Morgunblaðið - 13.10.2018, Side 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Ný tónleikaröð, Jazz í Salnum, í umsjá
Sunnu Gunnlaugsdóttur hefst á morg-
un, sunnudag, með einleikstónleikum
Marc Copland, djasspíanista og tón-
skálds frá New York. Jazz í Salnum er
tónleikaröð þar sem sjónum er beint að
háklassa djasseinleikurum.
Á efnisskrá sunnudagsins verða
þekkt lög úr bandarísku söngleikjabók-
inni auk tónsmíða Copland.
Djasspíanistinn Marc Copland hefur
komið víða við á löngum ferli og hljóð-
ritað með mörgum þekktum djassleik-
urum eins og Gary Peacock, John
Abercrombie, Joey Baron, Paul Motian
og fleirum.
Að sögn Sunnu Gunnlaugsdóttur er
Copland lýst sem fágætum tónlistar-
manni sem spili eins og ljóðskáld eða
sögumaður án orða. Salinn setji hljóðan
þegar Copland byrji á ballöðu, með
töfrandi litum og þéttofnum raddsetn-
ingum sem leiði hlustandann inn í heim
fallegrar túlkunar sem byggi á djass-
hefð en sé samt ný og alltaf syngjanleg.
Sjái fyrir sér liti og myndir
„Ég var beðinn um að spila á Jazz í
Salnum og hlakka mikið til að spila fyr-
ir íslenska tónleikagesti,“ segir Marc
Copland sem spilar í fyrsta sinn á Ís-
landi.
„Mér líkar best að spila mín eigin
verk þar sem ég bý til einhverskonar
tilfinningu og stemningu sem fær
hlustendur til að halla sér aftur, loka
augunum og sjá fyrir sér liti eða mynd-
ir,“ segir Copland sem tekur fram að
djassinn sem hann semji sé ekki nýald-
artónlist og lög hans séu ekki áleitin á
yfirborðinu.
„Mitt markmið er að semja tónlist
sem fær hlustandann til þess að leita
inn á við og kynnast litum og sam-
hljómi. Flókin músík getur verið bæði
falleg og einföld,“ segir Copland sem
spilað hefur á píanó í 45 ár.
„Ég lærði á saxófón en skipti yfir á
píanó 25 ára gamall. Ég fékk því tæki-
færi á ferli bæði sem saxófónleikari og
píanisti og fyrir það er ég þakklátur,“
segir Copland með þeirri útskýringu
að auðveldara hafi verið að leita inn á
við og koma litunum sem hann sá fyrir
sér í samhljómi á píanói í stað saxafóns
en Copland segir að erfitt hafi verið að
byrja nýjan feril 25 ára gamall.
Copland býr í New York en spilar
mjög mikið í Evrópu og víðar.
„Ég hef verið mikið á ferðinni
undanfarin ár en dró úr ferðalögum í
fyrra og það sem af er þessu ári vegna
andláts meðspilara míns til margra
ára, bassaleikarans Gary Peacock, og
tveggja náinna ástvina,“ segir Copland
sem aldrei hefur vanist ferðalögunum.
Hann segir að það hjálpi mikið til að
stunda jóga, þannig haldi hann sér í
líkamlega góðu formi. Það komi niður
á píanóleik hans ef hann geri það ekki.
Copland stoppar nokkra daga á
Íslandi en þaðan fer hann til Kanada
og í Evróputúr í nóvember.
Tónlistin komi frá hjartanu
Copland segist leggja áherslu á þrjá
þætti í tónlist sem hann semur. „Tón-
listin þarf að vera nútímaleg, falleg og
koma frá hjartanu. Ég vakna á hverj-
um morgni með ný hljóð og nýjar
bylgjur til að spila. Ég skoða þetta
nýja og velti því fyrir mér hvort ég sé
að verða betri eða verri. Kyrrstaða er
ekki í boði og markmiðið er alltaf að
verða betri,“ segir Copland sem segist
lítið finna fyrir því að sinna tónlistinni
100% á ferð og flugi orðinn sjötugur.
„Ég er ekkert öðruvísi en þegar ég
hóf tónlistarferilinn í New York. Ég
hef mikla gleði af því að hlusta á unga
tónlistarmenn og helst ef þeir eru með
eitthvað nýtt og öðruvísi, það sama á
við þegar þeir koma og hlusta á mig og
upplifa eitthvað öðruvísi og nýtt,“ segir
Copland.
Árið 2017 komu út þrír nýir diskar
með píanóleik Copland. Einleiksdisk-
urinn Nightfall og Better By Far og
Diskurinn Tangents með Gary Pea-
cock Trio. Á næstu dögum kemur út
einleiksdiskurinn Gary sem Copland
gefur út í minningu Gary Peacock,
meðspilara hans til áratuga.
Tónleikar Marc Copland hefjast
annað kvöld, sunnudag kl. 20. Næstu
tónleikar í tónleikaröðinni Jazz í Saln-
um verða 16. nóvember með Jacky
Terrason.
Ljósmynd/Guido Werner
Listamaður Marc Copland, er þekktur djasspíanisti sem sækir Ísland heim í fyrsta sinn. Hann spilar á tónleikaröð-
inni JAZZ í Salnum á morgun. Copland er á ferð og flugi um heiminn og gefur yngri tónlistarmönnum ekkert eftir.
Vill að hlustendur sjái
fyrir sér liti og myndir
Marc Copland djasspíanisti á tónleikum í Salnum á morgun
Iceland Noir, al-
þjóðlega glæpa-
sagnahátíðin, og
Storytel, raf- og
hljóðbókaveitan,
hafa gert með sér
samstarfssamn-
ing til næstu
þriggja hátíða.
Þar með er Story-
tel orðið verndari
og aðalstyrktaraðili Iceland Noir.
„Markmið samstarfsins er að efla
framgang glæpasögunnar á Íslandi.
Storytel mun styrkja hátíðina og
leggja þar með öruggan grundvöll
undir framkvæmd hennar og Ice-
land Noir mun leggja sig fram um að
kynna notendum Storytel glæpasög-
ur og þá bókmenntamenningu sem
þeim fylgja,“ segir í tilkynningu. Að
Iceland Noir standa m.a. Ragnar
Jónasson og Lilja Sigurðardóttir.
Storytel verndari
Iceland Noir
Lilja Sigurðardóttir
Franski rithöf-
undurinn Mar-
yse Condé hlýt-
ur bókmennta-
verðlaun Nýju
akademíunnar í
Svíþjóð þetta
árið sem afhent
eru sökum þess
að Nóbels-
verðlaunin í
bókmenntum frestuðust. „Ég er
bæði glöð og stolt,“ segir Condé
sem vill deila verðlaununum með
íbúum Gvadalúp. Hún hlýtur að
launum eina milljón sænskra
króna sem jafngildir um 13 millj-
ónum íslenskra. Verðlaunin eru
afhent við hátíðlega athöfn í
Stokkhólmi 9. desember og í
framhaldinu er Nýja akademían
leyst upp, enda um stakan við-
burð að ræða.
Maryse Condé fær
nýju verðlaunin
Maryse Condé
Færeyingurinn
Bárður Oskars-
son hlaut í gær
barna- og
ungmennabók-
menntaverðlaun
Vestnorræna
ráðsins 2018 fyr-
ir bókina Træið.
Niðurstaðan var
tilkynnt á bók-
menntahátíðinni Mýrinni sem nú
stendur í Norræna húsinu. Í um-
sögn dómnefndar segir að Træið
hafi orðið fyrir valinu sökum ein-
faldleika og skemmtilegra teikn-
inga, sem beri ferskan blæ. „Sagan
sem er sögð bæði í máli og myndum
og býr yfir heimspekilegri dýpt
sem virkar á ólíkum plönum.“ Auk
Bárðar Oskarssonar voru til-
nefndar Maja-Lisa Kehlet frá
Grænlandi fyrir Kammagiitt! Vil du
være min ven! og Kristín Ragna
Gunnarsdóttir fyrir Úlf og Eddu.
