Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2018, Page 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2018, Page 40
SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2018 DUCA Model 2959 L 215 cm Leður ct. 20 Verð 469.000,- L 241 cm Leður ct. 20 Verð 495.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla JEREMY Model 2987 L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 415.000,- L 202 cm Leður ct. 30 Verð 559.000,- TRATTO Model 2811 L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,- L 207 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,- ESTRO Model 3042 L 164 cm Leður ct. 15 Verð 295.000,- L 198 cm Leður ct. 15 Verð 325.000,- MENTORE Model 3052 L 162 cm Áklæði ct. 83 Verð 299.000,- L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 329.000,- Fljótt á litið blasir ekki við að börn finni efni í ný leikföng í gleraugnaverslunum. Það er þó staðreynd að fólk hefur undanfarin misseri verið að festa kaup á hreinsivökva fyrir augnlinsur í slíkum verslunum til að búa til slím sem lengi hefur verið vinsælt leikfang meðal barna hér heima og erlendis. Þetta staðfestir Guðbjörg Ketils- dóttir, sjóntækjafræðingur hjá gleraugnaversluninni Auganu, í samtali við Sunnudagsblað Morgunblaðsins. Ekki mun þetta þó vera í stórum stíl en einn og einn viðskiptavinur hefur komið í verslunina í þessu augna- miði. „Áhugi á slímgerð hefur verið í gangi öðru hverju undanfarin ár. Fyrst voru börnin á aldrinum 9 til 10 ára en nú eru þau frá 5 ára og upp úr,“ segir Guðbjörg, sem raunar hefur á tilfinningunni að heldur sé að draga úr þessum áhuga frekar en hitt. Beðin um skýringar svarar Guðbjörg: „Ætli þetta stafi ekki af því að fólki þykir skemmtilegra að búa slímið til frá grunni en að kaupa það tilbúið í búð. Eflaust er þetta líka ódýrara. Þetta virkar greinilega vel, annars væri fólk ekki að þessu. Einn byrjar og aðrir vilja líka prófa.“ Spurð hvaðan hugmyndin sé komin svarar hún: „Mjög líklega af YouTube, eins og svo margt annað.“ Söngvarinn Justin Timber- lake verður slími að bráð á barnaverðlaunahátíð í Los Angeles um árið. Reuters Linsuvökvi til slímgerðar Brögð eru að því að keyptur sé hreinsivökvi fyrir augnlinsur í gleraugna- búðum í þeim tilgangi að búa til slím sem börn leika sér með. Dansskóli Rigmor Hanson hóf vetrarstarf sitt á þessum degi fyrir sextíu árum en frú Rigmor var þá nýkomin heim frá megin- landi Evrópu, þar sem hún hafði um sumarið að venju kynnt sér helstu nýjungar í dönsum, auk þess sem hún sótti þing Alþjóða- sambands danskennara. Fréttamaður Morgunblaðsins átti tal við frúna deginum áður, og skýrði hún svo frá, að enn væri calypso vinsælasti dansinn alls staðar, en nýjustu dansarnir væru „quela“ (kwela á Norður- löndum) og „yopp“. Quela er upp runninn í Suður-Afríku, en yopp kom fyrst fram á heimssýn- ingunni í Brussel um sumarið. Kvaðst Rigmor ætla að kenna nemendum sínum í eldri flokk- unum þessa dansa nú þegar, því henni fannst rétt að sýna nem- endum allar nýjungar um leið og þær kæmu fram. „Á þessu stigi málsins er þó erfitt að segja, hvort þessir nýju dansar ná jafn- miklum vinsældum og calypso. Í byrjendaflokkum mun frú Rig- mor fyrst um sinn kenna vals, tango, foxtrot og jive, sem mynda undirstöðuna undir öll- um dansi,“ stóð í blaðinu. Frú Rigmor rak dansskóla í Reykjavík, bæði listdansskóla og samkvæmisdansskóla, til margra ára. Hún bjó um tíma í Danmörku og kenndi þá tungu- mál í kvöldskóla á veturna en var fararstjóri á sumrin, lengst af við Miðjarðarhafið. GAMLA FRÉTTIN Calypso áfram vinsælastur en nýjustu dansarnir quela og yopp Frú Rigmor Hanson danskennari. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Björgólfur Thor Björgólfsson athafnamaður Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður Baldur Rafn Gylfason hárgreiðslumeistari

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.