun bréfsendinga er sá hluti þjónustunnar rekinn með hagnaði, enda hefur gjaldskrá fé- lagsins á bréfsendingum hækkað mikið á und- anförnum árum. Á hinn bóginn nam tap af sam- keppnisrekstri félagsins um 1,5 milljörðumkróna á sama tíma. Samkvæmt lögum er ríkisfyrirtæk- inu ætlað að miða gjald- skrá sína í aldreifingu við raunkostnað að við- bættum hóflegum hagn- aði. Gjaldskráin hefur þó lítið verið uppfærð og sem fyrr segir er samkeppnisreksturinn rek- inn með tapi. Í stuttu máli mætti segja að Íslandspóstur sé að brenna peningum af rekstri sem félaginu ber engin skylda til að standa í. Fær meðgjöf frá ríkinu Aukin hagsæld síðustu alda bygg- ist á því að hægt sé að flytja vörur á milli staða með hagkvæmum hætti. Sendibílastöðvar og önnur flutninga- fyrirtæki eru hluti af því stóra keðju- verki. Þessir aðilar hafa nóg fyrir stafni í samkeppni sín á milli en eru nú að auki settir í þá stöðu að þurfa líka að berjast við ríkisfyrirtækið um þjónustu á samkeppnismarkaðnum, þangað sem það er að seilast þrátt fyrir enga skyldu í þeim efnum, nú með ósvífinni ósk um kostn- aðargreiningu á sendingum hús- gagna. Allir sem reka fyrirtæki, stór sem smá, þurfa sífellt að leita leiða til að hagræða í rekstri sínum. Þetta á ekki síst um liðinn áratug þar sem huga hefur þurft að hverri krónu, skera niður kostnað og, eftir atvikum, sam- eina eða hætta rekstri fyrirtækja. Allir stjórnendur fyrirtækja hafa kynnst þessu, nema hjá ríkisfyr- irtækjunum. Þau fá greitt meðlag þegar illa gengur. Nýlega var greint frá því að fjármálaráðuneytið hygðist „lána“ Íslandspósti um hálfan millj- arð króna til að styrkja lausa- fjárstöðu félagsins. Þetta rausn- arlega lán frá skattgreiðendum mun eflaust nýtast Íslandspósti vel í upp- byggingu á starfseminni sinni sem rekin er í samkeppni við fyrirtæki á flutningamarkaði, þar á meðal litlar sendibílastöðvar! Íslandspóstur hömlulaus á sam- keppnismarkaði Eftir Þórð Guðbjörnsson Þórður Guðbjörnsson »Ríkisfyrirtækið Ís- landspóstur hefur sent Nýju sendibílastöð- inni erindi þar sem m.a. er óskað tilboða í heim- keyrslu á vörum við- skiptavina IKEA. Höfundur er framkvæmdastjóri Nýju sendibílastöðvarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.