Træið verðlaunuð
Bárður Oskarsson
Ronja Ræningjadóttir (None)
Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka
Sun 14/10 kl. 13:00 10. s Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s
Sun 14/10 kl. 16:00 11. s Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka
Lau 20/10 kl. 15:00 Auka Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Sun 2/12 kl. 17:00 24. s
Lau 20/10 kl. 18:30 Auka Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Sun 9/12 kl. 14:00 Auka
Sun 21/10 kl. 13:00 12. s Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Sun 9/12 kl. 17:00 25. s
Sun 21/10 kl. 16:00 13. s Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Lau 29/12 kl. 13:00 Auka
Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Lau 29/12 kl. 16:00 Auka
Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 30/12 kl. 13:00 26. s
Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 30/12 kl. 16:00 27. s
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Sun 28/10 kl. 19:30 11. s Þri 13/11 kl. 19:30 16.s
Fim 18/10 kl. 19:30 7. s Fim 1/11 kl. 19:30 13.s Fös 16/11 kl. 19:30 17.s
Lau 20/10 kl. 19:30 8. s Fös 2/11 kl. 19:30 12. s Lau 17/11 kl. 19:30 18.s
Sun 21/10 kl. 20:00 9. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s
Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Ég heiti Guðrún (Kúlan)
Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Fös 19/10 kl. 19:30 Auka Fim 25/10 kl. 19:30 11.s
Lau 13/10 kl. 19:30 5. s Lau 20/10 kl. 17:00 Auka Fös 26/10 kl. 17:00 Auka
Sun 14/10 kl. 17:00 6.sýn Sun 21/10 kl. 17:00 9. s Lau 27/10 kl. 17:00 Auka
Þri 16/10 kl. 19:30 Auka Þri 23/10 kl. 19:30 10. s Lau 27/10 kl. 20:00 12.s
Mið 17/10 kl. 19:30 7. s Mið 24/10 kl. 19:30 Auka Sun 28/10 kl. 17:00 13.sýn
Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fös 19/10 kl. 19:30 42. s Lau 3/11 kl. 19:30 LOKA
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s
Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s
Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Insomnia (Kassinn)
Fös 9/11 kl. 19:30 Frums Fim 15/11 kl. 19:30 4.s Fim 29/11 kl. 19:30 7.s
Lau 10/11 kl. 19:30 2. s Lau 17/11 kl. 19:30 5.s
Mið 14/11 kl. 19:30 3.s Fös 23/11 kl. 19:30 6.s
Brandarinn sem aldrei deyr
Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 13/10 kl. 11:00 Lau 27/10 kl. 11:00 Lau 10/11 kl. 11:00
Lau 13/10 kl. 13:00 Lau 27/10 kl. 13:00 Lau 10/11 kl. 13:00
Lau 20/10 kl. 11:00 Lau 3/11 kl. 11:00
Lau 20/10 kl. 13:00 Lau 3/11 kl. 13:00
Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 17/11 kl. 11:00 313.s Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s
Lau 17/11 kl. 12:30 314.s Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 11:00 330.s
Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 13:00 331.s
Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Lau 15/12 kl. 14:30 332.s
Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 11:00 333.s
Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 13:00 334.s
Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Sun 16/12 kl. 14:30 335.s
Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Fös 19/10 kl. 22:00
Daður og dónó
Reykjavík Kabarett (Þjóðleikhúskjallarinn)
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Lau 13/10 kl. 20:00 155. s Fim 25/10 kl. 20:00 160. s Sun 4/11 kl. 20:00 aukas.
Sun 14/10 kl. 20:00 156. s Fös 26/10 kl. 20:00 161. s Fim 8/11 kl. 20:00 aukas.
Fim 18/10 kl. 20:00 157. s Sun 28/10 kl. 20:00 162. Fös 9/11 kl. 20:00 164. s
Fös 19/10 kl. 20:00 158. s Fim 1/11 kl. 20:00 aukas. Lau 17/11 kl. 20:00 165. s
Sun 21/10 kl. 20:00 159. s Lau 3/11 kl. 20:00 163. s
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 13/10 kl. 20:00 12. s Fim 25/10 kl. 20:00 aukas. Fös 2/11 kl. 20:00 17. s
Lau 20/10 kl. 20:00 13. s Fös 26/10 kl. 20:00 15. s
Sun 21/10 kl. 20:00 14. s Lau 27/10 kl. 20:00 16. s
Gleðileikur um depurð.
Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið)
Fim 18/10 kl. 20:00 14. s Lau 20/10 kl. 20:00 16. s
Fös 19/10 kl. 20:00 15. s Fim 25/10 kl. 20:00 aukas.
Athugið, sýningum lýkur í byrjun nóvember.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s
Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s
Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s
Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tví-skinnungur (Litla sviðið)
Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s
Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s
Ást er einvígi.
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s
Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s
Litrík jólasýning fyrir þau yngstu.
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 20/10 kl. 20:00 63. s Fös 2/11 kl. 20:00 65. s
Lau 27/10 kl. 20:00
Sing-a-long
Lau 10/11 kl. 20:00 66. s
Besta partýið hættir aldrei!