Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2018, Blaðsíða 16
MISSKILNINGUR 16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.10. 2018 Þýskt aðalsblóð íslenskra kvenna F yrir nokkrum árum fór ég að taka eftir þvíað það var alveg þó nokkuð af konum á Ís- landi með þýsk ættarnöfn,“ segir Anna Mar- grét Björnsson, blaðamaður Iceland Monitor. „Ég hjó eftir þessu í fjölmiðlum og svo minntist ég einu sinni á þetta við vinkonu mína: „Það er alveg merkilegt, ég er búin að sjá alveg tvær eða þrjár konur í fjöl- miðlum sem heita svona þýskum ættarnöfnum.“ Hún skildi ekkert hvað ég var að tala um og þá sagði ég við hana að það væru jú náttúrlega þessi nöfn eins og „Von eitthvað“ – „Von Óskarsdóttir og Von Krist- jánsdóttir“ – og hún horfði á mig alveg blankó. Þetta bar ég fram með f-i – Fon, upp á þýsku. Sérstaklega varð ég hugsi þegar kona sem bar milli- nafnið Von var áberandi í fjöl- miðlum þar sem fjallað var um brúðkaup hennar og þekkts manns í þjóðfélaginu. Ég velti því mikið fyrir mér af hverju í ósköpunum hún væri Von. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en ég ræddi þetta við vin- konu mína að ég hafði alltaf verið að horfa á millinafnið Von, auðvitað borið fram með v-i en ekki f-i, en ekki neitt þýskt aðalsnafna- forskeyti! Ég dauðskamm- aðist mín! Það var bara eins og ég hefði lent í heilafryst- ingu, ég bara gat ekki horft á þetta Vonar-nafn öðruvísi en sem þýskt aðalsheiti og var orðin mjög hissa á að þetta kom milli alíslenskra eigin- nafna og svo kenninafna. Ég held að ef maður byrjar að misskilja eitthvað og bíta eitt- hvað svona í sig sé í raun mjög erfitt að koma sér út þeim misskilningi, þetta verður hreinlega að einhverri mein- loku þótt maður eigi að vita betur.“ Anna Margrét Björnsson Morgunblaðið/Styrmir Kári Kvenmannsnafnið Von er vinsælt í seinni tíð og oft í þessari samsetningu. Þ að sem kemur mér í vandræði, mjög oft,er að ég man aldrei neitt,“ segir Svanhild- ur Hólm Valsdóttir, lögfræðingur og aðstoð- armaður fjármálaráðherra, sem segir að frá yngri árum megi nefna að það hafi verið óþægilega seint sem hún fattaði að borgin vestanhafs hét ekki Neviork en hún lærði snemma að lesa og þótti sjálfsagt að bera „y“ í borgarheitinu fram sem „i“. „Ég hélt líka fram á fullorðinsár að línan í laginu Pínulitlum karli í Þursaflokknum væri „Takið af honum stóru eyrun“ og ég skildi ekkert hvað málið væri með þennan pínulitla karl sem þyrfti að fjar- lægja eyrun af. Ég var í alvörunni kominn fram á fullorðinsár þegar ég fattaði að þetta væri að taka á honum stóra þínum. Það er ekki mér að kenna að fólk geti ekki talað skýrt!“ Hér kemur þó játn- ing játninganna: „Ég hélt sem sagt í nærri heilt ár að Páll Valur Björnsson í Bjartri framtíð væri á þingi fyrir Framsóknarflokk- inn. Hann var bara eitthvað svo „framsóknar- legur“. Alþingi fylltist á þeim tíma, haustið 2013, af nýjum framsóknarmönnum, mikið til fólki sem maður hafði aldrei séð áður og fólki sem leit misjafnlega mikið út fyrir að vera í Framsókn. Og þarna var þessi gaur sem ég hafði ekki tek- ið neitt rosalega mikið eftir í þinginu almennt og hafði einhvern veginn bara sett hann í flokk með öllum nýju fram- sóknarmönnunum. Þangað til það var komið vor 2014 en þá var ég í hliðarsal að spjalla við hann og átt- aði mig á því í spjallinu að hann hafði ekki al- veg sömu afstöðu til ríkisstjórnarinnar og ég. Ég hugsaði með mér að þetta væri nú eitthvað skrýtið viðhorf en sagði ekki neitt, fletti honum svo upp. Þetta var svolítið vandræðalegt því við vorum sko í ríkisstjórn með Framsókn. Ég veit. Úff.“ Svanhildur segist mjög slæm með andlit fólks almennt og taka mun betur eftir mörgu öðru, hún geti þess vegna munað hvenær allir þingmenn eigi afmæli og sé stundum glögg á andlit þegar það skipti engu máli. „Ég get alveg verið handviss á andlit og nöfn B-leikara úr amerískum þáttum sem eng- inn hefur séð. Fólki sem ég sé hins vegar jafn- vel reglulega get ég átt erfitt með að átta mig á. Ég er þess vegna mikill fylgismaður þess að nota nafnspjöld.“ Svanhildur segist löngu hætt að reyna að kjafta sig út hinum og þessum aðstæðum þar sem ómanngleggni hennar sé til vansa. „Þetta er svipað og að vera litblindur. Það eina sem bjargar mér frá fullkominni örvænt- ingu yfir því hvað ég er mikið úti að aka er hvað ég er mikið úti að aka.“ Framsóknarlegi þingmaðurinn Svanhildur Hólm Valsdóttir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon É g er úr sveit og þegar ég var lítillsveitastrákur og mokaði hey hlustaði ég mikið á Metallica sem var uppáhalds- hljómsveitin mín og þá sérstaklega Mast- er of Puppets,“ segir Sigtryggur Magna- son, rithöfundur og aðstoðarmaður samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. „Á þessum tíma í sveitinni las maður bara Tímann og Dag og ég held það hafi verið grein frekar í síðarnefnda blaðinu sem gerði það að verkum að einhver mis- skilningur fer af stað um að Metallica sé sænsk hljómsveit. Ég trúði því í nokkur ár og las nafn James Hetfield og allra hinna með sænskum framburði sem og auðvitað nafn hljómsveitarinnar sjálfr- ar.“ Sigtryggur segir að þrátt fyrir að hann hlusti minna á Metallica í dag sé hún ennþá í uppáhaldi en að hún sé ekki sænsk ætlar seint að fara úr minni hans. „Þetta hafði mikil áhrif á mig. Enn í dag heyri ég alltaf sænska tóna í tónlist- inni og upplifunin af þeim er ramm- sænsk, ég tengi þá mjög sterkt við Abba til dæmis. Sem gefur þungarokkinu reyndar bara smá nýja vídd og ég held ég njóti tónlistar þeirra á allt annan hátt en aðrir.“ Metallica með sænskum hreim Sigtryggur Magnason

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.