Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Qupperneq 24
Hrikalegt á
hrekkjavöku
GettyImages/iStockphoto
Hrekkjavaka er á miðvikudaginn og eru margir
hérlendis farnir að halda upp á hana. Hér er stung-
ið upp á hrekkjavökuréttum sem eru bæði við hæfi
barna og fullorðinna en víst er að þeir
munu allir slá í gegn í boðinu.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2018
MATUR
1 stórt eða tvö lítil grasker
(butternut squash), skræld,
fræin tekin úr og skorin í bita
4 hvítlauksgeirar, skornir í
sneiðar
lúka af salvíulaufum (má líka
nota timían)
½ teskeið chili-flögur
¼ bolli jómfrúarólífuolía
500 g svart spagettí eða ling-
uine
salt og pipar eftir smekk
parmesanostur eftir smekk
Hitið ofninn í 200°C með
blæstri. Blandið saman gras-
keri, hvítlauk, salvíu, chili-
flögum, olíu, salti og pipar í
ofnskúffu. Grillið þangað til
graskerið er orðið mjúkt
eða í um 25 mínútur en það
má brúnast á endum.
Á meðan það er að grill-
ast sjóðið pastað eftir leið-
beiningum. Þegar pastað er
tilbúið, geymið hálfan bolla
af soðvatninu.
Takið ofnskúffuna út og
hellið pastavatninu á pönnuna
til að losa graskerið. Blandið
grænmetinu saman við past-
að og berið fram með (veg-
legum) skammti af parmesan.
Svart pasta með grilluðu
graskeri, salvíu og parmesan
1 kg grasker (t.d. butternut
squash), skrælt, fræin tekin úr
og skorið í bita
2 laukar, smátt skornir
2 msk. ólífuolía
700 ml grænmetis- eða kjúk-
lingasoð
150 ml matreiðslurjómi
salt og pipar eftir smekk
Hitið ólífuolíu í potti og
steikið laukinn á vægum
hita þangað til hann verður
mjúkur en brúnast ekki.
Bætið við graskerinu og
eldið í 8-10 mínútur í viðbót
þangað til graskerið byrjar
að mýkjast. Hellið soðinu
útí og látið sjóða við vægan
hita í um 10 mínútur eða
þangað til graskerið er orð-
ið mjög mjúkt.
Hellið rjómanum útí, lát-
ið sjóða upp á nýtt og
maukið með töfrasprota.
Listhneight fólk getur síð-
an gert tilraun til þess að
skreyta súpuna með sýrð-
um rjóma eða grískri jógúrt
líkt og gert er á myndinni.
Maukuð graskerssúpa