Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Blaðsíða 36
UPPISTAND Grínistinn Sarah Silverman hefur beðist af-
sökunar á því að hafa talað ógætilega um tilhneigingu koll-
ega síns og vinar Louis CK til að fróa sér fyrir framan kon-
ur. Í útvarpsþætti Howards Stern kvaðst Silverman hafa
þekkt Louis CK um árabil og þegar þau voru yngri
hafi hún stundum leyft honum að fróa sér fyrir
framan sig. „Andskotinn hafi það; þetta vil ég sjá!“
Hún tók þó skýrt fram að með þessu væri hún ekki að
bera í bætifláka fyrir vin sinn en fjöldi kvenna hefur sakað
hann um kynferðislega áreitni. Ein þeirra, leikkonan Re-
becca Corry, gagnrýndi Silverman í kjölfarið, í hennar
tilviki hefði fróunin ekki verið með hennar samþykki.
„Hann er skaðvaldur sem níddist á konum árum sam-
an og laug til um það,“ sagði Corry.
Silverman á hálum ís
Sarah
Silverman.
AFP
RÚV Fyrir
viku hófust
sýningar á Pat-
rick Melrose,
nýrri leikinni
þáttaröð í
fimm hlutum
með Benedict
Cumberbatch í
aðalhlutverki.
Þættirnir segja frá Patrick Mel-
rose sem er úr efnaðri fjöl-
skyldu, en faðir hans var
ofbeldisfullur og móðir hans
vanrækti hann. Erfið æskan hef-
ur leitt hann út í fíkniefnaneyslu
en þegar hann fréttir andlát föð-
ur síns reynir hann að ná tökum
á lífi sínu. Þættirnir hafa hlotið
tilnefningu til fimm Emmy-
verðlauna.
Benedict
Cumberbatch
Í klóm fíknar
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2018
LESBÓK
MÁLMUR Gömlu brýnin í Mötley Crüe hafa
hljóðritað fjögur ný lög fyrir leikna kvik-
mynd um sögu sveitarinnar, The Dirt, sem nú
er í vinnslu. Áratugur er síðan fjórmenning-
arnir sendu síðast frá sér efni en upptökum
stjórnaði Bob Rock sem hljóðritaði vinsæl-
ustu plötu sveitarinnar, Dr Feelgood, árið
1989. Í færslu á Twitter segir Nikki Sixx
bassaleikari nýja efnið koma til með að
ganga í skrokk á fólki, svo öflugt sé það.
„Hafið engar áhyggjur. Við vitum hvað við
erum að gera,“ segir hann. Jeff Tremaine
mun leikstýra myndinni sem gerð er fyrir
efnisveituna Netflix.
Leikin mynd og ný lög frá Mötley Crüe
Mötley Crüe-liðar fjallhressir að vanda.
Reuters
STÖÐ 2 „Ég svaf
oft undir rúminu,
horfði upp á fólk
deyja í íbúðinni og
fékk mér fjögurra
ára gamall sjálfur
að borða því
mamma var áfeng-
isdauð, það finnst
mér vera ljótt,“
sagði Páll Snorrason, einn viðmæl-
enda Sindra Sindrasonar í þátt-
unum Fósturbörn sem sýndir eru á
sunnudagskvöldum. Í þáttunum
heyra áhorfendur sögur foreldra
sem misst hafa börn sín frá sér, eru
allt annað en sáttir við starfsmenn
barnaverndarnefnda og fólkinu
sem tekur við börnunum og hræðist
ekkert meira en að þau fari til
baka.
Undir rúmi
Sindri
Sindrason
SJÓNVARP SÍMANS Kvikmyndin Hateship
Loveship með Kristen Wiig, Guy Pearce og
Hailee Steinfeld er á dagskrá á laugardags-
kvöldið. Táningsstúlka ákveður ásamt vinkonu
sinni að hrekkja og blekkja heimilishjálp afa
síns með því að senda henni ástarbréf í nafni
föður síns. Þegar sannleikurinn kemur í ljós
upphefst atburðarás sem enginn hefði getað
séð fyrir.
Hailee Steinfeld
leikur í myndinni.
