Morgunblaðið - 13.10.2018, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 13.10.2018, Qupperneq 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Ókeypis aðgangur á greiningarsýningu í Myndasal Sunnudagur 14.10. Fullveldisleiðsögn kl. 14. Tæknin tekin með trukki – Stefán Pálsson Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Alfreð D. Jónsson – Hver er á myndinni? Greiningarsýning í Myndasal Hjálmar R. Bárðarson – Aldarminning á Vegg Prýðileg reiðtygi í Bogasal Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 VÉFRÉTTIR – KARL EINARSSON DUNGANON LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17 LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON Opið allar helgar frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 515 9625, www.listasafn.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Myndlistarmaðurinn Erró opnar sýningu í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi í dag kl.15 á þrjátíu nýj- um og nýlegum málverkum og einn- ig tilraunakenndum, svarthvítum stuttmyndum sem hann gerði á ár- unum 1964-1967 með Bolex 16mm myndavél. Meðal þessara stutt- mynda er ein sem hefur aldrei verið sýnd áður og nefnist Brainwashing. Málverk Erró hafa einkennst af litagleði og -dýrð en nú kveður við annan tón, verkin öll svarthvít enda heitir sýningin Erró: Svart og hvítt. Erró er þó við sama heygarðs- hornið þegar kemur að myndmál- inu, blandar saman ýmsum per- sónum og að vanda fjölmörgum, bæði sögulegum og úr teiknimynda- sögum. Bruegel kveikti eld „Ég er búinn að gera svartar og hvítar myndir, stundum tvær og stundum fimm, á hverju ári í mörg ár núna og sumar mjög stórar,“ segir Erró þar sem hann gengur með blaðamanni um sýninguna. „Svo sá ég sýningu í Vínarborg á verkum Pieters Bruegel og sona hans. Ég vissi að hann hefði átt einn son sem málaði svo falleg blóm en ég vissi ekki að hann hefði átt tvo syni. Þegar hann dó héldu þeir áfram á vinnustofunni hans og kó- píeruðu myndirnar hans, sem eru í lit, í svörtu og hvítu. Ég sá heilan vegg með svörtum og hvítum mynd- um og þær kveiktu í mér,“ segir Erró og brosir. – En hvers vegna að gera svart- hvít verk, af hverju viltu það? „Bara til að breyta til, gera nýja syrpu. Á tíu ára fresti geri ég yfir- litskatalóga, finnst myndirnar ekki búnar nema þær hafi verið prent- aðar í bók og við erum að gera núna síðasta katalóginn, svo hætti ég. Hann nær frá árinu 2015 til 2018. Þetta er katalóg númer átta.“ – Hvað áttu við með að þú hætt- ir? „Ég hætti að gera katalóga en held áfram að vinna,“ útskýrir Erró. Heilinn þveginn – Það er líka áskorun að mála í svarthvítu, ekki satt? „Jú, það er mjög gaman, skemmtilegt að vinna í svörtu og hvítu. Það er alltaf gaman að vera kontróleraður af einhverju og þessi sýning er helmingur af sýningu sem var fyrir utan París, hinn helming- urinn er núna í París í galleríi sem ég hef unnið með í 15 ár núna.“ Erró sest með blaðamanni fyrir framan fyrrnefnda tilrauna- stuttmynd, Brainwashing, þ.e. Heilaþvottur. Ung kona sést bora gat í höfuðið á ungum manni, draga heilann úr honum í ræmum og þvo þær í skál. Blaðamaður spyr hvort þetta sé fimmaurabrandari og Erró hlær og viðurkennir að svo sé. „Þetta er brandari,“ segir hann og hlær að myndinni sem hann segist hafa verið búinn að gleyma. Greini- legt er að hann hefur gaman af því að rifja hana upp. Erró mun við opnun sýning- arinnar í dag veita viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu S. Krist- insdóttur en sjóðinn stofnaði hann árið 1997 í minningu frænku sinnar og er honum ætlað að efla og styrkja listsköpun kvenna. Hver hlýtur viðurkenningu að þessu sinni kemur í ljós upp úr kl. 15, skömmu eftir opnun sýningarinnar. Skemmtilegt að vinna í svörtu og hvítu  Erró sýnir svarthvít málverk og tilraunakenndar stuttmyndir Morgunblaðið/Hari Afkastamikill Erró á sýningu sinni í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi sem opnuð verður í dag. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Það er figureight sem gefur plötuna út, merki semtengist Figure 8-hljóðverinu í Brooklyn, NewYork. Þar stýrir Shahzad Ismaily málum, en hann er Íslandsvinur mikill og hefur unnið með marg- víslegum hérlendum tónlistarmönnum. Hildur Maral Hamíðsdóttir framkvæmdastýrir útgáfunni sem hefur m.a. gefið út plötur með íslensku listamönnunum Indr- iða, JFDR og Úlfi (Hanssyni). Áherslan er á næmni og djúpskilning á milli listamanna og útgefenda, áhersla sem skilar sér í afurðunum, tónlistar- sem hönnunarlega. Gyða Valtýsdóttir gaf út plöt- una Epicycle seint á árinu 2016, plata sem fékk svo al- mennilega útgáfu ári síðar, m.a. fyrir tilstuðlan Smekk- leysu. Það verk vakti óskipta athygli, og ekki að ósekju, en að mati þess sem skrifar er þar á ferðinni eitt magnaðasta tónverk síðustu ára. Á plöt- unni er að finna lög eða verk eftir tónskáld sem koma úr heimi skrifaðrar tónlistar, samtíma, klassíkur eða hvað fólk vill nú kalla það. Hér eru verk eftir þekkta höfunda á borð við Schubert, Messiaen og Prokofiev en einnig er tekist á við efni eftir tilraunagjarna höfunda á borð við George Crumb og Harry Partch. Orðið sem mér finnst best að nota hvað þá plötu varðar er „gald- ur“. Stemningin er óútskýranleg í raun, en maður finn- ur svo vel fyrir áhrifunum, hvernig tónlistin talar til hjartans og fær líkamann til að skjálfa. Einstaklega heilsteypt plata, líður áfram eins og fallegur draumur. Engin truflun, ekkert uppbrot, bara hreint flæði. Gyða tekst t.d. á við Seikilos-verkið, elsta þekkta tónverk veraldar, sem varðveitt er á grafsteini. Þar syngur Gyða og sekkjapípa kemur við sögu og áhrifin af því eru með ólíkindum. Ég var, eðlilega, ekki einn um þessa upplifun og platan var ausin lofi, hérlendis sem erlendis. En núna er höfundurinn Gyða sjálf. Evolution var tekin upp ásamt Alex Somers en meðverkamenn voru Shahzad Ismaily, Albert Finnbogason, Aaron Roche, Julian Sartorius og Úlfur Hansson. Hljóðritun fór fram í New York og Los Angeles, á tveimur tíu daga tímabil- um og var einn frídagur þar á milli. Kjöraðstæður voru í boði, líkamlega sem sálrænt séð, góður matur, grænt te og hugleiðsla með reglubundnum hætti. Flæðið er, Tökunum sleppt líkt og á Epicycle, draumkennt og óheft, líkt og tónlist- in sé samin og flutt í einhverjum handanheimi. En, og þetta er mikilvægt, þetta eru lögin hennar Gyðu og henni tekst að knýja fram sterk og einstök höfundar- einkenni. Ekkert er gefið, á meðan strengir læðast um og rafhljóð sindra og humma undir og yfir koma söng- raddir inn í blönduna. Og hverfa svo. Þetta er heyrnar- tólatónlist, tækifæri til að slökkva algerlega á sér og njóta. Þversögn einkennir plötuna að einu leyti, hún er kraftmikil og sannfærandi, en um leið viðkvæmnisleg og blíð. En kannski fara þessir þættir einmitt vel sam- an? Gyða er þá eldri en tvævetur í þessum bransa, söng- röddin er notuð á áhrifaríka vegu og sellóleikur henn- ar, í senn skapandi og persónulegur, setur sitt mark á alla framvindu. Ég veit að það er klisjukennt að nota orðið „himneskt“ en stundum á það einfaldlega við. Systir Gyðu, Kristín Anna, kemur þá út með sóló- plötu brátt sem ég bíð spenntur eftir. Undanfarna mán- uði og misseri hafa flætt fram sterkar plötur úr kvennaranni, ég nefni t.d. SiGRÚNU, Heklu, sillus, Kæluna miklu, Hórmóna, kiru kiru, RuGL, Ylju og Ingi- björgu Turchi. Úr poppvænni áttum koma svo GDRN, Hildur, Bríet og fleiri. Er þetta allt saman afskaplega vel, tilraunakenndar hliðar tónlistarinnar hafa flætt fallega fram á þessum vettvangi og ég bíð dálítið eftir því – og vona – að næsta stóra „bylgja“ verði „r og b“ tónlist leidd af Hildi og félögum. Eftir að hafa unnið með tónverk annarra á hinni mögnuðu Epicycle snýr Gyða Valtýsdóttir sér að eigin sköpun. Útkoman er platan Evolu- tion, sem út kom í gær. Himnesk Gyða er beintengd al- mættinu á plötunni Evolution.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.