Fréttablaðið - 02.03.2019, Blaðsíða 40
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Það er vissulega hægt að hafa venjulegar farsbollur á bolludag. Er ekki samt gaman
að breyta aðeins til og hafa annars
konar bollur? Það er hægt að bera
bollurnar fram á ýmsan hátt, til
dæmis í míní hamborgarabrauði,
pítubrauði eða bara eins og þær
koma fyrir. Hér koma nokkrar
uppskriftir ef einhver vill prófa.
Tapas kjötbollur
fyrir fjóra
Litlar kjötbollur geta verið fingra-
matur í veislum en þær eru ekki
síður góðar í kvöldmat. Hægt er
að krydda þær á ýmsan hátt. Þessi
uppskrift er með litlum, vel krydd-
uðum bollum.
400 g svínahakk
2 skalottlaukar
½ rauður chilli-pipar
1 tsk. hafsalt
½ tsk. nýmalaður pipar
½ tsk. múskat
1 tsk. óreganó
2 msk. brauðrasp
Smábollur á bolludaginn
Bolludagur er á mánudaginn. Flestir hafa einhvers konar bollur á borðum þennan dag, ekki bara
rjómabollur heldur einnig kjöt- eða fiskbollur. Hægt er að gera margvíslegar útgáfur af bollum.
Bollur er hægt
að útbúa á
margan hátt.
Kjötbollur með spagettí er vinsæll fjölskylduréttur.
Kjötbollur eru góðar í samlokur.
1 egg
2 msk. smjör
1 msk. smátt skorið timían
2 hvítlauksrif
Skerið lauk og chilli-pipar mjög
smátt og blandið saman við hakkið
ásamt salti, kryddi og brauðraspi.
Hrærið vel saman og bætið egginu
við. Útbúið litlar bollur með
lófunum.
Steikið bollurnar upp úr smjöri á
meðalheitri pönnu. Bætið hvítlauk
og timían á pönnuna í lok steiking-
artímans og lækkið hitann. Látið
allt malla í nokkrar mínútur og
hreyfið bollurnar á pönnunni.
Berið fram með salsa, hvítlauks-
sósu og góðu brauði eða öðru eftir
smekk.
Kjúklingabollur með
sítrónu og mango chutney
fyrir fjóra
Kjúklingabollur eru mjög góðar.
Hægt er að bera þær fram með
sósu, grænmeti og kartöflum.
Sítróna og mango chutney gefa
bollunum skemmtilegt bragð.
800 g kjúklingahakk
1 tsk. hafsalt
¼ tsk. nýmalaður pipar
3 hvítlauksrif
1 laukur, mjög smátt skorinn
Rifinn börkur af einni sítrónu
1 ½ msk. mango chutney
1 tsk. chilli-mauk (eða sósa)
1 egg
2 msk. olía eða smjör til steikingar
Saltið hakkið og hrærið vel
saman ásamt öðrum innihalds-
efnum. Mótið litlar bollur og
steikið þær við meðalhita.
Berið bollurnar fram með salati,
hvítlaukssósu og skreytið með
sítrónubátum.
Kjötbollur með
spagettí í tómatsósu
fyrir fjóra
Mjög vinsæll fjölskylduréttur
sem auðvelt er að útbúa.
600 g nautahakk
60 g parmesanostur
2 hvítlauksrif, rifin eða pressuð
½ tsk. salt
½ tsk. pipar
Tómatsósa
2 msk. olía
1 laukur, smátt skorinn
1 stórt hvítlauksrif, smátt skorið
1 dós tómatar í bitum
2 msk. tómatmauk
1 tsk. sykur
1 dl kjötsoð
2 msk. basil, smátt skorið
½ tsk. salt
½ tsk. pipar
500 g spagettí (eða tagliatelle
eftir smekk)
Blandið öllu saman í nautahakk-
ið og mótið litlar bollur. Brúnið
þær á heitri pönnu upp úr smjöri
og olíu. Lækkið hitann og steikið
áfram í 6-8 mínútur.
Hitið olíu á annarri pönnu og
steikið lauk og hvítlauk. Látið
mýkjast en ekki brenna. Bætið
tómat og tómatmauki út á
pönnuna ásamt sykri og soði.
Sjóðið upp og látið sósuna malla
í 15 mínútur. Bætið basil, salti
og pipar við í lokin. Sumir vilja
mauka sósuna með töfrasprota
en það er smekksatriði.
Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum
á umbúðum. Um það bil 80-100
g á mann. Setjið pastað út í
sósuna í lokin ásamt bollunum.
Stráið parmesan-osti yfir. Það
er reyndar líka gott að setja
smávegis í sósuna á meðan hún
mallar.
Síðan er bara að velja sér upp-
skrift og njóta sem allra best.
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA
Arctic star sæbjúgnahylki
innihalda yfir fimmtíu tegundir af
næringarefnum, og eru þekkt fyrir:
• Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið
• Að auka blóðflæði
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla að
myndun húðpróteins og insúlins
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er
Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á www.arcticstar.is
Arctic Star sæbjúgnahylki
Varan fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hagkaupum.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
2
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
8
-7
0
D
8
2
2
7
8
-6
F
9
C
2
2
7
8
-6
E
6
0
2
2
7
8
-6
D
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K