Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Qupperneq 40
SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2018
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
* Taxfree tilboðið gildir af öllum vörum nema vörum frá
IITTALA og SKOVBY og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði.
Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
Allar vörur á
taxfree tilboði*
TAX
FREE
LÝKUR
Á
M
ÁNUDAG
www.husgagnahollin.is
V E
F V E R S L U N
A
LLTAF OP
IN
Á ráðstefnunni á miðvikudaginn verður fjallað um börn, ungt
fólk og miðlun til framtíðar. Í stefnu RÚV til ársins 2021 eru
fimm stefnuáherslur sem unnið er eftir. Ein þeirra er „fyrir
framtíðina“. Meginmarkmiðið með henni er að þjóna betur ungu
fólki, skilja betur þarfir þess og miðlanotkun og leita leiða til að
mæta væntingum þess.
Erlendir gestir taka þátt í ráðstefnunni og miðla af reynslu
sinni, þær Alice Webb sem leiðir þjónustu BBC við börn (BBC
Children) og Hildri Gulliksen sem veitir barnaþjónustu NRK
(NRK Super) forstöðu. Einnig verður fjallað um fjölmiðlanotk-
un íslenskra ungmenna, stefnu RÚV og þjónustu við börn og
ungmenni. „Við beinum sjónum að KrakkaRÚV og RÚVnúll
með sérstaka áherslu á samstarfsverkefni sem vakið hefur at-
hygli og verið virðisaukandi fyrir samfélagið. Hvaða möguleikar
liggja í samstarfi á sviði fræðslu- og menntamála? Hvaða tæki-
færi liggja í nýrri tækni og hvernig styður RÚV við íslenskt mál
og hvetur til lesturs?“ segir í kynningu.
Sigyn Blöndal
hefur umsjón með
Stundinni okkar.
Börn og miðlun til framtíðar
KrakkaRÚV á að mæta þörfum barna.
Ljósmynd/Arnþór Birkisson
Miðvikudaginn 31. október efnir Ríkisútvarpið til ráðstefnunnar
Næst á dagskrá í aðalmyndverinu í Útvarpshúsinu.
Blikur voru á lofti haustið 1938
og 28. október hermdi Morgun-
blaðið af ræðu sem Franklin D.
Roosevelt Bandaríkjaforseti
hafði flutt um alþjóðamálefni í
útvarpi kvöldið áður. Þar sagði
hann meðal annars að enginn
vafi væri á því, að almenningur
hvarvetna um heim þráði lang-
varandi frið, en það væri ekkert
annað en tálvon að gera ráð fyr-
ir friði, ef yfirráð laga og réttar
væru úr gildi numin og ofbeldið
hafið til skýjanna og sett í þeirra
stað, eða ef þjóðernisleg stjórn-
málastefna væri rekin af svo
mikilli óbilgirni að undan
hrammi hennar væri þúsundum
flóttamanna stökkt út um lönd,
sem enginn vildi hafa neitt með
að gera og hvergi ættu höfði
sínu að að halla. Þarna vísaði
Roosevelt vitaskuld fyrst og
fremst til Adolfs Hitlers, kansl-
ara Þýskalands.
Hann sagði ennfremur, að
aldrei gæti orðið um frið að
ræða á jörðinni meðan stórum
þjóðum væri ekki leyft að hugsa
sínar eigin hugsanir, láta sínar
eigin tilfinningar í ljósi, ákveða
sjálfar örlög sín og tilbiðja guð
sinn án áreitni ríkisvaldsins.
GAMLA FRÉTTIN
Tálvon
um frið
Franklin D. Roosevelt Bandaríkjaforseti vildi fyrir áttatíu árum að stórum
þjóðum yrði leyft að hugsa sínar eigin hugsanir og ákveða sjálfar örlög sín.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Gunnlaugur M. Sigmundsson
fv. alþingismaður
Stefán Eiríksson
borgarritari
Guðbergur Bergsson
rithöfundur