Fréttablaðið - 02.03.2019, Blaðsíða 90
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við fráfall og útför
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Guðmundar H. Gíslasonar
Skúlagötu 20,
áður Meistaravöllum 31.
Sérstakar þakkir til starfsfólks fimmtu hæðar
hjúkrunarheimilisins Skjóls og dagvistunar á Vitatorgi.
Bjarney Kristín Viggósdóttir
G. Viggó Guðmundsson
Gunnar Ingi Guðmundsson Sigríður Kristinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Sigrún Óskarsdóttir,
guðfræðingur
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þórólfur Friðgeirsson
fyrrverandi skólastjóri og kennari,
Árskógum 8, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi
föstudaginn 22. febrúar verður jarðsunginn
frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 6. mars klukkan 13.00.
Kristín Lilja Halldórsdóttir
Ágústa Þórólfsdóttir Sveinn K. Guðjónsson
Elsa Björg Þórólfsdóttir Alfreð S. Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Jónsdóttir
áður til heimilis að Sléttuvegi 13,
Reykjavík,
sem lést þriðjudaginn 19. febrúar
síðastliðinn, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 5. mars kl. 13.
Jóna Helgadóttir
Eysteinn Helgason Kristín Rútsdóttir
Matthildur Helgadóttir Tómas Óli Jónsson
Guðleif Helgadóttir Haraldur Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Jónas Hallgrímsson
frá Knappsstöðum í Fljótum,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
miðvikudaginn 27. febrúar. Hann
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 7. mars klukkan 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir.
Hulda Erlingsdóttir
Dagur Jónasson Helga H. Þórarinsdóttir
Hlynur Jónasson
Halldór Auðarson
og barnabörn.
Ástkæri bróðir okkar og frændi,
Oddur Kjartansson
lést þann 17. febrúar. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum stuðning og vinsemd.
Jón Björgvin Kjartansson
Jóhann Ólafur Kjartansson
Erla Sólbjörg Kjartansdóttir Kristján Þórarinsson
Brynja Kjartansdóttir
Kjartan Kristjánsson Berglind Guðmundsdóttir
Ágústa Kristjánsdóttir Björn Baldvinsson
Þórarinn Kristjánsson Sóley Sverrisdóttir
Kristján Kristjánsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Guðmundur Malmquist
fv. forstjóri Byggðastofnunar,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold
föstudaginn 1. mars. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni fimmtudaginn 7. mars kl. 15.
Sigríður J. Malmquist
Ásta Malmquist Eggert Teitsson
Rúna Malmquist Torfi Kristjánsson
Jón Eðvald Malmquist Guðrún K. Rúnarsdóttir
og barnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Ástþórs Ragnarssonar
iðnhönnuðar og kennara.
Elísabet Harpa Steinarsdóttir
Gauti Þór Ástþórsson Ágústa M. Þorsteinsdóttir
Erna Ástþórsdóttir
Þorsteinn Jón Gautason Ástþór Ragnar Gautason
Ásta Þórunn Ólafsdóttir
Við farfuglar höfum alla tíð haft það að mark-miði að stuðla að ferða-lögum fyrir ungt fólk, ferðalögum sem er ætlað að auka skilning á nátt-
úrunni, menningarlegu gildi sam-
félaga og þannig auka skilning á milli
mismunandi menningarheima,“ segir
Stefán Haraldsson, stjórnarformaður
Bandalags íslenskra farfugla.
Um helgina fögnuðu farfuglar á
Íslandi 80 ára afmæli samtakanna.
Mikið hefur breyst í starfseminni á
þeim átta áratugum sem eru liðnir.
Mikil bjartsýni ríkti á vordögum 1939
þegar 1.700 félagsmenn settu á laggirnar
farfugladeildir hringinn í kringum
landið. Var meðal annars farið í hjóla-
ferðir um landið fyrstu sumrin. Síðan
byrjaði heimsstyrjöldin fyrir alvöru og í
lok hennar sat eftir eitt farfuglaheimili í
Reykjavík og annað á Akureyri. Það var
ekki fyrr en á sjöunda áratugnum sem
Farfuglar fóru aftur í sókn. Í dag eru
Farfuglaheimilin 34 um land allt. Þrjú
heimili í Reykjavík eru í eigu samtak-
anna en önnur eru í eigu samstarfsaðila.
Stefán settist í stjórn Farfugla aðeins
14 ára gamall en í dag er hann um sex-
tugt. Hann segir mikið hafa breyst.
„Lengst framan af snerist þetta um ferð-
ir innanlands, rútuferðir með íslensk
ungmenni. Í dag snýst þetta að mestu
leyti um að halda utan um gistirekstur
fyrir erlenda ferðamenn.“ Gildin eru þó
áfram þau sömu. „Við leggjum áherslu
á að gestir blandist saman með því að
hafa einfalda svefnaðstöðu en stærra
sameiginlegt rými. Þarna þarf fólk að
elda mat og græja í samstarfi við aðra
gesti sem ýtir undir samtal og kynni.“
Samtökin eru óhagnaðardrifin og eru
hluti af alþjóðlegum góðgerðarsam-
tökum og stærstu hostelkeðju í heimi.
Íslensku farfuglarnir hafa gert sig gild-
andi á alþjóðavísu með því að vera leið-
andi í umhverfisvænni ferðaþjónustu.
Stefán segir farfuglana ekki hafa farið
varhluta af góðærinu í ferðaþjónust-
unni en það sé þægilegt að þurfa ekki
að hugsa um hagnað. „Við höfum ekki
lagt áherslu á að stækka, eina stóra fjár-
festing okkar undanfarið er Loft Hostel
í Reykjavík. Annars höldum við bara
okkar striki í samstarfi við einkaaðila
um allt land sem deila okkar hugsjón.“
Stefán segir að það sé enn verið
að vinna að af mælisdagsk ránni.
„Við munum blása til ýmiss konar
atburða og bjóða almenningi í heim-
sók n, það verðu r k y nnt síðar.“
arib@frettabladid.is
Farfuglar fagna 80 árum
Bandalag íslenskra farfugla er áttatíu ára. Margt hefur breyst í ferðamennsku hér á
landi á þessum átta áratugum að sögn Stefáns Haraldssonar formanns bandalagsins.
Farfuglar og staðbundið fiðurfé unir sér vel á hlaðinu við farfuglaheimilið Norður-Vík í Mýrdalnum. MYND/BRAGI JÓSEFSSON
2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R42 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
2
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
7
-F
0
7
8
2
2
7
7
-E
F
3
C
2
2
7
7
-E
E
0
0
2
2
7
7
-E
C
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K