Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2018
HEILSA
Pistill
Stefán Einar
Stefánsson
ses@mbl.is
ÞYNGD SKREFAFJÖLDI MATARÆÐI ÆFINGAR
92,9 kg
85,2 kg
84,4 kg
Upphaf:
Vika 6:
Vika 7:
40.280
51.279
12.737
12.810
4 klst.
3 klst.
HITAEININGAR
Prótein
25,2%
Kolvetni
38,4%
Fita
36,4%
Ertu bakveikur?“ spurði hannmig örfáum mínútum eftir aðvið hittumst. Ég varð að játa
því en ég þvertók fyrir að verkur-
inn sem fylgdi brjósklosinu um árið
hefði leitt út í hægri löppina. „Þá er
hægri löppin á þér styttri en sú
vinstri,“ sagði hann þá án þess að
blikna. Það var honum áreynslu-
laust en mér fannst þetta full-
umbúðalaust enda hafði ég talið
mig geta sagt, fullum fetum, líkt og
Gunnlaugur ormstunga forðum er
hann hitti Eirík jarl Hákonarson:
„Eigi skal haltur ganga meðan báð-
ir fætur eru jafnlangir.“
Maðurinn sem eyðilagði það fyrir
mér heitir Lýður B. Skarphéðins-
son. Gárungarnir myndu segja að
hann væri kominn að fótum fram –
en þó í allt annarri merkingu en
hinni upprunalegu. Hann rekur
nefnilega fyrirtækið Göngugrein-
ingu og hefur frá aldamótum tekið
um 40 þúsund Íslendinga í einmitt
það sem heiti fyrirtækisins vísa í.
Bakið er einfaldlega orðið
betra en í upphafi átaks
Ég er kominn til að hitta hann af
einni einfaldri ástæðu. Æfingar síð-
ustu vikur, undir handleiðslu Ívars
Guðmundssonar einkaþjálfara hafa
gert það að verkum að ég er miklu
betri í bakinu en ég hef verið allt
frá árinu 2015 þegar brjósklosið
dundi yfir. Það var enda markmiðið
enda leggur hann mikla áherslu á
að æfa „miðjuna“ eins og það er
kallað, maga og bak. „Stefán, lík-
amanum, þyngd hans, er haldið
uppi af hryggjarsúlunni. Ef þú
styrkir ekki vöðvana sem styðja við
hana, þá lendir þú í veseni. Það er
bara þannig,“ sagði hann við mig
þegar við hittumst fyrst til að ræða
átakið framundan.
Og nú finn ég að bakið er mun
betra en það var. Ég hef trú á að ég
geti styrkt það enn frekar með góð-
um æfingum. En um leið og seyð-
ingurinn er horfinn og styrkurinn
eykst, vakna líka gamlir hlaupa-
draumar! Nú skulum við vona að
bæklunarlæknirinn sem tók á móti
mér 2015 sé ekki að lesa þetta, enda
sagði hann að ég myndi aldrei
hlaupa framar.
En af því að mig langar til að
prófa mig áfram og kanna hvort ég
geti hlaupið, þótt það yrðu ekki
nema 2, 3 eða 5 km, er það tilraun-
arinnar virði. Og þá vil ég fara rétt í
það og góður maður benti mér á að
tala við Lýð.
Lítið verð fyrir
mikilvægar upplýsingar
Ég bóka hjá honum tímann og
greiningin tekur skamma stund.
Það latti mig ekki heldur að sjá að
hún kostar ekki hvítuna úr aug-
unum, 5.990 kr. Ég fer á hlaupa-
bretti og geng þar í nokkra stund
meðan myndavél aftan við hælana
er látin ganga. Ég fer á þar til
gerða mottu sem metur göngulagið
og svo mælir hann mig með ýmsum
tækjum sem ég hef aldrei, fyrr né
síðar, augum litið.
Og viti menn. Lýður sá það um leið
og við hittumst, sem mælitækin stað-
festu. Hægri fóturinn er 6 mm styttri
en sá vinstri. „Þú varst með allan
þungann í hægri fætinum. Það er
ekki óeðlilegt, annaðhvort er það til
þess að hlífa sér eða það sem er ekki
síður sennilegt, að líkaminn leitar
alltaf í lægstu stöðu,“ segir Lýður.
Og hann er ekki hættur. „Það
kann vel að vera að þessi munur og
skekkjan sem hann leiðir af sér,
jafnvel þótt þetta séu ekki nema 6
mm, hafi haft sitt að segja um
brjósklosið á sínum tíma. Það sem
er illa stillt slitnar hraðar en það
sem er vel stillt.“ Og þá verður mér
hugsað til þess þegar ég þurfti að
fara með bílinn í hjólastillingu því
framdekkin slitnuðu svo misjafn-
lega í akstrinum. Það sama á ef-
laust við um brjóskið og liðina í
mannslíkamanum. Og Lýður sýnir
mér myndgreininguna. Hún sýnir
augljóslega meiri þunga niður í
hægri löppina en þá vinstri. Þá sýn-
ir upptakan af göngulaginu að
þunginn niður í hælinn er ekki rétt-
ur hægra megin og skýrist það af
fyrrnefndri skekkju eða vindu sem
kemur á líkamann vegna „hæðar-
munarins“.
En hvað er þá til ráða. Lýður
leggur til að ég fái mér innlegg sem
rétti löppina af, hækki hana og jafni
álagið í stiginu. Til þess notast
hann við innlegg sem hann hefur
þróað í samvinnu við þýskt stoð-
tækjafyrirtæki en þau eru búin til
úr höggdempandi efni sem veita
góðan stuðning undir iljarboga og
táberg ásamt styrkingum og hækk-
unum sem ákvarðaðar eru út frá
greiningunni.
Munar um sex millimetra
Og það er svo sem ekki ókeypis. Ég
kaupi innlegg í skó á 18.990 ásamt
þar til gerðum púðum sem ég nota í
skó sem ekki rúma innleggin (það á
við um spariskó og inniskó). Og
með púðunum sem ég fæ strax af-
henta finn ég muninn. Það er í raun
ótrúlegt hvað þessir 6 mm gera.
Þegar ég set þá í hægri skóinn og
geng þá finn ég að líkaminn er í
betri stöðu en þegar ég stend á
jafnsléttu eða án upphækkunar í
skóm.
En þá er ekki öll sagan sögð.
Skórnir voru lagðir á hilluna fyrir
tæpum 4 árum og þá þegar voru
þeir orðnir slitnir – enda var ég í
fullum undirbúningi fyrir Stokk-
hólmsmaraþonið þegar ég þurfti
skyndilega að hætta. Þess vegna
þarf ég nýja skó sem vinna ekki
gegn mér í hlaupatilrauninni. Lýð-
ur leggur til mýkstu skóna frá Bro-
oks sem draga sem mest úr högg-
inu upp í fótinn og bakið. Sú tillaga
leggst vel í mig, enda var ég mikill
Brooks-maður á sínum tíma. Allir
hlauparar þekkja þessi tímabil.
Fyrst átti ég Nike-tímabilið milli
2001 og 2005, svo kom ASICS tím-
inn frá 2005-2012 og frá þeim tíma
komst ekkert annað að en Brooks.
Sá framleiðandi hefur greinilega
haldið sjó – eða við skulum vona
það að minnsta kosti.
Ég á svo endurkomu til Hlaupa-
greiningar í janúar. Fram að þeim
tíma ætla ég að prófa að hlaupa á
ný. Og þá mun loks sjást undir ilj-
arnar á mér.
„Og þá sást undir iljarnar á honum“
Það er aldrei gott að hlaupast undan ábyrgð, ekki heldur þegar heilsan er annars vegar. En núna
ætla ég að hætta mér út á braut sem ég vona að ég þurfi ekki að sjá eftir að hafa gert.
Lýður metur gögnin sem
mælitækin matreiða eftir
stuttan göngutúr á mottunni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Langar þig í
ný gleraugu
Velkomin til okkar