Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Page 15
28.10. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
„Ég kom heim í tíu daga til að kveðja pabba og
viðurkenni að það var erfitt að klára ferðalagið
eftir það. Ég dreif mig þó af stað aftur enda
hefðu það verið svik við pabba að klára ekki
ferðina.“
Bók og heimildarmynd
Kristján lauk ferðalaginu í Bandaríkjunum og
kom meðal annars í fyrsta skipti til New Or-
leans. Það var mikil upplifun, ekki síst þegar
tónar fóru að flæða um stræti þessarar miklu
tónlistarborgar. „Það hafði mikil áhrif á mig,
ekki síst vegna þess að ég hafði ekki hlustað
mikið á tónlist í ferðinni. Listir eru ómissandi
hluti af tilveru okkar.“
Kristján flaug heim frá Boston 17. júní 2015
og féll í faðm fjölskyldu og vina, samtals um
sjötíu manns, yfir dögurði á heimili sínu. „Það
var yndisleg stund og gott að koma heim – sem
breyttur maður.“
Kristján tók ekki aðeins mikið af myndum í
ferðinni, ljósmyndum og hreyfimyndum, hann
hélt líka dagbók, samtals 500 blaðsíður. Hann
gleðst yfir því framtaki í dag enda „er ótrúlegt
hversu mörgu maður gleymir. Dagbókin var í
senn ferða- og sálufélagi á leiðinni.“ Þetta efni
er grunnurinn að bók sem kom út í vikunni og
heimildarmynd sem gerð hefur verið um
ferðalagið.
Bókina, Hringfarann, skrifar Helga Guðrún
Johnson upp úr dagbókarfærslum Kristjáns
en hún er í stóru broti, ríkulega myndskreytt.
„Þetta er mjög persónuleg bók,“ segir Krist-
ján. „Hún er ekki bara uppgjör við þetta ferða-
lag, heldur líf mitt í heild. Þroskasaga mið-
aldra manns. Ég er mjög einlægur þarna og
það hefur fært mér mikinn styrk,“ segir hann
en bókin kemur einnig út á ensku undir heitinu
Sliding Through.
Heimildarmyndina gerði Sagafilm og verður
hún sýnd í þremur hlutum í Ríkissjónvarpinu í
nóvember og desember.
Innkoman í styrktarsjóð
Kristján gefur bókina út sjálfur og stóð
straum af kostnaði við gerð heimildar-
myndarinnar. Öll innkoma af hvoru tveggja
rennur óskipt í styrktarsjóð sem Kristján og
eiginkona hans hafa sett á laggirnar og er
ætlað er að sporna við eiturlyfjaneyslu ungs
fólks.
„Þetta er svo persónulegt allt saman að ég
gat ekki hugsað mér að hafa tekjur af þessu;
það væri eins og að selja sjálfan sig,“ út-
skýrir Kristján. „Þannig að þetta varð niður-
staðan. Ég var minntur rækilega á eyðilegg-
ingarmátt eiturlyfja á ferðalaginu en þess
utan á ég tvo gamla vini sem orðið hafa fíkn-
inni að bráð. Þetta stendur mér því nærri.“
Hægt er að panta bókina á þar til gerðri
heimasíðu, hringfarinn.is.
Frúin slæst í för
Kristján lét ekki staðar numið eftir heims-
reisuna – og nú er eiginkona hans komin á
hjólið með honum. Í vor fóru þau yfir Banda-
ríkin þver og endilöng, köstuðu mæðinni í
viku áður en þau héldu til Rússlands og fleiri
ríkja í Austur-Evrópu. Sáu meðal annars
alla leiki Íslands á HM. Enduðu svo í Þýska-
landi.
Í haust lá svo leiðin í gegnum fleiri Evrópu-
ríki til Grikklands en þeirri ferð lauk fyrir
rúmri viku. „Næsta vor ætlum við til Ísraels og
ég er búinn að segja konunni að ég sé líka á
leiðinni til Suður-Afríku. Lítist henni ekki á
það er henni frjálst að hoppa af,“ segir hann
sposkur á svip.
„Við erum bæði sest í helgan stein og þetta
er okkar hlutverk í dag. Okkar lífstíll.“
Morgunverðurinn hjá Hossein-fjölskyldunni í Íran.
Með tyrkneskum blómarósum í Istanbúl.
Úlfaldasýning fyrir ferðamanninn frá Íslandi í Óman.
Fólk að verka ull við Tatvan í Tyrklandi.
Ljósmyndir/Úr einkasafni
Kristján og Baldur sonur
hans tjölduðu í Andes-
fjöllunum í 4.400 m.y.s.
Áhugasamir söfnuðust alltaf í kringum Kristján þegar hann stoppaði á Indlandi.