Ást og hatur
Þetta eru grínþættir meðtragikómísku ívafi. Lífsinsdrama sem getur verið grát-
broslegt,“ segir Vala Kristín
Eiríksdóttir sem fer með eitt af að-
alhlutverkunum í nýjum íslenskum
gamanþáttum, Venjulegu fólki, sem
koma í heild inn á Sjónvarp Símans
2. nóvember næstkomandi. Um er
að ræða sex hálftíma þætti sem
Vala segir upplagt að horfa á í hlut-
um eða eins og langa bíómynd í
beit. Hvort sem henti fólki betur.
Hermt er af tveimur ungum vin-
konum, sem Vala og Júlíana Sara
Gunnarsdóttir leika, sem báðar eru
útskrifaðar leikkonur. Önnur er
komin með mann og tvö börn og
hefur lagt leiklistardrauminn á hill-
una í bili. Hin er einhleyp, ekki eins
staðföst og rígheldur í drauminn
enda þótt flest gangi henni í mót.
Heldur bara áfram að berja höfðinu
við steininn.
Boðið að stjórna þætti
Vatnaskil verða þegar þeim tveim-
ur er óvænt boðið að stjórna nýjum
sjónvarpsþætti fyrir Sjónvarp Sím-
ans. Hvernig höndla þær ábyrgðina
sem því fylgir og hvaða áhrif hafa
velgengnin og yfirborðskenndar
hvatir á vináttu þeirra?
Vala og Júlíana eru sjálfar höf-
undar handrits ásamt Fannari
Sveinssyni, fyrrverandi hraðfrétta-
manni, og Halldóri Halldórssyni,
Dóra DNA. „Eftir að við Júlíana
gerðum sketsaþættina Þær tvær
hafði Sjónvarp Símans samband og
spurði hvort við hefðum áhuga á að
gera meira efni fyrir stöðina. Þeir
opnuðu sumsé samtalið. Við vorum
heldur betur til í tuskið en langaði
að þessu sinni að skrifa sögu en
ekki sketsa. Við fengum Fannar
strax til liðs við okkur og þegar
grunnhugmyndin var komin á blað
bættist Dóri í hópinn. Hann var al-
gjörlega magnaður, beitti sínum
töfrabrögðum og varð einskonar
skrif-pabbi á seinni stigum enda
vorum við hin öll að gera þetta í
fyrsta skipti,“ segir Vala.
Fannar leikstýrir
Auk handritsskrifanna leikstýrir
Fannar þáttunum og segir Vala
samstarfið hafa gengið eins og í
sögu. „Fannar er algjörlega á
heimavelli í leikstjórninni.“
Hún segir um algjöran draum að
ræða en um leið hafi verkefninu
fylgt gríðarleg ábyrgð. Úr því þeim
var treyst hafi þau orðið að koma
með boðlega hugmynd.
Spurð hvort þættirnir byggist á
lífi þeirra Júlíönu sjálfra skellir
Vala upp úr. „Tja, karakterarnir
heita Vala og Júlíana, eru leikkonur
og eru að vinna efni fyrir Sjónvarp
Símans. Júlíana á mann og tvö börn
en ég var einhleyp þegar við byrj-
uðum að skrifa þættina. Samt er
þetta ekki okkar líf, sumt er líkt en
annað ólíkt. Eins og gengur. Sækir
maður ekki alltaf að einhverju leyti
í eigin reynsluheim í verkefnum
Vonandi
bara
byrjunin
Nýir íslenskir gamanþættir,
Venjulegt fólk, koma í heild
sinni inn í Sjónvarp Símans
Premium 2. nóvember nk.
Þar hermir af tveimur leik-
konum sem fá tækifæri til að
stíga inn í sviðsljósið. Að-
standendur segja um algjör-
an draum að ræða en um
leið hafi verkefninu fylgt
gríðarleg ábyrgð.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is
Sími: 535 9000 | bilanaust.is
Gæði, reynsla og gott verð
Vottaðir hágæða
VARAHLUTIR
í flestar gerðir bifreiða
Siðan 1962
Bílanaust er einnig í Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum