Fréttablaðið - 02.03.2019, Blaðsíða 30
unum. Það er aðgerð þar sem allir
sitja við sama borð. Aftur, Kolbeinn
minn, að uppáhaldsfyrirtækinu
mínu, Ríkisútvarpinu.“ Þingmenn-
irnir hlæja.
Óheppni að vinna Útsvar
Óli Björn: Það veldur mér áhyggjum
að samkvæmt lögum þá ber þeim
að haga samkeppnisrekstri sínum
með ákveðnum hætti. Þeir fengu
aðlögunartíma en áttu frá og með
1. janúar 2018, að hafa samkeppnis-
reksturinn, m.a. auglýsingasöluna,
inni í sjálfstæðu dótturfélagi. Núna
er mars 2019 og Ríkisútvarpið hefur
enn ekki farið að lögum. Mér finnst
það alvarlegt, þegar áhrifamikil
ríkisstofnun, í þessu tilfelli fjöl-
miðill sem er áhrifameiri en flestir
aðrir, telur sig geta hagað málum
með þeim hætti að hún þurfi ekki
að fara að lögum sem um hana gilda.
Þetta skiptir máli, því þetta hefur
áhrif á reksturinn. Og í krafti þess-
arar yfirburðarstöðu sem Ríkisút-
varpið hefur, þá gengur stofnunin
þannig fram að hún ryksugar upp
auglýsingamarkaðinn á kostnað
einkareknu miðlanna. Þið sáuð
þetta í kringum heimsmeistara-
mótið í fótbolta,“ útskýrir Óli Björn
og vísar til þess þegar auglýsinga-
pakkar RÚV í kringum HM í knatt-
spyrnu í fyrra bundu auglýsingafé
fyrirtækja í landinu langt fram eftir
hausti.
Óli Björn heldur áfram. „Þetta
kemur líka niður á litlu staðbundnu
miðlunum. Ef þú ert svo óheppinn
að viðkomandi sveitarfélag kemst
í úrslit í Útsvari, þá kemur auglýs-
ingadeild ríkisins og straujar upp
þessar fáu krónur sem eru inni í
því samfélagi til auglýsinga. Þetta
er galið!
Við sjáum að þróunin út í heimi
er annars vegar samruni, til dæmis
hefur breski fjölmiðlamógúllinn
Rupert Murdoch biðlað til stjórn-
valda og óskað eftir leyfi handa rit-
stjórnum The Times og The Sunday
Times til að starfa saman og hins
vegar sjáum við f leiri sérhæfða
miðla ryðja sér til rúms. Í frum-
varpsdrögum Lilju er ekki gert ráð
fyrir að styrkja fjölmiðla sem eru
vandaðir en sérhæfðir, á borð við
fotbolti.net og turisti.is?
Kolbeinn: Þarna erum við að
tala um breytt eðli. Hvað er fjöl-
miðill? Í frumvarpsdrögunum er
skilgreining og svo sagt að þurfi að
vera þrír í ritstjórn svo viðkomandi
fái styrk. En maður fer og opnar það
sem í gamla daga hét bloggsíða og
svo sérðu þar auglýsingar og það er
orðið fjölmiðill. Eru ekki feisbúkk
síður sumra orðnar fjölmiðill?
Óli Björn: Og Snapchat.
Kolbeinn: Það er verið að reyna
að skilgreina kvikt fyrirbæri. Það
mun verða próblematískt. Málið
er f lókið. En þá bakka ég og hugsa,
af hverju dettur okkur í hug að við
eigum að vera með einhverjar sér-
stakar aðgerðir fyrir almenna fjöl-
miðla? Jú, það er hluti af hinu lýð-
ræðislega kerfi. Þess vegna er ég
ekki sammála því að það sé alltaf
bara markaðurinn sem eigi að díla
við þetta. Ef þetta væri venjulegt
fyrirtæki á markaði, þá værum við
ekkert að spá í þetta
Hanna Katrín: En þú getur verið
með frjálsan markað en samt
rammað hann inn. Þetta er ekki
einfalt, en það sem er erfitt við
þessar skilyrðingar allar er að þær
lúta að forminu en ekki efninu. Ég
veit að það er miklu auðveldara að
setja skilyrði um formið, um starfs-
mannafjölda, um veltu og allt þetta,
en efnið er það sem skiptir máli.
Tollalækkun eða áhugavert fólk?
Kolbeinn: Þá erum við komin í
umræðu sem maður hefur átt á rit-
stjórnum. Hvort er mikilvægara,
frétt á forsíðu um tollalækkun eða
frétt á forsíðu af fólki sem er að gera
áhugaverða hluti?
Hanna Katrín: Algjörlega, en
þarna er verið að ræða um hvort
20 manna ritstjórn er með betra
efni en þriggja manna ritstjórn, er
staðbundinn miðill með lítilvægari
fréttir en miðill sem vísar á lands-
vísu? Við getum alveg talið fólk
í vinnu og við getum talið klikk.
Hvað eigum við að miða við?
Kolbeinn: Við erum að glíma við
þær ómögulegu aðstæður að það er
verið að skilgreina fyrirbæri sem
ekki er hægt að skilgreina.
Hanna Katrín: Hvernig eigum
við þá að styrkja miðlana? Það eru
almennar aðgerðir. Til dæmis trygg-
ingargjaldið sem Óli Björn hefur
nefnt.
Kolbeinn: Já, það þarf að búa til
ramma og gera eitthvað.Afnema
virðisaukaskatt af áskriftartekjum?
Er hægt að koma því þannig fyrir að
fjölmiðlar séu undanþegnir öllum
virðisauka? Skiptir það máli? Ég er
til í að skoða þetta allt. Á endanum
þarftu að skilgreina þetta. Það er
gallinn við lagasetningu.
Óli Björn: Ég hygg að ég hafi varp-
að þessari hugmynd um að afnema
virðisaukann af áskriftum.
Hanna Katrín: Sú hugmynd er
vond.
Óli Björn: Já, hún er vond. Vegna
þess hún að nær ekki utan um alla
fjölmiðla. Fjölmiðlar sem eru ekki
að byggja sinn tekjugrunn á áskrift-
um væru undanskildir. Af því leyti
var þetta ekki skynsamlegt. Trygg-
ingargjaldsleiðin er þó þannig að
menn eru allir jafnt settir. Sitja við
sama borð. Þetta er skrýtið fyrir
mann eins og mig, og alveg örugg-
lega fyrir vinkonu mína Hönnu
Katrínu, að standa frammi fyrir því
að í staðinn fyrir að vera að kljást
við það að búa til almennilegar
leikreglur og skattaumhverfi, sem
er einfalt og skiljanlegt, þá erum
við vegna aðstæðna að leita leiða til
sértækra aðgerða. Fíllinn í stofunni
heitir Ríkisútvarpið og svo er sótt
að innlendum fjölmiðlum utan frá.
Þetta er vont, en ég sé ekki annað í
stöðunni. Það er hinn sári veruleiki
sem blasir við.
Hanna Katrín: Með tryggingar-
gjaldið. Mig verkjar örlítið undan
þeirri hugmynd, því ég vil hafa
þetta einfalt og lækka tryggingar-
gjald á öll fyrirtæki.
Óli Björn: Prinsippið er rétt.
Hvað með samkeppnisumhverfið?
Eiga kannski Fréttablaðið og Mogg-
inn að sameinast? Er það framtíðin?
Hanna Katrín: Það væri ekki gott.
Óli Björn: Það væri vont. Ég er nú
langelstur af ykkur og alinn upp við
fullt af dagblöðum, Alþýðublaðið og
Tímann og auðvitað var Mogginn
f laggskipið, svo Þjóðviljinn, Vísir
og Dagblaðið, Helgarpósturinn.
Þarna var gerjun, mismunandi
hugmyndafræði sem fjölmiðlarnir
byggðu á. Það skiptir máli að það
séu mismunandi sjónarhorn tekin
á þjóðfélagsumræðuna á fréttirnar
og líka hinn mannlega þátt. Eftir
því sem miðlarnir eru fjölbreyti-
legri að formi og efni þá held ég
að þjóðfélagið hagnist á því þess
vegna vona ég nú að við séum ekki
að horfa upp á að einkareknir fjöl-
miðlar hætti, af því þeir gefi upp
öndina eða neyðist til að sameinast.
En það er annað mál, að það hlýtur
að vera skynsamlegt að móta inn í
samkeppnislöggjöfina, form og regl-
ur sem heimila fjölmiðlum samstarf
á ákveðnum þáttum til að nýta inn-
viði, prentun, dreifingu en samt sem
áður séu þarna múrar. Einkareknir
fjölmiðlar verða að keppa hver við
annan með sama hætti og þeir þurfa
að keppa við Efstaleitið.
Kolbeinn: Óli Björn talar um
f lóruna í dagblöðum. Við skulum
ekki gleyma því að þetta voru allt
f lokksblöð, f lest þeirra, svo fór
reyndar að kvarnast úr því. Þegar
blómatíminn er eru þetta blöð sem
f lokkarnir ákveða að setja kraft í,
setja fjármagn í og nýta sitt félaga-
tal inn í áskrift.
Hanna Katrín: Við getum eytt
stjórnmálaf lokkapeningnum í
þetta, segir hún, létt í bragði. Þing-
mennirnir hlæja.
„Meira svona költ“
Kolbeinn: Á tímabili sátu þing-
fréttaritarar þessara blaða þing-
flokksfundi sinna flokka. Og ef þú
last þetta allt og deildir með fjölda
fjölmiðla þá fékkstu ágætismynd af
því sem var að gerast. Og svo nátt-
úrulega hættu stjórnmálaf lokk-
arnir að gera þetta. Þá er það eftir,
hver er til þess fallinn eða ætti að
reka fjölmiðil á Íslandi?
Hanna Katrín: Sumir stjórnmála-
flokkar hættu því, að minnsta kosti.
Þingmennirnir hlæja og líta á Óla
Björn.
Kolbeinn: Suma lít ég nú ekki á
sem stjórnmálaflokka, segir hann
og klappar Óla Birni á bakið. „Meira
svona költ.“ Þau hlæja.
Kolbeinn heldur áfram. „En án
gríns. Af hverju ættirðu að reka fjöl-
miðil á Íslandi? Hvað er það‘? Jú, þú
sérð einhverja litla fjölmiðla sem
búa til starfsemi í kringum vinnu
sína og svo eðlilega, eru þetta bara
viðskipti.
Óli Björn: Svo er blaðamennskan
auðvitað sjúkdómur.
Hanna Katrín: Þetta er hugsjóna-
starf og ávanabindandi.
Kolbeinn: Við höfum unnið í
þessu og sýkst. Látum yfir okkur
ganga að vinna fyrir lúsarlaun í
langan tíma. Þetta er alþjóðlegt
vandamál, og þess vegna segi ég,
ræðum RÚV, en það er ekki eins
og Times og Sunday Times séu að
keppa við RÚV. Þetta er alls staðar
vandamál. Vandinn er þessi. Við
viljum ekki borga fyrir efnið sem
við fáum. En við viljum samt að
efnið sé búið til. Ætlum við þá sem
samfélag að borga fyrir það? Þetta
frumvarp er tilraun til þess.
Hanna Katrín: Við viljum ekki
borga fyrir það því það er alltaf ein-
hver annar tilbúinn að gefa okkur
efnið ókeypis. Viðskiptamódelið
er skekkt. Við höfum ekki náð takti
síðan fyrsta fréttin fór „viral“.
Verður að taka á RÚV
Frumvarpið gerir ráð fyrir því að
Fjölmiðlanefnd, opinber stofnun,
sjái til þess að öll skilyrði séu upp-
fyllt. Hvað finnst ykkur um það?
Kolbeinn: Allt sem heitir að meta
efni og segja að eitthvað sé ofar öðru
finnst mér varhugavert. Ég var í
blaðamennsku í mörg ár og það er
ekkert hugtak sem fer jafn mikið í
taugarnar á mér og „rannsóknar-
blaðamennska“. Allar fréttir sem ég
skrifaði leit ég á sem rannsóknar-
blaðamennsku. Er það þannig að
fólkið sem skrifar innblaðið sé að
skila minna mikilvægri vinnu en
einhver annar? Alls ekki. Allt sem
heitir að meta efni, ég ber kvíðboga
fyrir því. Þess vegna er einfaldasta
leiðin, þó hún sé fráleitt gallalaus, að
horfa á formið.
Hanna Katrín: Að miða við stærð
fjölmiðils?
Kolbeinn: Já, að þú takir þá óum-
deilanlegu staðreynd og miðir við
hana. Um leið og þú ert farinn að
segja, ég vil styðja þennan því hann
skrifar að mínu mati svo góðar
fréttir – þá ertu komin á hála braut.
Óli Björn: Það er ekkert galla-
laust þegar þú tekur ákvörðun
um að ríkið sé að fara skipta sér af
einhverju í samfélaginu. Þó maður
hafi efasemdir um það frumvarp
sem nú liggur fyrir og á eftir að
taka breytingum, er það gleðilega
í þessu að þetta neyðir okkur á
þingi að fara í þessa umræðu. Svara
þeirri spurningu hvort við þurfum
að skilgreina hlutverk Ríkisút-
varpsins upp á nýtt? Þurfum við að
breyta lögum um Ríkisútvarpið?
Þurfum við að jafna stöðu einka-
rekinna fjölmiðla gagnvart ríkinu?
Svar mitt er já. Við þurfum að ræða
með hvaða hætti, að ríkið reyni að
tryggja fjölbreytta fjölmiðlun hér
á landi án þess að valda of miklum
skaða. Það verður ekki þannig að
það sé einhver ríkisstofnun sem
heitir Fjölmiðlanefnd sem á að
vera einhvers konar yfirhattur á
íslenskum fjölmiðlum. Ég vara
mjög við því.
VIÐ VILJUM EKKI BORGA FYRIR ÞAÐ ÞVÍ ÞAÐ
ER ALLTAF EINHVER ANNAR TILBÚINN AÐ
GEFA OKKUR EFNIÐ ÓKEYPIS. VIÐSKIPTA-
MÓDELIÐ ER SKEKKT. VIÐ HÖFUM EKKI NÁÐ
TAKTI SÍÐAN FYRSTA FRÉTTIN FÓR „VIRAL“.
ÞAÐ VERÐUR EKKI ÞANNIG AÐ ÞAÐ SÉ EIN-
HVER RÍKISSTOFNUN SEM HEITIR FJÖL-
MIÐLANEFND SEM Á AÐ VERA EINHVERS
KONAR YFIRHATTUR Á ÍSLENSKUM FJÖL-
MIÐLUM. ÉG VARA MJÖG VIÐ ÞVÍ.
ÞAÐ ER EKKERT HUGTAK SEM FER JAFN
MIKIÐ Í TAUGARNAR Á MÉR OG „RANNSÓKN-
ARBLAÐAMENNSKA“. ALLAR FRÉTTIR SEM
ÉG SKRIFAÐI LEIT ÉG Á SEM RANNSÓKNAR-
BLAÐAMENNSKU.
2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
7
-F
F
4
8
2
2
7
7
-F
E
0
C
2
2
7
7
-F
C
D
0
2
2
7
7
-F
B
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
1
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K