Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Síða 37
sem þessum?“ veltir hún fyrir sér.
Hilmar Guðjónsson og Arnmund-
ur Ernst Backman fara líka með
veigamikil hlutverk í þáttunum.
Hilmar leikur eiginmann Júlíönu en
Arnmundur pilt sem fer að gera
hosur sínar grænar fyrir Völu um
það leyti sem alvara lífsins skellur
á henni af fullum þunga. „Þeir
standa sig báðir frábærlega,“ segir
Vala.
Margir svitadropar féllu
Hún segir ferlið í senn hafa verið
lærdómsríkt og skemmtilegt en það
tók óvenju skamman tíma. „Þetta
tók ekki nema hálft ár, frá því hug-
mynd kviknaði og þangað til gerð
þáttanna var lokið sem mér skilst
að sé mjög óvenjulegt. Þá höfðu
margir svitadropar fallið. En þökk
sé ótrúlegu fólki sem kom að þessu
með okkur þá eru þættirnir til-
búnir. Það er örugglega fullt af
mistökum þarna en það er bara
eðlilegur partur af lærdómsferlinu.
Ef maður er of hræddur við að
gera mistök gerir maður aldrei
neitt. Nú bíðum við bara spennt
eftir viðtökum. Vonandi kemur fólk
til með að hafa gaman af þessu.“
Spurð hvort hún geti hugsað sér
að gera fleiri sjónvarpsþætti í fram-
tíðinni er Vala fljót til svars: „Já,
heldur betur. Vonandi er þetta bara
byrjunin.“
Vala Kristín Eiríks-
dóttir og Júlíana Sara
Gunnarsdóttir þiggja
holl ráð á setti.
Fannar Sveinsson leikstjóri að störfum. Hann tók einnig þátt í handritsskrifum.
28.10. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
TÓNLIST Orðin 85 ára er Yoko Ono hvergi af baki
dottin, á ennþá brýnt erindi og er ólíkleg til að setjast í
helgan stein í bráð. Þetta er niðurstaða gagnrýnanda
breska blaðsins The Guardian en Ono sendi nýverið frá
sér sína fjórtándu sólóskífu, Warzone. Segja má að það
séu góðu fréttirnar í skrifunum. Vondu fréttirnar eru
þær að platan er of kaótísk og ójöfn til að þagga niður í
þeim sem efast hafa um hæfileika listakonunnar gegn-
um tíðina. Fyrir vikið úthlutar blaðið plötunni þremur
stjörnum af fimm. Að sögn gagnrýnandans má skipta
Warzone í tvennt; ómstrítt og ómþýtt efni. Ono leiti ann-
ars vegar í framúrstefnu-arfleifð sína og hins vegar sé
að finna angurværar píanó- og gítarballöður sem séu
hefðbundnari að allri gerð.
Hvergi af baki dottin
Íslandsvinurinn
Yoko Ono.
Morgunblaðið/Golli
ROKK Gítarleikarinn Nita Strauss, sem gert
hefur garðinn frægan með Alice gamla
Cooper og Iron Maiden-ábreiðubandinu The
Iron Maidens, er í þann mund að senda frá
sér fyrstu sólóskífuna, Controlled Chaos, sem
innhalda mun eingöngu instrúmental lög.
„Platan er allt frá því að vera létt og
skemmtileg yfir í það að vera ágeng og
myrk. Hún er í senn friðsæl og kaótísk og
hlustandanum gefst tækifæri til að kynnast
persónuleika mínum og sjá hvað er á seyði í
höfðinu á mér,“ sagði Strauss í samtali við
bandarísku útvarpsstöðina Q103 en hún er
afkomandi tónskáldsins Johanns Strauss II.
Skipulagt kaos hjá Strauss
Nita Strauss er komin af miklu tónlistarfólki.
Well the South side of Chicago
Is the baddest part of town.
Þetta söng Jim heitinn Croce í sínu þekktasta
lagi, Bad, Bad Leroy Brown, árið 1973. Leroy þessi
var maður sem enginn vildi mæta og allra síst í
dimmu húsasundi.
Já, lífið fer ekki alltaf mjúkum höndum um íbúa
suðurhluta Chicagoborgar. Það vita allir sem fylgst
hafa með bandarísku útgáfunni af spédramanu
Shameless í sjónvarpinu. En fólkið þarna bjargar
sér. Maður lifandi.
Sjónvarp Símans hóf í vikunni sýningar á annarri
seríu sem gerist í suð-
urbæ Chicago, The
Chi. Ef marka má
fyrsta þáttinn verður
þar höfuðáhersla á
drama en ekki spé.
Ugglaust skynsamlegt
enda erfitt að toppa
sýrustigið í Shameless.
Brandon Johnson er
ungur matreiðslumað-
ur sem dreymir um að
opna sinn eigin veit-
ingastað ásamt unn-
ustu sinni, Jerriku. En lífið í suðurbænum getur tekið
krappar beygjur og það fær Brandon að reyna á eig-
in skinni þegar yngri bróðir hans er myrtur með
köldu blóði. Fyrir misskilning.
Einnig voru kynntir til sögu Ronnie, morðingi
bróðurins, miðaldra maður í tilvistarkreppu; skóla-
strákurinn Kevin, sem
verður vitni að morðinu,
og kvennaljóminn
Emmett sem kennd eru
fleiri börn en hann kærir
sig um. Hann kaupir þýfi
af bróður Brandons
skömmu áður en hann
yfirgefur þennan heim.
Þannig fléttast sögur
þessara fjögurra ólíku
manna saman og fram-
vindan verður forvitni-
leg.
Helstu persónur í nýja þættinum, The Chi.
ENN ER ORT UM SUÐUR-CHICAGO
Suður-
bæjarblús
Shameless-gengið lætur sér fátt fyrir brjósti brenna .
Breiðumörk 1c, 810Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 4834700 / fax: +354 4834775
Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar
til afþreyingar tryggja betri fundarhlé.
Fundarfriður áHótelÖrk
ÁHótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr
yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og
félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum.